Dagur - 06.03.1999, Síða 2
xt.n
18 - LAUGARDAGUR 6. MARS 1999
HELGARPOTTURINN
Hinn nýbakaði fréttahaukur Sjónvarpsins,
Sigmar Guðmundsson. kom í stórhríðinni
á dögunum norður til Akureyrar þar sem
sjónvarpsmenn tóku myndir af bílum sem
sátu fastir og fólki sem var að basla í sköflum.
Sigmar kom með föruneyti sínu fljúgandi
norður og tóku menn þar bílaleigubö, en síð-
an vildi ekki betur til en svo að hurðir bílsins
fuku upp og skemmdust nokkuó. Þá varð
Sigmari það á að keyra á keðju sem strengd er fyrir veg við menntaskól-
ann og varð þetta til að stórskemmda húdd bílsins, rispa lakk og lista og
brjóta spegla. Nokkru áður en þetta gerðist voru umsjónarmenn
Stundarinnar okkar á ferðinni á Húsavík í myndatökuleiðangri þar sem
þeir óku á staur og skemmdu böinn talsvert. Er nú talað um innan Ríkis-
útvarpsins í Ijósi þessa að endurskoða ferðalög starfsmanna út á land.
í næstu viku kemur út fyrsta tölublaðið af nýju
tímariti sem Hrafn Jökulsson ritstýrir.
Hrókur alls fagnaðar heitir blaóið sem Hrafn
gefur út í tengslum við Skákfélagið
Grandrokk en í því er Hrafn bæði potturinn
og pannan. Þótt verulegur hluti efnis blaðsins
fjalli vitanlega um skák verða einnig f Hrókn-
um greinar um fjölmargt annað, svo sem bók-
menntir, myndlist, sagnfræði og lífsnautir af
ýmsu tagi, einsog ritstjórinn sjálfur segir. Ein-
vala lið leggur hönd á plóg við útgáfu blaðsins og má þar nefna Guð-
mund Andra Thorsson, Margeir Pétursson, Össur Skarphéð-
insson, Sverri Stormsker, Björgvin G. Sigurðsson, Kolbrúnu
Bergþórsdóttur, Guðrúnu Kristjánsdóttur, Jón Proppé og fleiri
og fleiri. Útlit blaðsins hannar Jón Óskar Hafsteinsson en þeir Hrafn
hafa marga fjöruna saman sopið svo sem á Alþýðublaðinu sáluga og á
Mannlífi. Hrafn segir að blað þetta sé fyrst og fremst gefið út til gamans,
framtíðin fari eftir viðtökum, en því verður að verulegu leyti dreift ókeyp-
is.
Þeir sem vinna að leiklist, hvort sem þar ræð-
ir um áhuga- eóa atvinnufólk, leggja oft mik-
ið á sig. Einn leikaranna í uppfærslu Leikfé-
lags Akureyrar á Systrum í syndinni, Jón
Stefán Kiistjánsson, leikstýrir jafnframt
hjá Freyvangsleikhúsinu á sama tíma og tek-
ur meðal annars að sér tæknivinnu á frum-
sýningu í kvöld til að leysa af tæknimann
ungan sem verður í skíðaferðalagi um helg-
iria. Vegna kvöldæfingar hjá LA gat hann
hinsvegar ekki verið viðstaddur aðalæfinguna í Freyvangi.
Meðleikari Jonna hjá LA, Hjörleifur Hjart-
arson, er hinsvegar höfundur að leikritinu
„Frumsýning" sem frumsýnt verður af Leikfé-
lagi Dalvíkur í kvöld og hefur auðvitað verið
þar einnig með annan fótinn - til að aðstoða
frænku sína Sigrúnu Valbergsdóttur, sem
leikstýrir þeim Dalvíkingum. Þess má líka geta
að Ijósameistari Leikfélags Akureyrar, Ingvar
Björnsson, ökukennari með meiru, hefur
verið með báða fæturna á öllum þessum
stöðum. Hann hefur aðstoðað í Freyvangi og á Dalvík, auk aðalstarfsins
hjá LA. Sé maður á annað borð í leiklistinni þá er maður í leiklistinni og
ekkert múður með það.
Vestfirðingar hyggjast blása til mikillar menn-
ingarhátíðar síðar í mánuðinum. Haldin verð-
ur í íþróttahúsinu á Flateyri það sem menn
vestra kalla Þjóðahátíð Vestfirðinga, en vestra
búa nú um 600 útlendingar frá meira en 40
þjóðlöndum, en sýnu flestir í þessum hópi eru
frá Póllandi. Söngvar, dansar og matarkynn-
ingar frá ýmsum þjóðlöndum eru meðal dag-
skrárliða á væntanlegri hátíð sem haldin er á
alþjóðadegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynþáttafordómum, 21. mars.
Vestfirðingar leggja míkió undir með hátíð þessari og hafa boðið til henn-
ar miklum liðssafnaði, meðal annars þingmönnum, ráðherrum að
ónefndum sjálfum Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands.
Það er heldur betur blúss á umboðsmönnun-
um Þorsteini Kragb og Alfreð Alfreð-
syni þessa dagana. EÞJr einn mánuð, nánar
tiltekið hinn 3. apríl, verða tónleíkar í Laugar-
dalshöll með „Rómantíska prinsinum"
Richard Clayderman á vegum umboð-
skrifstofu þeirra Lotion Promotion. Heyrst
hefur að næsta verkefni þeirra sé að flvtja inn
stórtenórinn José Carreras og þá dugar
varla neitt minna en sjáif Laugardalshöllin.
Kanntu meinlaust slúdur og skemmtisögur tír féfélags-
lífinu? Þekkirðu athyglisvert fólk? Sendu okkur fréttir og
ábendingar til birtingar í Helgarpoltinum.
Dagur c/o helgarpotturinn, Þverholti 14, 105 Reykja-
vík eða á netfangið: ritstjori^dagur.
Ð^ir
Steirtunn Jóhannesdóttir ásamt leikkonunum Önnu Kristínu Arngrímsdóttur, Kristínu Á. Ólafsdóttur, Margréti Guðmundsdóttur, Sögu
Jónsdóttur, Sigrúnu Björnsdóttur og Sigurveigu Jónsdóttur. Þær munu rifja upp söngvana af plötunni „Áfram stelpur" í Þjóðleikhús-
kjallaranum á mánudagskvöldið.
Konur sungu baráttuanda og kjark í árdaga íslenskrar kvennabaráttu og nú verður
sá tími rifjaður upp á mánudagskvöldið í Þjóðleikhússkjallaranum. Lögin á plöt-
unni „Áfram stelpur" eru enn í fullu gildi.
„Þetta var ótrúlega skemmtilegur
tími, að fá þessi hressu Iög og texta
sem sögðu dæmisögur úr sögu
kvenna. Þetta var frískt, hresst, svo-
lítið aggressíft og undirliggjandi
reiði sem var að springa út og
sprakk loks út á kvennafrídaginn
24. október 1975. Það var mikil
gleði og nýtt að fá svona æðislega
skemmtilega músík inn í barátt-
una,“ segir Steinunn Jóhannesdótt-
ir rithöfundur.
Lögin heyrast enn
Um þessar mundir eru 25 ár liðin
frá því að kabarettsýningin „Ertu nú
ánægð kerling?“ var sýnd í Þjóðleik-
húsakjallaranum. I þeirri sýningu
voru í fyrsta sinn hér á landi sungin
nokkur lög eftir sænska leikhús-
manninn og lagasmiðinn Gunnar
Edander. Lögin runnu saman við ís-
Ienska kvennabaráttu með útgáfu
plötunnar „Áfram stelpur" og lagið
með sama nafni hljómaði á Lækjar-
torgi á kvennafrídaginn. Það hefur
orðið að einkennislagi íslenskrar
kvennabaráttu og heyrist enn þann
dag í dag í útvarpinu.
A mánudagskvöldið verður þessa
minnst því að jsá koma saman
nokkrar leikkonur sem sungu á sín-
um tíma lögin á sýningunum og
plötunni, þeirra á meðal er Stein-
unn Jóhannesdóttir. Leikkonurnar
munu rifja upp söngvana og geta
þeirra karla sem komu við sögu því
að baki sterkum konum standa
gjarnan skilningsríkir karlmenn.
Sjálfsagt að syngja áfram
„I árdaga íslenskrar kvennabaráttu
var kannski ekki margt gert án þess
að einhverjir karlmenn veittu lið-
sinni sitt,“ segir Steinunn og nefnir
sem dæmi um slíkan mann tón-
skáldið Gunnar Edander. Hann er
að koma til Islands í fyrsta sinn og
mun meðal annars kynna verk sín,
gömul og ný, á mánudagskvöldið og
Svein Einarsson sem var þjóðleik-
hússtjóri og lét það verða eitt sitt
fyrsta verk að fastráða tvær konur
sem leikstióra í Þjóðleikhúsinu, Brí-
eti Héðinsdóttur og Brynju Bene-
diktsdóttur, og fékk þeim í hendur
að setja upp sína hvora baráttusýn-
inguna.
Margt hefur áunnist í kvennabar-
áttunni frá kvennafrídeginum
1975. Steinunn segir að þrátt fyrir
að ungar konur séu bjartsýnar í dag
og finnist ekkert standa þeim fyrir
þrifum þá séu ýmis baráttumál enn
í fullu gildi, til dæmis barátta fyrir
jöfnum launum kynjanna og því
„sjálfsagt að syngja áfram - og
syngja í sig kjark.“ -ghs
MAÐUR VIKUNNAR SKRIFAÐI ÁVÍSUN ...
Maður vikunnar er að sjálfsögðu Haraldur Haraldsson í
Andra sem fékk loksins að afhenda ríkisvaldinu risa-
ávísun - 999.999.999 krónur (og reyndar gott betur
með annarri ávísun) - fyrir verksmiðju. Gott dæmi um
mann sem gefst ekki upp þótt á móti blási. Fyrst hann
fékk ekki að kaupa SR-mjöl á sínum tíma, þótt hann
ætti hæsta tilboðið, þá bauð hann bara í næstu stórverk-
smiðju sem kom á markaðinn, Áburðarverksmiðjuna, og
nú gat jafnvel ríkið ekki lengur sagt nei. Þrautseigjan
þrautir vinnur allar.
Haraldur Haraldsson: nýr eigandi
Áburðarverksmiðjunnar.