Dagur - 20.03.1999, Qupperneq 4
4-LAUGARDAGUR 20. MARS 1999
Stjómmálafimdur á Laugarvatni
Formenn og varaformenn stjórnmála-
flokkanna verða á kynningarfundi vegna
Alþingiskosninganna í vor sem haldinn
verður í íþróttahúsi Kennaraháskólans á
Laugarvatni í dag. Það eru Málfundafélag
og stjórnmálafélag Menntaskólans á
Laugarvatni sem standa að umræðufund-
inum í samstarfi við Islenska útvarpsfé-
Iagið og verður fundinum sjónvarpað
beint á Stöð 2.
Halldór Asgrímsson verður fyrir Fram-
sóknarflokkinn, Geir Haarde fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, Margrét Frímannsdóttir
fyrir Samfylkinguna, Steingrímur J. Sig-
fússon fyrir Vinstri hreyfinguna grænt
framboð og Sverrir Hermannsson fyrir
Frjálslynda flokkinn.
Stjórnmálafundurinn er öllum opin og
aðgangur ókeypis. Fundarstjóri verður Páll Magnússon, fréttastjóri
Stöðvar 2.
Vann 35 milljóiiir
íslendingur deildi fyrsta vinningi með Norðmanni og Finna í fyrri út-
drætti Víkingalottósins á miðvikudaginn var. Fyrsti vinningur var tvö-
faldur og fékk Islendingur í sinn hlut rúmar 35 milljónir króna. Vinn-
ingurinn var keyptur í Glæsibæ við Alfheima í Reykjavík.
Þetta var í sjötta sinn sem Islendingur hlýtur 1. vinning í þessu
samnorræna lottói en sex ár eru síðan starfsemi þess hófst.
ro^tr
FRÉTTIR
Þórólfur Antonsson segir fjöhnarga áhættuþætti steðja að laxastofninum i Elliðaánum.
Hættur steðj a
að Elliðaánum
Meiri málvemd
Mjólkursamsalan og Islensk málnefnd endurnýja formlega samstarf-
samning sinn með undirritun í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Að því
loknu mun Mjólkursamsalan afhenda málnefndinni gjafabréf fyrir
nýjum tölvubúnaði í tilefni þess að hún er flutt í nýtt húsnæði.
Samstarf þessara aðila um málvernd hófst 1994 og þykir hafa tek-
ist vel og því ákveðið að halda því áfram. Af þessu tiiefni býður
Mjólkursamsalan til fjölskylduskemmtunar í Ráðhúsinu og hefst hún
klukkan 14:00 og stendur til 16:00.
Úr þáttaröðinni
„Á Veioislóð" er fimm þátta
sjónvarpsmyndir sem Pálmi
Gunnarsson gerir og Ijalla
meðal annars um stanga-
veiði á Islandi. Hver þáttur
er um 30 mínútna langur.
Þættirnir eru blandaðir,
hraðir og skemmtilegir og
veita áhorfandanum fróð-
leik um landfræðilega sögu
hvers staðar, umhverfi ár-
innar, lífríki, og séreinkenni
þess. Sýndar eru einstakar
náttúruperlur sem eiga sér
fáar hliðstæður í heiminum,
auk einstakra neðanvatnsborðsmynda, sem gerir Island að draumi
fluguveiðimannsins. Fyrsti þátturinn verður á agskrá Ríkissjónvarps-
ins nú um helgina.
„Á veiðislóð66
Fyrsti þátturinn „Á Veiðistóð" verður á dagskrá Ríkis-
sjónvarpsins nú um heigina.
Eiginmaður minn
GUNNAR SIGMAR SIGURJÓNSSON
frá Skefilsstöðum á Skaga,
Víðilundi 24, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 23. mars kl. 13:30.
Kristrún Anna Finnsdóttir.
Ástkær systir mín,
SIGRÍÐUR STEINUNN JÓHANNESDÓTTIR,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 19. mars.
Fyrir hönd vandamanna,
Ólafía Jóhannesdóttir.
Aukin byggö, fleiri
brýr, stækkim hafnar-
maimvirkja, eiturúö-
un garða, erfðablönd-
un viö eldislax, kfla-
veikin og fleira getur
verið orsök minuk-
andi laxgengdar í ám-
ar sl. tvö ár.
Á ársfundi Veiðimálastofnunar,
sem haldinn var í gær, flutti
Þórólfur Antonsson líffræðingur
erindi um laxastofn Elliðaánna
og framtíð hans. I samtali sem
Dagur átti við Þórólf um þetta
mál í gær segir hann að margir
áhættuþættir sæki að Elliðaán-
um, sem geti haft og hafi áhrif á
laxastofn ánna og geti verið
ástæðan fyrir minnkandi lax-
gengd í ánum sl. tvö ár. Hann
nefnir hið mikla innstreymi af
eldislaxi í Elliðaárnar á árunum
1986 til 1995 og þá erfðablönd-
KOMIN
AFTUR
© Husqvarna
Husqvama heimilistækin eru
komin aftur til landsins.
Þau taka á móti gestum í verslun okkar
alla virka daga frá 9:00 -18:00.
Endurnýjum góö kynni!
BBÆ OUBNIR
(GpORMSSON
túgmulo 8 • Slmi 533 28ÓÓ
www.visir.is
FVRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
un sem þar átti sér stað. Aukin
mannvirki á svæðinu, fleiri svæði
tekin undir byggð. Fleiri brýr yfir
árnar, stækkun hafnarmann-
virkja, uppfylling við ósana. Eit-
urefni berast í árnar í auknum
mæli. Affall af götum og brúm,
menn úða garða sína með eitur-
efnum.
„Það er því Iangur listi yfir
áhættuþættina þegar á rennur í
gegnum stóra borg,“ sagði
Þórólfur Antonsson.
Kílaveikin og fleiri þættir
Hann segist hafa, við rannsóknir
sínar, borið saman nærliggjandi
ár eins og Leirvogsá og Laxá í
Kjós hvað varðar seiðabúskap í
ánum og hvort laxagengdin hafi
minnkað þar álíka og í Elliðaán-
um sl. 2 ár.
„Það kemur í ljós að ekki hafa
orðið neinar stiikkhreytingar á
seiðabúskap Elliðaánna miðað
við Leirvogsá undanfarin ár þótt
þróunin í þeim báðum hafi held-
ur verið á niðurleið. Þegar horft
er á veiðina og horið saman við
Leirvogsá og Laxá í Kjós er
ástandið svipað, nema tvö sl. ár.
Þá verða vatnaskil og veiðin dett-
ur niður í Elliðaánum. Um leið
vaknar spurningin um hvað
þessu valdi og við því er ekkert
eitt ákveðið svar,“ segir Þórólfur.
Hann bendir á að endurheimt-
ur úr sjó hafa verið afar lélegar
sl. 2 ár eða aðeins 4-6%. Árin þar
á undan hafi þær verið 9-10%.
Þarna muni strax um helmingi
og erfitt að segja til um hvað
þessu veldur.
„Það kom upp kílaveiki í Iaxi
árið 1995 í Elliðaánum og getur
hugsanlega haft áhrif á að lífslík-
ur seiða í sjó hafi versnað og þar
með auðvitað endurheimturnar.
Hins vegar virðist fjöldi göngu-
seiða, sem gengur út úr vatna-
kerfi Elliðaánna, ekkert hafa dal-
að þessi tvö ár þannig að það ger-
ist eitthvað hjá seiðunum eftir að
þau eru gengin í sjó. Eins verður
að taka tillit til þeirra áhættu-
þátta, sem ég nefndi í upphafi
þegar þetta allt er skoðað,“ segir
Þórólfur Antonsson. - S.DÓR
„Halló Landsmót66
Formaöur UÍÁ segir
aö nú sé ekki nemum
vafa undirorpið að
landsmót ungmenua-
félagauna fari fram á
Egflsstööum.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
veija 35 milljónum króna til að
fullgera fullkominn frjálsíþrótta-
völl á Egilsstöðum svo hægt
verði að halda þar Landsmót
Ungmennafélags Islands sumar-
ið 2001. Á fjárlögum þessa árs
hefur verið varið til verksins 8
milljónum króna, 13 milljónir
króna verða á næsta ári og 14
milljónir króna á árinu 2001,
eða 27 milljónir króna á næstu
tveimur árum. Þessu framlagi
ríldssjóðs verður einkum varið til
Ieggja tartanefni á hlaupabrautir
vallarins en þær kosta á fjórða
tug milljóna króna. Framlag rík-
isins er þvf aðeins hluti af heild-
arkostnaði við gerð frjálsíþrótta-
vallarins.
Einar Már Sigurðarson, for-
maður Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands (UIA)
sem heldur Iandsmótið, segir að
nú sé ekki neinum vafa undir-
orpið að landsmótið fari fram á
Egilsstöðum, en sem kunnugt er
taldi stjórn UIA það ekki for-
svaranlegt að halda Iandsmótið
með því að bjóða upp á malar-
brautir og því þurfti að koma til
fjármagn til að leggja tartanefni
á hlaupabrautirnar. Magnús
Már Þorvaldsson, sem meðal
annars hefur getið sér gott orð
sem skipuleggjandi „Halló Akur-
eyri“ um verslunarmannahelg-
ina og nú „Halló páska“, verður
að öllu forfallalausu ráðinn
framkvæmdastjóri UIA með
landsmótið sem aðalverkefni.
Hann segir að ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar sé vendipunktur'í
málinu því ekki hafi í raun verið
grundvöllur fyrir ráðningu hans
til UIA meðan þetta mál hafi
verið í IauSu lofti. - GG