Dagur - 21.04.1999, Síða 13
MIÐVIKVDAGUR 21. APRÍL 1999 - 13
ÍÞRÓTTIR
MiMl spernta fyrtr leik
Juventus og Man. United
Ryan Giggs skorar jöfnunarmarkið á síðustu mínútum leiksins.
Mikilvægasti knatt-
spymuleikiir leik-
tímabilsins milli
Juventus og Man.
United í undanúrslit-
um Meistaradeildar
Evrópu verður flant-
aður á í Tórínó á ítal-
íu klukkan 18:45 í
kvðld.
Mikil spenna er fyrir seinni leik
Juventus og Manchester United
í undanúrslitum Meistaradeildar
Evrópu, sem fram fer í Tórínó á
Ítalíu í kvöld. Mikið er rætt og
ritað um leikinn um allan heim
og talað er um hann sem mikil-
vægasta knattspyrnuleik keppn-
istímabilsins. Það er ljóst að
mikið er í húfi og bæði Iið munu
tjalda því sem til er, svo framar-
lega sem leikmenn séu í leik-
hæfu standi.
Verður Ryan Giggs með?
Hjá United er það spurningin
um Ryan Giggs, hvort hann
verður orðinn nógu góður af
ökklameiðslunum, sem hann
hlaut í undanúrslitum enska bik-
arsins gegn Arsenal f síðustu
viku. Þau voru það slæm í upp-
hafi að Giggs yfirgaf Villa Park á
hækjum eftir leikinn. Hann
mætti þó á æfingu á sunnudag
og fór með liðinu til Tórínó í
gærmorgun. Alex Ferguson,
stjóri United, var bjartsýnn á
ástandið og sagðist hafa góðar
vonir um að hann yrði með í
leiknum. „Það mun koma í ljós á
æfingu í kvöld (í gærkvöld) hvort
hann treystir sér til að leika.
Hann er allur að braggast, en
þetta er samt tvísýnt," sagði
Ferguson.
Menn hafa spurt sig hvort
Ferguson sé að spila sama leik-
inn og Juventus gerði varðandi
Zinedine Zidane fyrir fyrri leik-
inn, en þá var Iátið líta út fyrir
að hann yrði jafnvel ekki með
vegna meiðsla. Það er ólíklegt að
svo sé og augljóst að Ferguson
hefur verulegar áhyggjur af því
hvort Giggs geti Ieikið.
Ef Giggs leikur ekki er víst að
Ferguson muni Iáta Jesper
Blomqvist helja leikinn, en hann
hefur nú náð sér að fullu eftir
kvalafull meiðsl í Ieiknum gegn
Arsenal í bikarnum.
Einnig hafa menn haft áhyggj-
ur af Peter Schmeichel, sem
einnig meiddist í leiknum gegn
Arsenal, en það er ljóst að hann
verður örugglega með gegn
Juventus.
Treystir Ferguson á Yorke og
Cole?
Ferguson hefur hingað til verið
ófáanlegur til að gefa einhverjar
vísbendingar um liðsuppstilling-
una gegn Juventus. Það virðist
þó nokkuð klárt að þeir Denis
Irwin og Ronny Johnsen munu
koma aftur inn í vörnina, eftir
fjarveru í síðasta leik gegn
Sheffield Wednesday á laugar-
daginn og muni leika þar með
þeim Jaap Stam og Gary Neville.
A miðjunni leiki svo Beckham,
Keane, Butt og þá annað hvort
Giggs eða Blomqvist. Helsta
óvissan er svo með framlínuna,
þar sem líklegast er að Dwight
Yorke, sem hvílt hefur í tveimur
síðustu leikjum, muni leika.
Spurningin er svo hvort það
verður Andy Cole, sem hefur
verið slæmur í ökkla, sem byrjar,
eða hvort það verður Teddy
Sheringham, sem öllum á óvart
muni byija. Það er þó talið ólík-
Iegt að hvorki hann né Solskjær
verði í byrjunarliðinu, heldur
muni Ferguson treysta á góða
samvinnu þeirra Yorke og Cole
sem reyndist liðinu svo vel, þar
til fyrir mánuði síðan.
Ferguson virðist sannfærður
um að hans mönnum takist að
skora gegn Juventus. „Eg veit að
við verðum að skora. Til þess
þurfum við toppleik og mikla yf-
irvegun og það ætti okkur að
takast,“ sagði Ferguson.
Loft lævi blandió hjá
Juventns
Andrúmsloftið hjá Juventus er
lævi blandið þessa dagana og þar
spilar helst inn í nýleg yfirlýsing
Zinedine Zidane, um að hann
vilja fara frá liðinu eftir tímabil-
ið. Giovanni Agnelli, einn af
stjórnarmönnum félagsins, hefur
brugðist hart við og segir það
mjög vanhugsað hjá Zidane að
taka þetta upp svo rétt fyrir leik-
inn, bara vegna þess að eigin-
konan vilji búa við sjávarsíðuna.
„Hann sjálfur er alls ekki með
heimþrá, heldur er hann undir
mikilli pressu frá eiginkonunni.
Hann sagði mér sjálfur að síðan
þau eignuðust börnin, sé hún
húsbóndinn á heimilinu. Eg hélt
að hann væri samningsbundinn
félaginu en ekki eiginkonan,"
sagði Agnelli.
Að öllum líkindum mun
Juventus geta stillt upp sínu
sterkasta liði og aðeins spurning
hvort Paolo Montero verður til-
búinn eftir meiðsl. Annars munu
Italirnir ekkert gefa upp um byrj-
unarliðið fyrr en rétt fyrir leik,
en líklegt þykir að eftirtaldir leik-
menn muni hefja leikinn
Peruzzi, Birindelli, Ferrara, Iuli-
ano, Pessotto, Conte, Davids.
Deschamps, Di Livio, Zidane og
Inzaghi.
Ef Juventus nær sigri í leikn-
um í kvöld er það i fjórða skiptið
sem liðið leikur til úrslita um
Evrópubikarinn, en tvisvar hefur
félagið hampað bikarnum, árin
1985 og '96. United hefur aftur
á móti aðeins einu sinni komist í
úrslitaleikinn, fyrir 31 ári síðan,
á þeim dögum sem Sir Matt Bus-
by stjórnaði liðinu, en þá varð fé-
lagið Evrópumeistari í fyrsta og
eina skiptið í sögu þess.'
íslendingamir byrja vel í Noregi
Rúnar Kristinsson og Heiðar Helguson, leikmenn Lilleström, ásamt Guðna
Þ. Ölverssyni, blaðamanni Dags, eftir leikinn gegn Rosenborg.
Lifleström kom aftur
á óvart. Stabæk tapaði
fyrir nýliðunum.
Steinar Dagur með
fyrsta deildarmak
sitt. Viking komið í
gang. Brann komið á
bólakaf á botninum.
„Það eru allir búnir að dæma
okkur niður nema við sjálfir. Við
vitum allra manna best hvað við
getum. Við getum unnið öll lið í
deildinni fyrst við getum unnið
Rosenborg. En þetta er alls ekki
auðvelt. Við þurftum virkilega að
hafa fyrir hlutunum hér í dag og
það gerðum við. Þegar allir vinna
að einu markmiði getur þetta
gengið hjá okkur,“ sagði Rúnar
Kristinsson, sem átti fínan leik á
miðjunni hjá Lilleström.
I leiknum á laugardaginn
komu þær 1700 milljónir króna,
sem Rosenborg á meira af en
LiIIeström, að litlu gagni. Lil-
Ieström var betra á öllum sHð-
um. Tvö fullkomlega lögleg
mörk voru dæmd af heimaliðinu
auk þess sem það varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark. Það
kom ekki að sök. En er Rosen-
borg að fatast flugið?
„Nei það held ég nú ekki. Þeir
eru oft seinir í gang á vorin.
Meistaradeildin tekur mikinn
toll hjá þeim á veturna. Völlurinn
hérna hentar þeim ekki eins vel
og okkur sem spilum svona
pressufótbolta. Við létum þá
aldrei í friði allan leikinn. Við
unnum eins og lið allan leikinn
og lögðum einfaldlega meira á
okkur en þeir. Þess vegna áttum
við sigurinn fullkomiega skilið,“
sagði Rúnar.
Heiðar Helguson átti einnig
mjög góðan leik fyrir Lilleström
en varð fyrir því óláni að skora
sjálfsmark. „Það var alveg ferlegt
að lenda í þessu. En sem betur
fer unnum við leikinn þrátt fyrir
allt,“ sagði Heiðar og gat vel
unað glaður við sinn þátt í leikn-
um. Hann lék Rosenborgarvörn-
ina grátt ásamt félögum sínum.
Samanlögð einkunn liðanna seg-
ir allt sem segja þarf um muninn
á þeim. Lilleström fékk saman-
lagt 68 stig meðan meistararnir
þurftu að sætta sig við 43. Aðeins
einn leikmaður meistaranna get-
ur verið bjartsýnn eftir útreiðina
á Árásen, Arni Gautur Arason.
Hann horfði nánast örugglega á
félaga sinn, Jörn Jamtfall, sem
nú er kallaður Björn Bakfall,
spila sig út úr marki meistar-
anna.
Nýliðamir unnu bikarmeist-
arana
Odd Grönland kom aftur á óvart
á sunnudaginn þegar það vann
annan leikinn í röð. Þeir snéru 0-
2 tapi í 3-2 sigur og það gegn bik-
armeisturunum í Stabæk. Þar
með eru nýliðarnir, sem ekki hafa
leikið í efstu deild í rúmlega þrjá-
tíu ár, búnir að leggja tvö af þeim
liðum sem spáð er verðlaunasæt-
um í lok leiktíðar.
Viking hristi af sér slenið, eftir
tapið gegn Odd Grönland, og
sigraði Moss, 0-2, á útivelli. Auð-
un Helgason átti skot í teignum,
eftir hornspyrnu, sem var varið á
Iínu. Martin Barre náði síðan að
moka boltanum í markið. Rík-
harður Daðason er enn meiddur
en vonast er til að hann leiki um
næstu helgi.
Strömgodset, sem vann Kongs-
vinger í fyrstu umferðinni, varð
að sætta sig við 3-1 tap gegn
Bodö/GIimt. Stefán og Valur
Gíslasynir léku allan leikinn fyrir
Godset.
Brann komið í bullandi vand-
ræði
Tryggvi Guðmundsson og félagar
í Tromsö tóku á móti Brann og
hreinlega rassskelltu gesti sína.
Brann var spáð góðu gengi áður
en átökin hófust, en önnur er
raunin til þessa. Liðið tapaði fyrir
Lilleström á heimavelli í fyTstu
umferð og nú 5-0 fyrir Tromsö.
Tryggvi skoraði eitt markanna og
lagði upp síðasta markið. Marka-
tala Brann er ekki glæsileg, 1-8.
Gestirnir Iéku með 10 Ieikmenn
eftir að fyrirliðanum var vikið af
velli, í stöðunni 2-0 um miðjan
fyrri hálfleik. Bjarki Gunnlaugs-
son kom ekki við sögu í leiknum.
Kongsvinger tók á móti meist-
araefnunum frá Molde, í hunds-
lappadrífu og hundleiðinlegu
veðri. Steinar Adolfsson náði for-
ystunni fyrir heimamenn, með
föstum skalla eftir horn. Molde
jafnaði með sjálfsmarki. Stefán
Þórðarson lagði upp annað mark
Kongsvinger sem þó varð að sætta
sig við ósigur, 2-3, í Ieikslok.
Molde getur þakkað Andreas
Lund fyrir þrautseigjuna. Hann
potaði inn tveimur mörkum í lok-
in. - GÞÖ
Emkunnir íslendingaima:
Rúnar Kristinsson, Lilleström 7
Tryggvi Guðmundsson, Tromsö 7
Heiðar Helguson, Lilleström 6
Auðun Helgason, Viking 6
Steinar D. Adolfss., Kongsvinger 5
Stefán Gíslason, Strömgodset 5
Valur F. Gíslason, Strömgodset 4
Helgi Sigurðsson, Stabæk 4
Stefán Þórðarson, Kongsvinger 4
Staðan
L U J T Mörk S
Molde 2 2 0 0 7:2 6
Lilleström 2 2 0 0 6:3 6
Odd Grenl. 2 2 0 0 5:3 6
Bodö/Glimt 2 1 1 0 4:2 4
Rosenborg 2 1 0 1 7:3 3
Stabæk 2 1 0 1 7:3 3
Tromsö 2 1 0 1 5:4 3
Viking 2 1 0 1 3:2 3
Strömsgod. 2 1 0 1 3:4 3
Valerenga 1 0 1 0 1:1 1
Kongsving. 2 0 0 2 3:5 0
Skeid 1 0 0 1 0:5 0
Brann 2 0 0 2 1:8 0
Moss 2 0 0 2 0:7 0