Dagur - 23.06.1999, Blaðsíða 2
2 - MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999
. FRÉTTIR
16 milljaroar um
hendur spilara
Um 16 niilljaröar á ári
faxa uin hendur þeirra sem
spila í kössum og happ-
drættum - iun 160.000 kr.
að meðaltali á heimili í
laudiuu.
Aætlað er að um 16 milljarðar fari á ári
um hendur þeirra sem spila í spilaköss-
um, happdrættum, lottó og getraunum
hér á landi. Þetta samsvarar í kringum
160.000 krónum á hvert einasta heimili
í landinu að meðaltali. Af þessu 16
milljarða spilafé fá heppnir spilarar
samstals 13 milljarða aftur til baka í
vinningum en samtökin sem reka þessa
starfsemi halda eftir 3 milljörðum.
Þessar fróðlegu tölur segir Frjáls versl-
un að megi finna í nýlegri skýrslu
nefndar sem ríkisstjórnin skipaði í íyrra
til að semja drög að framtíðarstefnu í
happdrættismálum.
Vinna og tapa á víxl
Stærstu upphæðirnar, um 13 milljarðar,
fara um hendur þeirra sem sitja við
spilakassana og vinna þar og tapa á víxl
um 11 milljörðum, en kassarnir halda
eftir um 2 milljörðum. Undanfarin fjög-
ur ár hefur allur vöxtur happadrátta-
markaðarins verið í kössunum. Athygli
er vakin á að landsmenn veija ekki öll-
um þessum 13 milljörðum í kassana
þótt þetta sé sú fjárhæð sem fer í gegn-
um þá. Hveijum þúsundkalli er hægt
að velta nokkuð lengi og vinna og tapa á
víxl. Sami þúsundkallinn getur þannig
myndað nokkurra þúsunda króna veltu.
Heildarvelta happdrætta; HHÍ, SÍBS
og DAS og síðan Lottó og Islenskra get-
rauna er um 3,2 milljarðar, hvar af um
1,8 milljarðar fara í vinninga. Af samtals
16 milljarða spilapeningum fá spilarar
þannig um 13 milljarða til baka í vinn-
ingum en 3 milljarðar verða eftir hjá
samtökum þeim sem reka þessa starf-
semi.
íslensMr söfniuiarkassar með
helniing
Helmingur veltunnar, 8 milljarðar, fer
um íslenska söfnunarkassa; Landsbjarg-
ar, Slysvarnarfélagsins, Rauða krossins
og SAA, sem skila 6,9 milljörðum í vinn-
inga. Hjá Háskóla Islands fara um 5
milljarðar gegnum spilakassana, happ-
drættið veltir rúmum milljarði og
Happaþrennur seljast fyrir hátt f 200
milljónir, eða 6,2 milljarðar samtals,
hvar af 940 milljónir verða eftir hjá Há-
skólanum. Lottó-miða kaupa Iands-
menn fyrir 1,110 milljónir, hvar af 430
fara aftur út f vinningum en Islensk get-
spá fær 680 milljónir í sinn hlut. í get-
raunir fara um 400 milljónir hvar af 215
fara út aftur í vinninga. Happdrætti
SÍBS velti 300 milljónum og DAS um
200 milljónum. — HEl
-Dwptr
Pílagrímsgöngur prestastefnu upp að Systrafossi
við Kirkjubæjarklaustur þykja talsverð nýmæli,
enda ekki venjan að prestar séu að boða fagnað-
arerindi umhverfisvemdar og að flangsast úti í
guðsgrænni náttúranni margir saman. í pottin-
um fögnuðumennþvi að prestaherinn er ekki á
þvælingi úti í móum á Suðvesturhominu, því
þar era hermenn NATO á mikilli æfingu og óvin-
urinn er einmitt einhverjir öfgamenn sem boða
fagnaðarerindi umhverfisvemdar með óvenju-
legum hætti...
Bjöm Bjamason heldur uppi
gagnmerkri fjöimiðlarýni á
heimasíðu sinni og í síðasta
pistli sínum Ijallar hann m.a.
um myndabrengl í Degi um
helgina, þegar birtist mynd af
Reykholti í Borgarfirði þegar
átti að birtast mynd af Reyk-
holtsskóla í Biskupstungum.
Pottverjum kom ckki á óvart að ráðherrann gripi
tækifærið og segði þessi myndabrengl til marks
um að blaðið vissi ckki hvar Biskupstungur
væra. Hitt þótti lfins vegar merkilegra að Bjöm
notaði tækifærið til að hnýta í undinnenn sína á
fréttastofu útvarps með því að gagnrýna að þeir
voru 10 dögum á eftir með frétt um að Danir
hyggðust skila Færeyingum þjóðargersemum úr
Kirkjubæ. Spyrja menn nú hvort fréttastofa
hljóðvarps líkt og fréttastofa sjónvarps sé komin
í sérstaka gæslu rfldsstjómarinnar...
Björn Bjarna-
son.
í pottinum búast menn við að
Siv Friðleifsdóttir tilkynni um
val á aðstoðamianni sínum í
dag, en Ámi MatMesen varð
fyrstur nýju ráðherranna til að
tilkynna um aðstoðarmann í
gær. Sá heitir Ármann Ólafsson
og var áður hjá Halldóri Blön-
dal. Pottverjar lialda sig Iiins
vegar við kenrnnguna um að Einar Sveinbjöms-
son, veðurfræðmgur, fari í umhverfisráðuneyt-
Siv Friðleifs-
dóttir.
FRÉTTA VIÐTALIÐ
Helgigimgur á prestastefnu
. Dn Sigurikir
Ami Þárðarson
verkefnisstjórí á Biskupsstofu og
Jjölmiðlafulltrúi Prestastefnu
Prestastefna ernú haldin
á Kirkjúbæjarklaustri undir
yfirskriftinni „Samleiðmeð
Kristi“. Þetta ereinhver
fjölmennasta prestastefna
sem haldin hefurverið, en
hana sækja um 200 manns.
Þaraferu um SO makarog
15 vrestsböm.
- Hvað einhennir störf Prestastefhu að
þessu sinni?
„Eg myndi segja að það væri tvennt sem
væri sýnilegt almenningi. Fyrir það fyrsta er
þetta fjölmenn Prestastefna, Iíklega allflest-
ir prestar sem eru þjónandi og eiga heiman-
gengt. I öðru lagi einkennist Prestastefna af
helgigöngum, sem er nýlunda. Prestastefn-
ur hafa yfirleitt verið orðræðusamkomur
með fundum, fyrirlestrum og umræðum.
Núna bregður biskup af leið og nýtir stað-
hætti hér á Kirkjubæjarklaustri til þess að
fara í þessar helgigöngur eða svokallaðar
pílagrímsferðir. Fyrst var farið frá Systra-
fossi og út að Systrastapa og í dag verður
m.a. farið að bænhúsinu í Núpsstað. Síð-
degis verður farið í Meðalland að Langholts-
kirkju og þessir staðir notaðir til íhugunar.
Fyrir þátttakendur er þetta mikil og
skemmtileg nýlunda."
- Prestar landsins þurfa þvt að hafa
gönguskóna meðferðis?
„Jú, og bara að fara út fyrir hússins dyr.
Skiptir þá engu hvemig veðrið verður. Prest-
ar íhuga merkingu þessara staða og hlýða á
stutta upplestra. Krossmark er borið á und-
an oe staldrað við á ákveðnum stöðum. í
stað þess að vera prestastefna með munni
og eyrum þá er þetta prestastefna sem nær
alla leið niður.
Prestastefna hefur yfirleitt verið fundur
prestanna og djáknanna en nú er boðið upp
á það, í annað sinn, að hluti af dagskránni er
opinn almenningi. Fyrsta helgigangan var
opin og í kvöfd er Jónsmessunæturmessa við
minningarkapellu Jóns Steingrímssonar. Þar
er öllum íslendingum boðið að taka þátt.“
- Er þetta sem kotna skal á prestastefn-
um á nýrri öld?
„Ég held að það sé alveg Ijóst að presta-
stefnur eru að breytast. Þær eru að verða
fjölbreytilegri og hreyfanleikinn meiri. Þetta
er teikn þess að nýr biskup er kominn til
starfa og einnig að prestastéttin er fjölbreyti-
legri en áður; konur og karlar á öllum aídri
með ólík viðhorf."
- Það er ekki þannig að heilsufari presta
hafi verið orðið ábótavant og þeir látnir
hreyfa sig meira?
„Það má alltaf velta vöngum yfir því
hvernig heilsufarið er. Ef gerð yrði könnun
núna tel ég að niðurstöður sýndu að ástand
prestastéttarinnar væri almennt gott, að
minnsta kosti verða prestar yfirleitt gamlir.
Fyrst og fremst er verið að leggja áherslu á
að maðurinn er heild og það er verið að nýta
söguna. Ástæða þess að Karl Sigurbjörns-
son, biskup, gerir þetta núna er að við erum
að ganga til móts við skil tveggja árþúsunda.
Kristni hefur verið hér á landi í þúsund ár
°g spyrja má hvernig Kirkjan ætli að bregð-
ast við breyttum tímum. Hún á ekki að gera
það staðföst á sínum stað heldur að vera
hreyfanleg. Biskupinn er einfaldlega að
bjóða prestunum sínum að fara í táknrænar
göngur um að kirkjan eigi að vera á ferð í
tíma og mæta nýju árþúsundi með opnum
huga.
Yfirskrift Prestastefnunnar er „Samleið
með Kristi" og ég bendi á að gríska orðið yfir
prestastefnu er „synodus“ og þýðir sama leið
eða sami vegur. Biskupinn er að tjá það að
kirkjan eigi að vera á ferð og samferða
Kristi."
- Og í þeirri ferð eru íslenskir prestar
heilir, hæði til hugar, handa ogfóta?
„Já. Líkami, sál og andi. Þetta verður allt
saman að vera í takti. Kirkjan verður að
rækta sína helgistaði og minnast þeirra sem
hafa gengið götuna á undan okkur. Hún á
líka að opna sig gagnvart framtíðinni.“ — BJB