Dagur - 06.03.1999, Qupperneq 9
Da^ur
LAUGARDAGUR 6. MARS 1999- 25
„Ég fór ekki út í pólitíkina til
að verða formaður Sjálfstæðis-
flokksins. Ég hef tekið þeim
störfum sem mér hafa verið fal-
in. Fáir hefðu spáð því að ég
ætti eftir að verða menntamála-
ráðherra en ég tók það að mér
og hef notið mín mjög vel í því
starfi fyrir sjálfan mig og von-
andi skilað einhverjum árangri
fyrir aðra. Ég bíð bara og sé til.
Svo er spurning hvað maður
hefur áhuga á að verða lengi í
stjórnmálum. Þú sérð að flestir
jafnaldrar mínir eru að verða
sendiherrar eða að hverfa á
brott þannig að ég er í hópi eldri
manna á þinginu, þótt ótrúlegt
sé
Er eðlilegt að stjórnmálamenn
séu að deila út sendiherrastörfum
og öðrum snobbstörfum til
kollega sinna?
„Það má alltaf deila um
hvað sé eðlilegt. Sendiherra-
störf eru mikilvæg og nauð-
synlegt er að í þau veljist
hæft fólk. Það má ekki frek-
ar banna mönnum að verða
sendiherrar þótt þeir hafi
verið í stjórnmálum heldur
en að hygla þeim sérstak-
lega með sendiherrastörf-
um. Ég held að reynsla okk-
ar íslendinga af því að
stjórnmálamenn fari í
sendiherrastörf sé almennt
góð. Mér finnst, eins og
mörgum fleirum, dálítið
sérkennilegt þegar menn
sem hafa í grundvallarat-
riðum alla sína tíð verið
andvígir utanríkisstefnu
þjóðarinnar taka að sér að
túlka hana sem sendi-
herrar. En það er frekar
þeirra vandamál en okkar
sem teljum að þjóðin hafi
haldið vel á sínum utan-
ríkismálum og fylgt skyn-
samlegri stefnu.“
Gætir þú hugsað þér
að verða sendiherra?
„Ég veit ekki hvort ég
gæti hugsað mér það.
Þegar ég var yngri var
ég kominn á fremsta
hlunn með að fara til
starfa hjá alþjóðastofn-
unum en gerði það
ekki. Ég hef hins vegar
látið alþjóðamál mildð
til mín taka. Ég fer
bráðum að verða eins
og einn vinur minn,
danskur prófessor
sem er töluvert eldri
en ég og sagði eitt
sinn við mig: „Þú
skalt athuga það að
bráðum kemur sá
tími að þú verður
búinn að sækja allar
þær ráðstefnur sem
þú getur sótt til að
afla þér fróðleiks.
Þá muntu sjá að það ••Hinsvegar
er betra að sitja
heima hjá sér en að
vera á fundum." Ég
fer bráðum að öðlast þennan
þroska.
Ég er búinn að fara mjög víða
og sjá mjög margt, en ef spenn-
andi verkefni byðust á þessu
sviði er aldrei að vita hvernig
maður tæki því. Maður á aldrei
að útiloka neitt. En það er ekki
komið að þvf að ég velti þessu
fyrir mér.“
Falskir tónar
Yrði það áfall fyrir þig að missa
ráðherrastólinn?
„Ég myndi ekki líta á það sem
persónulegt áfall. Ég fór ekki í
pólitíkina sérstaklega til að
verða ráðherra. Ég fór í pólitík-
ina því mér fannst nauðsynlegt
að skapa viss þáttaskil í Sjálf-
stæðisflokknum eftir mikinn
upplausnartíma. Mér fannst ég
hafa setið nægilega lengi í sæti
gagnrýnandans og áhorfandans
og ákvað að bjóða mig fram.“
Fyrir hvaða verh vildirðu helst
að þín yrði minnst sem mennta-
málaráðherra?
„Er þetta kveðjuviðtal? Ertu
að gera því skóna að ég sé að
kveðja ráðuneytið?“
Ef ég ætti að veðja þá myndi ég
frekar álíta að það væru meiri
möguleikar en minni á því að þú
verðir ekki ráðherra eftir næstu
kosningar. Mér sýnist þetta til-
dragelsi Samfylkingar og Fram-
sóknar nefnilega vera orðið ansi
mikið skot og vel geta endað með
hjónabandi.
„Þér sýnist það?“
Þú sérð ekki þennan glampa í
augum Samfylkingarmanna og
Framsóknarmanna þegar þeir
skiptast á
grtmssonar.
„Ég hef ekki orðið var við það.
En að sjálfsögðu eru menn farn-
ir að velta því fyrir sér með
hverjum þeir eigi að starfa eftir
kosningar. Ég á eftir að sjá að
einhverjir vilji starfa með Sam-
fylkingunni. Ég held að tilhuga-
líf með henni eigi eftir að kosta
skattgreiðendur töluvert mikið.
Svo er ekki auðvelt að sjá hvar á
að bera upp bónorðið, er það við
talsmann Margréti eða leiðtoga
Jóhönnu?"
Þú treystir semsagt ekki Sam-
fylkingunni t ríkisstjórn?
„Ég treysti henni þó satt að
segja betur í ríkisstjórn með
Sjálfstæðisflokknum en með
Framsóknarflokknum. Krafa
okkar sjálfstæðismanna um góða
fjármálastjórn, andstaða okkar
við stór-
að koma upp t
ræðupúlti áAlþingi?
„Ég hef ekki orðið var við
hann. Vissulega segja menn að
það sé eggjahljóð í Samfylking-
arsinnum en eru þau hljóð ekki
bara falskir tónar sem engan
heilla? En þú varst að spyrja um
störf mín. Það er svo gífurlega
margt sem hefur verið gaman að
fást við. Við höfum mótað nýja
skólastefnu og erum að leggja
fram nýja námskrá fyrir grunn-
skóla og framhaldsskóla og í
menningarmálum er svo gífur-
lega margt og spennandi á döf-
inni að það myndi fylla allar síð-
ur blaðsins ef við ættum að fara
að tína það allt saman."
Við höfum ekki það pláss. En
þú segist ekki hafa orðið var við
opinbert tilhugalif forystumanna
Samfylkingar og Halldórs Ás-
aukna skatt-
heimtu og bruðl með fé almenn-
ings kynni hinsvegar að verða
ásteytingarsteinninn milli Sjálf-
stæðisflokksins og Samfylkingar-
innar."
Hvemig sérðu Samfylkinguna,
sem stækkaðan Alþýðuflokk, sem
vinstri flokk eða setn bandalag
sem gæti auðveldlega gliðnað t
sundur?
„Mér finnst mjög einkennilegt
hvað Samfylkingin fer langt til
vinstri. Líklega á að skilgreina
hana sem stækkaðan vinstri
flokk í ætt við hægri arm Al-
þýðubandalagsins. Aherslur
Samfylkingarinnar eru mjög ein-
kennilegar. Þar segjast menn
vera að feta í fótspor Tony Blair
en meðan Tony Blair er að ráð-
ast á útgjaldakerfi hins opinbera
til að skera niður útgjöldin vilja
Samfylkingarsinnar auka útgjöld
ríkissjóðs um marga milljarða
króna.“
Finnst þér kotna til greina að
Sjálfstæðisflokkurinn bjóði Hall-
dóri Asgrímssyni forsætisráð-
herraembætti til að tryggja
áframhaldandi stjórnarsamstarf?
„Mér finnst að menn eigi ekki
að Ieggja mál þannig upp og
gefa til kynna að Halldór As-
grímsson eða aðrir taki ákvarð-
anir um stjórnarsamstarf á þeirri
forsendu hvað þeim er boðið
persónulega. Það er hálf niður-
lægjandi fyrir stjórnmálamenn
þegar Iátið er í veðri vaka að til-
boð um vegtyllur ráði því hvaða
ákvarðanir þeir taka um þjóðar-
hag. Ég held að samfylkingar-
menn verði að nálgast málið
með öðrum hætti en þeim að
gefa í skyn að
hégómi Hall-
dórs Asgríms-
sonar muni
ráða því
hvernig ríkis-
stjórn verði
hér eftir
næstu kosn-
ingar.“
Meðfædd
ögun
Nú hefur þú
stundum verið
gagnrýndur fyrir
að vera of upp-
tekinn af kalda-
stríðsanda forít'ð-
arinnar.
„Kaldastríðsár-
in eru einhver
ævintýralegasti
tími aldarinnar.
Eftir tvær hrika-
legar heimsstyij-
aldir verða gífur-
leg átök sem enda
með hruni Sovét-
ríkjanna. Við sem
vorum í þeim slag
hljótum að vera
nokkuð uppteknir
af þeim atburðum
en það er með öllu
rangt að halda því
fram að ég láti ráð-
ast af einhverjum
kaldastríðsanda,
hvað sem í því felst.
Veist þú það? Ann-
ars held ég að varð-
staða okkar hægri
manna í kalda stríð-
inu muni mikils met-
in í sögubókum fram-
tíðarinnar.“
Þin gæfa er kannski
að hafa alltaf verið
réttu megin?
„Ég hef allavega
ekki stigið mörg vit-
laus skref í þessum
málum. Það var ekki
alltaf auðvelt og maður
með þvi fékk yfir sig margar
árásirnar. Ég veit ekki
með þig, þú hefur vafa-
laust fallið fyrir Marx á
sínum tíma.“
Eg var ung og áhrifagjöm og
þekkti ekki lífið. En segðu mér,
ef þú verður i ráðherrastól eftir
næstu kosningar vildirðu þá vera
t sama ráðuneyti eða taka við
öðru ráðuneyti?
„Ég myndi örugglega kunna
vel við mig í þessu ráðuneyti
enn um sinn. Mörg spennandi
verkefni bíða. Vegur mennta og
menningar á enn eftir að vaxa.
En það er ekki hægt að ganga að
neinu vísu í þessum efnum.
Stjórnmálamenn taka áhættu
um framtíð sína.“
Nú hefur þú oft verið gagn-
rýndur fyrir ýmis ummæli á
heimasíðu þinni. Finnst þér vera
við hæfi að ráðherra biríi dóma
og skammir utn tiltekna einstakl-
inga á heimasíðu sinni?
„Ég get ekki tekið undir það
með þér að ég hafi birt þar
dóma og skammir. Ég er að
segja mína skoðun. Gleymdu því
ekki, að ég held síðunni ekki að
neinum, menn verða að heim-
sækja hana. Þú spurðir í upphafi
um föður minn og stjórnmálaaf-
skipti hans. Það er kannski ólíku
saman að jafna en þó. Þegar
hann var forsætisráðherra skrif-
aði hann reglulega Reykjavíkur-
bréf i Morgunblaðið, kvað fast
að orði og lýsti skoðunum sín-
um. Þá voru vinstri sinnar sífellt
að mjálma um það að ekki færi
vel á því að forsætisráðherra
skrifaði nafnlausar greinar í
blöðin og að hann hefði ekki
leyfi til að hafa þessar skoðanir.
Nú veinar yngra fólk í hópi
vinstri sinna mikið undan því að
menn í pólitísku starfi segi sína
skoðun og noti sterkar samlík-
ingar. Það er eins og þetta fólk
haldi að menn í ákveðnum emb-
ættum séu sviptir málfrelsi. Ég
ólst ekki upp við þetta. Ég ólst
upp við hitt að menn berðust
með orðum. Ég hef gaman af
að skylmast við verðuga and-
stæðinga í fjölmiðlum, sérstak-
lega ef þeir koma til dyranna
eins og þeir eru klæddir."
Finnst þér menn kveinka sér of
mikið ístjórnmálaumræðunni?
„Ég segi það nú ekki. Finnst
þér það?“
Já, mérfinnst menn væla alltof
mikið.
„Stjórnmálamenn taka gagn-
rýni misjafnlega vel en verst þola
gagnrýni fjölmiðlamenn. Það eru
einkum þeir sem hafa kveinkað
sér undan heimasíðu minni."
Mörgum finnst að þú sérí of
fastur fyrir og gefir Utið færi á
þér sem tilfinningaveru.
„Ég held að það geti verið al-
veg rétt, en er það eitthvað sem
er ámælisvert þegar menn eru á
opinberum vettvangi?"
Engan veginn, ég er ekki að
skammast yfitr því, en leynist bak
við þessa hörðu skel mikil tilfinn-
ingavera?
„Areiðanlega mjög mikil og
miklu meiri en ég tjái mig
nokkurn tímann um í blaðavið-
tali, jafnvel þótt þú eigir í hlut.
Hinsvegar er ég líklega frekar
agaður og get einbeitt mér að
hlutum hvar og hvenær sem er
með því markmiði að ljúka þeim
og læt tilfinningarnar ekki tefja
mikið fyrir mér. Ég hef hitt fólk
sem gengur illa að ljúka við
hlutina vegna þess að tilfinning-
arnar hafa alltaf yfirhöndina. Ég
er ekki þannig gerður."
Hvernig komstu þér upp þess-
ari ögun?
,/Etli hún sé ekki að mestu
meðfædd. Við Gunnar Eyjólfs-
son Ieikari erum góðir vinir og
við ögum okkur með sérstökum
æfingum sem við stundum."
Hvernig æfingar eru þetta?
„Þær eru kínverskar, Tsi Kong
- æfingar, sem efla einbeiting-
«
una.
Jafnvel hörðustu andstæðingar
hrósa þér fyrir dugnað t starfi.
Eríu lítið gefinn fyrir iðjuleysi?
„Já, alltof lítið. Sumir segja að
mesti ókostur minn sé að ég gefi
mér aldrei tíma til neins annars
en að vinna. Það auðveldar mér
mikið í erilsömu starfi hvað Rut,
konan mín, veitir mér mikinn
stuðning og tekur þátt í mörgu
með mér. Mesta kæruleysið sýni
ég líklega í Sundhöllinni
eldsnemma á morgnana. Ég
hvíli mig stundum við lestur en
þær stundir verða æ færri, tölv-
an eltir mig svo að segja um allt.
Ég nota hana mjög mikið.
Sennilega má segja að það sé
viss hvíld í því fyrir mig að setj-
ast niður eftir erilsama viku og
skrifa heimasíðuna mína.“