Dagur - 03.03.1999, Blaðsíða 13
Tk^ur
MIðVik'u'dAGUR 3\' MÁRS 19 9 9 - f3
ÍÞRÓTTIR
United og Inter í leik
ársins á Old Trafford
í kvöld fer fram á Old
Trafford leikur sem
margir hafa beðið
spenntir eftir, þegar
Manchester United
mætir Inter Milan í 8-
liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu.
Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri Manchester United, segir
að tímasetningin á leiknum gegn
Inter Milan í Meistarakeppni
Evrópu henti sér mjög vel. Allir
sterkustu leikmenn sínir séu í
besta lagi og þ\i sé nú lag fyrir
United að slá ítalskt lið út úr
Evrópukeppni í fyrsta skipti í 42
ára sögu keppninnar.
, Á síðasta keppnistímabili
missti United Ryan Giggs út
meiddan þegar það tapaði fyrir
Mónakó í 8-Iiða úrslitum E\t-
ópubikarsins, en nú er það að-
eins Teddy Sheringham sem er
meiddur af .stórum hópi lands-
liðsmanna félagsins. Ferguson
getur því auðveldlega stiilt upp
sínu sterkasta byrjunarliði.
„Það hittir mjög vel á hjá okk-
ur, því allir okkar bestu Ieikmenn
eru í lagi og tilbúnir í slaginn,"
sagði Ferguson.
Heiður Inter í veði
Inter Milan, sem h'klega er búið
að missa af ítalska meistaratitlin-
um í ár, gerir sér því vonir um að
ná góðum árangri í Evrópu-
keppninni og keppir því þar að
titlinum til að bjarga heiðrinum.
„Við höfum sýnt að við erum
allt annað lið í meistarakeppn-
inni, miðað við árangurinn í
ítölsku deildinni," sagði Fabio
Galante, varnarmaður Milan.
„Við leggjum því mikla áherslu á
keppnina og munum gera allt til
að sigra.“
„Leikurinn á Old Trafford
verður örugglega sögulegur og
\ið munum leggja áherslu á að
leika eins og í sigurleiknum gegn
Real Madrid. Aðalatriðið er að
skora allavega eitt mark, en klár-
um svo dæmið heima í Milan,"
sagði Gianluca Pagliuca, mark-
vörður Milan.
Ferguson hefur uunið heima-
vinnuna
Alex Ferguson segist vel gera sér
grein fj'rir styrkleika Inter Milan
og vita að liðið sé í mjög góðu
formi þessa dagana.
„Síðan dregið var í keppninni
höfum við fylgst með öllum
þeirra leikjum og unnið heima-
nnnuna mjög vel,“ sagði Fergu-
son.
Nokkuð öruggt er að Jaap Stam
er orðinn heill eftir meiðsli um
nokkurn tíma og mun nú leika
við hliðina á Ronny Johnsen í
vörninni og einnig mun Andy
Cole taka stöðu sína í sókninni.
Nicky Butt sem einnig hefur
átt við meiðsli að stríða mun
byrja á bekknum, en Paul Schol-
es mun þess í stað leika á miðj-
unni við hliðina á Ray Keane,
sem fékk að hvíla fyTri hálfleik-
inn gegn Southampton á laugar-
daginn.
Roy Keane, fyrirliði Manchest-
er United, sagði eftir þann leik,
sem United rétt marði 2-1: „Við
þurfum svo sannarlega að sanna
okkur eftir frammistöðuna gegn
Southampton, en við hræðumst
ekki neitt lið í heiminum."
„Við \itum allt um leikmenn
Inter Milan, þar sem flestir
þeirra voru á HM í Frakklandi.
Eins og allir hafa þeir sína kosti
og galla. En við munum treysta á
okkar styrkleika og láta þá um
áhyggjurnar," sagði Keane.
Inter án Ronaldos
Inter mun leika án Ronaldos,
sem verið hefur frá vegna meiðs-
la, en dagblöð í Milan hafa sagt
að hann verði klár í heimaleikinn
á San Siro, eftir tvær vikur.
Sjálfur segir Ronaldo að hann
gæti orðið góður fyrir heimaleik-
inn. „Eg vil þó gefa þessu sinn
tíma og tek ekki neina áhættu,"
sagði Ronaldo.
I Qarveru Ronaldos mun Inter
stilla upp þremur sóknarmönn-
um, sem ekki eru af verri endan-
um. Það eru þeir Ivan Zamora-
no, Youri Djorkaeff og Roberto
Baggio, allt frábærir leikmenn.
Roberto Baggio átti til dæmis
frábæran leik gegn Juventus um
helgina.
Á miðjunni verða Argentínu-
maðurinn Javier Zanetti, sem
einmitt skoraði gegn Englend-
ingum á HM í sumar, og Diego
Simeone, sem Englendingar
muna svo vel eftir frá HM, þegar
Beckham var rekinn af velli eftir
að hafa brotið á kappanum.
Líkleg byrjunarlið:
Manchester United:
Peter Schmeichel, Gary NeHlIe,
Jaap Stam, Ronny Johnsen,
Denis Irwin, David Beckham,
Roy Keane, Paul Scholes, Ryan
Giggs, Dwight Yorke, Andy Cole.
Inter Milan:
Gianluca Pagliuca, Francesco
Colonnese, Giuseppe Bergomi,
Fabio Galante, Javier Zanetti,
Benoit Cauet, Diego Simeone,
Aron Winter, Youri Djorkaeff,
Ivan Zamorano, Roherto Baggio.
Leikurinn verður sýndur á
sjónvarpsstöðinni Sýn kl. 19:00
og einnig leikur Real Madrid og
DjTiamo Kiev kl. 21:50.
Leikir í 8-liða úrslitum:
Man. United - Inter Milan
Real Madrid - Dynamo Kiev
B. Munchen - Kaiserslautern
Juventus - Olympiakos
ÍÞRÓ T T AVIÐT ALIÐ
■ SKODUN
GUNNAR
SVERRISSON
Framtíð
landsliðs
Nú er mikið rætt um íslenska
Iandsliðið í körfuknattleik og
stöðu þess. Liðið beið tvo stóra
ósigra gegn Bosníu og Litháen. I
leiknum gegn Litháen skoraði
íslenska liðið einungis 48 stig.
Það er alltof lítið.
Endaiaust er verið að finna
ástæður þess hvers vegna við
töpum svona með miklum mun.
Jú, alltaf heyrast sömu raddirn-
ar. Við erum með svo lávaxið lið.
Það er staðreynd. En við getum
ekki endalaust falið okkur bak
við það. Hvað með líkamlegan
styrk? Er hann nægilega mikill?
Er kannski hægt að bæta hann?
Leikgleðina vantaði
Þjálfari íslenska Iandsliðsins
sagði fyrir þessa umræddu leild
að menn ætluðu að hafa gaman
af þessu öllu saman og gera það
gott með leikgleðinni. Það er
mjög eðlilegt og réttmætt mat
þegar verið er að spila á móti
tveimur af sterkustu þjóðum
heims í körfubolta. En þessi
skilaboð náðu ekki til leikmanna
liðsins. Það mátti aðeins sjá á
tveimur reynslumestu mönnum
liðsins, að þeir voru tilbúnir að
gefa mikið af sér svo vel gæti
farið.
Notum skynsemina
Nú þurfa menn að setjast niður
og ræða málin og spá aðeins í
framtíðina og ganga í að laga
stöðuna í rólegheitum. Ekkert
gerist á einni nóttu. Þó að við
séum smávaxin þjóð í
körfuknattleik þá getum við ver-
ið stór á öðrum sviðum, t.d. með
því að vera skynsöm í því að
finna réttu leiðina í að verða
betri í körfuknattleik. Áfram Is-
land.
GSÍ næststærsta sérsambandið
HarðurÞor-
steinsson
framkvæmdastjóri GSÍ.
HörðurÞorsteinsson, við-
skiptafræðingur, hefurný-
lega tehiðviðstarfifram-
kvætndastjóra Golfsam-
bands íslands.
- Hvemig leggst nýja starfiö í
þig?
„Eg er rétt nýbyrjaður og kom
fyrst til starfa í fyrradag. Eg er
þess vegna rétt að átta mig á
hlutunum, en til þess fæ ég góða
aðstoð frá Frímanni Gunn-
laugssyni, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra, sem mun starfa
áfram á skrifstofu sambandsins.
Hann er öllum hnútum kunnug-
ur eftir langt og farsælt starf hjá
Golfsambandinu og það kemur
sér vel fyrir mig að hafa hann
mér við hlið. Frímann er sá sem
veit allt um golfið, bæði reglur
og annað og kann þetta allt utan-
að. Annars líst mér vel á starfið
og hlakka til að takast á við kom-
andi verkefni.“
- Er von á nýjum áherslum
með nýjum framkvæmdastjóra?
„Fyrst og fremst verður það
mitt starf að framfylgja stefnu-
málum sambandsins og að sjá
um daglegan rekstur. Ársþing
sambandsins var haldið nýlega
og þar kom inn talsvert af nýju
fólki til stjórnarstarfa. Þar á
meðal er nýr forseti sambands-
ins, Gunnar Bragason, sem tók
við af Hannesi Guðmundssyni.
Þetta er allt saman áhugasamt
og framsækið fólk og ég er viss
um að því fylgja nýjar áherslur.
I upphafi er ætlunin að leggja
aðaláhersluna á fjármálin og
taka upp nýjar áherslur í mark-
aðsmálum. Allt umfang starfsins
miðast jú við það fjármagn sem
við höfum úr að spila og þess
vegna er mikilvægt að okkur tak-
ist vei til við öflun kostunaraðila.
Við þurfum einnig að halda
áfram á þeirri braut að vekja
meiri athygli á golfíþróttinni og
gera fólki grein fyrir því hvað
hreyfingin er raunverulega orðin
stór. Golfsambandið er í dag
næststærsta sérsambandið á
landinu með tæplega 7000 iðk-
endur. Stór þáttur í mínu starfi
verður þvi m.a. að vekja athygli
Ijölmiðla og annarra á því hvað
golfið er í raun orðið stór hluti af
íþróttasamfélaginu.
Hlutverk Golfsambandsins er
svo að lialda utan um landsliðs-
málin, hafa yfirumsjón með ís-
lensku mótaröðinni, landsmót-
inu og sveitakeppnunum og síð-
an halda uppi samskiptum við
klúbbana og sjá um alla nauð-
synlega fræðslustarfsemi. Verk-
efnin eru því ærin og mörg
spennandi mál að fást við á
næstunni."
- Hvemig erjjárlutgsleg staða
sambandsins?
„Það hefur verið mjög skyn-
samlega á málum haldið hjá
sambandinu og mér sýnist hlut-
irnir vera í góðum skorðum. Eg
held að menn eigi að halda
áfram á sömu braut og sníða sér
stakk eftir vexti. Það er því mik-
ilvægt að vel takist til við öflun
fjármagns og þess vegna vilja
menn leggja aukna áherslu á
markaðsstörfin innan sambands-
• «
íns.
- Telurðu að framtíðin sé björt
í golfinu hér á landi?
„Það er ljóst að áhugi almenn-
ings fyrir golfinu er alltaf að
aukast. Það sýnir mikill fjöldi
iðkenda, sem stöðugt eykst ár frá
ári. Þó uppbygging golfvalla hafi
verið mikil að undanförnu, þá er
aðstöðuleysið strax farið að segja
til sín. Einhver sagði að það
þyrfti að byggja einn nýjan golf-
völl á hverju ári til að halda í við
fjölgunina, þHlíkur er áhuginn.
Hvað varðar keppnisgolfið þá
þurfum við að auka breiddina og
fá inn fleiri afburða keppnis-
menn. Það gerum við með
auknu uppbyggingarstarfi hjá
þeim yngri.“
- Hefurðu áður starfað í
íþróttahreyfingunni?
„Ég hef þó nokkuð starfað að
íþróttamálum og hef til dæmis
setið í stjórn Badmintonfélags
Hafnarfjarðar í fimmtán ár. Þar
voru mín upphafskynni af
íþróttamálum og þar starfaði ég
einnig sem þjálfari. Ég var einnig
um tíma í stjórn Badmintonsam-
bandsins og var þar formaður
Iandsliðsnefndar í tvö ár. Ég hef
þess vegna nokkra reynslu af
störfum sérsambanda og þekki
þau ágætlega.“
- Hefurðu sjálfur stundað
golf?
„Ég byijaði í golfinu árið 1994
og hef stundað það töluvert síð-
an. Enda er stutt í næsta golf-
völl, þar sem garðurinn heima
liggur svo að segja að Setbergs-
vellinum og því bara nokkur
skref út á vöíl. Ég er samt enginn
snillingur í golfinu og er með 21
í forgjöf. Ég hef tekið þátt í þess-
um venjulegu mótum eins og
meistaramóti ldúbbsins og það
hefur gengið alveg ágætlega. Ég
var til dæmis í 3ja sætinu í mín-
um flokki á meistaramóti
klúbhsins í fyrra og er á hraðri
niðurleið í forgjöfinni. Ég hlýt
því að teljast mjög efnilegur.“