Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 22

Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 22
38 - FIMMUDAGUR 31. DESEMBER 1998 T>*ptr Líkt og nokkur undanfarin ár bregður umsjónarmaður Popp- síðu á leik með lesendum Dags með poppgetraun. Er tilgangur- inn sem jafnan fyrr að skemmta lesendum um leið og þeir reyna sig við 20 spurningar úr ýmsum áttum, bæði af inníendum og er- lendum toga. Eru spurningarnar væntanlega við hæfi sem flestra, hæfilega erfiðar og léttar í bland. Gleðilegt nýtt tónlistarár. 1. Islenskir popptónlistarmenn voru þónokkuð mikið í sviðs- ljósinu erlendis á árinu sem er að Iíða. Fór Kolrassa krókrfðandi/Bellatrix þar einna fremst í flokki m.a. með sigurför á In the city tónlistarráðstefnuna í Manchester, þar sem sveitin vakti mikla Iukku. Spurning- in er hins vegar sú, hver hinn dugmikli umboðsmaður Bellatrix í Englandi sé, sem reyndar hefur lengst af verið þekktari fyrir annað starf? Spurt er hvort einhverjir muni ennþá undir hvaða nafni hún gekk í Spice Girls? 5. Hver bar ábyrgð á „Farand- skugganum" sem fór á kreik nokkru fyrir jól og vakti bara töluverða athygli? 6. Hvaða vel þekktri og vinsælli poppsveit vottaði Gusgus hópurinn virðingu sína á ár- inu? 7. Gítarleikarinn sómakæri Friðrik Karlsson sem þið sjá- ið hér á myndinni, gat sér það m.a. til frægðar á árinu að spila í einu af vinsælli lögum ársins í Bretlandi. Með hverjum var Iagið? 8. Rokkarinn vafasami og mjög svo umdeildi, Marlyn Man- son, er einhver vinsælasti tónlistarmaður nútímans, a.m.k. í Bandaríkjunum. Per- sónan á bak við hann heitir allt öðru nafni, en hvaðan fékk hún listamannsnöfnin tvö, Marlyn og Manson? 10. Mikið var rætt og ritað, spjallað og spekúlerað um hugsanlega komu eilífðar- unglinganna og rokkjöfranna í Rolling Stones, til landsins. Allir muna þetta ennþá og að nú er gert ráð fyrir að þeir komi næsta sumar. Spurn- ingin er aftur á móti til gam- ans. Hver er kappanna elst- ur? 11. „Hnötturinn siglir sinn veg“ sagði í upphafi lags er naut mikilla vinsælda í sumar. Hver söng og hvar er lagið að finna? 12. Landsfræg söngkona hafði bróður sinn fyrir útgefanda nú fyrir jólin. Hver er hún? 13. Hvaða ný íslensk rokkhljóm- sveit, er gaf út sína fyrstu plötu á árinu, inniheldur tvo fyrrum meðlimi Jet black Joe? 14. Platan This is my truth, tell me yours inniheldur eitt af vinsælustu lögum ársins. Hverjir eru mennirnir þar á bak við? 9. Hvaða íslensk hljómsveit vakti töluvert milda lukku hjá landsmönnum sl. sumar, kennir sig við útdautt fyrir- bæri úr lífríkinu? Friðrik Karlsson. 2. Þessi myndarlega söngkona tjáði heiminum sín „Uppá- halds mistök“ á árinu við miklar vinsældir. Hver er hún? 3. Sálin hans Jóns míns, fagn- aði á árinu 10 ára útgáfu- ferli. Spurt er um fyrsta trommuleikara sveitarinnar og jafnframt einn aðalhvata- mann að stofnun hennar? 4. Hún Geri Halloway, sem Iengst af var einna fremst f flokki í Spice Girls, en ákvað svo að hætta sem kunnugt er, varð þess þó ekki valdandi að ofurvinsælu píurnar hættu, eins og margir spáðu. Hljómsveitin ummmhmmm. 17. Þessi garpur hér söng eina vinsælustu rokkballöðu árs- ins í kvikmyndinni Arma- geddon. Hvað heitir hljóm- sveitin hans? 18. Ungrokkhetjurnar í Botn- leðju voru m.a. í sviðsijósinu á árinu fyrir litríka ferð til Ameríku, auk þess að hafa 20. í kvikmynd Hilmars Odds- sonar, Sporlaust, sem frum- sýnd var f sumar, var nokkuð af nýrri íslenskri popptónlist. Hvaða par átti þar hlut að máli við leik og söng? Rétt svör verða birt í fyrsta blaði eftir áramót. 15.Blessaði drengurinn hann Páll Óskar var mikið í sviðs- ljósinu á árinu líkt og undan- farin ár. Spurningin er hvað hljómsveitin heitir sem fylgdi honum þetta sinnið? ló.Hljómsveitirnar Fitl og ummmhmmm (sú sfðar- nefnda hér á meðfylgjandi mynd) áttu það sameiginlegt að koma fram á sjónarsviðið í ár og gefa út sínar fyrstu, en ólíku plötur. Sömuleiðis eru þær báðar frá sama bæn- um. Hvaða? sent frá sér plötuna góðu, Magnyl. Hvað kalla Heiðar og félagar sig á erlendri grundu? 19. Passíusálmur nr. 51, lag í flutningi Ellenar Kristjáns- dóttur við ljóð Steins Stein- arrs hefur verið eitt vin- sælasta íslenska lagið nú undir lok ársins. Hver er höf- undur þess?

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.