Dagur - 26.02.1999, Side 4
20-FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1999
DagjLur
LÍFIÐ í LANDINU
UMBUÐA-
LAUST
lllugi
Jökulsson
skrifar
Vofa gengur nú Ijósum
logum um veröldina;
hræðileg forynja, komin
frá Japan, staðráðin í að
leggja í rúst hvaðeina
sem á vegi hennar verður,
hún svífst einskis í
grimmd sinni og ofsa. Eg
á ekki við Godzilla, enda
var það skrímsli bæði
saklaust og lítið í saman-
burði við þá ófreskju sem
nú gengur Iaus. Godzilla
• var þrátt fyrir allt ekki
meiri bógur en svo að ameríski herinn
dugði til að ráða niðurlögum hennar. En
þá forynju sem leikur nú lausum hala fær
ekkert stöðvað; slóð eyðileggingarinnar er
óslitin, hvar sem hún fer um.Þessi
ófreskja heitir Kyoto-samkomulagið, og
er ákaflega Iúmsk og óvenju harðsvíruð.
Hún kemur í sauðargervi og hefur talið
stórum hluta mannkynsins trú um að
hún sé okkur vinveitt og vinsamleg; sé
meirað segja komin til þess að hreinsa
jörðina og gera hana lífvænlegri fyrir
börnin okkar og barnabörn. Og margir
hafa látið blekkjast. Stórar þjóðir og smá-
ar þjóðir um víða veröld hafa gengið þess-
ari ófreskju á hönd og sjá ekki hve hættu-
Ieg hún er. Surtur fer sunnan og vá er
fyrir dyrum. En þegar hættan er stærst er
hjálpin næst. Einn hópur manna hefur
séð í gegnum ófreskjuna, hefur séð að
bak við vinalegt bros hennar leynast
hvassar tennur og blóðþyrst tunga. Einn
hópur manna hefur þjappað sér saman og
snúist til varnar, þegar heimsbyggðin öll
Iiggur varnarlaus fyrir fótum ófreskjunnar
og meirað segja kallað sjálf yfir sig her-
virki hennar. Einn hópur manna ætlar að
verjast, fram í rauðan dauðann, yfirgangi
Kyoto-samkomulagsins og þeirri ógnun
sem það er við lífshætti okkar og ham-
ingju. Einn hópur manna er tryggur og
trúr - íslenska ríkisstjórnin.
Viljiun við kveðja velferöarkerfid?
Því íslenska ríkisstjórnin gerir sér grein
fyrir hættunni. Þegar meirihluti mann-
kynsins hefur látið blekkjast til að skrifa
undir samning við ófreskjuna, og smáríki
jafnt sem stórveldi ætla að undirgangast
allskonar skuldbindingar í þeirri von að
draga megi úr mengun í veröldinni - þá
hefur íslenska ríkisstjórnin strax komið
auga á kjarna málsins. Halldór Ásgríms-
son kemur í viðtal í Sjónvarpinu og talar
enga tæpitungu: Ef við skrifum undir
Kyoto-samkomulagið þá getum við kvatt
velferðarkerfið, við þurfum þá að lækka
við okkur launin (nema náttúrlega laun
alþingismanna sem eru hættulega Iág),
og lífskjörin í landinu munu hrynja.
Þetta sagði Halldór og auðvitað trúi ég
honum. Halldór mundi aldrei Ijúga. Hall-
dór mundi aldrei taka eiginhagsmuni
fram yfir hagsmuni þjóðarinnar. Hann
hlýtur að vera að segja satt. Það verður
sviðin jörð, ef við höldum ekki vöku okk-
ar gegn ófreskjunni frá Kyoto.Kvikmynd
Hollywood um Godzilla og slaginn við
það skrímsli verður eins og Ieikur að Iegó-
kubbum miðað við stórmyndina um bar-
áttuna gegn forynju Kyoto-samkomulags-
ins sem einhvern tíma verður gerð. Sögu-
þráðurinn er nú þegar klassískur. Smá-
hópur af hetjum streitist við þegar
skrímslið er alveg að sigra. Örlítill hópur
hugprúðra manna býst til varnar þegar í
óefni er komið og ófreskjan er hér um bil
að sópa velferðarkerfinu út í hafsauga,
berja niður launin okkar með hrammi
sínum og tæta sundur lífskjörin með
klónum. Fáeinir menn standa staðfastir
og trúir þegar forynjan réttir að þeim
penna með smeðjulegu flírubrosi og
býðst til að hreinsa burt alla mengun úr
veröldinni - nei, þeir skrifa ekki undir,
sama hversu margir aðrir hafa látið und-
an, sama hver þrýstingurinn verður -
komi það sem koma vill, þeir skrifa ekki
undir.
Bruce VViIlis sjálfkjörmn
Ó - þetta er svo hetjuleg sjón. Ég vona
bara að stórmyndin um varnarbaráttu ís-
lensku ríkisstjórnarinnar verði gerð fljót-
lega, áður en Bruce Willis verður of gam-
all til að Ieika Halldór Ásgrímsson, þegar
hann geisist fram, þó svo hæglátur og yf-
irvegaður, gegn ófreskjunni, til að verja
„Þetta verður stórfengleg
bíómynd, og Bruce Willis
mun beinlínis fara á
kostum, enda fær hann
tækifæri til að bjarga
heiminum rétt eina ferð-
ina og nú í glæsilegu
hlutverki Halldórs Ás-
grímssonar. Og þarfsvo
sem ekki mikið að leika,
þvisvo ósvikinn er hetju-
skapur Halldórs í vörn
hans fyrir velferðarkerf-
ið, “ segir lllugi. „ Guði sé
því lof fyrir Halldór Ás-
grímsson, og vitaskuld
forsætisráðherra, sem
leikinn verður afArnold
Schwartzenegger."
„...Mun vörn þeirra fé-
laga gegn ófreskjunni
lengi í minnum höfð, og
svo staðfastri vörn getur
ekki lokið nema með
sigri; ófreskjan hlýtur að
lokum að láta í minni
pokann fyrir svo hugum-
stórum og óttalausum
verjendum. Og þegar við
í ellinni njótum velferðar-
kerfisins, hárra launa og
glæsilegra lífskjara, þá
vitum við hverjum ber að
þakka - þótt loftið, það
verði kannski dálítið fú!t.“
velferðarkerfi okkar, launin og lífskjör;
það dettur hvorki af honum né drýpur en
þó veit hann að hann er okkar eina von,
láti hann hugfallast og skrifi undir, þá
hrynur allt og þið munuð öll, þið munuð
öll ... og svo framvegis. Og ósmeykur
grípur hann sér í hönd vélbyssuna
„Smæð landsins" og lætur vaða á
skrímslið úr sprengjuvörpunni „Sérstaða
Islands“.Ég get eiginlega varla beðið eftir
að fá að sjá þessa stórmynd; dramatísk
átök hennar og ægilega bardaga íslensku
ríkisstjórnarinnar við ófreskjuna, að sjálf-
sögðu kvikmyndað með öllum nýjustu
tæknibrellunum. En þrátt fyrir mikilúð-
legt söguefnið og þrátt fyrir allt það sem í
húfi er - velferðarkerfið, Iaunin og lífs-
kjörin - þá verður samt svigrúm fyrir
gamansemi og léttúðuga klæki, svokallað
„comic relief1; því svolítil bráðfyndin
hliðarsaga í myndinni mun íjalla um til-
raunir hinna hugprúðu verjenda í ís-
Iensku ríkisstjórninni til að afla sér
bandamanna gegn forynju Kyoto-sam-
komulagsins, og þá ekki síst hjá því ágæta
fyrirtæki Norsk Hydro, sem við vonum í
lengstu Iög að muni reisa fallegt álver í
íslenskum firði.
Vínarbrauð og Júrósport
Jafnvel eftir að Norsk Hydro er í rauninni
runnið á rassinn, hætt við allt saman og
búið að pakka niður teikningum af álveri
á Reyðarfirði, þá neita hinir íslensku verj-
endur að játa sig sigraða, því eigi skal
haltur ganga meðan báðir fætur eru jafn
langir. Það er sama hversu oft nafn-
greindir forráðamenn Norsk Hydro neita
því við fréttamenn að þeir ætli innan
skamms að helja byggingu álvers á Aust-
fjörðum, alltaf virðist íslensku ríkisstjórn-
inni takast að snúa á skrímslið og finna
aðra forráðamenn Norsk Hydro, sem eru
einmitt að búa sig undir að taka sér ham-
ar í hönd og helja bygginguna. Þetta get-
ur orðið sprenghlægileg hliðarsaga við
sjálf hin dramatísku átök við ófreskjuna.
Mín kenning er sú að hinir hugdjörfu og
kænu baráttumenn fyrir velferðarkerfinu
og passlegri mengun á Austfjörðum hafi
af byggjuviti sjálfir stofnað pappírsfyrir-
tæki sem heiti til dæmis Norsk Hydrá, og
hafi aðsetur í einu herbergi einhvers
staðar til dæmis við Rauðarárstíg, og þar
sitji daglangt maður sem étur vínarbrauð
og horfir á Júrósport, og þegar síminn
hringir og það eru áhyggjufullir Fram-
sóknarmenn og íslenskir embættismenn
og aðrir áhugamenn um álver og meng-
un, þá hafi maðurinn það hlutverk eitt að
segja með sterkum norskum hreim:
„Jovfst, Norsk Hydrá hefur víst mikinn
áhuga á að reisa álver á Islandi.“Áhyggju-
fullum Framsóknarmönnum og íslensk-
um embættismönnum og öðrum áhuga-
mönum um álver og mengun verður
rórra, og þeir láta ekki hugfallast, þó
ófreskjan færist nær og nær - íslenska
ríkisstjórnin stendur staðföst og Norsk
Hydrá ætlar víst að reisa álver.
Stillt var prútt hjartað
Þannig mun íslensku ríkisstjórninni að
lokum takast að vinna sigur á forynju
Kyoto-samkomulagsins með samblandi af
staðfestu, hugprýði og eitursnjöllum leik-
fléttum. Þannig herjuðu hetjurnar, stillt
var prútt hjartað. Þetta verður stórfengleg
bíómynd, og Bruce Willis mun beinlínis
fara á kostum, enda fær hann tækifæri til
að bjarga heiminum rétt eina ferðina og
nú í glæsilegu hlutverki Halldórs Ás-
grímssonar. Og þarf svo sem ekki mikið
að Ieika, því svo ósvikinn er hetjuskapur
Halldórs í vörn hans fyrir velferðarkerfið.
Guði sé því lof fyrir Halldór Ásgrímsson,
og vitaskuld forsætisráðherra, sem leik-
inn verður af Arnold Schwartzenegger, og
sér marga leiki ófreskjunnar fram í tím-
ann og er hvarvetna mættur að brjóta þá
penna sem að okkur eru réttir svo
Iymskulega, hvort við viljum ekki vera svo
elskulegir að skrifa undir og þá muni loft-
ið hreinsast. Mun vörn þeirra félaga gegn
ófreskjunni lengi í minnum hofð, og svo
staðfastri vörn getur ekki lokið nema með
sigri; ófreskjan hlýtur að lokum að láta í
minni pokann fyrir svo hugumstórum og
óttalausum verjendum. Og þegar við í ell-
inni njótum velferðarkerfisins, hárra
launa og glæsilegra lífskjara, þá vitum við
hverjum ber að þakka - þótt Ioftið, það
verði kannski dálítið fúlt.
Pistill Illuga varfluttur i morgunútvarpi
Rásar 2 í gær.