Dagur - 06.03.1999, Blaðsíða 5
ftOWr LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 - 21 $ MENNINGARLIF
zfy <
Hamingjurán í Freyvangi
Hið fræga Freyvangs-
leikhús í Eyjafjarðarsveit
frumsýnir í kvöld gam-
ansöngleik með róman-
tísku ívafi, Ham-
ingjuránið eftir Bengt
Ahlfors. Dagur brá sér á
æfingu þegar rúm vika
var til frumsýningar.
Aðalleikararnir eru ekki nema
sextán og sautján ára. Auðrún
Aðalsteinsdóttir og Heimir
Gunnarsson eru nánast að stíga
sín fyrstu skref á sviðinu. Hann
býr á Akureyri, hún í Eyjafjarð-
arsveit. Hann Ieikur íslenskan
karlmann, hún ítalska blómarós.
Þau hittast fyrir tilviljun í Frakk-
landi og eiga í talsverðum erfið-
leikum með að gleyma hvort
öðru. „Hamingjuránið" er ástar-
og örlagasaga þeirra.
Út úr sturtunni
,/Etli þetta sé ekki frekar gam-
ansöngleikur með rómantísku
ívafi,“ segir Heimir spurður um
verkið sem reyndar er kynnt sem
rómantískur gamansöngleikur.
Auðrún er í söngnámi í Tónlist-
arskóla Eyjaljarðar og þetta er
frumraun hennar í leiklistinni.
„Þetta er rosalega gaman,“ segir
hún og segist búast við því að
halda sig meira við sönginn í
framtíðinni en kannski blanda
þessu eitthvað saman.
„Ég hef staðið á sviði áður en
aldrei haft neitt fast að gera þar
eins og núna,“ segir Heimir og
bætir við, spurður um fyrri
söngafrek: „Eg syng nú aðallega
í sturtu." Hann er semsagt að
koma út úr sturtunni en hefur
þó að vísu tekið þátt í söng-
keppni framhaldsskólanna.
„Þetta er bara svo skemmtilegt,"
segir Auðrún. „Það er mikið grín
í verkinu, þetta er mjög fyndið,"
bætir Heimir við. „Þetta er mjög
ljúf sýning,“ segir Auðrún.
Hressa upp á sálina
Jóhannes Gíslason er einn
þeirra sem leikur í Ham-
ingjuráninu. Þetta er í fyrsta
skipti sem hann leikur í Frey-
vangsleikhúsinu en áður hefur
hann meðal annars tekið þátt í
uppfærslu Leikfélags Akure)Tar
á Leðurblökunni og sungið í
kvartett í uppsetningu LA á
Svörtum fjöðrum.
- Hvað fær fólk til að taka þátt
t starfi áhugaleikhúss með öllum
þeitn tima setn t' þaðfer?
„Eg held að enginn geti svarað
því hversvegna fólk fer út f
svona Iagað,“ segir Jóhannes.
„Það er verulega gaman að
þessu. Þetta er góður félags-
skapur og lifandi. Það er verið
að smíða þarna stykki sem á að
vera fólki til ánægju. Vinnan er
líka það mikil að maður myndi
kannski ekki skila sömu vinnu í
sinu aðalstarfi. Eg hef undanfar-
ið verið í vinnu frá hálfátta á
morgnana til sjö á kvöldin og
síðan mættur fram í Freyvang
um klukkan hálfátta. Æfingar
hafa staðið lengst til hálfeitt og
minnst til ellefu. Sjálfsagt er
þetta bara rugl.“
- Það þatf talsverða orku í
svona lagað.
„A meðan maður hefur gaman
að hlutunum er aldrei spurning
um það. Það er alltaf nóg af
henni.“
- Af hverju ætti ég eða ein-
hverjir aðrir að kotna og sjá sýn-
inguna?
„Til að hressa upp á sálina
held ég. Þetta er örugglega atriði
þarna sem fólk getur hlegið að.
Sumir sem hafa komið þarna
hafa tárfellt yfir sumum atriðum
þannig að þetta grípur fólk eitt-
hvað. En það eru lúmskar ádeil-
ur í þessu líka.“
Blanda eldri og yngri
Leikstjóri sýningarinnar er Jón
Stefán Kristjánsson en Þórarinn
Eldjárn þýddi og staðfærði og
hefur búið því bólstað að stórum
hluta á íslenskri grund. Leikarar
eru fimmtán á öllum aldri.
Blanda af þaulvönum söngvur-
um og leikurum og nýgræðing-
um í listinni. Að auki vinna all-
margir að sýningunni hvað varð-
ar búninga, sviðsmynd, tækni-
vinnu, tónlist og fleira. Tónlist-
arstjórn er í höndum Garðars
Karlssonar sem hefur fengið til
liðs við sig úrvals hljóðfæraleik-
ara.
Óskaplega skemmtilegt
Leikstjórinn, Jón Stefán Krist-
jánsson, hefur áður unnið með
Freyvangsleikhúsinu. Hann
þreytti frumraun sína sem leik-
stjóri þar fyrir níu árum.
„Það var þeirra tillaga að taka
þetta verk og ég stökk á það,“
segir Jón Stefán. „Eg hafði
reyndar ekki séð þetta sjálfur en
þekki fólk sem hafði unnið við
þetta leikrit og hafði fundist það
afskaplega skemmtilegt þannig
að ég var alveg viss um að þetta
gæti verið eitthvað sem væri
gaman að vinna.
Þetta er hundrað prósent
skemmtileikrit. Það er ekki boð-
skapnum fyrir að fara eða miklu
drama. Þetta er lítil og skemmti-
leg ástarsaga. Maður fær það á
tilfinninguna að höfundurinn
hafi fyrst og fremst gert þetta til
að skemmta sjálfum sér. Það er
samdóma álit allra sem hafa
komið nálægt þessari sýningu að
það sé óskaplega gaman að
vinna hana. Þetta er eitthvað
sem gefur notalegheit í sálina.“
- Starfið t áhugaleikfélögunum
er t raun stórmerkilegt fyrirbæri?
„Eg mun aldrei hætta að
undrast þá atorku sem er í því
fólki sem stendur í þessu. Það er
alveg ótrúlegt. Leildistarbakterí-
an er náttúrlega stórhættuleg.
Ef menn fá hana þá losna menn
ekki við hana og vilja ansi mikið
á sig leggja til þess að fullnægja
þessari leiklistarþörf."
Freyvangsleikhúsið þarf lítt að
kynna fyrir áhugasömum Ieik-
hússgestum. Tívegis hefur leik-
húsinu hlotnast sá heiður að
sýningar þess hafa verið valdar
áhugaverðustu sýningar áhuga-
leikhúsanna og þær verið settar
upp í Þjóðleikhúsinu við góða
aðsókn.-
Frumsýning á „Hamingjurán-
inu“ er í kvöld þann 6. mars - og
að sjálfsögðu í Freyvangi, Eyja-
Ijarðarsveit. - Hl
„Frumsýning“ á Dalvík
Tuttugu leikarar taka þátt í„Frumsýningu" á Daivík. „Þetta er einhverþörf, einhver
óskaplega mikil þörf fyrir að taka þátt í skapandi starfi, “ segir Hjörieifur Hjartarson
um áhugaleikfélögin. mynd: gg
Leikfélag Dalvíkur
frumsýnir „Frumsýn-
ingu“ eftir Hjörleif
Hjartarson. Verkið skrif-
aði Hjörleifur sérstak-
lega fýrir Dalvíkinga en
Leikfélagið fagnar
fimmtíu og fimm ára af-
mæli á árinu.
„Mig hefur lengi langað til að
skrifa leikrit,“ segir Hjörleifur í
spjalli við Dag. „Eg hef starfað
dálítið í leikhúsi og svo einfald-
lega spannst það út frá hug-
myndasmiðju í leiklistarskóla
Bandalags íslenskra Ieikfélaga,
sem ég tók þátt í. Þar fylgdi sá
böggull skammrifi að maður
þurfti að vera með einhverja
hugmynd í farteskinu. Það varð
til þess að ég settist niður og
hugsaði eitthvað upp og þetta er
sú hugmynd komin í endanleg-
an búning.“
Spenna í loftinu
Sögusviðið í Frumsýningu er
búningsherbergi hjá leikfélagi í
ónefndu plássi þar sem frum-
sýning á Skugga-Sveini er um
það bil að heljast. Spenna er í
loftinu, ekki einungis vegna sýn-
ingarinnar heldur líka vegna át-
burða sem hafa verið að gerast í
bæjarfélaginu og ýmislegt hefur
áhrif á einbeitingu leikaranna.
Lífið í litlum bæ, þar sem allir
þekkja alla og einkamálin eru á
hvers manns vörum, teygir anga
sína inn á leiksviðið, í útlegðina
til Skugga-Sveins og félaga. Sýn-
ingin hefst og baksviðs er öllum
brögðum beitt við að bjarga því
sem fyrirsjáanlega mun fara úr-
skeiðis uppi á sviði, þar eru hár-
greiðslukonan og brunavörður-
inn í aðalhlutverkum.
- Leikrit umfólk sem er aðfara
að frumsýna leikrit - það er ekki
beint einfalt. Þú hefur ekkert
verið hræddur um að týna þér
eða ruglafólk bara t rítninu?
„Nei, þetta hefur Iögmál fars-
ans en samt sem áður gerist allt
innan skynsamlegra marka. Það
er ekki mikil ýkjugangur til
dæmis," segir Hjörleifur. „Það
sem ég hugsaði upphaflega var:
Hvar finn ég hóp af fólki sem
hefur eitthvað sameiginlegt en
líka eitthvað utanvið sögusviðið.
Mig langaði til að gera leikrit úr
smábæjarumhverfi, sem ég
þekki mjög vel, svona íslenskt
smábæjarraunsæi, og þá lá til-
tölulega beint við að skrifa um
leikfélag, sem ég líka þekki af-
skaplega vel og líf manna þar.“
Hjörleifur tekur þó fram að
verkið sé ekki byggt á sannsögu-
Iegum atburðum hjá Leikfélagi
Dalvíkur.
Menningarveita
Hjörleifur hefur verið minna við
æfingar hjá Leikfélagi Dalvíkur
heldur en til stóð í upphafi
vegna þátttöku sinnar í upp-
færslu hjá Leikfélagi Akureyrar.
„En það er líka gott að sleppa
takinu af barninu þegar það er
farið að heiman," segir hann um
þá hliðina og segist ánægður
með að hafa fengið Sigrúnu Val-
bergsdóttur til að leikstýra verk-
inu.
- Hvernig er að sjá leikverk sitt
verða til og lifna við öðruvtsi en á
pappfr?
„Það er ólýsanlegt, það eru
forréttindi sem leikritahöfundar
hafa fram yfir aðra rithöfunda.
Ég tala nú ekki um þegar maður
kemst í þá aðstöðu sem ég er í.
Margir eru að skrifa leikrit og
þurfa að reyna að koma þeim
inn í leikhúsin en ég hef þarna
aðgang að leikfélagi sem greiddi
mér laun í Ijóra mánuði fyrir að
skrifa þetta leikrit. Ég verð þeim
ævarandi þakklátur. An þeirra
örvunar og stuðnings hefði ég
aldrei gert þetta. Þetta tekur
mikinn tíma og ég tók mér frí
frá vinnu á rneðan."
- Fólk leggur mikið á sig fyrir
ánægjuna eina í starfi áhugaleik-
félaganna?
„Já, þetta er einhver þörf, ein-
hver óskaplega mikil þörf fyrir
að taka þátt í skapandi starfi.
Svona leikfélag eins og á Dalvík,
sem er gamalgróið félag, þetta
eru ekki bara leikfélög heldur
veitur fyrir skapandi hugsun og
hæfileika hjá fólki sem er allan
daginn að vinna hitt og þetta.
Þetta er ómetanleg menningar-
veita á svona stöðum."
Tuttugu leikarar stíga á svið í
sýningunni auk svipaðs fjölda að
tjaldabaki. Leikstjóri er Sigrún
Valbergsdóttir. Frumsýningin er
í kvöld og að vanda er sýnt í
Ungó á Dalvík. - hi