Dagur - 31.12.1998, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 - 21
ÁRAMÓTAÁ VARP
L
Ytragóðæri
Árið sem senn er á enda hefur á
margan hátt verið okkur Islend-
ingum gjöfult eins og reyndar
nokkur undanfarin ár. Hér hefur
ríkt umtalsvert góðæri hvað flest
öll ytri skilyrði snertir. Aflabrögð
hafa verið góð, verð á mörkuð-
um hátt og þannig mætti áfram
telja. Sitjandi ríkisstjórn hefur
uppi tilburði til að eigna sér
góðærið eins og gengur en stað-
reyndir um ytri skilyrði tala sínu
máli.
Það sem snýr að núverandi
ríkisstjórn er hins vegar sú mis-
skipting góðærisins sem hvar-
vetna blasir við í þjóðfélaginu.
Þeir hópar sem veikast standa
að vígi hafa tvímælalaust setið
eftir. Kjör öryrkja og margra elli-
lífeyrisþega hér á landi eru hrak-
leg og smánarblettur á samfélag-
inu. Sama má auðvitað segja um
þá sem eru að reyna að draga
fram lífið af atvinnuleysisbótum
eða Iægstu launum.
Sviptingar í stjómmáliun
Tilraunum til samfylkingar á
hinum svokallaða vinstrivæng
eða félagshyggjuvæng íslenskra
stjórnmála hafa fylgt mikil átök
og niðurstaðan blasir við. Bæði
Alþýðubandalagið og þó enn
frekar Kvennalistinn liggja í
valnum og aðeins hluti af virk-
um meðlimum þessara flokka
eru ennþá þátttakendur í sam-
fylkingartilrauninni. I raun var
þessi þróun að langmestu leyti
fyrirsjáanleg enda mjög varað
við því af hálfu fjölmargra bæði
innan Alþýðubandalagsins og
Kvennalista, þótt þau varnaðar-
orð kæmu fyrir ekki.
Vinstrilireyfmgm - grænt
framboð
Strax á síðastliðnu sumri varð
ljóst að fjölmargir voru ósáttir
við þróun mála og með haustinu
varð ljóst að ný stjórnamála-
hreyfing var að fæðast. Sú hreyf-
ing hefur nú valið sér nafnið
Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð og þegar sett sitt mark á
stjórnmálabaráttuna.
I byijun desember hélt hreyf-
ingin glæsilega ráðstefnu í
Reykjavík, þar sem um 200
manns hvaðanæva af landinu
komu saman. Þyngdarpunktar í
málefnaáherslum hinnar nýju
grænu Vinstri hreyfingar verða
tveir: Einbeitt vinstri stefna,
stefna jafnaðar og jafnréttis
annars vegar og umhverfisvernd
hins vegar. Vinstrihreyfingin -
grænt framboð ætlar sér að fylla
upp í það tómarúm sem breyt-
ingar í íslenskum stjórnmálum
hafa verið að skapa til vinstri og
hefja umhverfismál til meiri
vegs en áður hefur þekkst.
Stefna hreyfingarinnar í utan-
ríkismálum er afdráttarlaus. Þeir
sem vilja varðveita sjálfstæði
landsins og eru andvígir veru er-
lends hers í landinu og aðild
þess að hernaðarbandalögum
eiga þar samleið.
Um hvað verður kosið?
Þeirri spurningu er gjarnan
varpað fram í aðdraganda kosn-
,inga, um hvað verði kosið. I
kosningum hljóta jafnan mörg
mál að hafa áhrif, jafnt til-
fallandi mál sem viðhorf fólks til
grundvallar stefnumiða í stjórn-
málum. Til að tíunda nokkur
stórmál skal eftirfarandi nefnt:
a) Byggðamál
Nú stefnir í að árið sem senn
er á enda, verði eitt versta ár
hvað byggðaröskun snertir í
manna minnum. Tölur benda til
að eitthvað á þriðja þúsund
manns muni flytja af lands-
byggðinni. Krafa okkar sem að
Vinstri hreyfingunni - grænu
framboði stöndum, er sú að taf-
arlaust verði gripið til víðtækra
ráðstafana til að snúa þessari
óheillaþróun við. Það er sameig-
inlegt hagsmunamál allra Iands-
manna hvar sem þeir búa, að
þessi hrikalega röskun og sá
geysilegi þjóðhagslegi fórnar-
kostnaður sem henni er samfara
verið stöðvuð. Grundvallaratriði
í allri tillögugerð og aðgerðum
að þessu leyti er jöfnun á að-
stöðu.
b) Atvinnumál
Atvinnumálin verða að sjálf-
sögðu einnig á dagskrá þó dregið
hafi úr atvinnuleysi nú síðustu
misserin. Nýfallinn dómur í
kvótamálinu svokallaða býður
upp á tækifæri til að stokka upp
í sjávarútvegsmálum og er von-
andi að stjórmálamenn beri
gæfu til þess á næstu vikum að
leita þar efnislegra lausna. Því
miður virðist ríkisstjórnin ætla
að velja þann kost að gera lág-
marks breytingar til að sleppa
fyrir horn hvað dóm Hæstaréttar
snertir en öllum má ljóst vera að
í því felst engin frambúðarlausn.
í landbúnaði þarf sömuleiðis
að taka til hendi, þar er nýliðun
allt of hæg og kjör bænda, ekki
síst sauöfjárbænda, algjörlega
óviðunandi. Markvissar aðgerðir
sem auðvelda kynslóðaskipti og
nýliðun í greininni og nálgast
lausn þessara mála út frá því að
bændur og íjölskyldur þeirra
sem ábúendur og vörslumenn
landsins verði virkari þátttak-
endur í endurheimt landsgæða
þurfa að koma til. Einnig þarf
að styðja með markvissum hætti
við hvers kyns nýsköpun í at-
vinnulífi til sveita þannig að
treysta megi afkomu sveitafólks
og grundvöll búsetu í sveitum.
c) Umhverfismál
Enginn vafi er á því að um-
hverfismálin og spurningar um
áframhaldandi stóriðjuuppbygg-
ingu eða ný viðhorf í umhverfis-
málum og umhverfisvernd verða
fyrirferðarmildar í næstu kosn-
ingum. Valið stendur um hvort
áfram eigi að fylgja hinni blindu
stóriðjustefnu núverandi og fyrr-
verandi ríkisstjórnar eða hvort
ný viðhorf í náttúruvernd eiga
að ráða. Mikilvægt er að móta
stefnu um nýtingu hálendisins
og ljúka þeirri vinnu sem þar
stendur yfir hvað skipulag snert-
ir. I því sambandi er rétt að
minna á tillögu þingflokks
Oháðra undir forystu Hjörleifs
Guttormssonar um að stofnaðir
verði á miðhálendinu fjórir stór-
ir þjóðgarðar með stærstu jökla
landsins sem miðpunkta. Þessu
tengist að brýnt er að endur-
meta áherslur í orkumálum og
móta hér nýja og sjálfbæra orku-
stefnu þar sem horft er til fram-
tíðar.
d) Velferðarkerfið ogfélagsmál
I næstu kosningum munu
áfram takast á ólík grundvallar
viðhorf hvað varðar uppbygg-
ingu og starfrækslu velferðar-
kerfisins, ekki síst fjármögnun
þess og rekstrarform. Annars
vegar eru einkavæðingaröflin á
fullri ferð og horfa nú ekki síst
til reksturs á sviði heilbrigðis- og
menntamála sem næsta við-
fangsefni í einkavæðingu eða
svonefndri einkafjármögnun.
Hins vegar þeir, og þar skipar
Vinstri hreyfingin - grænt fram-
boð sér fremst í fylkingarbrjóst,
sem hafna einkavæðingu og
einkarekstri í velferðarþjónust-
unni, vilja fjármagna velferðar-
kerfið með sameiginlegum skatt-
tekjum og tryggja öllum þegnum
þjóðfélagsins jafnan aðgang og
jafnrétti í reynd hvað varðar
þessa mikilvægu þjónustu. I
þessu sambandi er rétt að nefna
nýlega könnun sem BSRB lét
gera sem sýndi svart á hvítu að
afgerandi meirihluti þjóðarinnar
vill hér öflugt félagslega rekið
velferðarkerfi.
e) Utanríkismál
Utanríkismál munu verða á
dagskrá, þar á meðal spurningin
um tengsl okkar við Evrópusam-
bandið. Vinstrihreyfingin
grænt framboð vill varðveita
fullt og óskorað sjálfstæði Is-
lendinga og forræði í eigin mál-
um. Við höfnum aðild að Evr-
ópusambandinu og viljum að
samskiptin við Evrópusamband-
ið verði þróuð í átt til einfaldari
tvíhliða samninga um viðskipti
og samvinnu. Ganga á til við-
ræðna við Bandaríkjamenn um
það með hvaða hætti megi haga
brottflutningi hersins, samhliða
eflingu atvinnulífs á Suðurnesj-
um. Nú eru uppi vestanhafs
ískyggilegar hugmyndir um að
breyta hlutverki hernaðarbanda-
Iagsins Nató og skilgreina það
formlega sem alheimsbandalag.
Inn í þetta koma hugmyndir
Bandarfkjamanna um að Nató
geti gripið til einhliða aðgerða
án undangengins samþykkis
Sameinuðu þjóðanna.
Þetta sýnir að ekki er síður
ástæða nú heldur en áður fyrir
friðelskandi smáþjóð eins og Is-
lendinga að segja skilið við þetta
hernaðarbandalag.
Framtíðarhorfur og alda-
hvörf
Að sjálfsögðu verður einnig á
komandi vori kosið um mismun-
andi áherslur hvað varðar fram-
tíðarsýn fyrir íslenskt samfélag.
Þar takast einstaldingshyggjan
og félagshyggjan á um spurning-
una: hvernig samfélag?
Við sem aðhyllumst vinstri
stefnu og umhverfisvernd viljum
sjá öflugt velferðarsamfélag
samhjálpar og samábyrgðar, þar
sem menn skipta kökunni sem
jafnast og axla byrðarnar sam-
eiginlega. Við viljum sjá öflugt
velferðarkerfi fjármagnað af
sameininlegum tekjum. Við vilj-
um setja markaðsöflunum
skorður og tryggja að mikilvæg
markmið um vernd náttúru og
umhverfis um jöfnuð milli þegn-
anna án tillits til búsetu, kyn-
ferðis o.s.frv. verði ekki fyrir
borð borin. Við viljum að Island
varðveiti sjálfstæði sitt og full-
veldi. Á ýmsan hátt eru hér
kjöraðstæður til að ná þessu
fram. Ur skuggahliðum samfé-
lagsins berast hins vegar einnig
alvarleg skilaboð, aukið ofbeldi,
vaxandi frkniefnanotkun, upp-
lausn fjölskyldna og rótleysi í
nútímanum og fjöreggið sjálft
það er sjálfstæði þjóðarinnar, er
einnig brothætt. Sú auðlind sem
reynst hefur Islendingum mikil-
vægari en nokkur önnur síðast-
liðin rúm 50 ár er einmitt sjálf-
stæðið því aldrei hefur þjóðinni
vegnað betur en eftir hún tók
eigin mál í sínar hendur.
Á stjórnmálasviðinu er eðli-
lega spáð í stjórnarmynstur að
afloknum kosningum og ýmsir
telja meira og minna frágengið
að sama ríkisstjórn sitji áfram.
Alltof snemmt er þó að slá því
föstu. Ríkisstjórn án Sjálfstæðis-
flokksins yrði væntanlega sam-
steypustjórn Framsóknar, sam-
fylkingarinnar svonefndu og
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs sem yrði fulltrúi
vinstri sjónarmiða og umhverfis-
verndar og tryggði að ferskir
vindar blésu í seglin.
Sífellt fjölgar í hópi þeirra
hagfræðinga sem telja alþjóða-
væðingu hins kapítalíska fjár-
magnskerfis á góðri leið með að
tortíma því sjálfu. Lýðræðislega
kjörin stjórnvöld og yfirvöld
efnahagsmála í einstökum þjóð-
ríkjum standa uppi varnarlaus
og vanmáttug gegn spekúlöntum
og fjárglæframönnum sem gera
út á skyndigróða og ofsagróða af
fullkomnu miskunnarleysi. Að
koma böndum á ófreskju hins
alþjóðlega áhættufjármagns og
glíma við hin stóru hnattrænu
umhverfisvandamál verða við-
fangsefni á komandi árum sem
setja munu í æ ríkari mæli mark
sitt á stjórnmálabaráttuna.
Fram undan eru aldahvörf að
okkar tímatali. Margt bendir til
að nýfrjálshyggjan sem ráðandi
hugmyndfræði sé að syngja sitt
síðasta. Þess sér stað í ferskum
vindum ýmissa vinstri samtaka
og umhverfisverndarsamtaka
sem hafa verið að sækja fram á
sviði vestrænna stjórnmála víða
á undanförnum misserum. Má í
því sambandi nefnda stórsigur
vinstri flokksins í Svíþjóð á síð-
astliðnu hausti, árangur þýskra
græningja sem nú eiga aðild að
ríkisstjórn þar í landi í fyrsta
sinn og sterka stöðu vinstri
flokka í Frakklandi, á Italíu,
Nýja-Sjálandi og víðar. Kjósend-
ur þessara landa eru búnir að fá
nóg af fijálshyggjunni hvort sem
hægri menn eða kratar taka að
sér að framkvæma hana og von-
andi bætast sem flestir íslenskir
í þeirra hóp næsta vor.