Dagur - 31.12.1998, Blaðsíða 22
38 - FIMMUDAGUR 31. DESEMBER 1998
T>*ptr
Líkt og nokkur undanfarin ár
bregður umsjónarmaður Popp-
síðu á leik með lesendum Dags
með poppgetraun. Er tilgangur-
inn sem jafnan fyrr að skemmta
lesendum um leið og þeir reyna
sig við 20 spurningar úr ýmsum
áttum, bæði af inníendum og er-
lendum toga. Eru spurningarnar
væntanlega við hæfi sem flestra,
hæfilega erfiðar og léttar í
bland.
Gleðilegt nýtt tónlistarár.
1. Islenskir popptónlistarmenn
voru þónokkuð mikið í sviðs-
ljósinu erlendis á árinu sem
er að Iíða. Fór Kolrassa
krókrfðandi/Bellatrix þar
einna fremst í flokki m.a.
með sigurför á In the city
tónlistarráðstefnuna í
Manchester, þar sem sveitin
vakti mikla Iukku. Spurning-
in er hins vegar sú, hver
hinn dugmikli umboðsmaður
Bellatrix í Englandi sé, sem
reyndar hefur lengst af verið
þekktari fyrir annað starf?
Spurt er hvort einhverjir
muni ennþá undir hvaða
nafni hún gekk í Spice Girls?
5. Hver bar ábyrgð á „Farand-
skugganum" sem fór á kreik
nokkru fyrir jól og vakti bara
töluverða athygli?
6. Hvaða vel þekktri og vinsælli
poppsveit vottaði Gusgus
hópurinn virðingu sína á ár-
inu?
7. Gítarleikarinn sómakæri
Friðrik Karlsson sem þið sjá-
ið hér á myndinni, gat sér
það m.a. til frægðar á árinu
að spila í einu af vinsælli
lögum ársins í Bretlandi.
Með hverjum var Iagið?
8. Rokkarinn vafasami og mjög
svo umdeildi, Marlyn Man-
son, er einhver vinsælasti
tónlistarmaður nútímans,
a.m.k. í Bandaríkjunum. Per-
sónan á bak við hann heitir
allt öðru nafni, en hvaðan
fékk hún listamannsnöfnin
tvö, Marlyn og Manson?
10. Mikið var rætt og ritað,
spjallað og spekúlerað um
hugsanlega komu eilífðar-
unglinganna og rokkjöfranna
í Rolling Stones, til landsins.
Allir muna þetta ennþá og að
nú er gert ráð fyrir að þeir
komi næsta sumar. Spurn-
ingin er aftur á móti til gam-
ans. Hver er kappanna elst-
ur?
11. „Hnötturinn siglir sinn veg“
sagði í upphafi lags er naut
mikilla vinsælda í sumar.
Hver söng og hvar er lagið að
finna?
12. Landsfræg söngkona hafði
bróður sinn fyrir útgefanda
nú fyrir jólin. Hver er hún?
13. Hvaða ný íslensk rokkhljóm-
sveit, er gaf út sína fyrstu
plötu á árinu, inniheldur tvo
fyrrum meðlimi Jet black
Joe?
14. Platan This is my truth, tell
me yours inniheldur eitt af
vinsælustu lögum ársins.
Hverjir eru mennirnir þar á
bak við?
9. Hvaða íslensk hljómsveit
vakti töluvert milda lukku
hjá landsmönnum sl. sumar,
kennir sig við útdautt fyrir-
bæri úr lífríkinu?
Friðrik Karlsson.
2. Þessi myndarlega söngkona
tjáði heiminum sín „Uppá-
halds mistök“ á árinu við
miklar vinsældir. Hver er
hún?
3. Sálin hans Jóns míns, fagn-
aði á árinu 10 ára útgáfu-
ferli. Spurt er um fyrsta
trommuleikara sveitarinnar
og jafnframt einn aðalhvata-
mann að stofnun hennar?
4. Hún Geri Halloway, sem
Iengst af var einna fremst f
flokki í Spice Girls, en ákvað
svo að hætta sem kunnugt
er, varð þess þó ekki valdandi
að ofurvinsælu píurnar
hættu, eins og margir spáðu.
Hljómsveitin ummmhmmm.
17. Þessi garpur hér söng eina
vinsælustu rokkballöðu árs-
ins í kvikmyndinni Arma-
geddon. Hvað heitir hljóm-
sveitin hans?
18. Ungrokkhetjurnar í Botn-
leðju voru m.a. í sviðsijósinu
á árinu fyrir litríka ferð til
Ameríku, auk þess að hafa
20. í kvikmynd Hilmars Odds-
sonar, Sporlaust, sem frum-
sýnd var f sumar, var nokkuð
af nýrri íslenskri popptónlist.
Hvaða par átti þar hlut að
máli við leik og söng?
Rétt svör verða birt í fyrsta
blaði eftir áramót.
15.Blessaði drengurinn hann
Páll Óskar var mikið í sviðs-
ljósinu á árinu líkt og undan-
farin ár. Spurningin er hvað
hljómsveitin heitir sem fylgdi
honum þetta sinnið?
ló.Hljómsveitirnar Fitl og
ummmhmmm (sú sfðar-
nefnda hér á meðfylgjandi
mynd) áttu það sameiginlegt
að koma fram á sjónarsviðið
í ár og gefa út sínar fyrstu,
en ólíku plötur. Sömuleiðis
eru þær báðar frá sama bæn-
um. Hvaða?
sent frá sér plötuna góðu,
Magnyl. Hvað kalla Heiðar
og félagar sig á erlendri
grundu?
19. Passíusálmur nr. 51, lag í
flutningi Ellenar Kristjáns-
dóttur við ljóð Steins Stein-
arrs hefur verið eitt vin-
sælasta íslenska lagið nú
undir lok ársins. Hver er höf-
undur þess?