Dagur - 31.12.1998, Qupperneq 15
T
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 - 31
ÁRAMÓ TALÍFJÐ í LANDINU
aðrar frettir
Fréttin afkomu Rolling Stones til íslands er óhjákvæmilega ekkifrétt ársins,
fréttin sem ekki varð.
Keiko er dýr ársins enda geta fáir leikið það eftir að vera í beinni útsendingu í
sjónvarpi.
Fréttaflóran á árinu
varfjölbreytileg og
skemmtileg í langflest-
um tilfellum. Hver
skyldi vera sigurvegari
eða tapari ársins?
Hvaða frétt varjá-
kvæðasta menningar-
fréttin oghvaða frétt
varmesta ekkifréttin?
Hér rifjum við upp all-
argóðu fréttimar- og
þærsorglegu líiia!
Sigurvegari ársins er tvímæla-
laust skúffuskáldið Kári Stefáns-
son, forstjóri Islenskrar erfða-
greiningar, sem tókst að fá for-
sætisráðherra og ríkisstjórn til
að berja í gegn Iagafrumvarp um
miðlægan gagnagrunn með upp-
lýsingum um heilsufar þjóðar-
innar og einkaleyfi sér til handa
um miðjan desember þrátt fyrir
öfluga mótspyrnu sérfræðinga
og stjórnarandstöðu og gagnrýna
umfjöllun erlendis. Kári hefur
talið stórum hluta af alþingis-
mönnum og allri ríkisstjórninni
trú um að hægt sé að dulkóða
þessar upplýsingar og koma
þannig í veg fyrir að þær komist
í rangar hendur. Dagur sagði frá
því á árinu að kannski væri hér
kominn „kóngssonur í álögum".
Já, allt er hægt á íslandi en
þetta hefur engum tekist áður.
Bankastjóri ársins
Sverrir Hermannsson, fyrrver-
andi bankastjóri Landsbanka ís-
Iands, veitti Kára þó harða sam-
keppni um titilinn maður ársins.
Hann virtist pikkfastur í spill-
ingu í Landsbankanum og varð
að segja af sér ásamt Björgvini
Vilmundarsyni og LIalldóri Guð-
bjarnasyni en var ekki af baki
dottinn. A undraskömmum tíma
sneri Sverrir vörn í sókn, stóð
spillingarumræðuna af sér og
fann sér félaga til framboðs hjá
Samtökum um þjóðarhag. Allir
gátu þeir sameinast um kvóta-
málin en það stóð stutt. Þegar
ágreiningur kom upp flýtti
Sverrir sér að stofna Frjálslynda
flokkinn og skaut þannig hinum
ref fyrir rass. Eftir nokkra sam-
keppni við bankastjórana í Bún-
aðarbankanum sem sendu
gestabókina frá íbúðinni í
London í Sorpu hlýtur maður-
inn með níu líf titilinn banka-
stjóri ársins.
Athafaamaðux árslns
Margir komu til greina sem
frumlegasti athafnamaður árs-
Frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
lést í haust eftir erfið veikindi. Þjóðin
var harmi slegin.
ins. Guðmundur Hansen sagði
frá því í ársbyrjun að hann væri
byrjaður með kanínurækt til
manneldis og væri þegar farinn
að selja kanínukjöt á veitinga-
staðina Greifann og Fiðlarann á
Akureyri. Eins og allir vita eru
kanínur herramannsmatur, kjöt-
ið milt og auðmeltanlegt. Guð-
mundur sagði að kanínurnar
væru viðkvæmar fyrir fóðri og
hreinlæti og kvaðst gefa þeim
hey og kjarnfóður þó að sumar
fengju gulrætur og þvílíkt góð-
gæti.
Sveinn Jónsson, athafnamað-
ur á Ytra-Kálfsskinni, hafði þó
vinninginn en hann kynnti þá
hugmynd sína að koma upp
kláfferju í 1200 metra hæð í
Hlíðaríjalli og sprengja inn veit-
ingahús efst uppi á brúninni á
Ijallinu. Áætlað var að Ijárfest-
ingin myndi nema hundruðum
milljóna króna en talið að hún
myndi fljótt skila sér með ferða-
mönnum og var Sveinn þegar
farinn að ræða við austurríska
fjárfesta. Sveinn kvartaði undan
þvi að Akureyringar tækju fálega
í hugmyndina en Jónas Frí-
mannsson verkfræðingur sagði:
,Alls ekki fráleit hugmynd."
Ekkifrétt ársins
Allt fór í háaloft á árinu þegar
því var lýst yfir að hljómsveitin
Rolling Stones hefði undirritað
samninga og kæmi til íslands til
að spila hér á tónleikum í októ-
ber. Dagsetning hinna meintu
tónleika breyttist stöðugt þar til
ljóst varð að Rollingarnir kæmu
ekki til íslands á þessu ári þó að
síðustu fréttir hermdu að full-
trúi hljómsveitarinnar hefði
skoðað svæði Eimskips við
Sundahöfn þar sem tónleikarnir
verða haldnir. Rolling Stones-
fréttin er útnefnd ekkifrétt árs-
ins, fréttin sem ekki varð.
Nokkrar aðrar menningar-
fréttir voru athyglisverðar á ár-
inu. Jákvæðasta fréttin var
kannski sú að uppgert húsnæði í
Iðnó var tekið í notkun og þar
hófst menningarstarfsemi á nýj-
an leik eftir langt hlé. Neikvæð-
asta menningarfréttin var senni-
lega af Leikfélagi Akureyrar sem
tók Renniverkstæðið í gagnið,
fækkað sætum og var með of
margar uppfærslur. Tapið nam
tugum milljóna króna og töldu
menn að ekki hefði verið hægt
að spara meira en gert var. Fyrir
\ikið var LA tekið í gjörgæslu
hjá bænum.
„Hefði ugglaust getað gert
betur,“ sagði leikhússtjórinn.
Konur ársins
Kynlíf komst heldur betur í um-
ræðuna á árinu og gekk svo
langt að talað var um að
„nektaræði" hefði geisað í
Reykjavík. Islenskar stúlkur
komu í fyrsta skipti fram á nekt-
armyndum í Playboy og var eft-
irspurnin eftir tímaritinu slík að
á nokkrum dögum hurfu öll
blöð úr verslunum og varð að
panta meira frá útlöndum.
Kynlíf kvenna kom í fyrsta
skipti til umræðu af einhverju
viti í framhaldi af því að stjórn
Kvenréttindafélags tslands rak
ritnefnd 19. júní fyrir að hafa
sent út spurningalista um kynlíf
kvenna. Þetta voru til að byrja
með meinleysislegar spurningar
á borð við: „Ertu í saumaklúbb?"
En fóru svo að þyngjast: „Á
hvaða aldri varstu þegar þú
fékkst f'yrst fullnægingu?" Nið-
urstaðan sýndi að fjórðungur
kvenna hefur haldið framhjá.
Hugrökku konurnar í ritnefnd
19. júní eru óhjákvæmilega kon-
ur ársins!
Dagur sagði einnig frá því að
íslensk rannsókn sýndi að Iengd
reðurs væri í lengra Iagi á Is-
landi miðað \ið reður hjá öðrum
þjóðum. Islenski reðurinn
mældist 20 cm að jafnaði (16-
24 cm). Þá sýndi rannsóknin að
getuleysi karla væri algengt eftir
50 ára aldur og ykist stöðugt eft-
ir fimmtugt. Ymislegt væri til
ráða, sumir lærðu að sprauta sig
sjálfir með prostaglandíni í „reð-
urgroppu“. I heildina virtust
karlarnir ánægðir með þá aðstoð
sem þeir fengu.
Karlmaður ársins
Nokkrir eru um hituna hvað
karlmann ársins varðar. Sigurð-
ur Torfi Guðmundsson, bústjóri
á Keldum, vann mál gegn ríldnu
um fæðingarorlof karla en fjár-
málaráðherra ætlaði að meina
honum mánaðarlangt fæðingar-
orlof. Til gamans er hins vegar
Áki Ármann Jónsson útnefndur
karlmaður ársins en hann var
skipaður veiðistjóri á Akureyri á
árinu. Það er þó ekki þess vegna
heldur vegna þess að hann
sleppti því að fara í gæs í sumar-
Iok þar sem honum hafði nýlega
fæðst barn. Áki Ármann gaf sér
þó tíma til að ræða veiðihorfur
haustsins við Dag. Karlmaður
sleppir veiði vegna barns. Síð-
asta vígið hlýtur að vera fallið!
Tapari ársins
Tapari ársins kom fram á sjónar-
sviðið fyrri hluta ársins þegar
MH-ingar undu illa við niður-
stöðuna í spurningakeppni Sjón-
varpsins, Gettu betur. Liðið
kærði úrslit keppninnar til út-
varpsráðs og óskaði eftir því að
verða dæmdur sigurinn vegna
mistaka í dómgæslu í úrslitaleik
MH og MR. Stjórnandi þáttar-
ins, Davíð Þór Jónsson, harmaði
þennan eftirmála.
Keiko er dýr ársins
Dýr voru töluvert í fréttum árs-
ins. Hrossasóttin skelfdi margan
hesteigandann og -unnandann
en fljótlega var ljóst að hún
myndi breiðast um allt landið.
Þrátt fyrir hrossasóttina var
Landsmót hestamanna haldið í
Eyjafirði og tókst vel. En þó að
mikið hafi verið fjallað um hesta
á árinu er dýr ársins tvímæla-
laust sjálfur Keiko, sem sumir
vildu kalla Keikan, dýrið sem
setti allt á annan endann í Am-
erfku og á Islandi. Hinn alís-
Ienski Keiko fluttist til landsins í
haust og var sjónvarpað beint
frá komu hans og þar til hann
var kominn í kvína við Vest-
mannaeyjar. Þar hefur hann
synt sæll og ánægður í sínum ís-
kalda sjó.
Sorg ársins
Margt sorglegt gerðist á árinu.
Fráfail tveggja tslendinga vakti
mikinn harm með þjóðinni: ís-
lenska nóbelsskáldið Halldór
Kiljan Laxness andaðist í hárri
elli og Guðrún Katrín Þorbergs-
dóttir, forsetafrú, lést eftir erfið
veikindi og legu á sjúkrahúsi.
Einnig dó Ásta B. Þorsteinsdótt-
ir, varaformaður Alþýðuflokks-
ins. Þýskir feðgar fórust í flugvél
yfir Vatnajökli og tveir fangar
fyrirfóru sér á Litla-Hrauni. I
framhaldi af því hófst umræða
um sjálfsvíg og öryggi fanga á
Litla-Hrauni. - GHS