Dagur - 31.12.1998, Side 2

Dagur - 31.12.1998, Side 2
18-FlMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 Thifptr ÁRAMÓTAÁ VARP JÓHANNA SIGUKÐAR- DÓTTIR skrifar Ársins 1998 verður minnst sem árs peningaaflanna í þjóðfélag- inu - ársins þar sem misskipting á efnahagslegum gæðum fór vaxandi, þrátt fyrir góðærið. Ef til vill átta sig ekki allir á þessari staðreynd. Andstæðan við það er sú, að ríkisstjórnin sem leitt hef- ur misskiptinguna yfir þjóðina og gert þá ríku ríkari og þá fá- tæku fátækari hefur ótrúlega mikið fylgi. Eignatilfærslan og helminga- skiplaflokkarnir Staðreyndirnar sem blasa við eru þær að hvenær sem Fram- sóknarflokkurinn og Sjálfstæðis- flokkurinn ná saman í ríkis- stjórn, þá þjappast þjóðarauður- inn á færri hendur. Ahrifin af stefnu þessara helmingaskipta- flokka á íslenskt samfélag eru m.a. að á árinu 1984 var kvóta- kerfinu komið á, sem leitt hefur til mestu eignatilfærslu sögunn- ar og gjafakvóta sem skiptir hundruðum milljóna til örfárra kvótakónga. I frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi vegna Hæsta- réttardómsins sem úrskurðaði að ákvæði laga um stjórn fisk- veiða bryti í bága við stjómar- skrána stillir rfkisstjórn þessara helmingaskiptaflokka sér enn upp sem varðhundar gjafakvót- ans og sægreifanna með því að fórna trillukörlunum. Kjörtímahil misskiptmgar í jjjóðfélaginu A þessu kjörtímabili hafa þessir flokkar grímulaust sýnt sitt rétta andlit, Vegna þess-að’ purkunar- lausf hafa þeir knúið í gegn mál sem fyrr en nokkurn órar munú enn áuka á misskiþtin'guna og bæta hag péíringamanna og, lénsherranna í samfélaginu á" kostnað þjóðarheildarinnar. Orfá dæmi á þessu kjörtímabili: * Akvörðun um nýtingarrétt- inn á perlu íslenskrar náttúru - hálendinu - færður í hendur ör- fárra sveitarfélaga, þar sem yfir 90% þjóðarinnar fá ekkert um það að segja hvernig ráðstöfun- arréttinum er háttað. * Landeigendum var með lög- um gefinn miklu meiri réttur en þeir hafa áður haft með því að festur er í sessi eignarréttur þeirra á miklum auðlindum, þannig að þeir geta í krafti eign- arhalds og nýtingar á auðlindum rakað til sín stórkostlegum fjár- munum ef þjóðin þarf að nýta auðlindir sem finnast á jarðeign- um þessara landeigenda. „íslenska bankakerfið er á hraðferð í hendurnar á kolkrabbanum og fjölskyldunum fjórtán og fjármagnstekjuskattur sem komið var á hlífði raunverulega pen- inga- og eignafólki, en skatturinn kom að mestu í hlut þeirra sem eiga lítinn almennan sparnað í bankakerfinu." * Knúin var í gegn breyting á vinnulöggjöfinni í fullri and- stöðu við launþegahreyfinguna, sem þrengdi verulega rétt Iauna- fólks. * Félagslega íbúðarkerfið, sem þjónað hefur láglaunafólki í 70 ár var Iagt niður. A vegum þess hefur verið komið upp á annan tug þúsunda félagslegra íbúða sem gert hefur þeim verst stöddu í þjóðfélaginu tugþús- undum saman kleift að koma sér upp þald yfir höfuðið. 1200- 1500 einstaldingar og fjölskyld- ur eru nú á biðlista eftir leigu- íbúðum m.a. vegna þessa að fé- lagslega íbúðakerfínu hefur ver- ið lokað. * Islenska bankakerfið er á hraðferð í hyjodurnar á kol- krabbanum og fjölskyldunum íjórtán og fjármagnstekjuskattur sem komið var á hlífði raunveru- lega peninga- og eignafólki, en skatturinn kom að mestu í hlut þeirra sem eiga lítinn almenna sparnað í bankakerfinu. * Rnúin voru í gegn á ör- skömmum tíma lög um gagna- grunn á heilbrigðissviði, sem færir einum aðila einkarétt á miklum þjóðarauði, sem eru heilsufarsupplýsingar þjóðarinn- ar. Þessi lög eru m.a. í andstöðu við lög um persónuvernd, rétt sjúklinga, stjórnarskrána og al- þjóðlegar skuldbindingar sem ís- lendingar eru aðilar að. Þau eru knúin í gegn, þrátt fyrir aðvaran- ir frá bæði alþjóðlega og íslenska vísindasamfélaginu og stórum hluta Iækna - og heilbrigðisstétt- arinnar og háskólasamfélaginu. Hægt var að fara aðra leið sem Á þessu kjörtímabili hafa þessirflokkar grímulaust sýnt sitt rétta andlit, vegna þess að purkunarlaust hafa þeirknúið ígegn mál semfyrr en nokkum órarmunu enn auka á misskipt- inguna og bæta hag peningamanna og lénsherranna. jafnaðarmenn lögðu til sem tryggt hefði markmið laganna um vísindarannsóknir sem stuðlað hefði að framförum í læknavísindum, en jafnframt tryggt persónuvernd og að arð- urinn hefði í mildu meira mæli runnið í sameiginlegan sjóð landsmanna. Þjóðimar tvær Þetta eru örfá dæmi um offors og yfirgang ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar, sem stuðla munu að aukinni misskiptingu tekna og eigna í samfélaginu og verða til þess að á örskömmum tíma munu allar helstu auðlindir þjóðarinnar verða komnar í hendur fárra lénsherra og pen- ingamanna. Berum þessa þróun á kjörtímabilinu síðan saman við hag, kjör og aðbúnað elli- og ör- orkulífeyrisþega, sem staðið hafa mótmælastöðu fyrir framan Alþingishúsiðtil að vekja athygli á sultarkjörum sínum, eða versnandi hag einstæðra for- eldra sem nýlega mótmæltu á opinberum vettvangi að góðærið hafi farið framhjá þeim. Það sakar heldur ekki að minnast á hvernig í góðærinu hefur verið þrengt að barnafólki t.d. með því að bamabætur hafa verið skornar niður um hundruð milljóna króna á kjörtímabilinu. Það skal takast Eg hef þá bjargföstu trú að mik- ill meiri hluti þjóðarinnar sé fylgjandi stefnu jafnaðarmanna, félagshyggjufólks og kvenfrelsis- sinna um jöfnuð og réttláta skiptingu auðs og verðmæta þjóðarinnar. Það getur því ekki verið að það sé almennur þjóð- arvilji að fylgja þeirri stefnu, sem nkisstjórn Davíðs Oddsson- ar hefur fylgt, sem gerir þá ríku ríkari og þá fátæku fátækari. Á fylgi ríkisstjórnarinnar hlýtur því að vera önnur skýring, og kannske nærtækast að nefna að fólkið eygir ekki enn trúverðug- an valkost á móti íhaldsöflun- um, m.a. vegna sundurlyndis vinstri aflanna á árinu, sem verður að linna. Við sem berj- umst fyrir jafnrétti og réttlæti höfum enn tækifæri til að snúa þróuninni við til samfylkingar með þjóðinni um betra þjóðfélag - þjóðfélag almannahagsmuna gegn sérhagsmunum. Það eigum við sameinuð að sýna þjóðinni nú strax í uppháfi ársins, sem enn getur þrátt fyrir allt, leitt okkur til sigurs fyrir fólkið gegn valda- og peningaöflunum í þjóðfélaginu. Það er því spenn- andi ár framundan, þar sem við getum litið af bjartsýni til kom- andi kosninga. Qkkur skal takast með samstilltu átaki að vinna sigur, sem tryggir meiri jöfnuð og réttlæti í þjóðfélaginu. Ég óslta landsmönnum öllum friðar og farsældar á komandi ári.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.