Dagur - 12.03.1999, Blaðsíða 6
22 - FÖSTUDAGU R 12. MARS 1999
Dggur
■Jí'S&
á mma mm
Fj or
Six-pack latino
Einu sinni sem oftar mun hljómsveitin Six-Pack Latino með
söngkonuna Jóhönnu Þórhallsdóttur við hljóðnemann troða upp
í Kaffileikhúsinu í kvöld. Helsta markmið hljómsveitarinnar er að
laða gesti hússins fram á dansgólfið með ástleitinni suðrænni
tónlist og fá þá til að dilla mjöðmum og sveifla höndum í salsa,
rúmbu, sömbu, tangó, jive og cha-cha. Dansleikurinn hefst kl.23
og verður dansað til kl.2.00. Kostar 1500 kall inn.
Skíma,
Samryskja
og Raddir
Fjórar sýníngar verða
opnaðar í Gerðarsafni
í Kópavoginum á
morgun kl.15. Mireya
Samper, sem á mynd-
ina hér til hliðar, opnar
þá sína fyrstu einka-
sýningu sem hún kall-
ar „Samryskja" og
fjallar um samspil tví-
víðra og þrivíðra
verka. Rúna Gísladótt-
ir opnar málverkasýninguna Skíma, Guðrún Einarsdóttir
sýnir „óhlutlæg náttúru- og landslagsverk" unnin með
olíu á striga og Elva Jónsdóttir sýnir verk sem eru inn-
blásin af tónlist Erik Júlíusar Mogesen og Mistar Þorkels-
dóttur. Sýningarnar eru opnar alla daga kl.12-18 nema
mánudaga.
Ketilssögu að
Ijúka
Ketilssaga Flatnefs eftir Helgu
Arnalds verður sýnd í síð-
asta sinn í Iðnó nú á
sunnudaginn kl. 15. Á
sýningunni er notast við
brúður, grímur, lát-
bragð, texta, leik og
tónlist sem spunnið er
saman til að segja
börnum og fullorðnum
frá fyrstu kynnum
Auðar, Ketils Flatnefs
og Yngvildar frá
Hringariki. Verkið, sem
unnið er upp úr l’slend-
ingasögunum, þykir sér-
staklega höfða til barna á
aldrinum 6-15 ára. Miðasala
er í Iðnó í s: 530 3030.
■ HVAfl ER Á SEYDI?
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Norrænar spennusögur
Laugardaginn 30. mars kl. 15.00 til
19.00 verða spennusögur á Norður-
löndum í brennidepli í Norræna hús-
inu. Þá munu rithöfundar frá Dan-
mörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð
kynna bækur sínar og ritstörf. Þessir
rithöfundar eiga það sameiginlegt að
skrifa spennusögur eða reyfara og
njóta þeir allir mikilla vinsælda og eiga
fastan lesendahóp í heimalöndum sín-
um. Bækur þeirra hafa einnig verið
þýddar á önnur tungumál, m.a. á ís-
lensku. Rithöfundarnir eru: Leif Dav-
idsen frá Danmörku, Leena Iíartiina
frá Finnlandi, Fredrik Skagen frá Nor-
egi og Hákan Nesser frá Svíþjóð. I lok
dagskrárinnar verða pallborðsumræður
sem Kristján Jóhann Jónsson bók-
menntafræðingur stýrir. Þátttakendur
eru Arnaldur Indriðason sem fulltrúi
islenskra spennusagnahöfunda.
Vínarrómantík í Salnum
Sunnudaginn 14. mars kl. 17.00 verða
Björk Jónsdóttir, sópran og Svana Vík-
ingsdóttir, pianó, með tónleika í Saln-
um, Tónlistarhúsi Kópavogs. A efnis-
skrá tónleikanna kennir ýmissa grasa,
allt frá safaríkum vínarljóðum til glæ-
nýrra íslenskra verka, m.a. verða frum-
flutt fjögur lög úr lagaflokki eftir Ólaf
Óskar Axelsson.
Sungið í Salnum
Mánudaginn 15. mars n.k. kl. 20.30
verða Jóhann Smári Sævarsson, bassi,
og Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó-
lcikari, með söngtónleika í Salnum,
Sem Germanía, íslenskt-þýskt vinafé-
Iag styrkir. Á efnisskránni eru verk eftir
J. Brahms, R. Schumann, Árna Thor-
steinsson, Karl O. Runólfsson, Svein-
björn Sveinbjörnsson, Atla Heimi
Sveinsson, M. Ravel og M. Muss-
orgsky. Miðasalan verður opin á tón-
leikadaginn frá kl. 14.00 í anddyri
Tónlistarhúss Kópavogs, s. 570-0404.
Miðaverð er kr. 1.200.
Ég skal kveða um eina þig...
Þórarinn Hjartarsson og Ragnheiður
Ólafsdóttir flytja gestum Listaklúbbs
Leikhúskjallarans söngdagskrá með
Páli Ólafssyni á mánudagskvöldið nk.
kl. 20.30. Ragnheiður og Þórarinn
syngja og kveða ástina, gleðina, ellina
og sorgina í Ijóðum skáldsins. Húsið
opnar kl. 19.30 og er miðaverð kr. 800.
Félag eldri borgara í Glæsibæ,
Alfheimum
Félagsvist í dag kl. 13.30. Dansleikur í
kvöld, hljómsveit Birgis Gunnlaugs-
sonar leikur fyrir dansi. Kaffistofan
opin frá kl. 10.00-13.00. Gönguhrólfar
fara í létta göngu á morgun kl. 10.00.
Bíó í MÍR
Síberíuhraðlestin verður sýnd í bíósal
MÍR á sunnudaginn kl. 15.00. Myndin
var gerð í Kazakhstan á áttunda ára-
tugnum. Myndin er talsett á ensku.
Aðgangur er ókeypis.
Tvö dónaleg haust
Hljómsveitin Tvö dónaleg haust spilar
á Síðdegistónleikum Hins Hússins og
Rásar 2 í dag kl. 17. Tvö dónaleg haust
er sjö manna hljómsveit sem fengist
hefur við hina ýmsu þætti listarinnar
svo sem myndlist og ljóðlist en í dag er
komið að tónlistinni. Hljómsveitin hef-
ur haldið listahátíð þrjú undanfarin ár
í Hinu Húsinu undir nafninu Hamra-
borgarhópurinn Wex, eða Wunderbar
experience. Meðlimir hljómsveitarinn-
ar eru á aldrinum 25-30 ára og flytja
þeir frumsamin lög.
Merkaba og
upplj ómunar námskei ð
Dagana 3.-4. apríl nk. stendur Heilun-
ar- og fræðslumiðstöðin Shamballa-
setrið fyrir Merkaba og uppljómunar-
námskeiði. Kennarar verða Gary
Smith, John Armitage, Lilja Petra Ás-
geirsdóttir og Erlendur Magnús Magn-
ússon. Kennd verður hin kraftmikla
hugleiðslutækni Merkaba, Mahatma
kærleiksorkan, virkjaðir verða 76 lyklar
Enoks, farið í hópmerkaba ferð og
margt fleira. Námskeiðið einkennist af
kærleika og gleði og er opið öllum.
Skráningarfrestur er til 15. mars í síma
566-7748 eða á tölvupósti
liljaogell@isIandia.is.
Námskeið MHÍ
Teiknimyndagerði.. Vegna mikillar
eftirspurnar höldum við annað nám-
skeið í teiknimyndagerð. Farið verður
yfir grundvallaratriði í klassískri teikni-
myndagerð og hún tengd við nútma
tölvutækni í gerð teiknimynda. Einnig
verða kynntar aðrar tegundir hreyfi-
.... v^e*****™***^^
Aðalfundur
Sláturfélag Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á
Hótel Selfossi, föstudaginn 26. mars og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta
félagsins.
2. Breytingar á samþykktum
3. Önnur mál löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á_aðalfundi
þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi
síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.
Reykjavík 10. mars 1999.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
✓---------------------\
Blaðberar óskast á
Akureyri
Nánari upplýsingar á afgreiðslu Dags í símum
800-7080 og 461-6100.
Hvíldarstóll úr leðri
kr. 65.900
Hvíldarstóll úr tUUÍ
I r ■ r
Kósý
V* Husgögn
kr. 39.900,-
Síðuitiúla 28 • 108 Reykjavík - Sími 508 0606