Dagur - 06.03.1999, Side 18

Dagur - 06.03.1999, Side 18
34 - LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 Hér annars staðar á síðunni er sagt frá söng- Ieiknum Rent, sem frymsýndur verður með nýju vori í Loftkastalanum. I Borgarleikhús- inu er hins vegar nýlokið sýningum á ís- lenska leikritinu Mávahlátri, gert eftir sam- nefndri skáldsögu Krístínar Marju Baldurs- dóttur af Jóni Hjartarsyni, sem jafnframt fór með eitt hlutverkanna í því. Onnur helstu hlutverk voru í höndum Hildigunnar Þráins- dóttur, (Karlssonar) Halldóru Geirharðsdótt- ur, Jóhanns G. Jóhannsonar, Halldórs Gylfa- sonar, Margrétar Helgu Jóhannsdóttur, Þór- halls Gunnarssonar o.fl. Leikstjóri var Þór- hildur Þorleifsdóttir og um tónlist sá og samdi Pétur Grétarsson. Tónlist Péturs, sem eins og margir vita hefur getið sér áður gott orð sem slagverksleikari, útvarpsmaður auk starfsins sem tónsmiður, er nú komin út á vandaðri geislaplötu. Geymir hún hina ýmsu áhrifatónlist er kemur fram í verkinu, auk svo Ijögurra sönglaga við texta sem Jón Hjartarson samdi og Jóhann G, Halldór o.fl. flytja. Er þetta nokkuð áhrifarík og stemmn- ingsfull tónlist, sem eflaust hefur hentað vel í uppfærslunni. Leikritið fékk að sönnu mis- jafna dóma, en víst má telja að þeir sem lögðu leið sína í Borgarleikhúsið hafa í það minnsta fallið tónsmíðarnar vel í geð. Pétur hefur áður m.a. samið tónlist fyrir Ieiksýn- ingarnar á Rómeó og Júlíu, Ljósi heimsins og Grandavegi 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur. Kom tónlistin við síðastnefnda verkið einmitt einnig út á geislaplötu fyrir u.þ.b. ári. Björn Jörundur leikur sitt fyrsta hlutverk eftir útskrift úr skóla í Liverpool. Söngleikir, leikrit með söngvum, eða hvað sem menn vilja nú kalla það, hafa nú síðustu ár verið eitt farsælasta leikhús- formið hérlendis. Nánast verið fyrirfram örugg „kassastykki'1 eins og það heitir á leikhúsmáli. Er í þessum efnum skemmst að minnast vinsælda Grease í Borg- arleikúsinu. Fyrir allnokkru spurðist það út að Loftkastalinn í samvinnu við Þjóðleikhúsið hefði í hyggju að setja upp þann söngleik sem hvað nýjastur og vinsælastur hefur verið á Qölun- um víða um heim, Rent eftir bandariska höfundinn Jonathan Laarson. Nú fyrir nokkrum dög- um var svo sýningin formlega kynnt um leið og æfingar fyrir hann hófust. I leikstjórn Baltasars Kormáks, verður hann frumsýndur 30. apríl nk. Um tónlistarstjórnina sér svo aldrei þessu vant Jón Olafsson, sem einstaka skipti áður hefur feng- ist við slíkt. Segja má að í upp- færslunni mætist hópur eldri og reyndari Ieikara og söngvara og jmgri og óreyndari í þeim efn- um. Meðal þeirra sem fara þarna með hiutverk eru, Mar- grét Eir, Rúnar Freyr Gíslason, Björn Jörundur, Helgi Björns, Linda Ásgeirsdóttir, Steinunn Ólína, Felix Bergsson, Brynhild- ur Guðjónsdóttir, Vilborg Gunn- arsdóttir o.m.fl. Líkt og með marga fleiri nútímasöngleiki, byggir Rent á eldri hugmynd, óperunni La Boheme eftir ítalska skáldið Puccini. Heitar ástríður og þess háttar mannleg samskipti eru hér sem þar í brennidepli, en ógnvaldur nú- tímans, eyðniveiran, kemur í staðinn fyrir Berkla hjá Puccini. Rent hefur hvarvetna frá því hann var frumsýndur fyrir ein- um tveimur þremur árum fengið góðar móttökur og er einnig við slíku búist hér. „Söngleikur sumarsins" er því ekki Ijarlæg nafngift ef svo fer fram sem horfir og landsmenn haldi áfram að flykkjast á slíka söngleiklist. — Poppfregnir • Það fór eins og menn grun- aði á Grammyverðlaunahá- tíðinni fyrir rúmri viku, að kvennþjóðin yrði í aðalhlut- verki. Þar skein auðvitað skærast hin 23 ára söngkona Lauryn Hill, sem fékk sam- tals fimm viðurkenningar, en slíkt hefur ekki gerst í háa herrans tíð. Fékk hún verð- laun m.a. fyrir bestu R&B plötuna. • Madonna, sem hingað til hefur ekki riðið feitum hesti frá Grammy, fékk þrenn verðlaun, m.a. fjTÍr plötuna Ray of light. Þessi rúmlega fertuga ítalskættaða gyðja er því ekki af baki dottinn enn, eins og þó margir hafa talið. • Þriðja konan sem minnast má á hér, er Sheryl Crow, sem hlaut m.a. verðlaun fyr- ir bestu rokkskífuna, Globe sessions. Er hún sem og hin- ar og aðrar fleiri er fengu verðlaun, vel af þessum við- urkenningum komin. Stað- festir þetta bara ennfrekar að „veikara kynið" svonefnda er ótvírætt með yfirhöndina í poppinu um þessar mundir. • Fregnin um komu píanóleik- arans margfræga Richard Clydermans hingað til lands fyrr í \ikunni, hafa eflaust glatt marga. Verða tónleik- arnir í Laugardalshöllinni 3. apríl. Clyderman hefur í allavega tvo áratugi verið mjög vinsæll fyrir sínar poppklassísku plötur og hafa þær selst í tugum milljóna eintaka. Tony Lommi. Einherjaplata á dagskrá. • Gítarhetja hinnar fomfrægu þungarokksveitar Black Sabbath, Tony Lommi, hefur boðað nýja plötu undir eigin nafni. Er þar um spennandi grip að ræða þar sem gestir úr Deftones, Pantera og Smashing pumpkins koma við sögu. Hyggst Lommi klára þessa plötu áður en tónleikar Sabbath í Ameríku hefjast í sumar og kemur platan, enn án nafns því væntanlega út síðsumars eða i haust, ef að líkum Iætur. k______________________________> me fcSfo mm ® mei Nú í allra síðustu tíð hafa menn horft upp á nokkra breytingu er varðar rapp/hip hop tónlistina. Gangster rap hefur hægt og bít- andi verið á ■ undanhaldi, m.a. vegna þess einfaldlega að boðber- ar þess hafa farið yfir móðuna miklu eða setið inni, samanber 2PAC, Doctor Dre, Snoop doggy dogg (sem nú kallar sig víst bara Snoop dogg) o.fl. Hins vegar hef- ur blómarappið í bland við hið nýja R&B vel haldið velli auk þess sem auðvitað kappar á borð við Warren G. úr „ribbaldarappinu" eins og kalla má þa íslensku, hafa áfr spjarað sig vel. Á pl unni hans Pete Ro Soul survivor er k út á síðasta ári vakti töluverða lukku hjá rappunnendum víða, blandast rapp/hip hop hefðin vel saman við margt af því nýjasta í danstækninni, sem og við aðra eldrí strauma sem komið hafa við sögu hjá rappinu. Sýru- djass, fönk, sálaráhrif og fleira ber þar að nefna auk auðvitað plötu- Pete Rock. Fyrir rappáhugamenn. snúðatakta (MC) eins og jafnan áður hjá röppurum. Er þetta kannski ekkert tímamótaverk, en hefur þó margt að geyma sem ein- kennir góðar plötur af slíku tagi. Það er jú víst það sem menn vilja, ekki satt? Útsendarar stórfyrirtækja koma til að sjá Dead Sea Apple I Sjallanum. Það má með sanni segja að um stórviðburð verði að ræða í Sjallanum föstudagskvöldið 12. mars nk. er Rokksveitin Dead Sea Apple mun ásamt fleirum stíga þar á stokk. Verður þarna ekki um neina venjulega tónleika að ræða, heldur viðburð sem settur er sérstaklega upp fyrir útsend- ara frægra útgáfufyrirtækja úti í heimi. Og þar eru engin smánöfn á ferðinni heldur, El- ektra, Arista, EMI og Maverick. Það síðastnefnda var t.a.m. sett á stofn af sjálfri Madonnu! Með Dead Sea Apple munu svo koma fram tvær aðrar sveitir, Carpet (áður Orange carpet) frá Reykja- vfk og Toy Machine (áður Gimp) frá Akureyri, en þær eru báðar komnar í tengsl við Icerock kynningarfyrirtækið eins og DSA. Einnig munu tveir skífu- þeytarar koma við sögu og hita upp fyrir sveitirnar. Er ástæða til að hvetja alla tónlistaráhuga- menn og konur til að mæta í Sjallann og verða vitni að þess- um merkisviðburði.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.