Dagur - 21.11.1998, Blaðsíða 18
34-LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1990
POPPLÍFIÐ t LANDINU
menn
- standa enn fynr sínu
Margt og mikið hefur fyrr verið
skrifað og skrafað um fjörsveit
allra tíma í íslensku poppi, Stuð-
menn og svo er nú enn og það
ekki að ástæðulausu á því herr-
ans ári sem nú tekur senn enda,
1998. A stuttri starfsævi yfir
langan tíma, hafa líklega fáir ef
nokkrir sett sterkari svip á
skemmtana- og samkvæmislíf
landans og það £ hinum víðasta
skilningi. Stuðmenn eru sem-
sagt orðnir einskonar „stofnun"
og því alltaf tíðindi þegar „hún“
lætur á sér bera. Annars vita
landsmenn alveg nóg um þetta
blessaða fólk sem mynda hljóm-
sveitina, að minnsta kosti flest
af því, þannig að ekki þarf að tí-
unda meira um það né fara út í
önnur smáatriði. En semsagt, þá
hefur árið 1998 séð flokkinn á
fullu gasi, í útgáfu jafnt sem
spili út um allar trissur, sem nú
er svo að ná hámarki með út-
gáfu á plötunni, Hvílík þjóð, tólf
laga verki þar sem sjómenn
landsins og almennt mikilvægi
sjávarins (svo hátíðlega sé tekið
til orða) er í brennidepli, Iíklega
í tilefni af ári hafsins. Með Ey-
þór Gunnarsson sem sinn
nýjasta meðlim eru Stuðmenn í
skemmstu máli sagt enn að gera
hluti sem hitta í mark er reyndar
fyrr í ár hafði sannast með „Is-
lenskum karlmönnum" og EP+.
Sú síðarnefnda er reyndar
einnig innanborðs á Hvílíkri
þjóð, þ.e.a.s. lögin fjögur og
koma þau í halarófu síðast á
henni. Aður hafði hins vegar
kennt ýmissa grasa sem jafnan
fyrr með miklum tilþrifum í
nokkrum tilfellum, samanber ti-
tillagið. Annars er ekki nauðsyn-
legt að fara nánar út í lagasmíð-
arnar, þær eru flestar fínar og
umbúnaðurinn flottur, eins og
jafnan er siður í þessari sveit. I
öllu flæðinu sem nú á sér stað í
íslensku poppi, standa Stuð-
menn sumsé enn fyrir sínu og
gera það satt best að segja betur
en margur hafði haldið.
Útgáfutónleikar
200.000 naglbíta
Jæja Akureyringar, þá er komið að því fyrir ykkur. Bæjarins bestu,
elskuðustu, flottustu og frábærustu rokksynir, 200.000 naglbítar,
verða með sína heimabæjarútgáfutónleika I KVÖLD. Fer þessi
stórviðburður í sögu bæjarins fram í sjálfu höfuðvígi Iistarinnar í
bænum, Samkomuhúsinu, og verður húsið opnað kl. 20.30. Þeir
félagarnir, Vilhelm, Axel og Kári munu svo stíga á sviðið, einir og
óstuddir, enda ekki ástæða til annars, um hálftíma/klukkutíma
síðar. Tilefnið er svo auðvitað fyrsta platan þeirra, Neondýrin,
sem er nýkomin út.
Popp í Reykjavík, kvikmyndin
sem tekin var í tengslum við
samnefnda hátíð í höfuðborg-
inni síðsumars, verður áreiðan-
lega þegar tímar Iíða, álitin góð
heimild og vitnisburður um
þann tíðaranda sem þar birtist í
íslenskri tónlist. Samnefnd
plata, sem nú er komin út, er á
samskonar hátt vitnisburður
hins sama, þ.e. þeirra tónlistar-
manna sem við sögu komu, en
þó á þann breytta hátt, að um
frammistöðu þeirra í hljóðveri er
að ræða á plötunni, en í mynd-
inni sjást hinir sömu á tónleika-
sviðinu. Má reyndar deila um
hvort ekki hefði verið heppilegra
og þá ekki síður skemmtilegra,
að upptökur frá tónleikunum
sjálfum væru á plötunni líka,
eins og á Rokk í Reykjavík sællar
minningar, (samanburður við þá
mynd nær annars ekki lengra og
er reyndar ekkert heppilegur) en
það mun hafa verið mat að-
standenda myndarinnar og ann-
arra er að málinu komu, að
þetta væri heppilegri kostur upp
á kynningu erlendis, að því er
manni skilst. En hvað um það,
þá er þetta fyrir alla áhugamenn
um íslenskt popp, áhugaverð
plata og eiguleg, sem vandað
hefur verið býsna vel til. Flestar
„stjörnur" myndarinnar koma
við sögu, Móa, Gusgus, Magga
Stína, Lhooq og margir fleiri.
Sömuleiðis aðrir yngri sem ætla
að verða stórir, til dæmis syst-
urnar í Real flawz, Bang Gang,
Ensími, Quarashi, Botnleðja,
Sigurrós, Aría og Súrefni. Dj
Rampage kemur einnig við sögu
og svo tvær söngspírur, sem ekki
tóku þó þátt í hátíðinni sjálfri,
Emiliana Torrini og BJÖRK. Sú
síðastnefnda opnar plötuna og
er það táknrænt í ljósi þess, að
hún er jú sú er varðað hefur
veginn, sem svo hinir vilja feta
eftir. Sá vegur er hins vegar ekki
auðfarinn og ýmislegt sem tepp-
ir gönguna eftir honum. Fyrir
því eru nú einmitt allavega
Magga Stína og Móeiður að
verða þessa dagana í formi dóma
um plöturnar sínar í Bretlandi.
Vitnisburður
Popp í Reykjavik. Góður Vitnisburður.
.Tkyyur
Magnús Geir
Guðmundsson
skrifar
Stuttar út-
gáfufregnir
Eins og venjulega á þessum
árstíma hellast nýju plöturnar
nú yfir landsmenn.
* Hörður G. Ólafsson, um
árabil bassaleikari hjá Geir-
mundi Valtýssyni, en einnig
meðlimur í Herramönnum
m.a. um langt skeið, hefur nú
sent frá sér sína fyrstu plötu
og kallast hún Til þín. Að
hætti „Meistarans" er sveifla
áberandi, en einnig fleira.
* Hróður Sin-
fóníuhljóm-
sveitar Is-
Iands hefur
farið víða og
hún hlotið
viðurkenníng-
ar fyrir útgáf-
ur sínar. Sú nýjasta er með
verkum hins finnska Sibelius-
ar, Sinfóníur númer 1 og 3
undir stjórn Petri Sakari.
* Önnur útgáfa á sígildu nót-
unum, en með píanóleik með
dreifingu frá Japís, er með leik
þess mikla meistara Rögn-
valds Siguijónssonar. Eru
þarna verk eftir tónskáld á
borð við, Bach, Schubert og
Chopin.
* Og meira af
sígildri tónlist,
því frá Skíf-
unni er meíra
en vert að
geta tveggja
útgáfa af því
taginu. Fyrst skal þar nefna
sjálfa söngdrottninguna,
Diddú, en eins og flestir vita
átti hún söluhæstu plötuna
fyrir síðustu jól. Nú er hún
semsagt á ldassísku nótunum
á samnefndri plötu þar sem SÍ
leikur undir. Uppistaðan á
þessari vönduðu plötu eru
ítalskar aríur, eftir stórmenni
á borð við Rossini, Puccini,
Verdi o.fl. en einnig aðra á
borð við Strauss. Er Diddú
þarna á sínum rétta heimavelli
í dag og verður enginn svikinn
af.
* Hin platan frá Skífunni er
tvöföd og kallast Klassísk
meistaraverk. Þar kennir
margra grasa fyrir aðdáendur
slíkrar tónlistar auk þess sem
platan er góð gjöf til þeirra er
kynna á þessa tónlist. (Það
gildir einnig reyndar um allar
hinar klassísku plöturnar)
* Ljóðskáldið Didda, sem fyrir
löngu er búin að skrá nafn sitt
á spjöld íslenskrar pönksögu,
m.a. með hinum ódauðlega
texta, Ó, Reykjavík... en hefur
svo í seinni tíð orðið nafn-
toguð fyrir sín ögrandi eró-
tísku ljóð, lætur sér ekki bók-
arformið lengur nægja, heldur
hefur sent frá sér plötu,
Strokið og slegið, þar sem
hún les ljóð sín með seiðandi
forritunarpopp í bakgrunni.
Nokkuð svo athygliverð skífa,
sem Jóhann G. Jóhannsson
o.fl. hafa lagt Diddu hjálpar-
hönd við.
>__________________________/