Dagur - 20.03.1999, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 20. MARS 1999 - 35
„Þetta getur ekki
gengið!“ var fyrir-
sögn í blaðinu
Reykvíkingi fyrir
47 árum og var
efni greinarinnar
að „hér í bænum
væru menn, sem
gerðu sér að at-
vinnu að féfletta menn í fjár-
hættuspilum". Rannsóknarlög-
reglumenn hófu að athuga
málið og komust að því að frá-
sagnir blaðsins hefðu við rök
að styðjast.
Þröngur hópur manna hafði skipulagt
peningapóker og sum „fórnarlömbin“
höfðu tapað verulegum fjármunum. Ekki
er örgrannt um að einhverjir þeirra
mörgu sem tapað höfðu pening í pókern-
um hefðu séð ástæðu til að koma Reyk-
víkingi og lögreglunni á sporið og bera
vitnaleiðslur með sér að „fórnarlömbin“
drógu ekki af sér í framburði sínum gegn
hinum ákærðu.
Rannsóknin Ieiddi í ljós að fímm menn
höfðu í tvö til þijú ár staðið fyrir ólöglegu
Qárhættuspili í verslunarhúsnæði við Oð-
insgötu 1 og í skúr við Baldursgötu 24.
Hinir ákærðu voru Olafur Olafsson versl-
unarmaður, fimmtugur, Michael Sig-
fínnsson, fertugur, Baldur Arsælsson, 28
ára, Björn Ársælsson, 37 ára og Hannes
pylsusali Ágústsson, 38 ára. Fyrir utan
þetta mál var rannsakað og ákært út af
öðru fjárhættuspilamáli þar sem Björgólf-
ur kaupmaður Sigurðsson var sakborn-
ingur, en um það mál verður ekki íjallað
hér.
Pókerspilararnir fímm voru ekki beint
ókunnir lögreglunni. Ólafur verslunar-
maður hafði 24 sinnum áður sætt kærum
og hafði meðal annars um þrítugt hlotið
átta mánaða betrunarhússdóm og árið
1941 hlotið þriggja mánaða fangelsisdóm
fyrir fjárhættuspil (í sama máli hlaut
Michael tveggja mánaða dóm). Mesta
refsing Olafs hafði hins vegar komið
1943, eins árs fangelsi fyrir hegninga-
Iagabrot. Michael var með 16 kærur að
baki, en duglegastur hafði Björn áður
verið, hafði 37 kærur að baki. Allir höfðu
hinir ákærðu nema Hannes að baki
nokkra dóma og sektir vegna ölvunar á
almannafæri.
Allt rann til potthaldarans
Vitni lögreglunnar var sægur karlmanna
og báru allir að þeir hefðu oftar en einu
sinni spilað póker upp á peninga og flest-
ir báru að þeir hefðu tapað all mildu fé.
Þeir greindu frá því að hinir ákærðu
hefðu „haldið pott“ og hefðu reglurnar
verið þær að ávallt tæki „potthaldarinn"
að lágmarki tíund úr hveijum potti. Skoð-
anir vitna um gróða „potthaldarans" voru
nokkuð skiptar, en Iangflestir töldu þó, að
um talsverðan hagnað væri að ræða. Hin-
ir ákærðu sögðu hins vegar að mikill
kostnaður væri af því að standa fyrir
þessu og sjá um veitingar á tóbaki, öli og
jafnvel áfengi. Sem að vísu ekkert leyfí
var fyrir.
Haldbesta vitni ákæruvaldsins var Karl
Börlös Jensen Árnason, 29 ára glerskurð-
armaður, en að öðru Ieyti voru vitnin
(fórnarlömbin) úr ýmsum starfsstéttum.
Fjölmennastir voru bifreiðastjórar, en
þarna voru líka verkamenn og sjómenn,
rakari, loftskeytamaður, klæðskeri, af-
greiðslumaður, forstjóri, kaupmaður og
fleiri. Þessir menn höfðu spilað mismikið
hjá hinum ákærðu og sömuleiðis tapað
mismiklu. Karl Börlös bar að hann hefði
veturinn 1950-51 tapað um 5.000 (göml-
um) krónum og veturinn eftir um 3.000
krónum, en framreiknað til núvirðis eru
þetta samtals um 160 þúsund krónur (án
efa þó meira í raun).
Fullyrti Karl Börlös að „það fé, sem er í
umferð á spilaborðinu, Iendi, um það er
lýkur, hjá þeim [sem halda pottinn]“.
Anton nokkur Guðjónsson giskaði á að sá
sem héldi pottinn gæti grætt á því 2.000
krónur á nóttu (um 40 þúsund að nú-
virði) og Bjarni nokkur Bjarnason bar að
hann hefði eitt sinn tapað 500 krónum
sama kvöldið (um 10 þúsund að núvirði).
Þá bar Kristinn Hannes Guðbjörnsson að
hann hefði tapað 10.000 krónum í spil-
um í skúrnum við Baldursgötu eða um
200 þúsund að núvirði.
Sóöaskapur og ölvun
Hvað sem þessu líður þá reyndist ógern-
ingur að sannreyna hver hagnaður hafí
verið af þ\a að „halda pott“, þótt allflest
vitnin hafi fullyrt að hann hlyti að hafa
verið töluverður. Misjafnlega mikið var í
pottinum, en aðallega farið eftir reglun-
um 5-10-50 krónur í hverju spili eða 10-
20-100 og þá að lágmarki 5 eða 10 krón-
ur til að vera með í hveiju spili fyrir sig.
Safnast síðan þegar saman kemur og þeg-
ar við bætist að spilarar hafa gjarnan ver-
ið undir áhrifum áfengis og spilað fram á
nótt er augljóst að um töluverða fjármuni
var að spila.
Michael hafði rekið fornverslun að Oð-
insgötu 1. Hann sagðist hafa leyft Olafi
eða Birni að spila þar og fengið umbun
fyrir, en á móti lagt fram öl og aðrar veit-
ingar. I ársbyrjun 1952 tóku Olafur og
Baldur \ið fornversluninni, en áður
höfðu þeir rekið fornverslun að Lauga-
vegi 47 og þá sjálfir rekið fjárhættuspil í
skúrnum við Baldursgötu, en eftirlátið
Birni og Hannesi skúrinn.
Eftir greinina í Reykvíkingi var fylgst
með hinum ákærðu og þeim skipað að
hætta starfseminni. Það virðast þeir hafa
gert um stund og lá málið þá f Iægðinni.
En það stóð ekki lengi og loks kom að því
að lögreglan gerði áhlaup í Óðinsgötu-
verslunina vegna kvörtunar. Voru þá all-
margir menn að spilum í herbergi innaf
versluninni og voru menn ölvaðir. Var
„yfrið sóðalegt um að litast. Hafði komið
til ryskinga milli gesta". Þótti nú óhjá-
kvæmilegt að ákæra.
Sannað þótti að Michael hefði út-
vegað húsnæði, spilað og stundum
haldið pott. Hlaut hann 35 daga
fangelsi og 1 5 þúsund króna sekt (um
250 þúsund). Sannað þótti að Ólafur
og Baldur hefðu staðið fyrir fjár-
hættuspili í stórum stíl. Var litið til
fortíðar Ólafs og hann dæmdur í
þriggja mánaða fangelsi og 30 þúsund
króna sekt (um 500 þúsund), en
Baldur fékk 45 daga skilorðsbundið
fangelsi og 1 5 þúsund króna sekt (um
250 þúsund). Þáttur Björns og Hann-
esar þótti takmarkaðri og hlutu þeir
hvor 12 og 15 þúsund gamalla króna
sekt.
DOMSMAL
FPiðPik ÞÓP
Guömundsson
skrifar
Meðal aðdáenda. Vala Flosadóttir,
stangarstökkvarinn þekkti, sést hér
meðal aðdáenda sinna á stökkmóti á
Akureyri um síðustu helgi. Við
spyrjum: Hvert er Islandsmet Völu í
stangarstökki og hvaðan af landinu er
hún?
Séra Halldór. Halldór Reynisson er (
dag prestur í Neskirkju, en hér er
spurt hvaða tignarstarfi í æðstu stjórn
ríkisins hann hafi gegnt fyrir rúmum
áratug?
Davíð og Geir. Sigurvegari lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins er Geir H.
Haarde. Hver voru hluföll í kjöri vara-
formanns milli hans og Sólveigar Pét-
ursdóttur?
Á Þingvöllum. Burstabærinn á Þing-
völlum, sem byggður var snemma á
öldinni, var upphaflega þrjár burstir,
en var slðar fjölgað um tvær. Hvenær
og hversvegna var það gert?
Þórbergur. Þess er nú minnst að 110
ár eru liðin frá fæðingu Þórbergs
Þórðarsonar. Hverjar voru líkamsæf-
ingarsem hann stundaði á Seltjarnar-
nesi og varð frægur fyrir?
LAND OG
ÞJÓD
Sigupðup Bogi
Sævapsson
skrifar
1. Halldór Laxness skrifaði tvær bækur
um kommúnismann í Rússlandi, en sem
ungur maður hreifst hann mjög af
stjórnarfari eystra þó hann fylltist efa-
semdum um það síðar. Um þessar tvær
hliðar mála, hina vonbjörtu og þá
dökku, skrifaði hann sitt hvora bókina,
hverjar voru þær?
2. Spurt er um íslenskan rithöfund,
Vestfirðing að ættum, sem bjó nær alla
ævi í Danmörku. Einkum er hans minnst
fyrir þátttöku í handritamálinu, en þar
skrifaði hann bækur og greinar fyrir
málstað íslendinga og naut í baráttunni
fulltings lýðskólamanna?
3. Hvað heitir átakið sem Siglfirðingar
og fleiri efna nú til t þeim tilgangi að
afla hugmyndinni um jarðgöng milli
Ólafsfjarðar og Siglfjarðar um Héðins-
fjörð, fylgis?
4. Hver er kappinn sem tvíbætti ísiands-
met sitt í hástökki á Akureyri um sl.
helgi, það er úr 2,16 m. í 2,17 m. og svo
í 2,20 m.?
5. Hvar er það á landinu sem heitir
Þingborg, en þar er bæði grunnskóli og
félagsheimili með þessu nafni?
6. Eftir hverjum er fjallið Vífilsfell, sem
gnæfir yfir Sandskeið, nefnt?
7. Fjarðarhorn, Valdasteinsstaðir, Kjörs-
eyri, Hlaðhamar, Kollsá, Borgir og Skál-
holtsvík. Hvar á landinu eru þessir
bæir?
8. Daníel Árnason mun skipa annað
sætið á framboðslista Framsóknar-
flokksins á Norðurlandi eystra í vor.
Hvaða fyrirtæki á Akureyri veitir hann
forstöðu í dag og hvar var hann um
skeið sveitarstjóri?
9. Hver er sendiherra íslands í Bonn.
10. KFUM og KFUK í Reykjavík héldu
um síðustu helgi uppá afmæli sitt. Hve
gömul eru þessi félög orðin?
BJB pBjpunp 01
uuog j puBjsj Bjjgqjpuos jo ‘n|>jaH ppfisjoj ujnjjAj 'uossnj6js Jnpuniuj6u| 6 'ujoipot] b jjpfjsjBjjoAS qjbjjs bjb Bjjn>j>|0U lun jba uubij 'p/Í8jn>jv b s)SB|d-o>jv jjpfjSBpujæA>|iUBjj J8 uosbujv jajuea '8 pjpfjBjnJH piA '8 (j ‘n|SÁSBpuBjJS
i nj8 Jjæq jjssacf jjjjv L suuBiusiupuspuB| ‘jbuosjbujv sj|o6u| B|æj(j uuja jba ujss ‘iijja J|Jja jujsu ja ||8J||JJA '9 'ssoj|8s p|A uBjsns jiuujb>|s ‘epn j |dd8jqs|pj86unBJH j s 'dj Jn uosjepBfH |jb>j 'jBug -y -b6b>|sb||pji uuiudo g lujefg-eju
-puBH lunpujsu jba uinpunjs uiss ‘uosb|sjo 'IAI lujefg z '8961 ujo>| jn uias eujjjep|e>is! PBA>| uoj ubuub e68|msA piA us ‘idiaj p8Aq e uinpuÁui6nq ejjiacj 6o pjsne j uinunöojpisj ssauxeq jopnepj jp|æq 8961 uio>| jn uias nup/ijuiAæ b>|sj89 j j
n6æjj jBUJB6u|jæsj8||'ny\| uin jjnds J8 jpn , BjjaqpBJsijæsjoj jnpejsnq 6ep j J8 jeþ 6o sjnpns gj jjjsinq
jæAj uin jnpe>|>jæjs uupæqB||eA6u!q jba pq qsnjpj jnuosjnjjop 6o sueq euoxjuiBia ‘uossjjjjpauag jujefg uiss jbcJ ‘0261 uin||pA6u|q b uueunjq jqja jnpe>|>(æ)s jba uinnpAöuiq e uupæqejsjng , 'ejjpcj 6unpjofj e68|dæj jjaj >|>|8j jijjopsjnjpg
6|8A|ps ua 'epæA>jjB ejpppjö %sL uin jnejq apjeen 'H J!39 » '|U®Pui8 j jnjjppeöoquuy jesjp6|/\ uinjp njsjAj b ‘p|8>(S uin UBjpBjasjoj jba uossiu/iay Jpp||BH , 'JBjjaui sy‘t? JO |>|>|0)sje6ue)s i jepnpjjg bjj ja uias 'jnjjppesoy n|OA jauispuejsj,