Dagur - 06.03.1999, Síða 9

Dagur - 06.03.1999, Síða 9
Da^ur LAUGARDAGUR 6. MARS 1999- 25 „Ég fór ekki út í pólitíkina til að verða formaður Sjálfstæðis- flokksins. Ég hef tekið þeim störfum sem mér hafa verið fal- in. Fáir hefðu spáð því að ég ætti eftir að verða menntamála- ráðherra en ég tók það að mér og hef notið mín mjög vel í því starfi fyrir sjálfan mig og von- andi skilað einhverjum árangri fyrir aðra. Ég bíð bara og sé til. Svo er spurning hvað maður hefur áhuga á að verða lengi í stjórnmálum. Þú sérð að flestir jafnaldrar mínir eru að verða sendiherrar eða að hverfa á brott þannig að ég er í hópi eldri manna á þinginu, þótt ótrúlegt sé Er eðlilegt að stjórnmálamenn séu að deila út sendiherrastörfum og öðrum snobbstörfum til kollega sinna? „Það má alltaf deila um hvað sé eðlilegt. Sendiherra- störf eru mikilvæg og nauð- synlegt er að í þau veljist hæft fólk. Það má ekki frek- ar banna mönnum að verða sendiherrar þótt þeir hafi verið í stjórnmálum heldur en að hygla þeim sérstak- lega með sendiherrastörf- um. Ég held að reynsla okk- ar íslendinga af því að stjórnmálamenn fari í sendiherrastörf sé almennt góð. Mér finnst, eins og mörgum fleirum, dálítið sérkennilegt þegar menn sem hafa í grundvallarat- riðum alla sína tíð verið andvígir utanríkisstefnu þjóðarinnar taka að sér að túlka hana sem sendi- herrar. En það er frekar þeirra vandamál en okkar sem teljum að þjóðin hafi haldið vel á sínum utan- ríkismálum og fylgt skyn- samlegri stefnu.“ Gætir þú hugsað þér að verða sendiherra? „Ég veit ekki hvort ég gæti hugsað mér það. Þegar ég var yngri var ég kominn á fremsta hlunn með að fara til starfa hjá alþjóðastofn- unum en gerði það ekki. Ég hef hins vegar látið alþjóðamál mildð til mín taka. Ég fer bráðum að verða eins og einn vinur minn, danskur prófessor sem er töluvert eldri en ég og sagði eitt sinn við mig: „Þú skalt athuga það að bráðum kemur sá tími að þú verður búinn að sækja allar þær ráðstefnur sem þú getur sótt til að afla þér fróðleiks. Þá muntu sjá að það ••Hinsvegar er betra að sitja heima hjá sér en að vera á fundum." Ég fer bráðum að öðlast þennan þroska. Ég er búinn að fara mjög víða og sjá mjög margt, en ef spenn- andi verkefni byðust á þessu sviði er aldrei að vita hvernig maður tæki því. Maður á aldrei að útiloka neitt. En það er ekki komið að þvf að ég velti þessu fyrir mér.“ Falskir tónar Yrði það áfall fyrir þig að missa ráðherrastólinn? „Ég myndi ekki líta á það sem persónulegt áfall. Ég fór ekki í pólitíkina sérstaklega til að verða ráðherra. Ég fór í pólitík- ina því mér fannst nauðsynlegt að skapa viss þáttaskil í Sjálf- stæðisflokknum eftir mikinn upplausnartíma. Mér fannst ég hafa setið nægilega lengi í sæti gagnrýnandans og áhorfandans og ákvað að bjóða mig fram.“ Fyrir hvaða verh vildirðu helst að þín yrði minnst sem mennta- málaráðherra? „Er þetta kveðjuviðtal? Ertu að gera því skóna að ég sé að kveðja ráðuneytið?“ Ef ég ætti að veðja þá myndi ég frekar álíta að það væru meiri möguleikar en minni á því að þú verðir ekki ráðherra eftir næstu kosningar. Mér sýnist þetta til- dragelsi Samfylkingar og Fram- sóknar nefnilega vera orðið ansi mikið skot og vel geta endað með hjónabandi. „Þér sýnist það?“ Þú sérð ekki þennan glampa í augum Samfylkingarmanna og Framsóknarmanna þegar þeir skiptast á grtmssonar. „Ég hef ekki orðið var við það. En að sjálfsögðu eru menn farn- ir að velta því fyrir sér með hverjum þeir eigi að starfa eftir kosningar. Ég á eftir að sjá að einhverjir vilji starfa með Sam- fylkingunni. Ég held að tilhuga- líf með henni eigi eftir að kosta skattgreiðendur töluvert mikið. Svo er ekki auðvelt að sjá hvar á að bera upp bónorðið, er það við talsmann Margréti eða leiðtoga Jóhönnu?" Þú treystir semsagt ekki Sam- fylkingunni t ríkisstjórn? „Ég treysti henni þó satt að segja betur í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum en með Framsóknarflokknum. Krafa okkar sjálfstæðismanna um góða fjármálastjórn, andstaða okkar við stór- að koma upp t ræðupúlti áAlþingi? „Ég hef ekki orðið var við hann. Vissulega segja menn að það sé eggjahljóð í Samfylking- arsinnum en eru þau hljóð ekki bara falskir tónar sem engan heilla? En þú varst að spyrja um störf mín. Það er svo gífurlega margt sem hefur verið gaman að fást við. Við höfum mótað nýja skólastefnu og erum að leggja fram nýja námskrá fyrir grunn- skóla og framhaldsskóla og í menningarmálum er svo gífur- lega margt og spennandi á döf- inni að það myndi fylla allar síð- ur blaðsins ef við ættum að fara að tína það allt saman." Við höfum ekki það pláss. En þú segist ekki hafa orðið var við opinbert tilhugalif forystumanna Samfylkingar og Halldórs Ás- aukna skatt- heimtu og bruðl með fé almenn- ings kynni hinsvegar að verða ásteytingarsteinninn milli Sjálf- stæðisflokksins og Samfylkingar- innar." Hvemig sérðu Samfylkinguna, sem stækkaðan Alþýðuflokk, sem vinstri flokk eða setn bandalag sem gæti auðveldlega gliðnað t sundur? „Mér finnst mjög einkennilegt hvað Samfylkingin fer langt til vinstri. Líklega á að skilgreina hana sem stækkaðan vinstri flokk í ætt við hægri arm Al- þýðubandalagsins. Aherslur Samfylkingarinnar eru mjög ein- kennilegar. Þar segjast menn vera að feta í fótspor Tony Blair en meðan Tony Blair er að ráð- ast á útgjaldakerfi hins opinbera til að skera niður útgjöldin vilja Samfylkingarsinnar auka útgjöld ríkissjóðs um marga milljarða króna.“ Finnst þér kotna til greina að Sjálfstæðisflokkurinn bjóði Hall- dóri Asgrímssyni forsætisráð- herraembætti til að tryggja áframhaldandi stjórnarsamstarf? „Mér finnst að menn eigi ekki að Ieggja mál þannig upp og gefa til kynna að Halldór As- grímsson eða aðrir taki ákvarð- anir um stjórnarsamstarf á þeirri forsendu hvað þeim er boðið persónulega. Það er hálf niður- lægjandi fyrir stjórnmálamenn þegar Iátið er í veðri vaka að til- boð um vegtyllur ráði því hvaða ákvarðanir þeir taka um þjóðar- hag. Ég held að samfylkingar- menn verði að nálgast málið með öðrum hætti en þeim að gefa í skyn að hégómi Hall- dórs Asgríms- sonar muni ráða því hvernig ríkis- stjórn verði hér eftir næstu kosn- ingar.“ Meðfædd ögun Nú hefur þú stundum verið gagnrýndur fyrir að vera of upp- tekinn af kalda- stríðsanda forít'ð- arinnar. „Kaldastríðsár- in eru einhver ævintýralegasti tími aldarinnar. Eftir tvær hrika- legar heimsstyij- aldir verða gífur- leg átök sem enda með hruni Sovét- ríkjanna. Við sem vorum í þeim slag hljótum að vera nokkuð uppteknir af þeim atburðum en það er með öllu rangt að halda því fram að ég láti ráð- ast af einhverjum kaldastríðsanda, hvað sem í því felst. Veist þú það? Ann- ars held ég að varð- staða okkar hægri manna í kalda stríð- inu muni mikils met- in í sögubókum fram- tíðarinnar.“ Þin gæfa er kannski að hafa alltaf verið réttu megin? „Ég hef allavega ekki stigið mörg vit- laus skref í þessum málum. Það var ekki alltaf auðvelt og maður með þvi fékk yfir sig margar árásirnar. Ég veit ekki með þig, þú hefur vafa- laust fallið fyrir Marx á sínum tíma.“ Eg var ung og áhrifagjöm og þekkti ekki lífið. En segðu mér, ef þú verður i ráðherrastól eftir næstu kosningar vildirðu þá vera t sama ráðuneyti eða taka við öðru ráðuneyti? „Ég myndi örugglega kunna vel við mig í þessu ráðuneyti enn um sinn. Mörg spennandi verkefni bíða. Vegur mennta og menningar á enn eftir að vaxa. En það er ekki hægt að ganga að neinu vísu í þessum efnum. Stjórnmálamenn taka áhættu um framtíð sína.“ Nú hefur þú oft verið gagn- rýndur fyrir ýmis ummæli á heimasíðu þinni. Finnst þér vera við hæfi að ráðherra biríi dóma og skammir utn tiltekna einstakl- inga á heimasíðu sinni? „Ég get ekki tekið undir það með þér að ég hafi birt þar dóma og skammir. Ég er að segja mína skoðun. Gleymdu því ekki, að ég held síðunni ekki að neinum, menn verða að heim- sækja hana. Þú spurðir í upphafi um föður minn og stjórnmálaaf- skipti hans. Það er kannski ólíku saman að jafna en þó. Þegar hann var forsætisráðherra skrif- aði hann reglulega Reykjavíkur- bréf i Morgunblaðið, kvað fast að orði og lýsti skoðunum sín- um. Þá voru vinstri sinnar sífellt að mjálma um það að ekki færi vel á því að forsætisráðherra skrifaði nafnlausar greinar í blöðin og að hann hefði ekki leyfi til að hafa þessar skoðanir. Nú veinar yngra fólk í hópi vinstri sinna mikið undan því að menn í pólitísku starfi segi sína skoðun og noti sterkar samlík- ingar. Það er eins og þetta fólk haldi að menn í ákveðnum emb- ættum séu sviptir málfrelsi. Ég ólst ekki upp við þetta. Ég ólst upp við hitt að menn berðust með orðum. Ég hef gaman af að skylmast við verðuga and- stæðinga í fjölmiðlum, sérstak- lega ef þeir koma til dyranna eins og þeir eru klæddir." Finnst þér menn kveinka sér of mikið ístjórnmálaumræðunni? „Ég segi það nú ekki. Finnst þér það?“ Já, mérfinnst menn væla alltof mikið. „Stjórnmálamenn taka gagn- rýni misjafnlega vel en verst þola gagnrýni fjölmiðlamenn. Það eru einkum þeir sem hafa kveinkað sér undan heimasíðu minni." Mörgum finnst að þú sérí of fastur fyrir og gefir Utið færi á þér sem tilfinningaveru. „Ég held að það geti verið al- veg rétt, en er það eitthvað sem er ámælisvert þegar menn eru á opinberum vettvangi?" Engan veginn, ég er ekki að skammast yfitr því, en leynist bak við þessa hörðu skel mikil tilfinn- ingavera? „Areiðanlega mjög mikil og miklu meiri en ég tjái mig nokkurn tímann um í blaðavið- tali, jafnvel þótt þú eigir í hlut. Hinsvegar er ég líklega frekar agaður og get einbeitt mér að hlutum hvar og hvenær sem er með því markmiði að ljúka þeim og læt tilfinningarnar ekki tefja mikið fyrir mér. Ég hef hitt fólk sem gengur illa að ljúka við hlutina vegna þess að tilfinning- arnar hafa alltaf yfirhöndina. Ég er ekki þannig gerður." Hvernig komstu þér upp þess- ari ögun? ,/Etli hún sé ekki að mestu meðfædd. Við Gunnar Eyjólfs- son Ieikari erum góðir vinir og við ögum okkur með sérstökum æfingum sem við stundum." Hvernig æfingar eru þetta? „Þær eru kínverskar, Tsi Kong - æfingar, sem efla einbeiting- « una. Jafnvel hörðustu andstæðingar hrósa þér fyrir dugnað t starfi. Eríu lítið gefinn fyrir iðjuleysi? „Já, alltof lítið. Sumir segja að mesti ókostur minn sé að ég gefi mér aldrei tíma til neins annars en að vinna. Það auðveldar mér mikið í erilsömu starfi hvað Rut, konan mín, veitir mér mikinn stuðning og tekur þátt í mörgu með mér. Mesta kæruleysið sýni ég líklega í Sundhöllinni eldsnemma á morgnana. Ég hvíli mig stundum við lestur en þær stundir verða æ færri, tölv- an eltir mig svo að segja um allt. Ég nota hana mjög mikið. Sennilega má segja að það sé viss hvíld í því fyrir mig að setj- ast niður eftir erilsama viku og skrifa heimasíðuna mína.“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.