Dagur - 23.06.1999, Page 13
MIDVIKUDAGU R 23. JÚNÍ 1999 - 13
ÍÞRÓTTIR
SKOBUN
Andri Þór
Magnússon
Sem bctur
f er...
6. umferð Landssímadeildar-
innar hófst um helgina og fóru
fjórir leikir firam, en einum
leik var frestað. Stórleikur
umferðarinnar var án efa leik-
ur ÍBV og KR, þar sem KR-
ingar gátu náð fimm stiga for-
ystu á Eyjamenn auk þess að
eiga einn leik til góða.
Fyrir okkur fótboltaunnendur,
sem erum ekki bundnir ákveðnu
liði (eða erum áhangendur liða í
neðri deildum), er fátt leiðin-
legra heldur en óspennandi
deild. íslenski boltinn er nú ekki
það frábær að það sé unun að
horfa á lið landsins spila án þess
að ekkert sé undir leiknum kom-
ið. Það verður að hafa smá
spennu til að krydda tilveruna.
Það munaði alls ekki miklu að
þetta yrði eyðilagt um síðustu
helgi. Eflaust hefði íslenska
knattspyrnan misst talsvert
áhorf. Hver nennir að fylgjast
með móti sem er næstum búið
eftir 6 umferðir?
KR-ingar gátu gert út af við
þessa spennu t það minnsta í
bili. Eg hef alls ekkert á móti
KR, reyndar finnst mér liðið eitt
það langskemmtilegasta í deild-
inni um þessar mundir þegar
þeir taka sig til og spila almenni-
legan fótbolta, sem virðist
stundum gleymast hjá íslensk-
um Iiðum. Eg hefði hins vegar
ekki viljað hugsa þá hugsun til
enda hefðu þeir unnið Eyja-
menn og síðan Leiftur og náð 8
stiga forystu á toppnum. Mótið
hér er svo stutt að mikið hefði
þurft að gerast til að einhver
næði að ógna KR á toppnum.
En Eyjamenn náðu að bjarga
mótinu í bili með hetjulegum
sigri á KR-ingum, sem þeir
tryggðu sér á lokamínútunum
með frábæru marki ívars
Ingimarssonar, við mikinn
fögnuð heimamanna í Eyjum,
knattspyrnaáhangenda um allt
land og við mikinn fögnuð
minn. Og ég leyfi mér að segja
sem betur fer.
Körfuboltaveisla
nótt?
ir það lítið á þeim bæ.
Fjórði leikur liðanna fer fram í
nótt klukkan eitt að íslenskum
tíma og verður leikurinn sýndur
á sjónvarpsstöðinni Sýn líkt og
þeir fyrri. Leikurinn fer fram í
Madison Square Garden og er
mjög mikilvægt fyrir Knicks að
vinna þann leik til að eiga áfram
raunhæfa möguleika á titlinum.
Olafur Rafnsson, formaður KKI,
spáir að þetta verði eini leikurinn
sem Knicks vinni og serían fari
4-1 fyrir Spurs. „Ég spái að þetta
verði auðvelt fyrir Spurs því ég
held að Knicks séu sáttir við ann-
að sætið. Þeir hafa Iíka breiddina
umfram Knicks,“ sagði Ólafur.
- AÞM
Evrópiunót landsliða
í körfubolta hafið.
Óvænt úrslit í fyrstu
leikjum.
Evrópumót landsliða í
körfuknattleik hófst í vikunni í
Frakklandi, en þar taka þátt 16
bestu körfuknattleiksþjóðir Evr-
ópu. Leikið er í íjórum fjögurra
liða riðlum og þrjár efstu þjóð-
irnar úr þeim komast áfram í tvo
sex liða milliriðla. Þar komast
síðan fjögur lið áfram úr hvorum
riðli í átta-liða úrslit. Þrjú lið
sem léku með íslandi í riðli í
undankeppninni munu leika f
úrlitakeppninni en þau eru
Króatía, Litháen og Bosnía.
Riðlunum er skipt þannig: A-
riðill: Frakkland, Makedónía,
ísrael og Júgóslavía. B-riðill:
Spánn, Ungverjaland, Rússland
og Slóvenía. C-riðill: Bosnía,
Tyrkland, Króatía og Italía. D-
riðill: Tékkland, Litháen, Þýska-
land og Grikkland. Athygli vekur
að í keppninni eru fimm þjóðir af
fyrrum lýðveldum Júgóslavíu og
sýnir það hversu mikil körfu-
boltahefð er þar um slóðir.
Einnig er Júgóslövum spáð sigri
samkvæmt ítölskum veðbönkum.
Bosnía sem var í sama riðli og ísland í undankeppninni tapaði óvænt fyrir Tyrkjum í fyrsta leik sínum í mótinu.
Nokkrir Ieikir hafa þegar farið
fram og eru óvæntustu úrslitin
líklega þau að Tyrkland vann
Bosníu 42-57, og sigur Tékka á
Litháum 78-62. Einnig kom það
á óvart í hversu miklum vand-
ræðum Króatar lentu gegn Itöl-
um. Króatar rétt náðu að merja
sigur, 70-68, eftir að hafa verið
19 stigum undir. Onnur úrslit
voru eftir bókinni. - AÞM
2-1 í úrslitiun NBA
eftir sigur New York.
San Antonio Spurs töpuðu sín-
um fyrsta Ieik í úrslitakeppninni,
eftir 12 leikja óslitna sigurgöngu
f úrslitakeppninni, er þeir lutu í
lægra haldi gegn New York
Knicks í þriðja leik liðanna um
NBA meistaratitilinn í fyrrinótt.
Það var fyrst og fremst góður
fyrsti leikhluti og stórleikur All-
ans Houston, sem var með 34
stig, sem skópu sigur Knicks, en
lokatölur urðu 89-81. David
Robinson var stigahæstur í liði
Spurs með 25 stig, en Tim Dunc-
an skoraði aðeins 20 stig og þyk-
Latrell Sprewell og Marcus Camby fagna í fyrrinótt.
Hvað gera Knicks í
ÍÞR Ó TTA VIÐTALIÐ
Betri ttmar framiuidan hjá Val?
Ingi Bjöm Al-
uertsson
nýráðinn þjálfari Vals.
Valsarar eru ekki ígóðri
stöðu í Landssímadeild-
inni eins og stenduren
þeir vona að nýrþjálfari,
IngiBjömAlbertsson, boði
betri tímafram-
undan.
Hvernig leggst nýtt starf í
þig?
„Nýja starfið leggst mjög vel í
mig, enda engin ástæða til ann-
ars. Valur er með góðan leik-
mannahóp og liðið er greinilega
á uppleið."
Þú hefur þjdlfað Val óður. Af
hverju snérir þú aftur til fé-
lagsins?
„Jú, ég hef þjálfað Val áður. Ég
er náttúrulega uppalinn í Val og
það var eina félagið sem kom til
greina að helja þjálfun hjá aftur,
það var ef að ég gæti eitthvað
hjálpað þar.“
Nú hefur Valsliðinu ekki
gengið vel t byrjun móts. Md
vænta einhverra breytinga á
þvt?
„Ég held að nú þegar séu
komnar fram breytingar. Við
erum búnir að spila einn leik í
deildinni síðan ég tók við sem fór
4-4 í Keflavík. Þar spilaði liðið
vel og skoraði fjögur mörk, en að
vísu fékk það að sama skapi of
mörg mörk á sig, þannig að það
var greinilegur munur á leik liðs-
ins þar. Síðan fórum við norður
og unnum fyrsta sigurinn á Þór í
bikarkeppninni. Það er nú oft
þannig með þessa bikarleiki, þar
sem lið úr efstu deild og neðri
deildum mætast að þar geta orð-
ið mjög harðir og erfiðir leikir og
oft erfitt að greina hvort liðið er
í efri deild, eins og kom skýrt
fram í öðrum leikjum í umferð-
inni. Þetta eru oft miklir baráttu-
leikir og aldrei neitt gefið þó að
maður sé að spila við lið í neðri
deild. Þannig að þetta lítur allt
svona heldur betur út á blaði í
það minnsta."
Hvereru markmið þín og liðs-
ins?
„Ég vona náttúrulega að mark-
mið liðsins og mín séu þau
sömu, það er auðvitað að vinna
þann leik sem við erum að fara
út í hverju sinni. Að sjálfsögðu
kemur eldd til greina að verma
þétta sæti mikið lengur. Þannig
að stefhan er tekin upp á við,
síðan verðum við að sjá hversu
langt upp á við liðið getur kom-
ist.“
Nií er liðið t erftðri stöðu. Hvað
getur þú boðið liðinu upp á sem
þjálfari?
„Ég er að bjóða því upp á nýja
taktík, eða nýtt leikskipulag í það
heila. Ég vil bjóða upp á meiri
sóknarleik heldur en hefur verið
og vonandi í framhaldi af því
betri árangur. Það eru engir nýj-
ir leikmenn í sigtinu í augnablik-
inu en við erum náttúrulega að
fá Daða Dervic en aðrir leik-
menn eru ekki í sigtinu eins og
Er eitthvað að lokum sem þú
vildir segja við stuðningsmenn
liðsins?
„Ég vil segja það við stuðnings-
menn Vals að þeir verða bara að
slappa af og hafa ekki áhyggjur
af stöðunni eins og hún er núna.
Við munum bæta okkur og klára
þetta með sæmd og enda jafn of-
arlega og mögulegt er miðað við
aðstöðu og leikmannahóp. Ég
hef mikla trú á liðinu og leik-
mannahópnum þannig að ég er
ekki í neinum vafa um það að við
munum lenda ofarlega, í það
minnsta talsvert ofar en staðan
gefur til kynna nú. Urslit síðustu
leikja hafa verið góð og ég sé
enga breytingu verða á því.“
- AÞM