Dagur - 23.06.1999, Blaðsíða 3
Xfc^«r
MIÐVIKUDAGUR 23. } Ú N í 1999 - 3
FRÉTTIR
Ymsir vilj a koma
ef kvóti fylgir með
Halldór HaUdórsson,
bæjarstjóri ísafjarð-
arbæjar, segir lífs-
spursmál að byggða-
kvótanum verði út-
hlutað sem aUra
fyrst.
Enn er allt í óvissu um hvort
framhald verður á starfsemi
Rauðahersins, svokallaða, á
Vestfjörðum. Ketill Helgason,
framkvæmdastjóri hersins, vildi
ekkert segja um stöðuna í gær.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Isafjarðarbæjar, sagðist vita til
þess að róið væri að því lífróðri
að koma starfseminni í gang aft-
ur, hvort sem það tekst eða ekki.
„Við Ieggjum á það höfuð
áherslu að sem allra fyrst verði
ákveðið hve stór hluti af 1500
tonna byggðakvótanum kemur í
hlut þeirra staða á Vestljörðum,
þar sem Rauðiherinn hefur verið
með atvinnurekstur og atvinna
liggur nú niðri. Við höfum rætt
við nokkra aðila, sem eiga kvóta,
um að koma inn í atvinnurekst-
urinn á Þingeyri, óháð starfsemi
Rauðsíðu hf. Nokkrir þeirra hafa
tekið vel í það en hafa spurt á
móti hvað byggðakvótinn verði
stór sem fellur í hlut Þingeyrar.
Þar mun nú vera til um 200 Iesta
þorskígildiskvóti sem er að
mestu unninn á ísafirði," sagði
Halldór Halldórsson.
Neyðarástand fóLksins
Það eru rúmlega 200 manns,
sem ekki hafa fengið greidd
laun, á þeim Ijórum stöðum á
Vestfjörðum, þar sem Rauðiher-
inn rak atvinnustarfsemi. Þessir
staðir eru Þingeyri, Bíldudalur,
Tálknafjörður og Bolungarvík,
en þar heitir fyrirtækið Bolfiskur
hf. Starfsfólki þessara fyrirtækja
hefur ekki verið sagt upp störf-
um og það fær því ekki atvinnu-
leysisbætur. Það nýtur ekki
þeirra réttinda sem fólk öðlast
þegar um hráefnisskort er að
ræða vegna þess að Rauðiherinn
er ekki með neina útgerð, en
nýtti eingöngu aðkeyptan fisk af
Rússum. Það fær ekki greitt úr
Abyrgðarsjóði launa, sem sér um
Halldór Halldórsson bæjarstjóri á
ísafirði.
að launafólk fái sitt, ef fyrirtæki
sem það starfar hjá verður gjald-
þrota, þar sem Rauðiherinn hef-
ur ekki verið lýstur gjaldþrota.
Ovissan hjá fólkinu er því alger.
Stór hluti þessa fólks er út-
lendingar, mest Pólverjar. Nú er
svo komið, að sögn heimamanna
fyrir vestan, að þeir eiga ekki
lengur málungi matar eftir 5 vik-
ur án Iauna og ekki fyrir farseðli
heim.
Lagaleg staða skoðuð
Olafur Kristjánsson, bæjarstjóri í
Bolungam'k, sagði að hjá Bol-
fiski hf. störfuðu 8 lslendingar
og 36 útlendingar. Hann sagði
stöðuna hjá þessu fólld grafal-
varlega. Á mánudaginn var áttu
bæjarfulltrúar frá Vesturbyggð,
Isafjarðarbæ og Bolungarvík
fund með Húnboga Þorsteins-
syni, ráðuneytisstjóra félags-
málaráðuneytisins, um stöðuna
og sagðist hann gera félagsmála-
ráðherra grein fyrir þ\á sem kom
fram á fundinum.
Nú er allt komið á fulla ferð í
félagsmálaráðuneytinu við að
skoða alla möguleika varðandi
réttarstöðu starfsfólks Rauða-
hersins, að sögn Jóngeirs Hlyns-
sonar hjá Vinnumálastofnun-
inni. Þar er verið að skoða hvort
Atvinnuleysistryggingasjóður
getur með einhverjum hætti
komið til aðstoðar og/eða hvort
ábyrgðarsjóður launa getur kom-
ið þarna að. - S.DÓR
Selma Björnsdóttir.
Selma semur
Eitt stærsta útgáfufyrirtæki í
heiminum hefur gert samning
við Skífuna ehf. um útgáfu á
tónlistarefni með Eurovision-
söngkonunni Selmu Björnsdótt-
ur. „Með gerð þessa samnings
nást þau helstu markmið sem
þátttaka Selmu í Eurovision
skapaði," sagði Steinar Berg ís-
leifsson, forstöðumaður tónlist-
ardeildar Skífunnar, sem unnið
hefur markvisst að útflutningi
fslenskra tónlistarmanna. Hann
segir einnig að samningurinn
skapi Selmu einstakt tækifæri
sem flytjanda og Þorvaldi Bjarna
Þorvaldssyni einstakt tækifæri
til þess að koma tónlist sinni á
framfæri í Evrópu og heiminum
öllum.
Það var ákveðið af hálfu Skíf-
unnar að gera ekki samning
vegna Selmu fyrr en eftir
Eurovision-keppnina, vegna
þess hversu flytjendum, sem
gengið hefur vel í keppninni,
hefur gengið illa að fá fleiri lög
útgefín heldur en keppnislagið
sjálft. Því hefur Selmu verið
tr\;ggð útgáfa fleiri laga og að
lokum geislaplötu. - AÞM
VUja endurbætur
á Oryggisráðinu
Davíð Oddsson og Obuchi á blaðamannafundi í gær þar sem báðir lýstu þeirri
skoðun sinni að brýnt væri að gera endurbætur á öryggisráðinu.
Forsætisráðherrar Jap-
ans og Norðurland-
anna ætla að vinna
saman að uppbygg-
ingu í Kosovo og fleiri
stríðshrjáðum lönd-
um.
Forsætisráðherrar Japans og
Norðurlandanna fimm hittust á
Hótel Sögu í Reykjavík í gær og
ákváðu meðal annars að vinna
saman að uppbyggingu í Kosovo
og aðstoða flóttamenn þar.
Sömuleiðis lýstu þeir yfir vilja til
að vinna saman að svipuðum
málum annars staðar í heimin-
um þar sem stríðsátök hafa átt
sér stað.
Þá lýstu forsætisráðherrarnir
sex því yfir að brýnt sé að gera
endurbætur á Oryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna, nauðsynlegt sé
að fjölga bæði fastafulltrúum í
ráðinu og öðrum fulltrúum. Þá
ítrekuðu forsætisráðherrar Norð-
urlandanna stuðning sinn við að
Japan og Þýskaland fái fastafull-
trúa í ráðinu.
Jafnframt lýstu bæði Danmörk
og Island yfir stuðningi við að
Japanir fái formennsku í
UNESCO, menningarstofnun
Sameinuðu þjóðanna.
Unnið að endurreisn jap-
ansks efnahagslifs
A fundinum gerði Keizo Obuchi
forsætisráðherrum Norðurland-
anna grein fyrir niðurstöðum
leiðtogafundar sjö helstu iðn-
velda heims og Rússlands, sem
haldinn var í Þýskalandi um
helgina.
Jafnframt greindi Obuchi frá
viðleitni japanskra stjórnvalda til
þess að koma efnahagslífi Japans
aftur á skrið og standa við skuld-
bindingar Japans í Asíu með því
að veita öðrum ríkjum þar efna-
hagsaðstoð.
Obuchi sagðist mjög ánægður
með starfið með forsætisráðherr-
um Norðurlanda og hann hefði
lengi haft áhuga á að efla sam-
starf Japans og Norðurlandanna.
Fundinr háleitra hugsjóna
Þetta er í annað sinn sem forsæt-
isráðherrar Japans og Norður-
landanna hittast á sérstökum
samráðsfundi, en fyrsti fundur
þeirra átti sér stað í Noregi árið
1997.
Fundur forsætisráðherranna í
Reykjavík var sérstaklega helgað-
ur háleitum hugsjónum um
heimsfrið og uppbyggingu í
tengslum \ið alþjóðavæðingu á
21. öldinni. Ráðherrarnir Iögðu
áherslu á að leita verði allra leiða
til alþjóðlegrar samvinnu til
verndar mannlegu öryggi og
reisn mannsins í daglegu lífi.
Að loknum fundinum á Hótel
Sögu héldu forsætisráðherrarnir
til Bessastaða þar sem þeir
snæddu hádegisverð í boði Olafs
Ragnars Grímssonar forseta Is-
lands.
I ávarpi sínu sagði Olafur
Ragnar Grímsson meðal annars:
„Þessi fundur þjóðarleiðtoga frá
Japan og Norðurlöndunum sýnir
hve mannkynið er í raun orðið
alþjóðlegt í sameiginlegri leit
okkar að betri heimi.“ - GB
Norrænir fjármálaráðherrar samtaka
Samhljómur einkenndi fund norrænna fjármálaráðherra sem haldinn
var á Egilsstöðum í gær. Rætt var m.a. um stöðu og horfur í efnahags-
málum á Norðurlöndum og voru ráðherrarnir sammála um að al-
mennt ríkti gott ástand í þeim málum. Hagvöxtur væri mikill, atvdnna
færi vaxandi og verðbólgan lág. Fram kom að hagvöxtur muni þó
minnka hjá frændum vorum, Norðmönnum og Dönum. Að lokinni
þessari „halelújasamkomu" lyftu ráðherrarnir sér upp með siglingu og
kvöldverði um borð í Lagarfljótsorminum nýja.
Tal verðlaunar þann 20 þúsimdasta
Tal heiðraði nýlega 20 þúsundasta
viðskiptavin fyrirtækisins. Sá
heppni heitir Atli Sævar Guð-
mundsson og hlaut hann að gjöf 20
þúsund króna inneign á símareikn-
ing sinn. Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá Tali náði fyrirtækið þess-
um fjölda viðskiptavina mun fyrr
en búist var við. A því rúma ári sem
Tal hefur starfað hafi að jafnaði 50
nýir viðskiptavinir bæst í hópinn á
degi hveijum. Það var Liv Berg-
þórsdóttir, markaðsstjóri Tals, sem
afhenti Atla blóm og inneignina
góðu. Með þeim á myndinni er starfsfólk verslunar Tals í Síðumúla.
Um 140 störf í hoði
Enn fækkaði atvinnulausum á skrám vinnumiðlana í maímánuði,
einkum á Iandsbyggðinni, þar sem segja má að atvinnuleysi sé víða úr
sögunni, sérstaklega meðal karla. A landinu öllu svaraði skráð at-
vinnuleysi til 1,9% af mannafla (1,3% karla og 2,8% kvenna), eða
tæplega 2.700 manns, og af þeim voru aðeins 860 utan höfuðborgar-
svæðisins. Um 140 störf voru í boði á atvinnumiðlunum og 260 at-
vinnuleyfi voru veitt í mánuðinum. Vinnumálastofnun býst þó við enn
færri á atvinnuleysisskrám í júní, þrátt fyrir uppsagnir að undanförnu,
enda víða eftirspurn eftir vinnuafli.
A Vestfjörðum voru t.d. aðeins 34 konur og karlar á atvinnuleysis-
skrá en jafnframt 22 laus störf hjá vinnumiðlunum. Meðal karla
mældist atvinnuleysi 0,3% á Vestfjörðum, 0,4-0,5% á Suðurnesjum og
Suðurlandi, 0,6% á Vesturlandi og rúmlega 1% á Austurlandi. At-
\innulausir eru hlutfallslega flestir á Norðurlandi vestra (2% karla og
4,3% kvenna) og á höfuðborgarsvæðinu. - HEl
Atli Sævar tekur við verðlaunum sín-
um frá starfsmönnum Tals.
Ö * * O ' ' • O ..... * • ■' ' ' • ' <.- - • • . t
fiifi - “.iniiiölimuú npyngsg gk cíiqo idli ailme§ i?y itiod
ríiiUÖÖJg munöavjig Ö Óiv ósiblaji: ap ns