Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 7

Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 7
 FIMMTUDAGVR 31. DESEMBER 1998 - 23 ÁRAMÓTAÁ VARP GUÐNX. GUÐBJORNS- DÖTTIR skrifar Áramótin eru framundan og kosningavor. Að baki er eitt mesta góðæri stóríyrirtækja og þeirra sem eiga peninga á Is- landi, á meðan mannréttindi eru brotin á öldruðum og öryrkjum. Ríkisstjórnin hefur sætt mikilli gagnrýni vegna stefnu sinnar í ýmsum grundvallarmálum. Þar ber fyrst að nefna sjávarútvegs- málin, hálendismálin, bóta- greiðslur til öryrkja og aldraðra og vinnubrögðin við hið marg- fræga gagnagrunnsfrumvarp. Tveir hæstaréttardómar hafa fallið um ólögmæti stefnu ríkis- stjórnarinnar. Dómar þessir styrkja trú mína á sjálfstæði dómstólanna og vekja vonir um aukið jafnræði í þjóðfélaginu, þar sem nýtt jafnræðisákvæði stjórnarskrárinnar er notað á sannfærandi hátt. Viðbrögð rík- isstjórnarinnar hafa verið slík að flestum ofbýður hrokinn og virð- ingarleysið fyrir stjórnarskrár- vörðum mannréttindum lands- manna. A sama tíma hafa verið að skapast þær sögulegu aðstæður að jafnaðarmenn, Alþýðubanda- lagið og Kvennalistinn næðu saman um framboð fyrir al- þingiskosningarnar í maí. Þó að samfylkingin hafi haft byr löngu áður en hún komst á fram- kvæmdastig þá fara vinsældir hennar dvínandi og ríkisstjórn- arflokkarnir styrkjast. Hvernig má þetta vera? Hvers vegna ná samfylkingarflokkarnir ekki að nýta sér þá undiröldu óánægju sem er í þjóðfélaginu með nú- verandi ríkisstjórn misréttis og sérhagsmuna? Er góðærinu einu um að kenna? Nei, því miður er svarið flókn- ara en svo. Þar er óhjákvæmilegt að benda á vandræðaganginn við framboðsmál samfylkingar- innar, sem hafa reynst það erfið, einkum í Reykjavík, að margir hafa skaðast af. A það bæði við viðkomandi stjórnmálasamtök, einstaldinga og samfylkinguna sjálfa. Eins og er (29/12) horfir illa með þátttöku Kvennalistans en án hans er samfylking þess- ara þriggja flokka úr sögunni. I raun snýst baráttan um hvor A- flokkana leiði listann í Reykja- vík, og hvort staðið verður við heiðursmannasamkomulag við Kvennalistann og það tryggt að öll samtökin geti tekið þátt í samfylkingunni með reisn. Þessi átök eru að gera draum fólks um betra samfélag að engu. Þau gera samfylkinguna ótrúverðuga „Ríkisstjórnin hefur sætt mikilli gagnrýni vegna stefnu sinnar íýmsum grundvallarmálum. Þar ber fýrst aö nefna sjávarútvegsmálin, hálendismálin, bótagreiðslur til öryrkja og aldraðra og vinnubrögðin við hið margfræga gagnagrunnsfrumvarp, “ segir Guðný meðal annars í grein sinni. og fæla frá kjósendur og æ fleiri þátttakendur úr viðkomandi flokkum. Því miður. Kveimalistinn og samfylk- ingin Strax að loknum síðustu kosn- ingum hófst umræða í Kvenna- listanum um það hvernig hug- myndum samtakanna um kven- frelsi og jafnrétti verði best borgið í stjórnmálum næstu ald- ar. A landsfundinum að Ulfljóts- vatni 1997 var samþykkt að vinna að sameiginlegri málefna- skrá með Alþýðuflokki og Al- þýðubandalagi vegna alþingis- kosninganna 1999. Þetta var umdeild ákvörðun sem olli því að nokkrar konur, þar af ein þingkona, yfirgáfu Kvennalist- ann. Eftir það hefur ríkt mikill einhugur um að reyna þessa leið, þó að nokkrar konur þar á meðal Kristín Halldórsdóttir þingkona væru því ekki fylgj- andi. Sú sem þetta ritar hefur til þessa verið talsmaður samfylk- ingarstefnu Kvennalistans bæði á Alþingi, í stýrihópi samfylking- arinnar og í málefnavinnunni á öllum stigum. Fyrir síðasta landsfund lá fyrir samkomulag um flest atriði nema framboðsmálin. I ljósi fyr- irliggjandi heiðursmannasam- komulags í Reykjavík um tvo þingmenn þar og góðra undir- tekta almennt í kjördæmanefnd- unum um að Kvennalistinn geti fengið 3. sætið samþykkti síð- asti landsfundur samtakanna í Reykholti í byrjun nóvember að taka þátt í samfylkingunni með því skilyrði að Kvennalistinn fái þrjú þingsæti, enda viðurkennt viðmið að valdahlutföll miðuð- ust við núverandi kjörfylgi. Þessi lýðræðislega samþykkt olli sterkum mótviðbrögðum A- flokkanna. Akveðið var að bíða eftir að niðurstaða fengist í Reykjavík og Reykjanesi, sem við bjuggumst við að tæki tvær vik- ur, en niðurstaðan í Reykjavík er enn ókomin. I Reykjanesi hefur nýlega náðst samkomulag um prófkjór sem tryggir Kvennalist- anum 4. sætið. Fyrirliggjandi „tilboð“ í Reykjavík sem A-flokk- arnir hafa nú báðir samþykkt eru tvö sæti af 8 í flokkapróf- kjöri, sem þýðir miðað við stærð flokkanna að Kvennalistinn fær 7. og 8. sætið og Iíklega einn þingmann. Hvergi er enn tryggt að Kvennalistinn fái 3. sæti list- ans. Þetta er algjörlega óviðun- andi staða. KlappstýruMutverk? Ég hef ákveðið að ganga samn- ingabrautina á enda í samræmi við vilja samráðsfunda Kvenna- listans, sem haldnir eru reglu- lega. Nú er í spilunum sannköll- uð klappstýrustaða sem mér hugnast alls ekki. Jafnræði hefur ríkt með flokkunum í allri vinnu til þessa en þegar kemur að völdunum er okkur ætlað að vera annars flokks þegnar. Nei takk! I kosningabandalagi eða í ríkisstjórnarsamstarfi ríkir oft meira jafnræði á milli aðila en stærðin segir til um. Sú regla virðist ekki eiga upp á pallborðið hér. I þinginu skiptir máli í hvaða sæti á listum þingmenn eru, þar sem völd og virðing fara gjarnan eftir númeraröð þing- manna. Til að „komast í hátalar- ana“ eins og stundum er sagt, skiptir mestu að leiða lista eða vera í forsvari fyrir þingflokk. Það hefur hingað til verið hlut- skipti kvennalistakvenna, en í þeirri samfylkingu sem nú er á taflborðinu verður það ekki raunin. Ef fram fer sem horfir mun þriðja og síðasta þingkona Sam- taka um kvennalista yfirgefa samfylkinguna. Það gerir hún ekki með gleði, heldur með reiði og vonbrigðum. Og það munu fleiri kvennalistakonur gera ef ekki kemur til breytt samnings- staða. Margar hugmyndir okkar kvennalistakvenna eru komnar inn í málefnaskrá samfylkingar- innar. Þar má nefna 12 mánaða fæðingarorlof á fullum launum þar af 3-6 mánuði til feðra, stór- átak í jafnréttismálum og upp- stokkun á bóta-, skatta- og tryggingakerfinu með hliðsjón af því að bæði kynin eru útivinn- andi og þarfnast sambærilegra launa, lífeyris og örorkubóta óháð hjúskaparstöðu, á tímum jafnréttis og tíðra hjónaskilnaða. Til að þessar hugmyndir komist í framkvæmd þarf sem flesta öfl- uga þingmenn sem eru tilbúnir til að setja þær í forgang og fylgja þeim eftir í reynd. Kosningamar i vor Kosningarnar í vor munu snúast um það hvort almannahagsmun- ir verði teknir fram yfir sérhags- munastefnu núverandi rfkis- stjórnar. Þar verða sjávarútvegs- málin fyrirferðamest, enda frumvörp ríkisstjórnarinnar vegna dóms hæstaréttar mála- myndalausn sem opnar á veiði- leyfi án þess að taka á mismun- un við úthlutun aflaheimilda. Dómur hæstaréttar krefst mun meiri uppstokkunar í samræmi við þá staðreynd að nytjastofh- arnir eru sameign þjóðarinnar. Það ákvæði vil ég festa í stjórn- arskrá og verður tillaga mín þess efnis bráðlega tekin fyrir á Al- þingi þriðja árið í röð. Nú er lag til að samþykkja hana samfara breytingum á stjórnarskránni vegna breyttrar kjördæmaskip- unar. Jafnréttismálin með áherslu á afnám launamisréttis kynjanna, menntamálin og þarf- ir uppvaxandi kynslóðar við margbreytilegar fjölskylduað- stæður, veíferðarmálin með áherslu á sjúka, aldraða og ör- yrkja verða að sjálfsögðu að fá verðugan sess í kosningabarátt- unni, því margt þarf að breytast til batnaðar. Síðast en ekki sfst eru það málefni hálendisins og átökin milli virkjana og um- hverfisverndar. Kosningabarátt- an ætti að geta orðið kröftug með afbrigðum og vonandi taka sem flestir landsmanna þátt í henni. Eg óska landsmönnum öllum gleðilegs árs, friðar og farsældar á komandi ári.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.