Dagur - 31.12.1998, Blaðsíða 24
t
I
40 - FIMMUDAGUR 31. DESEMBER 1998
ÁRAMÓ TALÍFIÐ í LANDINU
Helstu íþróttaafrek ársins
Janúar
Handknattleikur
KA tók þátt í Meistaradeild
Evrópu og lék í B-riðli ásamt
Celje PL, Badel Zagreb og
Generale Trieste. KA vann
aðeins einn leik í keppninni, en
það var heimaleikurinn gegn
ítalska liðinu Trieste.
Knattspyrna
Islandsmótið í innanhúsknatt-
spymu karla og kvenna fór ftam
í Laugardalshöll og sigruðu
Skagamenn í karlaflokki, en
UBK í kvennaflokki.
Skagamenn sigruðu Keflvík-
inga 2-1 í úrslitaleik í karla-
flokki, en UBK vann KR 2-1 í
kvennaflokki.
Sund
' Öm Amarson, SH, tók þátt í
k heimsmeistaramótinu í sundi,
sem fram fór í Perth í Ástralíu.
Örn náði 20. sæti í 200 m
baksundi og 33. sæti í 100 m
baksundi.
Skíðaíþróttir
Kristinn Björnsson skíðakappi
náði 4. sæti á sterku Evrópubik-
armóti í svigi sem fram fór í SIóv-
eníu. Kristinn náði 4. sætinu eft-
ir besta tímann í seinni
umferðinni. Kristinn hafði áður
, tekið þátt í tveimur Evrópubikar-
^ mótum og náði hann 3. sæti í
öðru mótinu.
i Seinna í mánuðinum tók
i Kristinn svo þótt í Ijórða
1 Evrópubikarmótinu, sem haldið
* var í Austurríki og náði hann þar
1 1. sætinu.
Þá var komið að fyrsta heims-
bikarmóti ársins sem fram fór í
Weysonnas, en Kristinn náði
þar öðru sætinu og sannaði að
, frábær árangur hans á fyrsta
heimsbikarmótinu fyrir áramót
var engin tilviljun.
Sigríður Þorláksdóttir frá
Isafirði og Theodóra Mathie-
sen, KR, tóku þátt í alþjóðlegu
svigmóti í Lambrecht og náði
Sigríður öðru sæti í keppninni.
Frjálsar íþróttir
Um 1000 áhorfendur lögðu leið
sína í Laugardalshöll til að fylgj-
ast með Stórmóti IR. Tvær
aðalgreinar mótsins voru þrí-
þraut karla, þar sem fjórir sterk-
ustu þríþrautarkappar heimsins,
þeir Tomas Dvorak, Jón Arnar
Magnússon, Cris Huffins og
Robert Zmelik, voru meðal
keppenda og stangarstökk
kvenna, þar sem þær Daniela
Bartova og Vala Flosadóttir
háðu spennandi einvígi.
Sigurvegari í þríþraut varð
Tomas Dvorak með 2883 stig,
50 stigum meira en Jón Amar
Magnússon, sem lenti í 2. sæti.
I stangarstökkinu sigraði Dani-
ela Bartova, stökk 4,20 m, eða
sömu hæð og Vala Flosadóttir,
sem lenti í 2. sæti, en Vala not-
aði fleiri tilraunir.
I lok mánaðarins setti Vala
Flosadóttir nýtt Norðurlanda-
met í stangarstökki innanhúss á
móti í Gautaborg, er hún stökk
yfir 4,26 m. Hún reyndi einnig
við nýtt Evrópumet, en felldi
naumlega 4,36 m.
Febrúar
Badminton
Þau Broddi Kristjánsson og
Elsa Nielsen urðu Islands-
> meistarar í badminton. Broddi
vann titilinn nú í 13. skipti.
Örn Arnarson vann það frábæra afrek á Evrópumeistaramótinu að verða Evrópumeistari í200 m baksundi og var
hann í mótslok valinn efnilegasti sundmaður Evrópu.
Frjálsar íþróttir
Vala Flosadóttir setti nýtt Is-
lands- og Norðurlandamet í
stangarstökki innahúss, er hún
stökk yfir 4,35 m á móti í Er-
furth í Þýskalandi. Með árangr-
inum setti Vala einnig nýtt
Evrópumet, sem stóð þó ekki
nema í stutta stund, því Daniela
Bartova gerði sér lítið fyrir og
stökk yfir 4,41 m og setti þar
með nýtt heimsmet.
Heimsmet Bartovu var ekki
nema nokkurra daga gamalt þeg-
ar Vala Flosadóttir, bætti um
betur og stökk yfir 4,42 m á móti
í Bielefeld í Þýskalandi og setti
þar með nýtt heimsmet.
Hún lét ekki þar við sitja, því
viku seinna bætti hún heims-
metið þegar hún stökk yfir 4,44
m á opna sænska meistaramót-
inu.
Þórey Edda Elísdóttir, FH,
tók einnig þátt í opna sænska
meistaramótinu og lenti í 3.
sæti, er hún stökk yfir 3,88 m.
íslandsmótið innanhúss fór
fram 7.-8. febrúar í Laugardal og
náðist ágætis árangur á mótinu.
Athyglisvert var hvað margir
ungir og efnilegir fijálsíþrótta-
menn voru að ná góðum árangri.
Hápunktur mótsins var Is-
landsmet Einars K. Hjartar-
sonar í hástökki en hann stökk
yfir 2,16 m. Jón Amar Magnús-
son var sigursæll á mótinu og
sigraði hann í fjórum greinum.
Handknattleikur
Valur varð bikarmeistari í karla-
flokki þegar hann sigraði Fram
20-19 í úrslitum, eftir mikla
spennu og framlengdan leik.
Framarar lögðu fram kæru í
þremur liðum eftir leikinn, þar
sem þeir töldu að ekki hefði
verið farið eftir settum reglum
við framkvæmd hans. Urslit
leiksins stóðu þó eftir meðferð
fjölda íþróttadómstóla.
I kvennaflokki varð Stjarnan
bikarmeistari eftir hörku úr-
slitaleik gegn Víkingi. Lokatölur
urðu 28-26.
Stjarnan varð deildarmeistari í
1. deild kvenna, hlaut 31 stig
eftir keppnina, 6 stigum meira
en Haukar sem urðu í 2. sæti.
Skíðaíþróttir
Átta Islendingar héldu til Nag-
ano í Japan til þátttöku í vetrar-
olympíuleikunum sem þar fóru
fram. Islensku þátttakendurnir
voru þau Theodóra Mathiesen,
Brynja Þorsteinsdóttir, Sig-
ríður Þorláksdóttir, Arnór
Gunnarsson, Haukur Arnórs-
son, Sveinn Brynjólfsson,
Kristinn Björnsson og Jóhann
H. Hafsteinsson.
Árangur íslensku keppendanna
var ekki góður á leikunum, en
aðeins einn þeirra lauk keppni.
Það var Sveinn Brynjólfsson frá
Dalvík sem lauk keppni í svigi
og lenti þar í 25. sæti af 31.
Körfuknattleikur
Grindvíkingar unnu bikarinn í
karlaflokki þegar þeir sigruðu
Isfirðinga í troðfullri Laugardals-
höll með 24 stiga mun, 95-71.
I kvennaflokki varð Keflavík
bikarmeistari eftir 16 stiga sigur
á ÍS, 70-54.
Bikarmeistarar Grindvíkinga
urðu deildarmeistarar DHL-
deildarinnar. Þeir hlutu 34 stig
eftir keppnina, 8 stigum meira
en Haukar sem urðu í 2. sæti
með 26 stig.
Mars
Frjálsar íþróttir
Vala Flosadóttir náði 2. sæti á
Evrópumeistaramótinu innan-
húss, þegar hún stökk yfir 4,40
m í stangarstökkinu. Anzhela
Balakhonova frá Ukraínu stökk
4,45 m og setti þar með nýtt
heimsmet og bætti met Völu um
1 cm.
Anzhela Balakhonova mætti
síðan hingað til lands viku
seinna og tók þátt í stökkmóti í
Laugardalshöll. Þær Vala og
Anzhela háðu þar einvígi og
sigraði Vala með stökki yfir 4,36
m, en Anzhela stökk 4,31 m.
Þær reyndu báðar við nýft
heimsmet og tókst ekki að
stökkva yfir 4,46 m að þessi sinni.
Golf
Birgir Leifur Hafþórsson, kylf-
ingur frá Akranesi tók fyrstur
Islendinga þátt í PGA-Evrópu-
mótaröðinni, er hann keppti á
móti í dAgadir í Marokkó. Birgi
gekk ekki vel á mótinu og lenti
hann í 68. sæti á 311 höggum.
Fimleikar
Þau Rúnar Alexandersson og
Elva Rut Jónsdóttir urðu ís-
landsmeistarar í fjölþraut á
Islandsmótinu í fimleikum. Bæði
sigruðu með nokkrum yfirburð-
um og vörðu þar með titlana frá
síðasta ári.
Handknattleikur
KA varð deildarmeistari Nissan-
deildarinnar í handknattleik
árið 1998. Fjögur lið, KA, Fram,
FH, og Afturelding, urðu jöfn
að stigum eftir keppnina, en KA
hafði besta markahlutfallið og
urðu því deildarmeistarar.
Blak
Þróttur, Reykjavík, varð Is-
landsmeistari í blaki karla eftir
sigur á Stjörnunni, í öllum
þremur leikjum úrslitakeppninn-
ar.
Körfuknattleikur
Keflavíkingar urðu Islands-
meistarar í körfuknattleik
kvenna eftir úrslitaviðureign við
KR.
Njarðvíkingar unnu Islands-
meistaratitilinn í körfuknattleik
karla í 10. skipti, eftir úrslitavið-
ureign við KR-inga.
Apríl
Skíðaíþróttir
Sigríður Þorláksdóttir varð
þrefaldur Islandsmeistari á
skíðalandsmótinu sem fram fór í
Hlíðarfjalli. Hún sigraði í svigi,
stórsvigi og Alpatvíkeppni.
Kristinn Björnsson sigraði í
svigi og Alpatvíkeppni, en Dal-
víkingurinn ungi Björgvin
Björgvinsson sigraði í risasvigi. I
risasvigi kvenna sigraði Brynja
Þorsteinsdóttir, en Haukur
Amórsson í stórsvigi karla.
Blak
Víkitlgur varð íslandsmeistari, í
kvennaflokki eftir úrslitakeppni
gegn Þrótti frá Neskaupstað.
Fimleikar
Elva Rut Jónsdóttir varð Norð-
urlandameistari á jafnvægisslá
á Norðurlandamótinu sem fram
fór í Osló. Þetta mun í fyrsta
skipti sem íslenskur keppandi
verður Norðurlandameistari í
fimleikum kvenna.
Handknattleikur
Eftir úrslitakeppnina um Is-
landsmeistaratitilinn í karla-
flokki unnu Valsmenn Islands-
meistaratitilinn í 20. skipti og
nú eftir lokaviðureign við Fram,
eins og í bikarkeppninni.
KA og Valur tóku þátt í
Meistarakeppni Norðurlanda
og lenti KA í 5. sæti keppninnar,
en Valur í því 8.
I kvennaflokki varð Stjaman
Islandsmeistari, eftir mjög
spennandi lokakeppni gegn
Haukum. Stjarnan vann þar
með fullt hús titla á
leiktímabilinu.
Íshokkí
Skautafélag Akureyrar tryggði
sér Islandsmeistaratitilinn í
íshokkí eftir tvo sigra á
sameinuðu liði Bjarnarins og
Skautafélags Reykjavíkur, sem
Iéku undir merkjum IBR.
Körfuknattleikur
Þau Helgi Jónas Guðfinnsson,
Grindavík, og Anna María
Sveinsdóttir, Keflavík, voru
valin Ieikmenn ársins á lokahófi
KKI, en Orlygur Sturluson,
Njarðvík, og Sólveig Gunn-
laugsdóttir, Grindavík, voru
valin efnilegust.
Júdó
Vernharð Þorleifsson, KA, varð
sigurvegari í opnum flokki á
bikarmóti Júdósambands íslands
sem fram fór á Akureyri.
Höskuldur Einarsson, Armanni,
sigraði í -60 kg flokki, Brynjar
Ásgeirsson, KA, í -66 kg flokki,
Sævar Sigursteinsson, KA, í -
73 kg flokki, Bjarni Skúlason,
Selfossi, í -81 kg, flokki, Þor-
valdur Blöndal, Ármanni í -90
kg flokki, Vernharð Þorleifsson,
KA, í -100 kg fjokki og Gísli Jón
Magnússon, Ármanni, í +100
kg flokki.
I kvennaflokki sigraði Birna
Baldursdóttir, KA, í -66 kg flokki
og Gígja Gunnarsdóttir, KA í
+66 kg. flokki.
Maí
Handknattleikur
Herdís Sigurbergsdóttir, Stjörn-
unni, og Oleg Titov, Fram, voru
valin bestu leikmenn ársins í
lokahófi handknattleiksmanna.
Suk Hyung Lee, FH, og Vaiva
Drilingata, FH, voru valin
bestu markverðirnir, þau Herdís
Sigurbergsdóttir og Oleg Titov,
bestu varnarmennirnir, Jón
Vaia Flosadóttir bætti heimsmetið í stangarstökki þegar hún stökk yfir
4,44 m á opna sænska meistaramótinu.