Dagur - 12.03.1999, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 12. MARS 1999 - 23
T^ir.
Tækifærisvísur í Listaklúbbnum
Þórarinn Hjart-
arson (plötu-
smiöur og
sagnfræðingur)
og Ragnheiður
Ólafsdóttir
(kennari) ætla
að syngja sam-
an kvæði Páls
Ólafssonar, 19,
aldar skálds á
Héraði, í Lista-
klúbbi Leikhús-
kjallarans á
mánudags-
kvöldið
kl.20,30. Páll
þótti hagmæltur og fyndinn maður og urðu drykkjuvísur hans
landsfleygar en hann skrifaði fjölda vísa um ástina, gleðina, ell-
ina og sorgina. Hann þykir sérstaklega persónulegt skáld,
enda orti hann ekki til birtingar, m.a. í ástarkveðskap hans til
ástkonu sinnar en þau Ijóð skipta hundruðum. Miðaverð er 800
kr.
Fj • > r
María mey -
augu guðs
Á sunnudag klukkan
15.00 opnar Lárus H.
List myndlistarsýningu í
Þjóðarbókhlöðunni. Til-
efni sýningarinnar „Mar-
ía mey - augu guðs" er
að þann 24. mars, níu
mánuðum fyrir fæðing-
ardag Jesú Krists, varð
María mey þunguð.
Þessara 2000 ára tíma-
móta er minnst með
sýningunni. Á þessum
tímamótum ætlar lista-
maðurinn að setja brennipunktinn á þennan samruna
manneskjunnar og guðs og er sýningunni ætlað að vekja
spurningar um tilveru okkar, þar sem reynt verður að fá
sýningargesti á einfaldan hátt til að skynja umhverfi sitt út
frá þessum tímamótum.
Sýningin er opin daglega á afgreiðslutíma safnsins og
lýkur henni 26. mars.
Soffía
í Listfléttunni
Listamaður marsmánaðar í
Listfiéttunni á Akureyri er
Soffía Sæmundsdóttir. Hún
sýnir þar myndir unnar úr
olíu og olfupastel. Soffía
stundaði nám í Wiener
Kunstschule 1985, Mynd-
listarskóla Reykjavíkur 1986
og Myndlista- og handíða-
skóla Islands, grafíkdeild
1987-91. Hún hefur haldið
fjölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum. Soffía
var meðal annars valin af
dómnefnd til að taka þátt
fyrir íslands hönd í alþjóð-
legri samkeppni, Winsor og
Newton, í febrúar á næsta ári og í júní á næsta ári verður hún fulltrúi íslands á al-
þjóðlegri samsýningu kvenna í New York, Global Woman exhibition.
mynda, svo sem brúðumyndir, klippi-
myndir og fleira. Kennt í MHI í Skip-
holti I, laugardaga og sunnudaga 14,-
28. mars (þrjár helgar) kl. 13-17.
Ljósmyndun. Farið vcrðu yfir helstu
stjórntæki í myndavélum og linsum.
Mismundandi filmur kynntar og Ijós-
næmi þeirra. Farið verður yfir blöndun
efna í svart-hvítu ferli og helstu reglur
sem gilda um framköllun. Mismun-
andi pappírstegundir kynntar t.d. gráð-
ur og áferðir. Filmuframköllun og
kópíering. Kennari Anna Fjóla Gísla-
dóttir Ijósmyndari.
Mín ljóssælna vís
Fjöllistamaðurinn Friðríkur opnar
myndljóðasýningu í Listhúsi Ofeigs á
Skólavörðustíg 5, laugardaginn 13.
mars kl. 14.00. Þar verður nýlegur
myndverkaskáldaskapur til sýnis. Sýn-
ingin stendur yfir til 27. þessa mánað-
ar og er opin á verslunartima.
Sunnudagsbíó fyrir börn
Sunnudaginn 14. mars kl. 14.00 verð-
ur kvikmyndasýning íyrir börn í fund-
arsal Norræna hússins. Sýndar verða
tvær stuttar myndir sem báðar fjalla
um ævintýri eftir danska ævintýra-
skáldið H.C.Andersens. Fyrri myndin
Hvordan det videre gik den grime æll-
ing er teiknimynd þar sem á gaman-
saman hátt er sagt frá Ijóta andarung-
anum, sem breyttist í svan. Hvernig
gengur honum að aðlagast lífinu með-
al svana, þegar hann ólst upp í anda-
garði? Handritið gerði Jannik Hastr-
up.
Seinni myndin er byggð á ævintýrinu
um Eldfærin. Þetta er leikbrúðumynd
eftir rúmensk-danska leikbrúðumynda-
höfundinn Mihail Badica. Hann fer
frjálst með efni ævintýrsins og gerir
hermanninn að þorstlátum sveitastrák
og prinsessan er orðin að virðulegri frú
í góðum holdum. Þessi brúðumynd er
einstök að því leyti að brúðurnar nota
táknmál en auk þess cr hún talsett
með dönsku tali. Sýningartími mynd-
anna er 45 mínútur. Aðgangur er
ókeypis og allir eru velkomnir.
Gíecíng fyrir 2 í tvær nætur,
3 rétta máltlö á aðeins
y&cvdrxó
Kirkjubraut 11 . fíyYÍr)(/ssi///§&;/'
Sími 431 4240 ^ ^
Akranesi
elíefat Jíú&caul
Frítt f Bitnd
á Bing Dao Renniverkstæðinu
26., 27. og 28 mars og alla páskana.
fOftHÓTEL
/
S O L V I K I N G
KEA
AKUREYRI
ISLANDSFLUG mtá
(§) BÍINAÐARBANKINN
Akureyri
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyrl 5 - Simi 461 2960 - Akureyrl
Miðapantanir í síma 461-3690 og 461-1617
MINOLTA
SKÝR MYND-SKÝR HUGSUN
Ljósritunarvélar
Laserprentarar
Faxtæki
0m
■
MIN0LTA Color PagePro L
lita laserprentari á góðu verði:
196.000.-
m/vsk
___KJARAN____
TÆKNIBUNAÐUR
SIÐUMULI 12 108 REYKJAVIK SIMI 510 5500 / 510 5520
www.kjaran.is kjaran@kjaran.is
- fyrir þig!