Dagur - 26.02.1999, Síða 1
„Mig langar til að bæta það
sem mérfinnst að þuifi að
bæta íþessu litla samfélagi
okkaríHáskólanum en ég er
ekki að renna hýru augu til
landsmálapólitíkurinnar, “
segir Amfríður Henrýsdóttir.
Arnfríður hefur ekki neinar ákveðnar
skoðanir á kvótakerfinu eða öðru slíku.
Það eru fyrst og fremst hagsmunir stúd-
enta sem brenna á henni. „Stúdentaráð
hefur þann tilgang að starfa að hagsmun-
um okkar stúdenta fyrst og fremst: Þarna
er verið að fjalla um mál sem brenna á
okkur öllum; lánasjóðsmál, aðbúnað í Há-
skólanum, aðgengi og að það hafi allir að-
gang að Háskólanum óháð stétt og stöðu."
Eins og fram hefur komið í fréttum hélt
Röskva meirihluta sfnum í ráðinu í stúd-
entaráðskosningum á miðvikudaginn, hef-
ur 12 fulltrúa af 22. Arnfríður Henrýs-
dóttir, nemi í Iaeknisfræði, skipaði baráttu-
sætið á listanum. Dræm þátttaka var í
kosningunum.
Dellt um keisarans skegg
Arnfríður segir skýringuna vera þá að
stuðningsfólk Röskvu hafi hugsað sem svo
að það þyrfti ekkert að mæta, Röskva ynni
hvort eð er. Hún segist hafa talað við er-
lenda stúdenta frá Svíþjóð og Hollandi og
þeim hafi fundist rúm 40 prósenta þátt-
taka vera há tala, úti væri þátttakan í sam-
bærilegum kosningum um 10 prósent.
Fylkingarnar greinir helst á í Lánasjóðs-
málum, þar sem Vaka vill gera stúdentum
kleift að taka viðbótarlán á hærri vöxtum,
en Röskva leggur áherslu á að fá grunn-
framfærsluna hækkaða. Arnfríður segir
skylduaðild að stúdentaráði vera deilu um
keisarans skegg.
„Stúdentaráð er mjög öflugur málsvari
stúdenta. Ef réttur er brotinn á stúdent-
um þá eiga þeir þarna vísan bakhjarl þar
„Mitt lífsmottó er að allir eigi að gera það sem þá iangar til. Það verður hver að fljúga eins og
hann er fiðraður, “ segir Arnfríður Henrýsdóttir.
sem að þú getur leitað aðstoðar. Ef það er
ekkert fjármagn á bak við svona ráð kem-
ur það af sjálfu sér að það myndi veikja
alla starfsemi þess.
Mjög mikil umræða var um frumvarp
menntamálaráðherra til nýrra laga um há-
skólann. 50 breytingartillögur við þetta
frumvarp, sem voru allar samþykktar í Há-
skólaráði, voru samþykktar af Vöku líka.“
Báðir fætur á jörðinui
Arnfríður segir að galdurinn við það að
geta sinnt stúdentapólitíkinni samhliða
erfiðu námi sé sá að skipuleggja tíma sinn.
Hún segist ekki hafa sinnt neinu öðru síð-
ustu þrjár vikurnar en starfi fyrir Röskvu.
Nú taki námið við um helgina og próf á
mánudaginn.
„Eg verð nú seint kúristi, en það var að
sjálfsögðu vel lesið fyrir jól, af því að það
eru fjöldatakmarkanir í læknisfræðinni,
svokallaður „numerus clausus". Það geng-
ur ekki fyrir mig að lesa myrkranna á milli.
Það verður að brjóta þetta upp með ein-
hverri dægradvöl inn á milli. Eg skrepp í
bíó og heimsóknir til vina minna og kunn-
ingja. Mér finnst gott að vera með báða
fætur á jörðinni. Eg fann ekki fyrir miklu
stressi í haust en ákvað að njóta þess
hvernig sem færi. Ég held að það að lesa
frá 7-8 á morgnanna til 12 á nóttinni geri
það að verkum að maður klárar batteríin
og verði ekki eins hress f prófum þegar
þau koma. Eg fann að ég naut þess sem ég
var Iesa og þetta var akkúrat það sem mig
langaði að gera þannig að allt umfram var
bara plús. Það var ekkert til þess að fara á
taugum yfir. Það var góður hópur fólks
sem komst í gegnum prófin með mér.“
Hún segir það Iíka hafa verið góðan hóp
sem fór inn í stúdentaráð og það gefi starf-
inu gildi. Það vakti athygli í haust að allir
topparnir í stúdentaráði voru kvenkyns en
núna hefur Pétur Maack sest í stól fram-
kvæmdastjóra. Arnfríður segir að kynja-
hlutfallið milli deilda í háskólanum sé
skrýtið, hún segir að ef stráka langi í
hjúkrunarfræði eða stúlkur í verkfræði þá
eigi þau að gera það. „Mitt lífsmottó er að
allir eigi að gera það sem þá langar til. Það
verður hver að fljúga eins og hann er fiðr-
aður,“ segir Arnfríður. — PJESTA
Ljosabunaðup
BOSCH
Bílavarahlutir
TRIDONfe
Bílavarahlutir
Hillukerfi
Olíusfur
Vinnuvelar
Bílaperur
PROmeML
Verkfæri, efnavara og rekstrarvörur Rafmagnsvörur
Verslun “
Vatnshosur Hosuklemmur
Tímareimar Kúplingsbarkar og
og strekkjarar undirvagnsgormar.
Bensíndælur Topa vökvafleygar
Bensínlok vigtabúnaður
Bensínslöngur Purrkublöð
Álbarkar Rafmagnsvarahlutir
Lágmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820
BOSCH verkstæðið aðkeyrsla frá Háaleitisbraut
varahlutir
Þjónustumiðstöð í hjarta borgarinnar