Dagur - 23.06.1999, Síða 1
T
Bygging Ljósavatns-
kírkju sðgð lmeyksli
Forsætisráðherrar Norðuriandanna
og Japans ásamt forseta Ísiands,
Úlafi Ragnari Grímssyni.
Allt vitlaust meðal
verktaka í S-Þingeyj-
arsýslu eftir að Ljósa-
vatnssókn ákvað að
bjóða ekki út 50
milljóna króna
kirkjubyggingu vegna
kristnitökuafmælis-
ins á næsta ári.
Smíði nýrrar Ljósavatnskirkju
sem reist er í tilefni 1000 ára af-
mælis kristnitöku á næsta ári var
ekki boðin út heldur fékk sami
aðilinn allt verkið. „Hneyksli,
tímaskekkja og siðleysi," segir
bæjarstjórnarmaður á Húsavík
og verktaki. Hann telur vel
mögulegt að framkvæmdin hefði
kostað minna ef gangur máls
hefði orðið með hefðbundum
hætti. Um 50 milljóna króna
framkvæmd er að ræða þar sem
stuðningur ríkisstjórnarinnar
skiptir tugum milljóna.
EkM skylt að bjóða út
Kristján Snæbjörnsson, bygg-
ingameistari á Laugum, var
fenginn til að byggja kirkjuna, en
hann er ekki í hópi stærstu verk-
taka í Suður Þingeyjarsýslu.
Smíðin er töluvert á veg komin
en formaður Ljósavatnssóknar,
Jón Ingason, segir sóknarnefnd
ekki hafa verið skylt að bjóða
kirkjuna út. Hvers vegna var það
ekki gert í Ijósi umfangs fram-
kvæmdarinnar? „Eg veit ekki
hvort nokkur ástæða var fyrir
því. Við höfðum aðgang að góð-
um manni sem við vitum að er
m
<v ll
Unnið var við smíði Ljósavatnskirkju í gær.
afskaplega vandvirkur. Maður
hefur ekki tryggingu fyrir slíku í
útboðum," segir Jón. Hann segir
að „ekkert endilega“ sé víst að
menn hefðu náð betri kjörum
með því að bjóða verkið út.
Úr takti við nútímann
„Þetta er ekkert annað en
hneyksli," segir Aðalsteinn
Skarphéðinsson, bæjarstjórnar-
maður og byggingameistari hjá
Trésmiðjunni Vík á Húsavík. „Að
bjóða ekki út 50 milljóna króna
verk er gjörsamlega úr takti við
nútímann og ég er viss um að rík-
isstjórnin, sem hefur sérstaklega
beitt sér fyrir útboðum og frjálsri
samkeppni, hefur ekki séð þetta
fyrir þegar ákveðið var að styðja
þessa kirkjubyggingu. Stefna op-
inberra aðila er að bjóða út öll
verk,“ segir Aðalsteinn.
Frændsemtn í verki?
Aðalsteinn segir að þótt gjörn-
ingurinn geti verið löglegur sé
hann að minnsta kosti siðlaus og
hann veltir upp spurningum um
frændsemi eða vinabönd hvað
varðar ákvarðanatökuna. „Þetta
hefði aldrei liðist í neinu öðru
bæjarfélagi. Það hefði allt orðið
vitlaust, enda bjóða menn út allt
núna, sama hve verkin eru smá.
Eg minnist þess ekki að verktak-
ar hafi komist í svona aðstöðu að
fá afhent 50 milljóna kr. verk án
útboðs,“ segir Aðalsteinn og bæt-
ir við að mjög líklega hefði sókn-
arnefndinni boðist hagstæðari
kjör með útboði.
Ríkið með 21 milljón
Smíði Ljósavatnskirkju hófst í
fyrra og verður hún vígð um
verslunarmannahelgina á næsta
ári. Fyrir smíðinni eru söguleg
rök tengd Þorgeiri ljósvetninga-
goða og hans þætti í kristnitök-
unni. Ríkisstjórnin hefur þegar
lofað á fjárlögum 21 milljón
króna til smíðarinnar, eigið fé
safnaðar nemur 7-8 milljónum
að sögn formanns sóknarnefndar
og einnig fást peningar úr jöfn-
unarsjóði kirkna. Þetta er eina
kirkjan sem reist er gagngert
vegna hátíðarhaldanna næsta ár.
Dagur náði ekki tali af kirkju-
málaráðherra, Sólveigu Péturs-
dóttur, vegna málsins. - BÞ
Tíu milljarða tekjuauki
Áætlað er að tekjur af erlendum
ferðamönnum muni að minnsta
kosti verða um 37 milljarðar
króna árið 2003. Það er um 10
milljarða króna aukning frá áætl-
un síðastliðins árs, sem hljóðaði
upp á 26,3 milljarða króna. Árið
þar á undan voru tekjur af er-
lendum ferðamönnum 22,3
milljarðar króna.
6 prósenta aukning
Samkvæmt tölum frá Hagstofu
Islands og Ferðamálaráði komu
201 þúsund erlendir ferðamenn
hingað til lands árið 1997 og 232
þúsund í fyrra. Áætlanir gera ráð
fyrir að þeir verði 340 þúsund
árið 2003. Hins vegar er talið að
fjöldi innlendra ferðamanna árið
1997 hafi verið um 190 þúsund
og tekjur af þeim um 7 milljarðar
króna á landsvísu. Búist er við
6% aukningu á ári í ferðalögum
og tekjusköpun af innlendum
ferðamönnum. - GRH
Þungavigt á
Bessastöðiun
Forseti Islands, Olafur Ragnar
Grímsson, bauð forsætisráð-
herra Japans og forsætisráðherr-
um allra Norðurlandanna til há-
degisverðar á Bessastöðum í
gær. I ræðu sinni við það tæki-
færi lagði forsetinn meðal ann-
ars áherslu á mikilvægi sam-
vinnu Norðurlandanna og Jap-
ans á ýmsum sviðum og að
fundur þessara forsætisráðherra
sýndi glöggt hve alþjóðleg sam-
vinna mannkynsins væri orðin í
leit sinni að betri heimi. Við nýtt
árþúsund væri samvinna Norð-
urlandanna og Japans vegvísir
sem aðrir gætu fylgt.
Sjá einnig hls. 3 og 5.
Ræða sam-
einingu við
EyjaQörð
Fjórtán sveitarfélög við Eyjaíjörð
funduðu í vikunni um hugsan-
lega sameiningu. Fundurinn var
haldinn í framhaldi af samþykkt
bæjarstjórnar Akureyrar snemma
í vor um að leita eftir víðtækri
sameiningu sveitarfélaga við
Eyjafjörð. Á fundinum í gær voru
mættir fulltrúar frá öllum sveit-
arfélögunum á svæðinu, frá
Sigufirði og austur í Hálsahrepp.
I samtali við Dag segir Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á
Akureyri, að hann geti ekki ann-
að en verið ánægður með þær
undirtektir sem málið hafi feng-
ið á fundinum. Þetta hafi þó
fyrst og fremst verið upplýsinga-
fundur þar sem allir viðruðu
skoðanir sínar á málinu.
Kristján segir það auðvitað
þannig þegar kemur að samein-
ingarmálum sveitarfélaga, að sitt
sýnist hverjum í einstökum atrið-
um þótt ágreiningurinn væri í
heildina ekki ærinn. Hann telur
að næsta skref sé að setja upp
formlega viðræðunefnd og
kanna hug sveitarfélaganna til
tilnefningar í hana.
mmmmmam
ISíSk
Nútíma innheimtuaðferðir!
intrum justitia
5: 561-6101
WORLOWiOE EXPROS
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100