Dagur - 23.06.1999, Qupperneq 4
4- MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999
t^íT
FRÉTTIR
L
mSi
Icebird skal það heita í útlðndiun
Að Iokinni samkeppni nefur Islandsflug ákveðið nafn félagsins á ensku.
Nafnið sem sérstök dómnefnd valdi úr hópi 10 bestu reyndist Icebird,
eða Isfuglinn. Þátttaka í samkeppninni var gríðarleg. AIls tóku 16.500
manns þátt sem gerðu alls 50 þúsund tillögur. Nothæf nöfn reyndust
vera 500 og fækkaði dómnefnd þeim í 10. Nafnið Icebird kom frá 45
aðilum og verður nafn vinningshafans dregið úr potti nk. föstudag. Fær
sá heppni fjölskylduferð fyrir fjóra til Italíu. Langflestir Iögðu til nafn-
ið Iceair en þeim Islandsflugsmönnum fannst það heldur of líkt
Icelandair-nafni Flugleiða.
Græni herinn með vestustu vördu Evr-
ópu
Græni herinn gerði innreið sína á Vestfirði um síðustu helgi. Við Pat-
reksfjörð var m.a. reist stór og mikil varða sem hermennirnir grænu
telja þá vestlægustu í Evrópu. Þá voru fjarlægðar fiskþurrkunartrönur
á Patreksfirði og tré og plöntur gróðursettar. Á Isafirði var ráðist í um-
hverfisbætur á nýju svæði í hjarta bæjarins fyrir framan Stjórnsýsluhús-
ið og Hótel Isafjörð. Græni herinn naut þar fulltingis Ásthildar Cecil
Þórðardóttur garðyrkjustjóra.
Sigríður meö spænskt trúuaöarhréf
Sigríður Á. Snævarr, senaiherra, afhenti sl. mánudag Juan Carlos,
Spánarkonungi, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Islands á Spáni. Að-
setur Sigríðar er hins vegar í París.
íslensk miðluu og Pricewaterhouse
Coopers í samstarf
íslensk miðlun og Pricewaterhouse Coopers hafa gert með sér sam-
komulag um víðtækt samstarf við markaðsrannsóknir. Samningurinn
felur í sér að Islensk miðlun sérhæfir sig í úthringingum vegna spurn-
ingavagna og sértækra kannana en Pricewaterhouse Coopers annast
aðferðafræði og úrvinnslu kannana sem hringdar eru út frá íslenskri
miðlun. Fyrirtækin hafa höfuðstöðvar sínar í Reykjavík en þau starfa
bæði á Iandsbyggðinni. Islensk miðlun er nú þegar á Raufarhöfn og
ráðgerir starfsemi á Stöðvarfirði og Patreksfirði í sumar. Pricewater-
house er með starfsfólk við endurskoðun og ráðgjöf í Keflavík, á Akur-
eyri, Húsavík ojg Selfossi. Það voru Sigurður Krístinsson og Svavar
Kristinsson frá Islenskri miðlun sem undirrituðu samninginn og Reyn-
ir Kristinsson og Ingólfur Garðarsson frá Pricewaterhouse Coopers.
Ökumenn aka glaðbeittir um Reykjaveginn í Laugardal þessa daga eftir að búið var að fræsa burtu tvær hraða-
hindranir í götunni. Þær komust í fréttirnar á sínum tíma þegar borgaryfirvöld ákváðu að lækka þær örlítið eftir
að fulltrúar á landsfundi sjálfstæðismanna í Höllinni höfðu kvartað yfir hæð þeirra við þáverandi borgarstjóra.
Hfaðahindranir
í réttri hæð
„Þær verða vonandi í réttri hæð
þegar þær koma aftur,“ segir Guð-
bjartur Sigfússon hjá embætti
gatnamálastjóra.
Koma aftur
Tvær hraðahindranir á Reykjavegi
f Laugardal hafa verið fræstar
burt i tengslum við endurnýjun á
slitlagi götunnar. Þær verða síðan
settar upp aftur þegar gatan verð-
ur malbikuð á ný, enda mikið um
gangandi vegfarendur sem eiga
Ieið þarna um. Guðbjartur segir
að hraðahindranir séu einatt um
9-10 sentimetrar á hæð og svo
verði einnig þær nýju á þessum
stað. Á sínum tima voru þessar
hindranir á Reykjaveginum allt að
12-13 sentimetrar á hæð, þegar
„verst Iét“ eins og Guðbjartur orð-
ar það.
Lækkaðar eftir landsfund
Þessar hraðahindranir komust í
fréttirnar í lok síðasta áratugar
þegar borgarstarfsmenn voru sett-
ir í að lækka þær örlítið eftir
landsfund sjálfstæðismanna í
Laugardalshöll. Þær voru þá sýnu
hærri en aðrar hindranir í gatna-
kerfi borgarinnar, auk þess sem
stutt er á milli þeirra. Sagan segir
að margir landsfundarfulltrúar
hefðu þá kvartað yfir þessum
hindrunum við þáverandi borgar-
stjóra eftir að bílar þeirra höfðu
nánast magalent á þeim. — GRH
TEGUND: VERÐ:
1.3 GL 3d 1.195.000 KR.
1.3 GL 4d 1.295.000 KR.
1,6 GLX 4d, ABS 1.445.000 KR.
1,6 GLX 4x4, 4d, ABS 1.575.000 KR.
1,6 GLX WAGON, ABS 1.495.000 KR.
1,6 GLX WAGON 4x4, ABS 1.675.000 KR.
Sjálfskipting kostar 100.000 KR.
Ertu að hugsa utn:
• Rými?
• Þægindi?
• Öryggi?
• Gott endursöluverð?
• Allt þetta sem staðalbúnað:
Renndu við hjá okkur í dag
og reynsluaktu Suzuki Baleno.
Hann kemur þér þægilega á óvart.
16 ventla vél með fjölinnsprautun, 85-96 hestöfl
Vökva- og veltistýri • Hæðarstillanleg kippibelti
Rafstýrðar rúður og speglar • Öryggisloftpúðar
Samlæsing • Krumpusvæði að framan og aftan
Þjófavörn • ABS hemlar • Styrktarbitar i hurðum
Upphituð framsæti • Útvarp með segulbandi
Rafstýrð hæðarstilling framljósa
Litaðar rúður • Samlitaðir stuðarar
Bfil sem er algjörlega hannaður fyrir þig.
Og það leynir sér ekki...
Fæst í tískulitnum í ár: aluminium silver metallic.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00
Heimasíða: www.suzukibilar.is
röskur, þýður, rennilegur,
eðalbíllinn frá Suzuki