Dagur - 06.03.1999, Síða 8
LÍFIÐ í LANDINU «
LAUGARDAGUR 6. MARS 1999
I^ur
„Ég myndi örugglega kunna vel við mig íþessu ráðuneyti enn um sinn. Mörg spennandi verkefni bíða. Vegur mennta
og menningar á enn eftir að vaxa. En það er ekki hægt að ganga að neinu vísu íþeim efnum. Stjórnmálamenn taka
áhættu um framtíð sina.“
í viðtali ræðir Björn Bjarnason um pólitíkina, Sjálf-
stæðisflokkinn, Davíð Oddsson, störfin í mennta-
málaráðuneytinu, Samfylkinguna og hina umdeildu
heimasíðu sína.
Hefur það hjúlp-
að þér eða hindr-
að innan Sjúlf-
stæðisflokksins
að vera sonur
fyrrverandi for-
manns og forsæt-
isrdðherra?
„Það hefur
bæði hjálpað
mér og verið
notað gegn mér. Ætli þetta endi
ekki í núllpunkti þegar upp er
staðið. Menn kjósa ekki mann
vegna faðernis hans eða ættar
Kolbrún
Bergþdnsdóttin
skrifar
heldur vegna verka hans. Ein-
staka sinnum heyri ég gamla
menn sem tala um föður minn
vera að bera okkur saman að
einhverju Ieyti en ég held að
yngra fólk velti faðerninu ekkert
fyrír sér. Eg á öflug frændsystk-
ini og stundum heyri ég það
notað gegn okkur að við séum
of mörg sem stöndum framar-
lega. Mér þykir það satt að segja
heldur skrítin gagnrýni. Hið
gagnstæða þætti mér verra."
Nú gafstu ekki kost ú þér sem
varaformaður Sjdlfstæðisflokks-
ins, ertu ekki þá um leið að gefa
frá þér möguleikana á því að
verða formaður stðar meir?
„Síður en svo. Sagan sýnir
okkur að menn geta valið vara-
formenn í Sjálfstæðisflokknum
án þess að viðkomandi kæmi til
álita hjá sömu kjósendum sem
formaður. Menn hafa einnig
verið valdir til varaformennsku í
þeim tilgangi að skapa breidd
sem mótvægi við formanninn.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
einfaldur í sniðum, þar koma
mörg sjónarmið til álita. Til þess
að verða formaður er ekki skil-
yrði að hafa verið varaformaður.
Við höfum enga slíka goggunar-
röð.“
Víkjum aðeins að Davt'ð Odds-
syni sem andstæðingar hans segja
vera einráðan t Sjálfstæðis-
flokknum og einsýnan og pirrað-
an t mótlæti. Hvað segir þú um
þessa lýsingu?
„Davíð er í senn mjög góður
talsmaður flokksins og öflugur
leiðtogi. Hann leggur mál fyrir
með skýrum hætti og hikar ekki
við að taka upp vandmeðfarin
mál. Dómgreind hans hefur
reynst flokknum vel. Ég fæ ekki
með nokkru móti séð að hann
sé einráðari eða pirraðri en aðrir
þeir sem eru í stjórnmálaati og
þurfa stundum að ýta frá sér
með kröftugum hætti. Það er
dæmigert fyrir málefnafátækt
samfylkingafólksins að slá fram
innistæðilausum fullyrðingum
eins og þessum í stað þess.að
ræða um málefni."
Nú er Davt'ð í fullu fjöri, sérðu
nokkuð fram á að verða formað-
ur?