Dagur - 13.11.1998, Qupperneq 4
4
FRÉTTIR
Alþjóðasamtök
smábátakarla
T
Landsamband smábátaeigenda er aðili að alþjóðasamtökum strand-
veiðimanna og fiskverkafólks.
Félagasamtök 32
ríkja. 21. nóvember
baráttudagur. Opnar
dyr að alþjóðastofn-
iiiiiiin. Ársfundur
kannski á íslandi.
Stofnuð hafa verið alþjóðasam-
tök strandveiðimanna og fisk-
verkafólks og var það gert þann
21. nóvember í fyrra á ráðstefnu
í Nýju Dheli á Indlandi. Að þess-
um samtökum standa félagasam-
tök 32 rfkja og er Landssamband
smábátaeigenda, LS, aðili að
þeim. Endanlegur stofnsamning-
ur samtakanna verður á ársfundi
þeirra árið 2000. Vonir standa til
að fundurinn verði haldinn á Is-
landi.
Baráttudagur 21. nóvember
Þetta kom m.a. fram í ræðu
Arthurs Bogasonar, formanns
Landsambands smábátaeigenda,
á 14. aðalfundi sambandsins á
Hótel Sögu í gær. A ráðstefnunni
á Indlandi var því lýst yfir að 21.
nóvember ár hvert verði alþjóða
baráttudagur strandveiðimanna
og fiskverkafólks. Þá er ætlunin
að efna til margvíslegra aðgerða
s.s. kröfuganga, verkfalla, brydda
uppá ýmsum táknrænum að-
gerðum ásamt útgáfu á ýmis
konar fræðsluefni. Stofnun sam-
takanna gerir það hinsvegar að
verkum að stofna verður félag
strandveiðimanna og fiskverka-
fólks við Atlantshafið. Verið er að
vinna að því verki af hálfu LS og
Kanadamanna og er ætlunin að
ljúka þeirri vinnu innan fárra
mánaða.
Formaður LS segir að með
starfi í alþjóðasamtökum sem
þessum opnast möguleiki að
komast að þeim alþjóðastofnun-
um sem ábrif hafa í málefnum
hafsins. Það sé einkar brýnt fyrir
hagsmuni íslenskra smábátaeig-
enda og fiskverkafólks sem
byggja afkomu sína á sjálfbærum
veiðum og jákvæðri umhverfis-
stefnu sem alþjóða samfélagið
gerir kröfu til.
Uppruna- og umhverfismerki
I tengslum við áherslur á um-
hverfisvænar veiðar smábáta er
verið að huga að því að skapa
uppruna- eða umhverfismerki
sem skapar strandveiðum og
kyrrstæðum veiðarfærum sér-
stöðu á markaðnum. I framhaldi
af því hefur forusta LS átt fundi
með framkvæmdastjóra evrópsks
fyrirtækis sem lýst hefur áhuga á
því máli. -GRH
Athugasemd
„í stuttu símaviðtali við undir-
ritaðan, sem birtist f Degi
fimmtudaginn 5. nóvember er
spurt um viðhorf til ályktunar
„þar sem lagst er gegn öllum
virkjunaráformum á hálend-
inu.“ Með rökstuðningi sem í
svari undirritaðs kemur fram,
getur hann ekki tekið svo af-
dráttarlausa ályktun.
I spurningu blaðamanns er
það líka misskilningur að álykt-
anir Náttúruverndarráðs séu
þannig orðaðar en þar sem það
er borið fyrir spurningunni,
kemur nafn þess því miður fyr-
ir inn í svar undirritaðs. Undir-
ritaður er mjög leiður yfir og
biðst afsökunar á því að nafn
Náttúruverndarráðs skuli
koma ínn í svarið á þann hátt
að skilja megi sem ásökun á það
Jón Helgason.
fyrir raunverulegar ályktanir þess.“
Jón Helgason
formaður Landvemdar.
Jólasveinn svarar fyrir sig
Vegna orða í leiðara Dags um „rallhálfan" jólasvein á vegum Astþórs
Magnússonar vill Kristján Arnason sem fór með Ástþóri til Bagdad
sem jólaveinn taka fram: hann hafi aldrei bragðað áfengi og þessi
lýsing komi sér á óvart. Hún geti ekki átt við um sig, en hafi valdið
særindum.
Vinstri hreyfingin
- grœnt framboð
Vinstrihreyfingin - grænt framboð efnir til kynningarfunda
sem hér segir:
Laugardaginn 14. nóv.:
Deiglunni, Akureyri kl. 13:30
Sunnudaginn 15. nóv.:
Félagsheimilinu Raufarhöfn kl. 14:00
Rauða Torginu, Hótel Húsavík kl. 20:30
Miðvikudaginn 18. nóv.:
Sunnusal Hótel Sögu, Reykjavík kl. 20:30
Fimmtudaginn 19. nóv.:
Flug Hóteli, Keflavík kl. 20:30
Laugardaginn 21. nóv.:
Hótel Höfn kl. 16:00
Kristjáni IX, Grundarfirði kl. 16:00
Sunnudaginn 22. nóv.:
Hótel Læk, Siglufirði kl. 13:30
Kaffi Króki, Sauðárkróki kl. 20:30
Fimmtudaginn 26. nóv.:
Selfossi kl. 20:30 - Nánar auglýst síðar
Laugardaginn 28. nóv.:
Hótel Héraði, Egilsstöðum kl. 14:00
Vinstrihreyfingin - grœnt framboð