Dagur - 06.08.1998, Síða 1
4-
t
Húnn Snædal bæði smíðarog
flýgiir listflugvélum. Hann
segir það hættulegt en þó sé
jafnvel hættulegra að hjóla.
Þetta sé eins og hver önnur
della.
„Þetta er meðfædd flugdella. Eg byrjaði að
fljúga árið 1961 hjá Tryggva Helgasyni, þá
17 ára gamall," segir Húnn Snædal list-
flugmaður. Húnn smíðaði tvíþekjuna TF-
KOT sem reglulega flýgur í nágrenni Ak-
ureyrar með alls kyns kúnstum og klækj-
um.
Hannaði vélina sína sjálfui
Húnn var einnig í flugmódelum og
svifflugum á sínum yngri árum. „Ég lamd-
ist á Melgerðismelunum í hvaða veðri sem
var með mörgum góðum mönnum eins og
Arngrími Jóhannssyni sem nú rekur flugfé-
lagið Atlanta. Við höfðum ekkert annað að
gera en að vera þar allar helgar og kvöld og
djöflast í þessu.“ Húnn tók svo seinna at-
vinnuflugpróf og blindflugspróf og vinnur í
dag í flugturninum á Akureyrarflugvelli.
Fyrstu vél sína byggði Húnn árið 1976
og hefur hangið í byggingavörudeild KEA
um tíma. Hann er ekkert lærður í flug-
vélasmíði og hefur alla sína þekkingu úr
fræðitímaritum. „Ég hef mikið lesið mér
til um þetta. I þessu er
sérfræði og
flugvélar eru byggðar eftir sérstökum regl-
um og aðferðum. Þetta er ekkert ósvipað
því að smíða bát, flugmódel eða eitthvað
sem krefst nákvæmni.11 Smíðin á TF-KOT
hófst árið 1987 og tók þrjú ár. „Ég keypti
þrjár teikningar af flugvélum og var ekki
alveg nógu ánægður með útfærsluna sem
þar var og hannaði hana því sjálfur."
Húnn segir vélina mjög dýra en allir hlut-
ir í hana eru fluttir að utan. Hann er þó
mjög ánægður með vélina. „Hún er yndis-
lega góð, svo góð reyndar að því miður
mun ég sjálfsagt ekki geta gert betri. Það
má segja að ég hafi toppað mig.“
Engin trygging fyrir eHinni
Húnn segir listflugið vera mikið til eins og
aðrar (þróttir. Engum sé það meðfætt
heldur byggist allt á ögun og æfingu.
Hann á að baki um 400 tíma í Iistflugi og
TF-KOT er ein af örfáum vélum á landinu
sem er sérstaklega gerð íý'rir listflug.
„Þetta er ekkert ólíkt mörgu öðru, til
dæmis mótorhjólum og torfærubílum. Ég
hef þó sloppið með heila flug\'él hingað til
en mér sýnist stundum lítið eftir af tor-
færutröllunum þegar keppni er lokið.“
Húnn segir þó aflið einungis hluta af
þessu. „Inn í þetta spilar einnig mýkt, tón-
list - það er taktur í þessu. Það er erfitt að
lýsa þessu en þetta verður eins og agaður
skauta- eða ballettdans. Það er eitthvað
slíkt sem við erum að sækjast eftir.“ Húnn
segir tvennar sögur vera af frelsinu sem
gjarnan er talað um varðandi flug. „Ef þú
ert í fimmtán þúsund feta hæð og með út-
sýni yfir allt fær maður auðHtað vissa
frelsistilfinningu. Það breytir því hins veg-
ar ekki að þú ert reyrður niður í pínulítinn
klefa."
- En er þetta ekki hættulegt?
„Þetta er náttúrulega stórhættulegt en
ég mundi segja að það væri hættulegra að
hjóla á reiðhjóli meðfram hraðbraut eða
keyra á 120 km hraða. Þetta er bara eins
og með allt annað. Það þarf að gera þetta
rétt, sé það ekki gert getur ýmislegt farið
úrskeiðis. Það er enginn með tryggingu
fyrir ellinni," segir Húnn og hlær.
Enginn adrenalínföáU
A Islandi eru innan við tíu manns sem
stunda listflug en til stendur þó að halda
mót síðar í þessum mánuði. Listflugið er
talsvert flókið og þar gilda ákveðnar regl-
ur. Farnir eru alls kyns hringir, lykkjur og
annað í þeim dúr. En er Húnn adrenalín-
fíkill? „Nei, alls ekki. Ég er enginn adrena-
línfíkill. Þetta er bara nákvæmlega eins
della og bíladella. Það eru bara pínulítið
önnur númer. Utrásin er bara aðeins
öðruvísi.“ -jv
I
8.114,*»
Vetð frá
8.658,-»
Verð frá
10.430,- stgr. )
. . . g æ ð i á
frábæru verði!
íTni'niiii
est seldu dekk á íslandi!
UNIROYAL
Sterk og
vönduð jeppadekk fyrir
íslenskar aðstæður
Verð frá
9.484,-
Gúmmívinnustofan ehf.
Réttarhálsi 2, sími: 587 5588
Skipholti 35, sími: 553 1055
Þjónustuaðilar um land allt.
-ii<! ujTjv nai'jfilindfUuld abluÁ ’a.. W* ’■m*
nu'Jj i .c r í
tnnjJ