Dagur - 21.11.1998, Síða 3
LAUGARDAGVR 21. NÓVEMBER 1 998 - 19
Tvtir feiilfláiskflr ú qiöí frá Geðhiílp
með stuðning frá íslenskri erfðagreiningu
flndlent idlnvgfli. stvrhur oa sdlarró___________________
eru þættir sem skipta okkur öll miklu máli í daglegu lífi.
Sífellt áreiti á hugann gerir það að verkum að manneskjan
þarf hvíld og einhverjar aðferðir til að ná jafnvægi í daglegu
amstri. Eitt af þeim atriðum sem við hjá Geðhjálp lítum á
sem okkar hlutverk, er að hjálpa fólki á þessu sviði og á
þann hátt að fyrirbyggja alvarleg vandamál.
fieislfldishflr með leiðbeininflum í slöhiin oa siðlfstvrhitiðu
Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur gaf félaginu
vinnu sína við gerð geisladiska með leiðbeiningum í slökun
og sjálfstyrkingu. Þetta eru tveir geisladiskar með mismunandi
æfingum og tilheyrandi tónlist sem ætlaðir eru
fólki á öllum aldri.Að sjálfsögðu tókum við þessari gjöf
opnum örmum og ákváðum jafnframt að reyna að gefe þessa
diska, til þess að þakka fólki þann stuðning sem það hefur
sýnt málefnum Geðvendar.
1000 Jiihtsett »lin______________________________________
Þessir diskar verða seldir í verslunum en styrkur Islenskrar
erfðagreiningar, auk þess sem Sigríður Hrönn Bjarnadóttir
hjúkrunarfræðingur gaf alla sína vinnu.gerði okkur kleift að
framleiða sérstaklega 2000 sett af diskunum.
Irillál »011» II fiOl tu oiitl it lilt___________________
Það eina sem þú þarft að gera, er að hringja til okkar í síma
535 1035, gefa okkur upp nafn þitt og helstu upplýsingar og
við sendum þér geisladiskana um hæl.
ilitiinyr Islmilinr trtliiKiiimr_________________________
Að gefa diskana er vissulega dýrt í framkvæmd en skilningur
stjórnenda íslenskrar erfðagreiningar á gildi slíkrar
fyrirbyggjandi vinnu hefur gert þennan draum að veruleika.
Verkefni þetta er því myndarlega styrkt af íslenskri
erfðagreiningu og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Hringdu í síma S3S 1035 og fáðu geisladiska að gjöf
h