Dagur - 12.03.1999, Side 5
FÖSTUDAGUR 12. MARS 19 9 9 - 21
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Sex nýlegar töffarakvikmyndir
verða sýndará kvikmyndadög-
um Háskólabíós sem hefjast í
dag undiryfirskriftinniHalur
ogsprund...
Þessir kvikmyndadagar Háskólabíós standa
yfir til 29. mars og er meiningin að sýna
„svalar“ myndir eða eins konar töffaramynd-
ir. Til að auka enn á svala stemmninguna er
ætlunin að hafa einhverjar óvæntar uppá-
komur meðan á kvikmyndadögunum stend-
ur, svo sem eins og fáklæddar konur og fá-
klædda karla í poppinu.
Hin eina sanna ljóska
Hin eina sanna Ijóska (The Real Blonde) er
opnunarmynd kvikmyndadaganna. Þetta er
fjórða mynd leikstjórans Tom DiCillo en
hann hefur áður gert myndirnar Johnny
Suede (1992), Living in Oblivion (1995) og
Box of Moonlight (1986). Hin eina sanna
ljóska gerist í New York nútímans, nánar til-
tekið í tísku- og skemmtiiðnaðinum þar í
borg. I þessum heimi hrærist hinn áttavillti
Joe, sem leikinn er af hinum fagurneíjaða
Matthew Modine (Short Cuts, Full Metal
Jacket o.fl), innan um alvöru Ijóskur, lista-
spírur og annað stjörnulið.
í karlaveldi
Tvær myndir verða sýndar eftir 34ra ára
gamlan leikstjóra, Neil Labute að nafni, en
hann hefur fengið mikið lof fyrir þessar
fyrstu myndir sínar; I karlaveldi (In the
Company of Men, 1997) og Vinir og nd-
grannar (Your Friends and Neighbors,
1998). Kaldhæðnislegur frásagnarháttur
Neils Labute hefur hitt í mark hjá gagn-
rýnendum en sumir hafa jafnvel gengið svo
langt að lyfta honum á stall með Woody
Allen.
Catherine Keener leikur annað aðalhlutverkið í opnunarmynd kvikmyndadaganna, Hin eina sanna Ijóska,
sem gerist í stjörnugraut tísku- og skemmtanabransans í New York.
Karlmeim, dauðinn
Sean Young (Blade Runner, Cousins, Ace
Ventura) leikur aðalhlutverkið í myndinni
Karlmenn (Men). Karlmenn er leikstýrt af
Zoe-Clarke, sem áður hefur gert myndina
Nunzio (1978) og er þar rakin saga kven-
frelsis og kynlífsfrelsis út frá feminísku sjón-
arhorni.
Kossinn (Kissed) eftir kanadíska leikstjór-
ann Lynne Stopkewich segir frá ungri konu
(Molly Parker) sem laðast meira en góðu
hófi gegnir að dauðanum. Þó mun þetta
vera óvenju rómantísk mynd, svo þversagn-
arkennt sem það hljómar, og hefur myndin
enda fengið nokkra athygli og m.a. sérstaka
viðurkenningu á alþjóðlegri kvikmyndahátíð
í Toronto í Kanada.
Síðasta mynd kvikmyndaganna heitir
Framafeigð (Dead Man’s Curve) og er
spennumynd eftir leikstjórann og handrits-
höfundinn Dan Rosen. Myndin byggir á
einni af mörgum nútímagoðsögnum sem
nærast og lifa í bandarískum framhaldsskól-
um, hér er það sú goðsögn að ef herbergisfé-
lagi þinn fyrirfer sér þá útskrifastu með
hæstu einkunn úr skólanum...
Myndirnar eru allar með ensku tali og
ótextaðar. Þær verða sýndar alla daga nema
þriðjudaga og miðvikudaga.
Stökkmót
Reynis
íþróttahöllin á Akureyri verður
vettvangur stórstjarna í stangar-
stökki, hástökki og langstökki.
Vala, Jón Arnar, Þórey Edda,
Chmara, Nool, Einar Karl,
Szabó, Dewilt og fleiri.
Á sunnudagskvöld klukkan 20
stendur Reynir Arskógsströnd
fyrir heimsviðburði í frjálsum
íþróttum í IþróttahöIIinni á Ak-
ureyri, en þá fer fram Stökkmót
Reynis. A mótinu keppir allt
okkar besta frjálsíþróttafólk í
stangarstökki, hástökki og lang-
stökki, meðal annars Jón Arnar
Magnússon, Vala Flosadóttir,
Þórey Edda Elísdóttir og Einar
Karl Hjartarson. Á mótið koma
einnig erlendar stórstjörnur. Ný-
krýndur heimsmeistari í sjöþraut
innanhús, Sebastian Chmara,
mætir til leiks, sem og Evrópu-
meistarinn í tugþraut, Erki
Nool. Til að etja kappi við Völu
og Þóreyju Eddu mæta til leiks
þær Zsuza Szabó, sem er í 2.
sæti á heimslistanum, og Mon-
ique Dewilt, hollenskur meistari
Vala náði silfurverðlaunum á HM.
Hvað gerir hún á Akureyri?
í stangarstökki.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur
fyrir fullorðna og 400 krónur
fyrir 12 ára og yngri. Ástæða er
til að hvetja alla til að mæta í
Iþróttahöllina til að verða vitni
að þessum einstaka viðburði.
Það er ekki á hverjum degi sem
þessar stórstjörnur sýna listir
sínar á Akureyri.
Sértækir
lestrarerfiðleíkar
Á morgun verð-
ur Gyða Stef-
ánsdóttir sér-
kennari stödd á
Akureyri og
heldur leiðbein-
ingarnámskeið
frá klukkan 14
til 17 fyrir for-
eldra bama sem
eiga í lestrarerf-
iðleikum.
Gyða er orðin
þekkt týrir að
beita árangurs-
ríkum aðferðum
til aðstoðar les-
blindum. Nám-
skeiðið verður
haldið í 2. stofu
að Möðruvöllum í Menntaskól-
anum á Akureyri. Inngangur er
frá bílastæði Menntaskólans við
Þórunnarstræti. Námskeiðsgjald
er 1.500 krónur.
Aðferðin sem Gyða notar
byggir meðal annars á lestri í
gegnum Iitaða
filmu eða lituð
gler. Þeim for-
eldrum sem
áhuga hafa á að
taka þátt í nám-
skeiðinu er boðið
upp á að gera
forkönnun á
hvaða litur á
filmu er hjálpleg-
astur þeirra barni
við lestur. For-
eldri getur mætt
með barn sitt í
Akureyrarapótek
en þar verður að-
staða til að gera
slíka forkönnun
og er hún gerð að
kostnaðarlausu.
Á laugardagskvöldið mun
Gyða segja frá þessum aðferðum
á opnu húsi að Hlíðargötu 9
klukkan 20.30. Allir eru vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Gyða Stefánsdóttir sérkennari:
„Markmiðið er að fá foreldra til að
hjálpa krökkum sem eru með sér-
tæka námserfiðleika."
■umhelgina)
La vita e bella
Sýningar heíjast aftur á
ítölsku bíómyndinni hans Ro-
berto Benigni „La Vita é
bella“ í Regnboganum í kvöld
en hún var áður sýnd á Kvik-
myndahátíð Reykjavíkur fyrr
á árinu. Myndin hefur vakið
mikið umtal og athygli enda
fáir sem lagt hafa út á þá
hálu braut að gera kómíska
mynd um helförina miklu í
síðari heimsstyijöldinni...
Master Klass í
Gerðubergi
íslandsdeild EPTA (Evrópu-
samband píanókennara) held-
ur masterklass námskeið í pí-
anóleik í Gerðubergi um
helgina. Á laugardaginn leið-
beinir Sigríður Einarsdóttir
nemendum á 1.-5. stigi kl.10-
13 en eftir hádegi, kl.14-17
mun Anna Guðný Guð-
mundsdóttir leiðbeina nem-
endum á öllum stigum um
notkun píanós í kammertón-
list. Á sunnudeginum kl.10-
17 leiðbeinir svo Peter Maté
á námskeiði fyrir lengra
komna.
Einar Áskell
hemisækir Eyjar
Möguleikhúsið er um helgina
á leið til Vestmannaevja og
Þorlákshafnar með barnaleik-
ritið „Góðan dag Einar
Áskell!" Það eru þeir Skúli
Gautason og Pétur Eggerz
sem leika en óþarfi er að fjöl-
yrða frekar um Einar Áskel
sjálfan enda allþekktur meðal
yngri kynslóða. Rúmt ár er
síðan leikritið var frumsýnt
og hafa um tólf þúsund börn
þegar séð sýninguna. Einar
Áskell verður í Bæjarleikhús-
inu Vestmannaeyjum á morg-
un kl. 13 og 15 en í Grunn-
skóla Þorlákshafnar á mánu-
daginn, 15. mars, ld. 17.
Miðaverð er 800 kr.
V_________________________/