Dagur - 21.08.1998, Síða 6
22-FÖSTVDAGUR 21. ÁGÚST 1998
rD^tr
Kristjana og
Dario í
Deiglunni
Kristjana Helgadóttir
og Dario Macaluso
halda tónleika í
Deiglunni kl. 20.30
á laugardags-
kvöldið. Á efnis-
skránni verða m.a.
verk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson,
Bach og gítartónlist
eftir 19. aldarskáldið
Mauro Giuliani. Krist-
jana leikur á þverflautu
og hefur komið fram hér
heima og erlendis, bæði
sem sólóisti og með öðrum tón-
listarmönnum. Dario Macaluso er ftalskur
og hefur unnið til fjölda verðlauna í heimalandi sínu fyrir gítarleik.
Hann hefur spilað víða, mest í Hollandi, Þýskalandi og á (talíu.
Sam-
skipti
manns
Stefanía Thors
og David Maj,
nemendur í leik-
list við Listahá-
skólann í Prag,
verða með leik-
sýningu í Kaffi-
leikhúsinu á
laugardag klukk-
an 22. Sýnt
verður leikritið Líf
Stefanía Thors og David Maj
koma frá Prag með sýningu í
Kaffíleikhúsið.
manns eftir Le-
oníd Andrejev, en
það fjallar um
samskipti manns-
ins við sjálfan sig,
fjölskyldu og æðri máttarvöld frá fæðingu til dauða.
i tilefni menningarnætur er miðaverð aðeins 450
krónur.
Tíu ára starfsafmæli í Viöey
Þriðjudaginn sl. voru 10 ár síðan endurreisn Viðeyjarstofu og kirkju lauk og staður-
inn var opnaður almenningi. Þessara tímamóta verður minnst á sunnudaginn kl. 13
þegar afmælishaldið hefst. Þá verður varðeldur tendraður og grillað. Leikarar úr
Latabæ stjórna leikjum fyrir börnin, farið verður í skoðunarferð, þar sem sjónum
verður einkum beint að Stofunni, kirkjunni og fornleifauppgreftinum, og margt fleira.
Um kvöldið verður svo boðið upp á þrírétta matseðil á góðu verði. Ferðir byrja kl.
13 og gjaldið verður með góðum afslætti eða 300 krónur fyrir fullorðna og 100
krónur fyrir börn.
■ HVAD ER Á SEYÐI?
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Píanótónleikar
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar hefur á árinu
staðið fyrir tónleikum í Hafnarborg
undir yfirskriftinni „Tónleikar á af-
mælisári.“ Tilefnið er 90 ára kaup-
staðarafmæli Hafnarfjarðar og 1 5 ára
afmæli Hafnarborgar. A sunnudags-
kvöldið heldur Valgerður Andrésdótt-
ir píanótónleika f Hafnarborg og eru
þeir fjórðu í röðinni. A efnisskrá tón-
leikanna verða verk eftir Beethoven,
Chopin og Bartók. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20.30.
Sumarferð Alþýðuflokksins
Arleg sumarferð Alþýðuflokksins verð-
ur farin á morgun kl. 10 frá Alþýðu-
hósinu, Hverfisgötu. Farið verður um
Vesturlandskjördæmi - Akranes, Borg-
arnes og Snæfellsnes. Veitingar og
skemmtidagskrá verða í boði. Allir
jafnaðarmenn eru velkomnir og skrán-
ing fer fram á skrifstofu Alþýðuflokks-
ins í síma 552-9244. Verð kr. 1500.
Fatahönnun
Að tilefni af „Menningarnótt í Reykja-
vík“ mun María Lovísa fatahönnuður
halda tískusýningu þann 22. ágúst kl.
20 að Skólavörðustíg 8. Að gefnu til-
efni verður gefinn tuttugu prósent af-
sláttur af öllum fatnaði. Allir velkomn-
ir.
Sýningarlok Aaiitu
Sýningu sænsku listakonunnar Anitu
Hedin í gallerí Handverks & Hönnun-
ar að Amtmannsstíg lýkur á morgun.
Anita sýnir textílmyndverk með
ásaumstækni.
Tvær sýningarlokanir í
Hafnarborg
Málverkasýningu fimm listamanna frá
Slesvík-Holsetalandi lýkur mánudaginn
24. ágúst. Listamennirnir fimm hafa
hlotið margskonar viðurkenningu fyrir
list sína. Sýningu Astu Arnadóttur lýk-
ur sömuleiðis á mánudaginn en um er
að ræða vatnslitasýningu. Opið er alla
daga nema þriðjudaga frá kl. 12-18.
Greifarnir á Ingólfskaffi
Greifarnir verða með hörkuball á Ing-
ólfskaffi á Iaugardagskvöldið. Þetta er
síðasta sumarið sem þeir spila saman í
bili og því hver að verða síðastur að
hlýða á félagana frá Húsavík.
Tónleikar í Hallgrímskirkju
Laugardaginn 22. ágúst kl. 12 Ieikur
Douglas A. Brotchie þrjú verk eftir
Bach, Samuel Scheidt og franska tón-
skáldið Jean Langlais í Hallgríms-
kirkju. A sunnudagskvöldið verða sjö-
undu tónleikarnir í tónleikaröðinni
„Sumarkvöld við orgelið." Að þessu
sinni er það Hörður Askelsson,
organisti Hallgrímskirkju á stóra Klais
orgelið, sem flytur fjögur verk. Það
fyrsta er „Snertur fyrir Hörð og nýja
orgelið“ sem Þorkell Sigurbjörnsson
samdi árið 1992 vegna vígslu Klais-
orgelsins. Verkið flytur Hörður nú til
heiðurs Þorkels. Annað verkið á efnis-
skránni er svítan „Veni creator spiri-
tus“ eftir Nicolas de Grigny. Þriðja
verk Harðar er hin mikla „Passacaclia“
Bachs í c-moll en umfangsmesta
verkið á tónleikunum er verkið „Sin-
fonia Arctandriae“ eftir norska tón-
skáldið Kjell Mörk Karlsen.
Gallerí Hornið
Laugardaginn 22. ágúst opnar Einar
Sebastian ljósmyndasýningu í Gallerí
Horninu. Þetta er fyrsta einkasýning
Einars og stendur hún til 9. septem-
ber.
Stuðmenn á Sýrlandi
Stuðmenn skemmta á Hótel Sýrlandi
(Broadway) í kvöld ásamt fleiri Iista-
mönnum. Húsið opnar kl. 21.
Síðustu sýningar á Hróa Hetti
Nú standa yfir allra síðustu sýningar á
Qölskylduleikritinu Hrói Höttur. Leik-
ritið hefur vcrið sýnt fimm sinnum í
viku frá frumsýningardegi sem var 10.
júlí sl. Síðustu sýningarnar eru í dag
kl. 14.30, á morgun kl. 14 og 16 og á
sunnudaginn kl. 14. Það er fyrirtækið
Dagur og nótt sem stendur að upp-
færslunni.
Háskólafyrirlestur
Mánudaginn 24. ágúst kl. 17.15 flytur
dr. James Conant prófcssor í heim-
speki við Háskólann við Pittsburg í
Bandaríkjunum fyrirlestur á vegum
heimspekideildar HI í stofu 101 í
Odda. Fyrirlesturinn (jallar um túlkun
á skáldsögu Georges OrwelIIs „1984.“
Verkleg sjóvinna
Verkleg sjóvinna verður kynnt í Sjó-
minjasafni Islands í Hafnarfirði,
sunnudaginn 23. ágúst kl. 13-17. Aldr-
aðir sjómenn sýna ýmis handbrögð við
sjóvinnu og gestum gefst kostur á að
þjálfa handtökin.
SUÐURLAND
Kammertónleikar á Kirkju-
bæjarklaustri
Hinir árlegu kammertónleikar á Kirkju-
bæjarklaustri verða haldnir nú um
helgina. I kvöld kl. 21 verður m.a.
fluttur dúó eftir Mozart og ljóð úr
Mörike eftir Hugo Wolf. A laugardags-
kvöldið kl. 21 verður m.a. flutt píanó-
tríó í B-dúr eftir Schubert. A tónleikum
sunnudagsins sem hefjast kl. 17 verða
m.a. fluttir Ijóðasöngvar eftir Pál Isólfs-
son og Karl Ó. Runólfsson. Það er
Edda Erlendsdóttir sem er stjórnandi
tónleikanna en með henni verða þau
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, sópran,
Selma Guðmundsdóttir, píanó, Sigrún
Eðvaldsdóttir, fiðla, Sigurlaug Eðvalds-
dóttir, fiðla, Helga Þórarinsdóttir, víóla
og Richard Talkowsky, selló. Tímasetn-
ing tónleikanna miðast við að fólk, sem
dvelur alla helgina á Klaustri, geti
einnig notið annarrar afþreyingar á
staðnum. Fjölmargar náttúruperlur eru
í næsta nágrenni eins og Lakagígar,
Núpsstaðaskógar, Landmannalaugar,
Skaftafell, Jökulsárlón og svo mætti
Iengi telja. Þá eru möguleikar til veiði
margvíslegir og einnig er golfvöllur,
sundlaug, hestaleigur og bátaleiga í
næsta nágrenni auk fjölmargra göngu-
leiða.
Eins árs afmæli
Hljómsveitin O.FL. frá Selfossi ætlar
að halda upp á 1 árs afmæli sitt ineð
þrusuballi á Inghóli á laugardagskvöld.
Boðsmiðar liggja á dreif í valinkunnum
verslunum á Selfossi og gilda þeir til
kl. 0.30. Eftir það kostar 1000 krónur
inn. TJ the DJ mun þeyta skífum og
rjóma og von cr á óvæntum uppákom-
um. Hljómsveitin hefur farið víða á
þessu ári og mælst vel fyrir.
Skítamórall á ferðinni
Hljómsveitin Skítamórall spilar í
Tjarnarlundi í Dölum í kvöld en þar
mun hljómsveitin ekki hafa spilað
áður. Kvöldið hefst á tónleikum kl.
20.30 og er ekkert aldurstakmark. Hið
eiginlega ball hefst kl. 23 og þar er
aldurstakmark 16 ár. Á Iaugardaginn
heldur hljómsveitin svo dansleik í Ut-
hlíð í Biskupstungum þar sem aldurs-
takmarkið verður hækkað í átján ár.
Hljómsveitin er nýkomin heim eftir
tveggja vikna dvöl á ströndum Beni-
dorm svo strákarnir ættu að vera brún-
ir og sællegir. Hljómsveitin hefur verið
gífurlega vinsæl í sumar og hefur selt
um 5000 eintök af nýlegri geislaplötu
sinni. Þá eiga þeir íjöldann allan af
sumarsmellum.
'hkjjdC
Cci |isiing é fíiísvcréi
Vi&uicgi fíug í vciur
1003
4. cg li. jemíer, i. fef> cg c. mcrs
acoo ki. sísSéiiur
á iso secijm
y&vöQc&ini
L 20daaar
FYrir4ra manna flölskyldu
34/25
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 böm 2ja til 11 ára.
Fyrir 2
49.2CC
ámann m.v.2fullorðna
Innifalið: Rug og gisting á Aloe, 1. des.
Ferðirtil og frá fiugvelli og flugvallaskattur.
Umboðsmenn
Plúsferða:
Sauðárkrókur
Skagfirðingabraut21
Sími: 453 6262
Grindavik;
Akranes
Pésinn, Stillholti 18 Rakkarinn, Víkurbraut 27 Eyjabúð, Strandvegi 60
Símí: 4314222/4312261 Sími: 426 8060 Símr. 481 1450
Akureyri: Sedoss:
Ráðhústorg 3 Suðurgarður hf, Austurvegi 22
Sími: 462 5000 Sími: 4821666
Vestmannaeyjar Keflavík;
Hafnargötu 15
Sími: 421 1353
Innifalið: Rug, gisting, flutningur til og frá flugvelli erlendis ásamt íslenskri fararstjórn.
Föst aukagjöld: Flugvallaskattur, fullorðnir kr. 2.410 og börn 2ja til og með 11 ára kr. 1.740.
Staðfestingargjald: kr. 14.000 á mann og kr. 7.000 á barn - greiðist innan viku frá bókun.
Barnaafsláttur 2ja til og með 11 ára kr. 12.000. Börn að 2ja ára aldri greiða kr. 7.000.
Sparnaðarbrottfarir: 4. og 11. janúar, 1. febrúar og 8. mars. 4.000 kr. afsláttur á mann ef
ferðapöntun er staðfest snemma. 150 sæti í boði. Verð miðast við flugverð og gengi 15. júlí 1998.
FERÐIR
VISA
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík
Sími: 568 2277 • Fax: 568 2274