Dagur - 31.12.1998, Blaðsíða 18
34 - FIMMUDAGUR 31. DESEMBER 1998
Xfc^ui'
Kaffæring á náttúru-
perlum viðHágöngur
ogfyrirhugaðar virkj-
anaframkvæmdir norð-
an Vatnajökuls hafa
vakiðúpp óvenjumik-
il tilfinningaviðbrögð
hjá landsmönnum.
Virkjanaframkvæmdir á hálend-
inu s.l. sumar vöktu upp heitar
tilfinningar og víðtæka andstöðu
gegn því að stór svæði af ósnort-
inni náttúru og margar nátt-
úruperlur hálendisins verði kaf-
færðar undir uppistöðulónum
fyrir virkjanir. Náttúruverndar-
samtök mótmæla af öllum kröft-
um, flaggað var í hálfa stöng við
Fögruhveri, listamenn hafa
mánuðum saman lesið ættjarð-
arljóð á Austurv'elli og nýjustu
varðliðar hálendisins eru ungir
heimspekinemar sem stóðu
hungurvöku fram yfir jól.
Fánifyrir hverjaþúsund
Mikla athygli vakti Guðmundur
Páll Ólafsson náttúrufræðingur
þegar hann flaggaði íslenska
fánanum í hálfa stöng við
Fögruhveri til að mótmæla því
að þær gersemar og dýrmætt
landssvæði á stærð við Mývatn
Deilur risu um notkun Guðmundar Páls Oiafssonar á íslenska fánanum við Hágöngur.
færi undir vatn í uppistöðulóni
Hágöngumiðlunar. Þegar lög-
regla var send á hæla Guðmundi
til að Qarlægja fánann, til að
hann færi ekki í vatn, hélt Guð-
mundur aftur með 270 fána -
einn íyrir hverja 1.000 íslend-
inga - sem næstu dægur hurfu
undir yfirborð ört vaxandi uppi-
stöðulónsins.
Tilræði við náttúruna...
Um tilganginn sagði Guðmund-
ur í viðtali við Dag: „Eg var að
reyna að skrásetja þetta svæði
með myndum, svæði sem þjóðin
mun aldrei sjá aftur, og mót-
mæla því siðleysi að Landsvirkj-
un með Ieyfi stjórnvalda eyði-
leggi þjóðargersemar". Virkjana-
stefnu Landsvirkjunar kallar
Guðmundur tilræði við íslenska
náttúru. Hún byggðist á uppi-
stöðulónum, á að færa fallvötn
fram og til baka, breyta rennsli
áa, breyta vistkerfum, sökkva
gróðurlendi, trufla náttúrufar
fljóta, strandsjávar við Island og
allt mögulegt sem menn viti ekki
um.
Ættjarðarljóð á Austurvelli
Stórir hópar fólks eru sama
sinnis og reyna nú með öllum
tiltækum ráðum að berjast gegn
áformuðum virkjanafram-
kvæmdum norðan Vatnajökuls,
til orkuöflunar íyrir álver á Aust-
urlandi. Skáld og Ieikarar hafa
nú lesið ættjarðarljóð við styttu
Jóns Sigurðssonar, einn dag í
viku, allar götur síðan í júlí.
Vilja þeir þannig leggja sitt af
mörkum til vamar ósnortinni
náttúru norðan Vatnajökuls og
mótmæla því að gróðurvinjar og
náttúruperlur hálendisins verði
kaffærðar undir gríðarstórum
uppistöðulónum fyrir virkjanir.
Hungurvaka í Háskólanum
Og enn bætist í hóp varðliða
hálendisins. Heimspekinemarnir
Guðrún Eva Mínervudóttir og
Elín Agla Briem hófu tíu daga
hungurvöku þann 17. desember.
Grænmetisseyði verður þeirra
jólamatur að þessu sinni. Segj-
ast þær eindregið á móti virkj-
anaframkvæmdum norðan
Vatnajökuls. „Við vorum búnar
að tala okkur heitar heima í
stofu og urðum alltaf reiðari og
reiðari þangað til við ákváðum
að fara af stað. Og við eigum
ekki annað en líkama okkar til
að láta í Ijós hvað þetta er okkur
mikils virði,“ sögðu þessir bar-
áttumenn í viðtali við Dag.
- HEl
ÁRAMÓTALÍFIÐ í LANDINU
Hnakkrifistum
hálendismáfin
Reifarakenndur kosningaslagnr
Sjálfstæðisflokkurinn
kom vel út í sveitar-
stjómarkosningunum,
en sigurReykjavíkur-
listans þráttfyrir mál
Hrannars ogHelga ýtti
við Davíðforsætisráð-
herra. RÚV átti undir
höggaðsækja, en
almenningurvar
ósammála landsfóð-
urnum.
Sveitarstjórnarkosningarnar 22.
maí þóttu spennandi og þegar
útslitin voru Ijós þótti tvennt
standa uppúr; sigur Reykjavíkur-
listans í höfuðborginni og góð
útkoma Sjálfstæðisflokksins á
landsvísu. Þegar búið var að
greina úrslitin tók hins vegar við
annað lífseigt umræðuefni; um-
mæli Davíðs Oddssonar forsæt-
isráðherra um hlutdræga kosn-
ingaumijöllun fréttastofa RUV,
þó sérstaklega útvarpsins, mest í
tengslum við málefni Hrannars
B. Arnarssonar og Helga Hjörv-
ar.
Sigur Reykjavíkurlistans í
borginni var sögulegur; aldrei
áður höfðu vinstrimenn haldið
borginni tvö tímabil. Listinn
fékk 53,6% og átta fulltrúa
kjörna, en Sjálfstæðisflokkur
42,5% og sjö kjörna. Annars
staðar kom Sjálfstæðisflokkur-
inn vel út og á stöku stað vegn-
aði samfylkingaröflum ágætlega.
Frekar R án Hraimars en D
Kosningabaráttan var hefðbund-
in Iengst af eða þar til tveir
menn opnuðu heimasíðu á Net-
inu með hörðum ásökunum í
garð Hrannars og Helga vegna
viðskiptaferils þeirra. Gögnum
um þessi mál hafði verið dreift
víða, en fjölmiðlar ekki séð
ástæðu til að gera mikið úr efn-
inu, þar til á lokaspretti barátt-
unnar. Þrátt fýrir harðar ásakan-
ír völdu óánægðir kjósendur
fremur að strika þá félaga út en
að kjósa hinn kostinn. I Degi
sagði Sighvatur Björgvinsson:
„Almennt tel ég að fólki ofbjóði bjóðendum með persónulegum
þessi aðferð að ganga að fram- hætti kortéri fyrir kosningar."
Þrátt fyrir ágæta útkomu Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum
brást Davíð hinn versti við úrslitunum og kenndi einkum um fréttaflutningi
RÚV. Árni og Ingibjörg í Ráðhúsinu á kosninganóttina.
7.672 kjósendur Reykjavíkurlist-
ans strikuðu út Hrannar eða
22%. 1.867 strikuðu út Helga
eða 5,4%.
Þrátt fyrir ágæta útkomu
Sjálfstæðisflokksins brást Davíð
hinn versti við úrslitunum í
Reykjavík og kenndi einkum um
fréttaflutningi RUV. I skoðana-
könnun Hagvangs tók almenn-
ingur ekki undir með Davíð eða
öðrum sem gagnrýndu frétta-
stofuna, svo sem prófessor
Hannesi Hólmsteini Gissurar-
syni eða Sigurði Þ. Ragnarssyni
fréttamanni. Spurt var: „Fannst
þér fréttaflutningur Ríkisútvarps
og Ríkissjónvarps af kosninga-
málum og kosningaundirbúningi
í heild áreiðanlegur?" Já sögðu
60,3% eða 86% þeirra sem af-
stöðu tóku. Það breytti hihu
ekki að eftir kosningar ákvað
Hrannar að draga sig í hlé á
meðan skattrannsókn færi fram
í máli hans. Þeirri rannsókn er
enn ólokið. Annar réttkjörinn
borgarfulltrúi dró sig einnig í
hlé; Inga Jóna Þórðardóttir tók
við af Arna Sigfússyni sem odd-
viti D-Iistans og axlaði hann þar
með ábyrgð á ósigrinum. — FÞG