Dagur - 14.11.1998, Síða 21
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998- 37
■I . ■' ■ - m ■nHGHHHI BBHHI .. .BB
I * / \ 1 ) / \ U G I L Ý S I I IM G / \ I
Reykjavíkurborg
fjárreiðudeild
Reykjavíkurborg auglýsir laust til umsóknar starf inn-
heimtufulltrúa í fjárreiðudeild.
Meginverkefni eru:
• Umsjón og eftirlit með skráningu skuldabréfa
og vörslu þeirra.
• Umsjón og eftirlit með gagnaflæði í viðskipta-
mannakerfið frá hliðarkerfum.
• Umsjón og eftirlit með innheimtu.
• Samskipti við innheimtuaðila.
• Þátttaka í mótun verklagsreglna um eftirlit.
Kröfur gerðar til umsækjenda:
• Verslunarskólapróf eða reynsla af skrifstofu-
störfum.
• Tölvukunnátta í bókhaldskerfum, töflureikni
og ritvinnslu.
• Sjálfstæði, frumkvæði og nákvæmni í störfum.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
Um er að ræða spennandi starf í nýju bókhalds- og
upplýsingakerfi. Uppsetning viðskiptamannakerfisins
er enn í mótun s.s. skýrslugerð o.fl.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Reykja-
víkurborgar og starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Skrifleg umsókn ásamt upplýsingum um hæfni,
menntun og fyrri störf sendist fjárreiðudeild, Ráðhúsi
Reykjavíkur merkt Önnu Skúladóttur fyrir 23. nóvem-
ber nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halla Jóhanns-
dóttir, deildarstjóri í síma 563 2000.
Borgarstjórinn í Reykjavík
tC lvutæki verður
Tæknival
Atvinna
Okkur vantar 2 einstaklinga í afgreiðslu í nýrri verslun
Tæknivals að Furuvöllum 5, Akureyri.
Vinnutími:
9:00- 13:00
13:00 - 18:00
Um er að ræða hefðbundin afgreiðslustörf á kassa.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf nú þegar.
Umsóknum skal skilað fyrir 17. nóvember í verslun
Tölvutækja að Furuvöllum 5, merkt: Tæknival -
afgreiösla.
Leikskólakennarar
óskast í Hveragerði
Leikskólakennara eða starfskraft vantar við leikskól-
ann Óskaland í Hveragerði frá og með 1. desember
og 1. febrúar nk.
Óskaland er tvískiptur einnar deildar leikskóli þar
sem unnið er með þemað líkaminn, heilbrigði og
hollusta ásamt heilsubók barnsins.
Skila ber skriflegum umsóknum á skrifstofu bæjar-
ins, er tilgreina menntun og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 17. nóvember nk.
Allar nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri Óska-
lands í síma 483 4139.
Raf mag nsverkf ræð-
ingur/rafmagns-
tæknifræðingur
Staða tæknimanns á umdæmisskrifstofu RARIK í
Stykkishólmi er laus til umsóknar. Um er að ræða
fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
opinberra starfsmanna.
Starfssvið:
• Hönnun raforkukerfa.
• Áætlanagerð.
• Kerfisskráningar.
• Viðhald tölvuteikninga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Tæknifræði- eða verkfræðimenntun af sterk-
straumssviði.
• Æskilegt er að umsækjendur hafi sveinspróf í
rafvirkjun eða reynslu af rafveitustörfum.
• Góð þekking á CAD-vinnslu.
• Góðir samstarfshæfileikar og skipulögð
vinnubrögð.
• Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt.
Nánari upplýsingar veitir umdæmisstjóri, Erling
Garðar Jónasson, í síma 438 1154 og einnig starfs-
mannaþjónusta í Reykjavík.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir fyrir 21.
nóvember nk.
RARIK
Rauðárstíg 10-105 Reykjavík
Sími 560-5500 - Bréfasími 560-5600
Rafveituvirki/
rafvirki
Staða rafveituvirkja með aðsetur í Búðardal er laus til
umsóknar. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt
að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru
samkvæmt kjarasamningi rafiðnaðarmanna.
Starfssvið
• Almenn störf við rekstur og framkvæmdir í
dreifikerfi RARIK.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Sveinspróf í rafveituvirkjun eða rafvirkjun.
• Góðir samstarfshæfileikar og skipulögð
vinnubrögð.
• Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Guðmundsson í síma
434 1216 og einnig starfsmannaþjónusta í Reykja-
vík.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir fyrir 21.
nóvember nk.
P
RARIK
Rauðárstíg 10-105 Reykjavik
Simi 560-5500 - Bréfasími 560-5600
Menntaskólinn á
Akureyri
Starfsmann vantar við ræstingar í Heimavist M.A.
Vinnutími frá kl. 8.00 til 12.00 virka daga og einn
laugardag í mánuði 4 tíma.
Ráðning frá 1. janúar 1999.
Umsóknir sendist skriflega til Menntaskólans á Akureyri
fyrir 1. desember 1998.
Upplýsingar veita húsverðir milli kl. 10.15 og 11.00 í
síma 461-1433.
Húsverðir.
F U N D I R
Opinn fyrirlestur
ÍAKUREYRI
Titill: „Um hvali og hvalveiðar í menningu norrænna
útvegsbænda, 900 - 1900“.
Fyrirlesari: Dr. Ole Lindquist, Honorary Research
Fellow við St. Andrews háskóla í Skotlandi.
Staður: Þingvallastræti 23 Akureyri.
Tími: Þriðjudagur 17. nóvember kl. 17.00.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
BSRB
Bætum samfélags-
þjónustuna
Opinn fundur í Deiglunni á Akureyri þriðjudaginn
17. nóvember kl. 16.30.
Stefán Ólafsson prófessor og Ögmundur Jónasson
formaður BSRB kynna nýjar upplýsingar úr könnun
Félagsvísindastofnunar á viðhorfum til velferðar-
ríkisins.
BSRB
000
w
Framhaldsaðalfundur
Félags starfsfólks í veitingahúsum
verður sunnudaginn 15. nóvember kl. 15:00 í
Baðstofunni, Ingólfsstræti 5.
Fundarefni:
1. Reglugerð sjúkrasjóðs.
2. Reglugerð orlofsheimilasjóðs.
3. Reglugerð fræðslusjóðs
4. Reglugerð vinnudeilusjóðs
5. Sagt frá undirbúningi að stofnun nýs
stéttarfélags sem stofnað verður 5. desember nk.
Stjórnin
U 1 i
Minjasafnið á Akureyri
Útboð
Minjasafnið á Akureyri auglýsir útboð vegna breytinga í
sýningar-sölum á norðurálmu safnhússins.
( verkinu felst m.a. smíði og uppsetning handriða,
frágangur á loftum og gólfum, endurnýjun glers,
málun o.fl.
Úboðsgögn verða afhent gegn 10. þús. kr. skilatrygg-
ingu á skrifstofu Minjasafnsins, Aðalstræti 58, Akureyri
á skrifstofutíma frá og með fimmtudegi 12. nóvember
1998.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 24. nóvember
1998 kl. 14.