Alþýðublaðið - 09.02.1967, Blaðsíða 2
TILLOGUR FRAMSOKNAR
MUNDU AUKA VANDANN
Reykjavík, EG
Sigiirður Iug-imundarson (A)
hafði framsögu fyrir meirihluta
allsherjai’nefndar í sameinuðu
fcingi í gær viff framhald umræðu
um tillögu Framsóknarmanna um
hlutverk Seðlabankans að tryggja
atvÍBiiuvegunum lánsfé.
Sigurður rakti íhver útlánaaukn-
ing bankakerfisins hefur verið, en
(hún var í september 1965 og þar
ttil í september 1966 471 milljón
króna fram yfir innlánsaukningu.
Sigurður sagði að bundna féð,
6em Framsóknarmenn ævinlega
isegðu að væri af einhverjum ann-
tarlegum ástæðum látið liggja ó-
notað væri -annarsvegar í gjald-
eyrisvpnasj^ði Seðla|)jan!k;Jns og
liins vegar í endurkeyptum víxl-
um atvinnuveganna. Ásökun flutn
ingsmanna tillögunnar í garð
stjórnar Seðlabankajns, að þeir
isveltu atvinnuvegina *á fé, væri
því í fyllsta máta óréttlát. Legði
iþví meirihluti nefndarinnar til að
málinu yrði vísað frá með rök-
istuddri dagskrá, sem er svohljóð-
andi: Með því að ásakanir þær á
stjóm Seðlabank^ns, sem felast í
tillögunni eru óréttmætar og leið-
ir þær, sem vikið er að í grein-
argerð um íausn vandans eru ó-
raunhæfar og frekar til þess falln
ar að auka vanda atvinnuveganna
en leysa liann, þá ályktar Alþingi
að taka fyrir næsta mál á dag-
skrá.
Einar Ágústsson (F) hafði fram-
sögu fyrir minnihluta nefndarinn-
ar, sem mælir með að tillagan
verði samþykkt óbreytt. í áliti
minnihlutans er almennt vikið að
rekstrarfjárskorti og almennum
lánsfjárskorti íslenzíkra atvinnu-
vega, og væri því þjóðhagsleg
nauðsyn að -auka fjármagn, sem
a.m.k. undirstöðuatvinnuvegir
þjóðarinnar ættu aðgang að.
Atkvæðagreiðslu um m'álið var
frestað.
60 lönd fylgja sömu reglum
lagnvart USA og við gerum
Reykjavík, EG
Þaff er ekkert einsdæmi í sam-
skiptum þjóða, aff Bandaríkja-
menn skuli ekki þurfa vegabréfs-
áritun til íslands, þótt íslendiugar
þurfi vegabréfsáriíun tii Banda-
ríkjanna, sagði Emil Jónsson ut-
anríkisráðherra í umræðum í
sameinuðu þingi í gær. Ráðlierra
sagði, að um það bil 60 Iönd fylgdu
þessari reglu gagnvart Bandaríkj-
unum, þeirra á meðal nær öll
Verður vopnahléð í
Vietnam framlengt?
RAFMAGNSMAL A AUST-
URLANDI.
Haldið var áfram í dag um-
ræðum um fyrirspurn, er fram
var borin á alþingi f.vrir jól
og fjallaði um úrbætur í raf
magnsmálum á Austurlandi,
en raforkumálaráðlierra gaf
þá þau svör, að þar mundu
settar upp fleii’i díselrafstöðv
ar.
Lúðvik Jósefsson og Ey-
steinn Jónsson, sem báðir
kvöddu sér hljóðs í dag lögðu
áherzlu á að hraða þyrfti
mjög úrbótum í þessum efn
um, og væri hagsmunamál
þj.óðarinnar að rafmagnsmál
Austfirðinga vaeru leyst á við
unandi hátt því í þeim lands
hluta væri nú meginhluti síld
arjðnaðai- þjóðarinnar.
LOFTSKIP.
Guðlaugur Gíslason (S)
mæjti í gær í sameinuðu
þin^i fyrir þingsályktunartil-
lögu, sem hann flytur og fjall
ar um það, að athugað verði
h vor.t loftpúðaskip (hovercraft)
getií ekki bætt samgöngur
milli Vestmannaeyja og lands.
SAIGON, 8. febrúar
(NTB-Reuter).
Öllum hernaffaraffgerffum á
landi og í lofti var hætt I Suffur
-Vietnam í dag, enda hefur ver
ið lýst yfir vopnahléi vegna ný-
árshátíðar Vietnarubúa. Samtím-
is létu margir í Ijós von um, aff
hiff fjögurra daga vopnahlé yrffi
framlengt.
í Saigon var sagt, að skæru-
liðar Vietcong hefðu rofið vopna
hléð 23 sinnum fyrstu 12 tím-
ana eftir að vopnahléð gekk í
gildi. En aðeins niu brot voru
talin alvarleg, en það táknar að
mannfall hafi orðið.
Bandarísk könnunarflugvél var
auk þess skotin niður yfir Norð
ur-Vietnam. Bandaríkjamenn
hafa hætt öllum loftárásum
vegna vopnahlésins^ Norður-Vi-
etnamstjórnin telur hins vegar
könnunarflug brot á vopnahléinu.
Það eru Suður-Vietnammenn
og Bandaríkjamenn sem hafa
lýst yfir fjögurra daga vopna-
hléi, og Vietcong hafa tjáð sig
fúsa til að framlengja vopnahléð
um þrjá sólarhringa. Mikið er
bollalagt hvort Bandaríkjamenn
tjái sig fúsa til að framlengja
vopnahléð fj'rir sitt leyti.
Góðar heimildir í Saigon
herma, að Bandaríkjamenn og
Suður-Vietnammenn muni senni-
lega draga úr hernaðaraðgerðum
eftir vopnahléð til að láta í ljós
velþóknun á tillögu Vietcong.
Einnig er ír.2ið hugsanlegt, að
Framíhald á 14. síðu.
löndin í Vestur-Evrópu og Júgó-
slavía af Austur-Evrópulöndum.
Þessar upplýsingar gaf ráðherra
í svari við fyrirspurn frá Einari
Olgeirssyni (K), sem var á þessa
leið: Álítur ríkisstjórnin það eðli-
legt, að Bandaríkjamenn þurfi
ekki áritun á vegabréf til íslands,
þegar íslendingar þurfa slíka á-
ritun til Bandaríkjanna og væri
jafnvel neitað um hana. Spurði
Einar ennfremur, hvort rikis-
stjórnin hefði hugsað sér að gera
ráðstafanir til þess að íslending-
ar nytu jafnréttis við Bandarkja-
menn í þessum efnum. Minnti
hann síðan á, að blaðakonu við
Þjóðviljann ’hefði fyrir skömmu
verið neitað um áritun til Banda-
rikjanna meðan hingað væri frjáls
innflulningur á Ameríkönum og
það ekki öllum æskilegum, sbr.
Bonnie Parker. Lét Einar þess að
lokum 'getið að 10% af öllum
bandarískum fyrirtækjum væru
rekin af þjófum og morðingjum,
Framihald á 14. síðu.
Grant
Kvikmyndaleikarinn Gary |
Grant er skiiinn' rétt einn I
ganginn. Hann er núr62 ára að |
aldri og var giftur 28 ára konu, 1
Diane Cannon. Þetta var fjórða I
hjónaband kvikmyndaleikarans =
og hið fyrsta sem hann eignað- |
ist barn í, gn dóttir þeirra =
Grants oig Diönu er nú árs I
gömul. Hjónabandið ihefur stað 1
ið í hálft annað ór.
Það vakti mikla atliygli þeg- =
ar þessi frægi kvikmyndaleik- §
ari gifti sig rúmlega helmingi §
yngri ikonu og eignaðist barn í |
fyrsta sinn. Birtust þá myndir 1
af þessari hamingjusömu fjöl- =
skyldu í allri heimspressunni. i
Ástæðan fyrir því að eigin- i
kona Grants hljóp að heiman §
með dótturina er sú að hún I
sjálf segir, að Gary Grant sé |
svo drepleiðinlegur að ekki sé i
þolandi fyrir nokkra konu að \
umgangast • hann á heimili. i
Hann hugsi ekki um annað en |
að halda sér ungum með líf- §
•stykkjum og óhemjumiklum |
svefni. Og svo sé hánn fæddur i
piparsveinn sem ekkert erindi =
eigi í hjónabannd.
iiiiiiiiiiiimiin
Greinar u
í The Guardian
Brezka stórblaðið The Guard-
ian birti sl. mánudag nokkrar
greinar rnn ísland og fjölda
mynda. Alls nær efnið um ísland
yfir þrjár síðm- blaðsins, sem er
í mjög stóru broti, eins o,g reynd-
ar fiest brezku blaðana.
Greinarnar um ísland eru alls
sex að töiu og tvær þeirra eftir
starfsmann blaðsins, Derrick
Booth, ,sem dvaldi hér á landi um
skeið síðasta sumar til að safna
efni fyrir blað sitt. Fyrsta greinin
ber nafnið Iceland og er þar sagt
frá í stuttu máli atvinnulífi og
lifnaðarháttum þjóðarinnar og
landshögum yfirleitt. Þá er grein
um fiskveiðar og fiskiðnað eftir
Davíð Ólafsson fiskimálastjóra.
Önnur fjallar um skólakerfið. Ein
greinin er um ísland sem ferða-
mannaland. Grein er um matar-
æði á íslandi og virðist þar
helzt vera stuðst við heimsókn og
upplýsingar hjá Iceland Food
Centre í London, og síðasta grein-
in er um skógræktina. Auk greina
eru á fyrrgreindum síðum blaðs-
ins fjöldi auglýsinga frá íslenzk-
um fyrirtækjmn.
Allar greinarnar eru skrifaðar
af útlendingum, nema sú er Da-
víð Ólafsson ritaði. Sýnilega bera
allir greinarhöfundar góðan hug
til lands og þjóðar og hvetja ferða
menn að leita meira hingað til
lands í sumarleyfum sínum en
þeir hafa gert hingað til.
The Guardian er eitt af áhrifa-
mestu blöðum heims og talið
mjog áreiðanlegt í öllum efnis-
Framhald á bls M
2 9. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ