Dagur - 13.11.1998, Blaðsíða 8
rD^tr
8 - l' Ö S TV D A GU R 13. NÓVEMBER 1998
FRÉTTASKÝRING
VALGERÐUR
JÓHANNS-
W j| X jwyi DÓTTIR
SKRIFAR
Það stefnir í æsispenn-
andi prófkjör hjá
Sjálfstæöismöimum í
Reykjanesi á laugar-
dagiun, en ýmsir spá
því að þátttaka Kópa-
vogsbúa muni ráða úr-
slitum um efsta sætið
á lista flokksins.
Langri og spennandi prófkjörs-
baráttu Sjálfstæðismanna í
Reykjanesi Iýkur á morgun.
Fyrstu tölur verða líklega birtar
um 9 leytið annað kvöld og á mið-
nætti ætti að vera orðið ljóst hver
hreppir hið eftirsótta leiðtogasæti
flokksins í kjördæminu.
Fáir treysta sér til að spá
nokkru um úrslitin og viðmæl-
endur Dags eru reyndar sammála
um það eitt að þetta sé æsispenn-
andi og tvísýnn slagur og allt geti
gerst. Og spennan er ekki bara í
kringum fyrsta sætið heldur öll
efstu sætin.
Sjálfstæðisflokkurinn er
Iangstærstur í kjördæminu og
fékk rúm 39% atkvæða og 5 af
12 þingmönnum Reyknesinga í
síðustu kosningum. Olafur G.
Einarsson, fyrsti þingmaður kjör-
dæmisins er að hætta og því ljóst
að að minnsta kosti einn nýr
maður verður f hópi fimm efstu.
Sumir halda því einnig fram að
Sjálfstæðisflokkurinn eigi raun-
hæfa möguleika á að bæta við sig
sjötta manninum f vor en skoð-
anakannanir sýna að staða flokks-
ins er mjög sterk.
Arni Matthiessen, Gunnar
Birgisson og Sigríður Anna Þórð-
ardóttir sækjast öll eftir efsta sæt-
inu, þingmennirnir Árni Ragnar
Árnason, Kristján Pálsson og
Markús Möller hagfræðingur
stefna á 2.sætið, Stefán Þ.Tóm-
asson, framkvæmdastjóri og vara-
þingmaður og Þorgerður Gunn-
arsdóttir, forstöðumaður Rásar 2
biðja um stuðning í 3-4 sæti. Jón
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
býður sig fram í 4.sæti og Hólm-
fríður Skarphéðinsdóttir, hús-
móðir og fyrrverandi bæjarfulltrúi
í Sandgerði og Helga Guðrún
Jónasdóttir stjórnmálafræðingur
og starfsmaður á skrifstofu Jafn-
réttismála, stefna báðar á 5. sæt-
ið.
Keypt þingsæti
Og það verður ekki betur séð en
öll séu í baráttunni af fullri al-
vöru og ætii sér stóra hluti. Fram-
bjóðendurnir ellefu er allir farnir
að auglýsa í blöðum og flestir
einnig í sjónvarpi og rætt um að
kostnaður þeirra skipti milljón-
um. Reyndar þykir sumum nóg
um augíýsingaflóðið og það á við
um Sigríði Onnu. „Það er gífur-
Iegur áróður í gangi og miklar
Pröf
HELGU I FIMMTj
KRAFTOB - FEKItlNG - POR
Baráttan um sæti á lista flokksins í Reykjanesi hefur ekki hvað síst farið fram íblaðaaugi
auglýsingar og mér finnst það
komið út yfir öll mörk. Eg spyr
mig hvernig það virki á almenn-
ing og er mjög spennt að sjá úrslit
þessa prófkjörs einmitt út af
þessu. Hvort það sé í raun og
veru rétt að það sé hægt að kaupa
sér þingsæti. Mér finnst það mik-
ið umhugsunarefni," segir Sigríð-
ur.
Búist við góðri þátttöku
Tvísýn barátta er yfirleitt ávísun á
góða þátttöku í prófkjörum og þar
er búist við að margir leggi það á
sig að kjósa á morgun. Að minnsta
kosti fleiri en í sfðasta prófkjöri
Sjálfstæðismanna 1995 en þá
kusu naumlega 6400 manns. Nú
er búist við að þátttakan verði nær
8000 og jafnvel ríflega það. Menn
eru sammála um að þátttakan eigi
eftir að ráða mildu um úrslitin og
horfa þar fyrst og fremst á Kópa-
vog. Ymsir telja reyndar að þátt-
takan í Kópavogi eigi eftir að
skipta sköpum í baráttunni um
efsta sætið. Takist Gunnari Birg-
issyni að draga bæjarbúa í stórum
stíl á kjörstað geti hann náð fyrsta
sætinu.
Kópavogsbúar hafa til þessa
ekki verið sérstaldega duglegir við
að mæta í prófkjörsklefann. í
prófkjörum Sjálfstæðismanna þar
á bæ hefur þátttakan verið á bil-
inu 800 til 1300 manns. Rann-
veig Guðmundsdóttir er sögð
hafa fengið um 3000 manns úr
Kópavogi í prófkjörsslag Alþýðu-
flokksins fyrir síðustu kosningar
en margir telja ólíklegt að Gunn-
ar Ieiki það eftir, þó ekki væri
nema vegna þess að hann er um-
deildari en hún. Gunnar er hins
vegar einnig sagður hafa náð eyr-
um margra á Suðurnesjum en þar
hefur hann opnað kosningaskrif-
stofu.
Fjarri því öruggur
Arni Matthiesen fékk glimrandi
góða kosningu í síðasta prófkjöri.
Reyndar betri en áður hafði sést
því hann hlaut samanlagt atkvæði
88% kjósenda og mátti litlu muna
að hann velti Ólafi G. Einarssyni
úr fyrsta sætinu. Sumir viðmæl-
enda Dags héldu því fram að hið
pólitíska landsslag hefði lítið
breyst að þessu leyti og Arni væri
enn líklegastur til að hreppa leið-
togasætið. Aðrir halda því fram að
Sigríður Anna hafi verulega styrkt
stöðu sína og Árni sé fjarri því ör-
uggur. Þeir bentu á að kjósendur
hefðu ekki verið að sverja Árna
ævarandi hollustueiða í síðasta
prófkjöri heldur einnig verið að
refsa Ólafi sem verið hafði um-
deildur menntamálaráðherra og
sumum þótti hann ekki hafa
sinnt kjördæminu nógu vel.
Sigríður Anna er í forystusveit
Sjálfstæðisflokksins og nýtur þess
sjálfsagt í prófkjörinu að vera for-
maður þingflokksins. Hún hefur
breiðan stuðning um allt kjör-
dæmið og stuðningsmenn hennar
hampa því óspart að nú sé tæki-
færi til að brjóta blað í sögu Sjálf-
stæðisflokksins og fela konu að
leiða framboðslista hans í kosn-
ingum.
Keppinautiun sleppt
Ami og Sigríður Anna hafa feng-
ið stuðning frá sama fólkinu í
talsverðum mæli til þessa en það
verða færri sem setja þau hlið við
hlið á atkvæðaseðlinum núna
einfaldlega vegna þess að þau eru
að keppa um sama sætið. Fólk
hefur ríka tilhneigingu til þess að
sleppa alveg þeim sem talinn er
helsti keppinautur uppáhaldsins.
Menn raða frambjóðendum ekki
endilega í þeirri röð sem þeir telja
að myndi sterkasta Iistann. Það
gæti bitnað á öllum þremur og
orðið til þess að þau fái minna
heildarfylgi en ella.
Það getur allt gerst í þessu próf-
kjöri var viðkvæðið hjá þeim sem
rætt var við og eins og áður sagði
á það ekki bara við um efsta sæt-
ið. Það eru skiptar skoðanir um
það hvort Kristjáni Pálssyni takist
að skjótast upp fyrir Arna Ragnar
Arnason og eins um það hveijum
nýliðanna takist að næla sér í
sæmilega öruggt þingsæti. Þor-
gerður Gunnarsdóttir er af mörg-
um sögð á mikilli siglingu en hin
er einnig talin til alls líkleg.
Þvíllk óvissa
„Þetta er þvílík óvissa að það get-
ur enginn sagt fyrir um hvernig
þetta fer. Eg er hins vegar bjart-
sýn,“segir Sigríður Anna Þórðar-
dóttir.
„Það sem mér finnst ógeðfellt
við þetta er hversu mjög þessu er
stillt upp sem byggðakosningum.
Þessu er gjarnan stillt upp sem
baráttu á milli Hafnaljarðar og
Kópavogs og það er alrangt. Það
er alltof mikið um að byggðum sé
teflt saman og frambjóðendum
þeirra stillt upp hvorum á móti
öðrum. Markmið prófkjörs er