Dagur - 20.03.1999, Síða 1
T
H E L G A R U T G A FA
Verð ílausasölu 200 kr.
Laugardagur 20. mars 1999
Óháð framboð
í imdirhúningi
Þreifingar og funda-
höld um óháð fram-
hoð í R-kjördæmimum
í vor eru hafnar. Aðal
stefnumál þess snýst
um stjóm fiskveiða
og kvótakerfið.
Hópur manna er að skoða mögu-
leikann á óháðu framboði í
Reykjavík og Reykjaneskjördasmi
til Alþingis í vor. Fólk sem Dagur
hefur rætt við um þetta segir að
mjög alvarlegar umræður um
framboðsmálið séu komnar af
stað.
Meðal þeirra sem eru að skoða
þetta óháða framboð eru menn
úr áhugahópnum um auðlindir í
almannaþágu. Degi er kunnugt
um að þeir héldu með sér fund í
gærmorgun, þar sem þetta var
rætt. Þeir sem Dagur hefur rætt
við tala um að hér sé um að ræða
það sem menn
kalla „einnnota"
framboð fólks úr
öllum stjórn-
málaflokkunum.
Grasrótarhreyf-
ingu með stjórn
fiskveiða sem
höfuð mál á
stefnuskrá sinni,
en ekki stjórn-
málaflokk.
Guðmundur
G. Þórarinsson,
fyrrverandi þing-
maður Fram-
sóknarflokksins,
er einn úr
áhugahópnum
um auðlindir í
almannaþágu.
Guðmundur G. Þórarinsson: „Ég
kannast við að þetta er til umræðu
hjá ákveðnum hópi manna."
Hann var spurður um þetta
hugsanlega óháða framboð.
„Eg kannast við að þetta er til
umræðu hjá ákveðnum hópi
manna," sagði Guðmundur, en
vildi ekki tjá sig frekar um málið
að sinni.
Ekkert
útilokað
Það skal tekið
fram að það eru
ekki allir úr
áhugamanna-
hópnum um
auðlindir i al-
mannaþágu,
sem taka þátt í
þessum þreifing-
um. Talsmenn
áhugahópsins
sögðu á frétta-
mannafundi,
þegar þeir
kynntu hug-
myndir sínar, að
þeir \áldu þrýsta
á stjórnmála-
flokkana að gera
eitthvað í málinu varðandi stjórn
fiskveiða og gjafakvótakerfið.
Þeir segja nú að ekkert hafi kom-
ið út úr því ef marka megi álykt-
un Iandsfundar Sjálfstæðis-
flokksins. Hins vegar sé málið
svo stórt að það verði að gera
risaátak til að leysa þann hnút
sem deilan um gjafakvótakerfið
sé komin í.
Jón Magnússon lögmaður er
einn úr áhugamannahópnum
um auðlindir í almannaþágu.
Hann segist kannast við þessa
umræðu og þreifingar um óháð
framboð.
„Ahugamenn um þjóðmál og
breytingar í þjóðmálum geta ekki
útilokað neinar leiðir til að koma
sínum áhugamálum fram og þá
er meðal annars hugsanlegt að
bjóða fram í þingkosningum. Ég
tel að sjaldan hafi verið meiri
ástæða en nú til þess að bjóða
fram, þó ekki væri nema bara til
að hræra upp í þessu staðnaða
kerfi,“ sagði Jón Magnússon í
samtali váð Dag.
Ellert B. Schram, fyrrverandi
alþingismaður, er einn úr áhuga-
hópnum og Degi er kunnugt um
að við hann hefur verið rætt um
þetta mál. Það er ljóst að þeir
sem fara fyrir í þessum þreifing-
um eru allir þaulreyndir stjórn-
málamenn sem kunna vel til
verka í svona málum. — S.DÓR
Afnemur
tjöldatíiJk-
markaiiir
Háskólanefnd Háskólans á Akur-
eyri hefur ákveðið að beita ekki
fjöldatakmörkunum í hjúkrunar-
fræði á háskólaárinu 1999 til
2000. Ein meginástæða þessarar
ákvörðunar er sá vilji yfirstjórnar
háskólans að bregðast við þörf-
um samfélagsins fyrir háskóla-
menntað fólk á hverjum tíma,
ekki síst þarfir landsbyggðarinn-
ar. Um 80% þeirra hjúkrunar-
fræðinga sem brautskráðst hafa
frá Háskólanum á Akureyri
starfa á landsbyggðinni en ein-
ungis 20% þeirra sem hafa
brautskráðst frá Háskóla Islands.
Alls vantar í dag í um 300
stöðugildi hjúkrunarfræðinga
miðað við stöðuheimildir auk
þess sem talið er að fjölga þyrfti
stöðuheimildum um 400, og því
vanti um 700 hjúkrunarfræðinga
til starfa á landinu til að Ieysa
„mannekluna" í hjúkrun. — GG
—1»™™
Það er skammt stórra högga á milli í veðráttunni fyrir norðan. Eftir ieiðinda áhlaup í fyrradag skein sól
Akureyri í gær og börnin sem léku sér í Kjarnaskógi fögnuðu blessaðri birtunni. Vorjafndægur verða á
sunnudag, og styttist þá í betri tíð.
í heiði á
morgun,
82. og 83. árgangur - 55. tölublað
Afgreiddir samdægurs
Venjulegirog
demarrtsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
womoMxexfvœx
EITT NUMER AÐ MUNA
5351100
Fjölbreytt efni er í helgarblaði
Dags.
Vifi ekkert
miðjiunoð
í helgarviðtali í dag segir Stein-
grímur J. Sigfússon miðjumoð-
inu stríð á hendur. Hann segir
m.a.: „Það er orðin merkileg þró-
un í íslenskum stjórnmálum ef
þrír flokkar ætla allir að troða sér
inn á miðjuna, samanber nú síð-
asta Iandsfund Sjálfstæðisflokks-
ins. Geta menn þá ekki bara
gengið í Framsóknarflokkinn í
stað þess að vera að bítast um á
miðjunni í mörgum llokkum?"
Steingrímur telur að þær hrær-
ingar sem nú hafa orðið í flokka-
kerfinu séu varanlegri en þær
breytingar sem orðið hafa á því
áður. Þess vegna óttast hann
ekki að örlög Vinstrihreyfingar-
innar græns framboðs verði að
hverfa af sjónarsviðinu eftir eitt
kjörtímabil.
Kálfskinnshj ónin
I lielgar-
blaðinu er
einnig rætt
við ferða-
þjónustu-
hjónin
Kálfskinni,
Svein Jóns-
son og Asu
Marinós-
dóttur og
son þeirra
Sveinn og Ása í
Kálfskinni.
Marinó. Hugmyndaauðgin í fjöl-
skyldunni er ótrúleg þegar kem-
ur að ferðaþjónustu og greinilegt
að túrismagenin eru ríkulega úti
látin á þessum bænum.
Þess utan er fjöldi áhuga-
verðra efnisatriða að finna £
helgarblaðinu eins og venjulega.
I þættinum sönnum dómsmál-
um er fjallað um peningapóker,
rætt er við þá veiðifélagana Arna
Baldursson og Þórarin Sigþórs-
son, tannlækni. Auk þess flugu-
veiðipistill, bókahillan, Land og
þjóð og fleira og fleira. Góða
helgi!