Dagur - 23.06.1999, Qupperneq 9
8- MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNl 1999
----------------------------
FEÉTTASKÝRING
H ÁGÚST
»> <*B ÓLAFUR
1Z. J\ ÁGÚSTSSON
■■ SKRIFAR
Úttekt ráðgjafarfyrir-
tækis iiui stjómimar-
o g samskiptamiinstiir
í Mýrarhúsaskóla og
tillögiir um brott-
rekstur skólastjóra og
aðstoðarskólastjóra
hafa vakið hörð við-
hrögð hagsmimaaðila.
Fyrir marga úti á Seltjarnarnesi
og víðar var það eins og þruma úr
heiðskíru Iofti þegar ráðgjafarút-
tekt á stjórnun og samskiptum í
Mýrarhúsaskóla mælti með að
Fríðu Regínu Höskuldsdóttur,
skólastjóra Mýrarhúsaskóla, og
Marteini Jóhannssyni, aðstoðar-
skólastjóra, yrði sagt upp störf-
um. Öðrum kom þetta ekkert á
óvart og sögðu að ákveðnir sam-
skiptaörðugleikar milli stjórn-
enda skólans og kennara hafi ver-
ið um þó nokkurn tíma í skólan-
um. „Menn hafa vitað af þessum
vanda Iengi og er einungis verið
að taka á honum,“ sagði einn við-
mælanda Dags. Um 500 nem-
endur á aldrinum 6-12 ára eru í
Mýrarhúsaskóla og hefur Fríða
Regína unnið þar í um 4 ár en
Marteinn hefur unnið þar í yfir
30 ár. Það ber að leggja áherslu á
að engar ákvarðanir hafa verið
teknar í þessu máli enda er það
bæjarstjórnar að gera slíkt og
verður það gert á fundi bæjar-
stjómar Seltjarnamess í kvöld.
Ráðgjafarfyrirtækið Skref fyrir
skref sem gerði úttektina kom að
málinu eftir að skólanefnd og
kennarar ákváðu sameiginlega að
láta gera úttekt á meintum sam-
skipta- og stjórnunarörðugleikum
í skólanum. Að sögn heimildar-
manns Dags töldu kennarar að
svona stjórnunarúttekt yrði að
vera gerð áður en hin reglulega
úttekt Rannsóknarstofnunar
Kennaraháskólans á hinum fag-
lega þætti kennslunnar gæti farið
fram. Þetta er í fyrsta skipti sem
fengið er utanaðkomandi ráðgjaf-
arfyrirtæki til að gera svona út-
tekt í Mýrarhúsaskóla.
Er svar við akalli kennara
Skólanefndarmenn vilja ekkert tjá
sig um málið og segja málið vera
ákveðið af bæjarstjórninni. Skóla-
nefnd tekur engar ákvarðanir í
þessu máli og gerir engar tillögur
um málið heldur vísar úttektinni
beint til bæjarstjórnar. Kennarar í
Mýrarhúsaskóla eru einnig heldur
þögulir, enda eru menn sammála
að málið sé afskaplega viðkvæmt
meðan þessi óvissa eru um mála-
lok. En þar sem frumkvæðið að
úttektinni kom m.a. frá kennara-
fundi mætti ætla að skoðun
flestra kennara sé að eitthvað
þurfi að gera í skólanum til að
bæta starfsandann. „Kennararnir
gerðu sér fulla grein fyrir því
hvernig málið gæti endað. Þetta
er ekki utanaðkomandi lögreglu-
aðgerð gegn skólanum heldur er
verið að bregðast við ákalli fjöl-
margra kennara og þegjandi sam-
þykki hinna. Hvað hefði Kennara-
sambandið gert ef ekkert hefði
verið gert til að svara óskum kenn-
aranna um bætt starfsskilyrði? Jú,
Kennarasambandið hefði þá setið
hinum megin við borðið og krafist
aðgerða eins og hefur verið gert í
Iðnskólanum í Reykjavík. Ef ætl-
unin er að fá fyrsta flokks skóla-
starf þá þýðir ekki að stinga höfð-
inu í sandinn þegar kemur að
vanda sem þarf að leysa,“ sagði
einn viðmælandi Dags.
„Klárt lögbrot,“ segir
Eiríkur Jónsson
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands íslands, segir að
verði aðilunum sagt upp sé um
klárt lögbrot að ræða. „Enginn
andmælaréttur hefur verið veittur
og engin áminning hefur verið
gefin, en þetta verður að Iiggja
fyrir eigi að koma til uppsagnar.
Hjá okkar lögmanni liggur fyrir
bréf frá bæjarstjóranum þess efnis
að það sé ekki óskað eftir vinnu-
framlagi þessara stjórnenda fram
að bæjarstjórnarfundinum. Næstu
skref okkar eru þau að bíða eftir
niðurstöðu bæjarstjórnarfundar-
ins og verði þessum einstaklingum
sagt upp munum við einfaldlega
fara í dómsmál. Þetta er gert í
fullri samvinnu við skólastjórann
og aðstoðarskólastjórann. Svo má
benda á að 25% kennara styðja
stjórnendur skólans og 30% eru á
móti. Þetta þýðir að 45% kennara
eru hlutlausir í þessu máli,“ segir
Eiríkur. Að sögn Eiríks er aðalat-
riðið í þessu máli ekki hvort kenn-
arar hafi viljað þessar manna-
breytingar eða ekki, heldur það að
farið sé eftir lögum. Þorsteinn
Sæberg, formaður Skólastjórafé-
lags Islands, tekur undir orð Ei-
ríks og segir að lausnin á vandan-
um sé ekki að reka fólk þegar það
hefur ekki brotið neitt af sér í
starfi. „I þessu tilviki er það algjör-
lega ljóst að þessir stjórnendur
hafa ekkert brotið af sér í starfi því
ef svo væri þá hefðu bæjaryfirvöld
verið búin að áminna þá,“ segir
Þorsteinn. Aðrir segja að ekki sé
um ólöglegar aðgerðir að ræða. „I
fyrsta lagi hefur engum nú þegar
verið sagt upp. I öðru lagi er Fríða
Regína með þriggja mánaða upp-
sagnarfrest eins og hver annar
starfsmaður en hins vegar er
Marteinn skipaður og þyrfti lík-
Iega að semja um starfslokasamn-
ing við hann sem sveitarfélagið
hefði fullan rétt á að gera,“ segir
heimildarmaður Dags.
Mýrarhúsaskóli er nú vettvangur harðvítugra deilna um samskiptaörðugleika
Skýrar tillögur im brott-
rekstur
Hansína B. Einarsdóttir fram-
kvæmdastjóri ráðgjafarfyrirtækis-
ins Skref fyrir skref og ein af
þeim sem sat í verkefnastjórn-
inni, segist í DV í gær ekki kann-
ast við tillögur um að skólastjóri
og aðstoðarskólastjóri yrðu látnir
hætta störfum. Þrátt fyrir þessi
ummæli stendur orðrétt í skýrsl-
unni:
„Eftirfarandi tillögur um að-
gerðir eru hugsaðar sem ferli sem
taka til fjölmargra þátta og þýða
skilyrðislausa þátttöku. Breyting-
arnar munu snerta alla starfs-
menn skólans.
Tillaga A:
1) Skólastjórar víki.
2) Ósamstarfshæfir kennarar
víki.
3) Óhæfir starfsmenn víki.
4) Verkefna- og ábyrgðarsvið
skrifstofustjóra aukið og breytt.
Tillaga B:
1) Skólastjóri víki.
2) Ósamstarfshæfir kennarar
víki.
3) Óhæfir starfsmenn vfki.
4) Verkefna- og ábyrgðarsvið
aðstoðarskólastjóra og skrif-
stofustjóra breytt.
Tillaga C:
1) Aðstoðarskólastjóri víki.
2) Ósamstarfshæfir kennarar
víki.
3) Óhæfír starfsmenn víki.
4) Verkefna- og ábyrgðarsvið
skólastjóra og skrifstofustjóra
breytt.“
Ekki náðist í Hansínu í gær
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Samkvæmt skýrslunni hefur
vandinn í skólanum aðallega með
óstjórn, skipulagsleysi, sam-
skiptaörðugleika, agaleysi og virð-
ingarleysi að gera, sem átti að
hafa komið í ljós út úr viðtölum
við kennara og starfslið skólans.
Hafa margir haft á orði að skýrsl-
an sé afskaplega snubbótt og í
raun óljós um hvert vandamálið
sé í raun og veru þó aðgerðirnar
um brottreksturinn séu skýrar.
„Uttektir utanaðkomandi fyrir-
tækja hafa verið í gangi á fjöl-
mörgum stöðum í skólakerfinu
síðustu árin,“ segir Eiríkur og
fagnar því að skólar Ieiti að sínum
veikleikum með endurbætur í
huga en aðalatriðið í þessu máli
að sögn Eiríks er að þessi tiltekna
úttekt er einfaldlega illa unnin.
„Að gera svona úttekt tekur mun
lengri tíma en þessar örfáu vikur.
Það tók ekki nema þrjár vikur á
einum mesta annatíma skóla-
starfsins að vinna þessa úttekt og
komast að niðurstöðu sem felur í
sér þrjá möguleika sem ailir fela í
sér lögbrot," segir Eiríkur. Einn
viðmælanda Dags var algjörlega
ósammála þessu og sagði að þetta
væru alvarlegar ásakanir á fyrir-
tæki sem byggi við góðan orðstír
og undirstrikaði að í skýrslunni
væri mælt með tímafreku og
kostnaðarsömu endurbótastarfi í
allt að tólf mánuði.
Foreldrar vilja breytingar
Stjórn Foreldrafélags í Mýrarhúsa-
skóla samþykkti ályktun á mánu-
daginn þar sem m.a. var lýst yfír
áhyggjum af skólastarfinu á kom-
andi skólaári. Einnig var lögð
áhersla á að bæjarstjórn Seltjarn-
arness skuli hafa hagsmuni nem-
enda skólans að leiðarljósi við
ákvörðun í málefnum skólans.
Guðrún Þórsdóttir sem situr í
stjórn Foreldrafélagsins segir að
sátt sé meðal foreldra að gera
breytingar á skólastarfinu. „Þetta
er uppsafnaður vandi að hluta til
og mjög erfitt að taka á þessu máli,
en hins vegar gerðum við ekki at-
hugasemdir við úttektina og það
sem í henni stendur. Fólk vill
breytingar og almennt séð eru for-
eldrar ánægðir með að nú sé kom-
in skólanefnd sem þorir að taka á
málunum," segir Guðrún. Að sögn
Sigurgeirs Sigurðssonar, bæjar-
stjóra Seltjarnarness, hefur bæjar-
stjórnin hingað til ekkert komið að
þessu máli en vildi öðru leyti ekki
tjá sig um málið fyrr en eftir bæj-
arstjórnarfundinn í kvöld. Flestir
sem Dagur talaði við töldu enga
pólitík vera í þessu máli. Menn
vildu einfaldlega gera góðan skóla
betri og sagði Eiríkur Jónsson að
hann hefði hvorki orðið var við
einhverja pólitík né valdabaráttu
meðal kennaranna í þessu máli en
segir að það sé ekld óeðlilegt á
svona stórum vinnustað að mis-
munandi sjónarmið séu á ýmsum
málum. Um aðrar ástæður fyrir
þessu máli benda menn á að núna
eru grunnskólarnir hjá sveitarfé-
lögunum og við það geta forsendur
skólastarfsins verið breyttar hvað
snertir starfsmenn skólans. Ná-
lægðin við yfirmennina á bæjar-
skrifstofunni er orðin meiri og of-
verndun ríkisins á starfi opinberra
starfsmanna eins og kennara og
skólastjóra er liðin tíð.
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1999 - 9
FRÉTTIR
Alþingi kaus í nefndir og ráð á sumarþinginu.
Kjorið í nefndir og
ráð á Alþmgi
Á sfðasta degi hins stutta sumar-
þings var kjörið í nefndir og ráð,
sem nýju Alþingi ber að kjósa í.
A fyrir aftan nöfhin á meðfylgj-
andi lista þýðir að viðkomandi er
frá stjórnarflokkunum, B frá
flokkum í stjórnarandstöðu. Nið-
urstaðan varð þessi:
Stjóm Byggðastofnunar:
Aðalmenn: Egill Jónsson, fyrrv.
alþingismaður (A), Karl V.
Matthíasson (B), Stefán Guð-
mundsson, fyrrv. alþingismaður
(A), Einar K. Guðfinnsson al-
þingismaður (A), Gunnlaugur
Stefánsson sóknarprestur (B),
Guðjón Guðmundsson alþingis-
maður (A), Lilja Rafney Magnús-
dóttir (B).
Varamenn: Kristján Pálsson
alþingismaður (A), Örlygur
Hnefill Jónsson (B), Magnús
Björnsson framkvæmdastjóri (A),
Drífa Hjartardóttir alþingismað-
ur (A), Anna Kristín Gunnars-
dóttir (B), Svanhildur Árnadóttir
bæjarfulltrúi (A), Halldór Brynj-
ólfsson (B).
Stjóm Kísiliðjiumar hf. við
Mývatn:
Aðalmenn: Sigurjón Benedikts-
son tannlæknir (A), Örlygur
Hnefill Jónsson (B), Hreiðar
Karlsson framkvæmdastjóri (A).
Varamenn: Leifur Hallgríms-
son oddviti (A), Kristín Sigur-
sveinsdóttir (B), Jón Illugason
ffamkvæmdastjóri (A).
Dómari i stað Magnúsar Ósk-
arssonar í Kjaradóm:
Fram kom einn listi með einu
nafni og þar sem ekki voru fleiri
tilnefndir en kjósa skyldi Iýsti for-
seti yfir að kosinn væri án at-
kvaeðagreiðslu:
Óttar Yngvason hæstaréttarlög-
maður.
Kosning 8 manna í landsdóm
og jafnmargra varamanna:
Aðalmenn: Linda Rós Michaels-
dóttir kennari (A), Ragnar Arn-
alds (B), Fannar Jónsson við-
skiptafræðingur (A), Halla Aðal-
steinsdóttir húsfrú (A), Jóna Val-
gerður Kristjánsdóttir (B), Mar-
grét Kristinsdóttir húsfrú (A),
Barði Friðriksson (B), Dögg Páls-
dóttir lögfræðingur (A).
Varamenn: Hörður Pálsson
bakarameistari (A), Lára V. Júlí-
usdóttir (B), Ástríður Grímsdótt-
ir lögmaður (A), Már Pétursson
héraðsdómari (A), Salóme B.
Guðmundsdóttir (B), Björn Jó-
hannesson héraðsdómslögmaður
(A), Hlöðver Kjartansson (B),
Bjarni Helgason garðyrkjubóndi
(A).
Landskjörstjóm:
Aðalmenn: Þorvaldur Lúðvíks-
son hæstaréttarlögmaður (A),
Elsa Þorkelsdóttir (B), Gísli
Baldur Garðarsson hæstaréttar-
lögmaður (A), Gestur Jónsson
hæstaréttarlögmaður (A), Atli
Gíslason (B).
Varamenn: Hrafnhildur Stef-
ánsdóttir Iögfræðingur (A), Guð-
ríður Þorsteinsdóttir (B), Hrund
Hafsteinsdóttir lögmaður (A),
Sólveig Guðmundsdóttir lögmað-
ur (A), Brynhildur Flóvenz (B).
Stjóm meimingarsjóðs:
Aðalmenn: Bessí Jóhannsdóttir
sagnfræðingur (A), Dóra Líndal
Hjartardóttir (B), Áslaug Brynj-
ólfsdóttir fræðslustjóri (A).
Varamenn: Sigurður Björns-
son óperusöngvari (A), Katrín
Andrésdóttir (B), Kári Bjarnason
(A).
Nefnd um erlenda fjárfest-
ingu:
Aðalmenn: Baldur Guðlaugsson
hæstaréttarlögmaður (A), Guðný
Guðbjörnsdóttir (B), Sigurður B.
Stefánsson hagfræðingur (A),
Jón Sveinsson héraðsdómslög-
maður (A), Reynir Ólafsson (B).
Varamenn: Árni Árnason
framkvæmdastjóri (A), Elsa Guð-
mundsdóttir (B), Sigríður Arn-
bjarnardóttir kennari (A), Þuríð-
ur Jónsdóttir Iögmaður (A),
Magnús Árni Magnússon (B).
Orkuráð:
Guðjón Guðmundsson alþingis-
maður (A), Árni Þór Sigurðsson
(B), Sverrir Sveinsson veitustjóri
(A).
Tryggingaráð:
Aðalmenn: Benedikt Jóhannes-
son stærðfræðingur (A), Jón
Gunnarsson (B), Margrét S. Ein-
arsdóttir forstöðumaður (A),
Bolli Héðinsson hagfræðingur
(A), Sigríður Stefánsdóttir (B).
Varamenn: Svala Árnadóttir
skrifstofumaður (A), Petrína
Baldursdóttir (B), Eyrún Ingi-
björg Sigþórsdóttir viðskipta-
fræðingur (A), Elín Jóhannsdótt-
ir kennari (A), Valdimar Péturs-
son (B).
Útvarpsráð:
Aðalmenn: Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson framkvæmdastjóri
(A) , Mörður Árnason (B), Þór-
unn Gestsdóttir sveitarstjóri (A),
Gissur Pétursson framkvæmda-
stjóri (A), Anna Kristín Gunnars-
dóttir (B), Anna K. Jónsdóttir að-
stoðarlyfjafræðingur (A), Kristín
Halldórsdóttir (B).
Varamenn: Laufey Jóhanns-
dóttir bæjarfulltrúi (A), Ása Ric-
hardsdóttir (B), Þórarinn Jón
Magnússon (A), Kristjana Bergs-
dóttir kennari (A), Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson (B), Helga Hall-
dórsdóttir skrifstofumaður (A),
Ragnar Þórsson (B).
Stjóm Viðlagatryggingar ís-
lands:
Aðalmenn: Hrafnkell A. Jóns-
son, formaður Verkalýðsfélagsins
Arvakurs (A), Smári Geirsson
(B) , Drífa Sigfúsdóttir bæjarfull-
trúi (A).
Varamenn: Halldór Jónsson
virmslustjóri (A), Hálfdán Sveins-
son (B), Herdís Sæmundardóttir
kennari (A). - S.DÓR
Ungir sósíalistar álykta
Ungir sósíalistar hafa sent frá sér
ályktun um heræfinguna Norð-
ur-Víkingur ‘99 sem nú fer fram
á Islandi. Kemur fram í ályktun-
inni að æfingin sé haldin undir
því yfirskini að verið sé að verja
Iandið gegn ímvnduðunr hrvðju-
verkum en vinnandi fólk sé hið
raunverulega skotmark eins og
sést í Júgóslavíu þessa dagana.
Ungir sósíalistar mótmæla her-
æfingum NATO og hernámi
Kosovo og hvetja fólk til að mót-
mæla heræfingunum við Hljóm-
skálann 23. júní. Einnig er mót-
mælt veru bandarísks hers á ís-
landi, Kóreuskaga, Balkanskaga,
Kúbu og í Japan. Að lokum er
tekið undir kröfuna, Island úr
NATO-herinn burt.
I I