Dagur - 06.08.1998, Page 9
V^r.
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 - 25
SMÁAUGLÝSINGAR
Húsnæði í boði_________________
Tíl leigu er 2ja herb. íbúð á Eyrinni á Ak-
ureyri.
Uppl.ís. 462 1921.
Húsnæði óskast__________________
Hjón með tvö börn óska eftir að taka á
leigu 3ja-4ra herb. íbúð á Brekkunni.
Skilvísum greiðslum og góðri umgengni
heitið.
Ester og Árni, sími 462 5765, 898 5587.
Óska eftir að taka á leigu 3ja-4ra herb.
íbúð á Akureyri eða nágrenni. Reglusemi
og skilvísum greiðslum heitið.
Uppl. í s. 853 1894.
Gisting í Reykjavík
Vel búin 2ja herb. íbúð skammt frá
Kringlunni.
Sængurföt og handklæði fylgja.
Grímur og Anna, sími 587 0970 eða 896
6790.
Au-pair ___________________________
Au pair i Noregi. Ert þú 18 ára stúlka, eða
eldri, og langar að koma til Noregs? Ef svo
er og þú reykir ekki en hefur gaman af
börnum erum við fjölskyldan fyrir þig. Við
erum íslensk-norsk fjölskylda sem óskum
eftir stúlku til að líta eftir tveimur rollingum
(tvíburum).
Ef þú átt auðvelt með að umgangast börn
og talar rétta og góða íslensku viljum við
gjarnan fá þig.
Allar upplýsingar eru veittar í sima 0047-
91-31-10-21. Hringdu endilega og leggðu
inn skilaboð með nafni og síma. Síðan
hringjum við.
Til sölu_________________________________
Til sölu er tæplega 40 m2 íbúð í Kópa-
vogi. Góður staður, góð sameign. Verð 3,8
milljónir.
Uppl. í s. 456 7251.
Til sölu 54 kanínubúr. Stærð: L=62 cm.
B=49 cm. H=31 cm. Sjálfbrynningarstútar í
51 búr. Gotkassar 9 stk. Rekkar fyrir öll
búrin.
Upplýsingar í símboða 845 5182.
Heilsuhornið________________________
Munið - Við erum flutt upp í Kaupvangs-
stræti (áður matvörudeild KEA). Þar
erum við sólarmegin í Gilinu.
Mikið úrval af bætiefnum fyrir alla aldurs-
hópa. Matvörur, bæði fyrir fólk með sér-
þarfir og alla sem vilja eitthvað gott.
Ilmolíur, ilmkjarnaolíur og nuddolíur.
Snyrtivörur úr riki náttúrunnar. Te og kaffi.
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi.
10% afsláttur fyrir félag aldraðra.
Verið velkomin í okkar rúmgóðu, glæsilegu
verslun.
Heilsuhornið í Gilinu
sími / fax 462 1889.
KFUM og K
Kaffisala verður í sumarbúðunum að
Hólavatni í Eyjafjarðarsveit sunnudaginn 9.
ágúst kl. 14.30-18.00. Verið velkomin.
Hallgrímskirkja
Orgeltónlist kl. 12-12.30. Friðrik Vignir
Stefánsson leikur.
Háteigskirkja
Kvöldsöngur með Taizé tónlist kl. 21.00.
Kyrrð, ihugun, endurnæring. Allir hjartanle-
ga velkomnir.
Tapað - fundið
Tasja er týnd. Tasja er tíu vikna Peking tik.
Hún týndist á föstudagskvöldið 31. ágúst
frá heimili sínu á Hauganesi við Eyjafjörð.
Ef einhver hefur verið svo góð(ur) að taka
hana upp í bíl vinsamlega hafðu þá sam-
band heim í síma 466 1024 eða við
lögregluna á Dalvík eða Akureyri.
Fundarlaun í boði.
Takið eftir____________________
Stígamót, samtök kvenna gegn kynfer-
ðislegu ofbeldi.
Símatími til kl. 19.00 í sima 562 6868.
FBA deildin á Húsavík.
Fundir vikulega á sunnudögum kl. 20.30 og
á mánudögum kl. 22 í Kirkjubæ.
Frá Sálarrannsóknafélaginu á Akureyri.
Minningarkort félagsins fást í Bókval og
Möppudýrinu Sunnuhlíð og hjá félaginu.
Stjórnin.
Minningarkort Menningarsjóðs kvenna i
Hálshreppi, fást i Bókabúðinni Bókval.
Minningarkort Sjálfsbjargar á Akureyri
og nágrenni fást í Bókabúð Jónasar,
Bókval, Akri Kaupangi og Sjálfsbjörg
Bjargi.
Minningarspjöld Kvenfélagsins
Framtíðar fást í: Bókabúð Jónasar,
Blómabúðinni Akri, Dvalarheimilinu Hlíð,
Dvalarheimilinu Skjaldarvík, Möppudýrinu
Sunnuhlíð og hjá Margréti Kröyer,
Helgamagrastræti 9.
Minningarspjöld Hjálpræðishersins fást
hjá Hermínu Jónsdóttur, Strandgötu 25b, 2.
hæð.
Minningarkort Styrktarsjóðs hjartasjúk-
linga fást í öllum bókaverslunum á Akureyri
og einnig í Blómabúðinni Akri, Kaupangi.
Minningarkort sjóðs Guðnýjar Jónsdótt-
ur og Ólafs Guðmundssonar frá Sörla-
stöðum í Fnjóskadal til styrktar sjúkum og
fötluðum í kirkjusóknum Fnjóskadals fást í
Bókabúð Jónasar.
Innilegar þakkir til starfsfólks og heimilisfólks í Skjaldarvík.
Ökukennsla
Kenni á nýjan Mercedes Benz A-class
(litla Benzinn).
Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan
daginn, á kvöldin og um helgar.
Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari
Þingvallastræti 18
heimasími 462 3837
GSM 893 3440.
Fundir
Stuðningshópur fólks með hálsáverka,
SHHÁ, verður með fund í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju 6. ágúst kl. 20.00, gengið
inn um kapelludyr. Fundarefni: Slysa-
móttakan. Nefndin.
Árnað heilla
Þessi íturvaxni piltur, Hallgrímur Stefán
Ingólfsson, á afmæli í dag, 6. ágúst. Hann
er orðinn fullorðinn eins og myndin ber
með sér.
Þeim sem vilja sjá meira, eða senda Hall-
grími kveðju á afmælisdaginn, er bent á að
skilja eftir skilaboð á netfanginu still@nett.is
Kirkjustarf______________________
Villingaholtskirkja í Flóa
Kvöldmessa nk. sunnudag kl. 21.00.
Kristinn Á. Friðfinnsson.
Safnkirkjan í Árbæ
Messa nk. sunnudag kl. 14.30.
Kristinn Á. Friðfinnsson.
Aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI MAGNÚS INGÓLFSSON
Drekagili 18, Akureyri,
sem lést þriðjudaginn 28. júlí, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 7. ágúst kl. 13.30.
Björg Sigurjónsdóttir,
Margrét Árnadóttir, Heimir Tómasson,
Auður Árnadóttir, Snæbjörn Sigurðsson,
Gunnlaug Árnadóttir, Gunnar Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug til
okkar við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu
HRAFNHILDAR STEFÁNSDÓTTUR
Brekkutúni 11,
Sauðárkróki.
Stefán Guðmundsson,
Ómar Bragi Stefánsson, María Björk Ingvadóttir,
Hjördís Stefánsdóttir, Kristinn Jens Sigurþórsson,
Stefán Vagn Stefánsson, Hrafnhildur Guðjónsdóttir,
og barnabörn.
■ HUflfl ER Á SEYÐI?
NORRÆN RÓMANTÍK
í kvöld flytja þau Marta G.
Halldórsdóttir og Orn Magn-
ússon norræna rómantíska
sumartónlist í Kaffileikhúsinu.
Lögð verður áhersla á heimilis-
lega stemmingu í anda gömlu
stofutónleikanna þar sem flutt
verða ástarljóð, náttúrustemm-
ingar og þjóðlög. A efnis-
skránni eru Iög eftir Sigvalda
Kaldalóns, Edward Grieg, Jean
Sibelius og Atla Heimi Sveins-
son.
NORÐURLAND
Ferðafélag Akureyrar
Helgina 7.-9. ágúst efnir Ferða-
félag Akureyrar til jeppaferðar.
Lagt er af stað á föstudag kl.
18.00 frá skrifstofu félagsins.
Ekið verður inn og upp úr Eyja-
firði að Laugafelli en þar er gist
í skála félagsins. A laugardag-
inn er ekið frá Laugafelli inn á
Sprengisand og farin Gæsa-
vatnaleið og í Dreka. Þar er gist
seinni nóttina. A sunnudag er
fyrirhugað að skoða Drekagil í
DyngjufjöIIum, ganga inn að
Oskjuvatni og halda síðan heim
með viðkomu í Herðubreiðar-
lindum.
Laugardaginn 8. ágúst er
gönguferð á vegum Ferðafélags
Akureyrar. Gegnið verður á
Strýtu og Kistu í Vindheima-
fjallgarði. Brottför kl. 9 um
morguninn.
Upplýsingar og skráning á skrif-
stofunni sem er opin virka daga
kl. 16-19, sími 462 2720.
Djass í Deiglunni
Þóra Gréta Þórisdóttir söng-
kona og tríó djassleikara sjá um
sveifluna á djassheitum
fimmtudegi í Deiglunni á Akur-
eyri í kvöld kl. 21.30. Jazz-
ldúbbur Akureyrar stendur fyrir
tónleikunum og er aðgangur
ókeypis. Tríóið skipa píanóleik-
arinn Oskar Einarsson,
trommuleikarinn Einar Valur
Scheving og bassaleikarinn Páll
Pálsson. A tónleikunum munu
hljóma kunnugleg lög frá Ell-
ington til Monk og einnig verða
flutt sígræn lög söngleikjanna.
Söngvaka í Minjasafhskirkj-
unni
I kvöld kl. 21 verður söngvaka í
Minjasafnskirkjunni á Akureyri.
Flutt eru sýnishorn úr íslenskri
tónlistarsögu, svo sem rímur,
tvíundarsöngur, sálmar og eldri
og yngri sönglög. Flytjendur eru
Sigríður Iva Þórarinsdóttir og
Þórarinn Hjartarson. Miðaverð
er kr. 700.
HOFUDBORGARSVÆÐIÐ
Heimildarmyndir
Galleríið Fiskurinn við Skóla-
vörðustíg 22c heldur áfram að
sýna heimildarmyndir úr ýms-
um áttum, annan hvern dag, á
meðan myndlistarsýning^r í
galleríinu eru opnar. Heimild-
armyndirnar eru sýndar á
klukkutíma fresti á opnunar-
tíma frá 14 til 18 og er öllum
heimill aðgangur. I dag verður
sýnd myndin Stones and flies
(39 mínútur, frá 1988). Mynd
um myndlistarmanninn og
ferðalanginn Richard Long þar
sem hann labbar um Afríku, býr
til myndlist og spjallar um lífið
og tilveruna.
Hádegistónleikar í Hallgríms-
kirkju
Fimmtudagstónleikarnir í Hall-
grímskirkju eru í samstarfi við
Félag íslenskra organleikara og
að þessu sinni er það Friðrik
Vignir Stefánsson, organisti í
Grundarfirði, sem leikur á org-
elið. A efnisskrá hans er fyrst
hin þekkta Prelúdía í D-dúr eft-
ir Buxtehude. Þá leikur hann 6
sálmforleiki úr Litlu orgelbók-
inni m.a. „Jesú, heill míns
hjarta“, „I dauðans böndum
Drottinn á“, „Kom, Guð, skap-
ari, helgur andi“ og „Hver sem
ljúfan Guð lætur ráða“. Að lok-
um leikur hann „Tokkötu" í G-
dúr eftir Dubois og „Sortie“ í
Es-dúr eftir Lefébure-Wély.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.00
og er aðgangur ókeypis.
lAflAflAf VÍSIf
W W W W W W m W ■ ■ ■ m ■ — "
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR