Dagur - 16.07.1999, Page 2
2 - FÖSTVDAGUR 16. J Ú L í 1999
D^ur
FRÉTTIR
Kaloriurnar í hamborgurum og frönskum eru ófáar. Að jafnaði fara ofan í okkur 3.100 kaloríur á dag sem er 10% meira en fyrir
áratug. - mynd: brink
Islendingar hvað
neyslugrennstir
Islendingar éta (eða henda)
minnst af mat af öllum
þjóðum Vestur-Evrópu, að
Finnum undanskyldum, en
Danir eru heimsins mestu
mathákar.
Allar þjóðir Vestur-Evrópu virðast éta
(eða henda) meira af mat heldur en Is-
lendingar og Finnar, en Danir eru mestu
heimsins átvögl, samkvæmt lífsjgæða-
skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Ut frá
heildar matvælaífamleiðslu í hverju landi
árið 1996, auk matvælainnflutnings að
frádregnum útflutningi, er þar reiknaður
út meðalfjöldi hitaeininga á mann á dag.
Grammaljöldi á mann á dag af prótíni og
af fítu er sýndur sérstakega og sömuleið-
is breytingar sem orðið hafa síðan 1970.
Múrna prótín - meiri sykur
A íslandi er kaloríuframboðið um 3.100
á mann á dag, um 10% fleiri en fyrir ald-
arfjórðungi. Athygli vekur að prótínn-
eysla Islendinga (111 gr./dag) hefur
minnkað um rúm 8% síðan 1970, sem
væntanlega skýrist af minnkandi fiskáti.
Fituneysla er aftur á móti óbreytt, rúm
116 grömm á dag, þannig að við fáum að
jafnaði þriðjung allra okkar hitaeininga
úr fitu. AUar viðbótarkaloríurnar á tíma-
bilinu og gott betur, eða rúmlega 320
kal./dag, koma því með auknu kolvetna-
áti. Sú viðbót samsvarar t.d. kaloríuljölda
í 80 grömmum af sykri.
Danir éta mest allra af filu
Með rúmlega 3.800 kaloríur á mann á
dag dæmast Danir heimsins mestu mat-
hákar, enda hafa þeir aukið skammtinn
um ríflega fímmtung síðasta aldaríjórð-
unginn. Yfirburðir þeirra skýrast einkum
af ógurlegu fítuáti, 181 gr. á mann á dag
(=1.630 kak). Næstir þeim koma Portú-
galir, Bandaríkjamenn og írar með í
kringum 3.650 kal./dag. Þá Grikkir, Belg-
ar, Tyrkir, Frakkar og ítalir með í kringum
3.550 kal./dag. Meðalskammturinn í iðn-
ríkjunum er 3.380 kal./dag á mann, og
flestar aðrar V-Evrópuþjóðir eru nálægt
því. Neyslugrennri en við, meðal vest-
rænna þjóða, eru einungis Kanadamenn
og Finnar, sem éta minna en 1970, en
flestar þjóðir éta nú meira en þá.
Próteinskammturinn á mann er 105 gr.
að meðaltali og fíta 133 gr. í iðnríkjum,
en þriðjungi og helmingi minni í þróun-
arlöndunum.
Frjálsir - með tóman maga
í mörgum fyrrum Sovétlýðvelda gefur
kaloríuneysla til kynna að þar gangi
margir svangir til sængur á kvöldin. I öll-
um þessum löndum, m.a. Rússlandi, eru
kaloríur á dag færri, í mörgum þessara
landa miklu færri, en 2.800 kaloríu-með-
altalið fyrir þessi Iönd og A-Evrópu, þ.e.
17% lægra en í iðnríkjum. I Kákasus-
Iöndum er skammturinn undir 2.200
kal./dag, líkt og í fátækustu Afríkulönd-
um. Pólveijar, Ungveijar, Tékkar og Hvf-
trússar geta aftur á móti kýlt vömbina líkt
og V-Evrópumenn.
Eim jafn svangir og 1970
I þróunarlöndunum er meðaltalið 2.630
kaloríur á mann á dag - næstum íjórð-
ungi meiri en íyrir aldarijórðungi. En öll
sú aukning hefur orðið í Araba- og Asíu-
Iöndum. I Kína hefur meðalskammtur-
inn t.d. aukist úr 2.000 upp í 2.840
kal./dag síðan 1970 en hjá Indveijum
helmingi minna, eða í 2.420 kal./dag. I
löndum í suðurhluta Afríku og öðrum
lágþróuðustu löndum heims er meðal-
skammturinn aðeins 2.200 og 2.100
kal./dag og hefur ekkert aukist síðasta
aldarfjórðunginn. Suður-Afríka, með
2.930 kal./dag á mann sker sig því alger-
Iega úr í þessum hópi. — HEI
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Eréttastofa Stöðvar 2 hefur verið
dugleg að fjalla um ófremdará-
standið hjá íbúðalánasjóðnum og
er það vel, enda óþolandi að bíða
endalaust eftir húshréfaláni og
greiðslumati. Pottverjar hafa liiiis
vegar tekið eftir myndskreyting-
unni því að á myndum af húsum í
borginni hefur gamla strompinum
í Gufunesi ítrekað brugðið fyrir á skjánum. Pott-
verjum finnst auðvitað með öllu óþolandi að nota
úrcltar myndir í umfjöllun um úrelt húsbréfalána-
kerfi - ekki nema að þetta sé með ráðum gert hjá
Páli Magnússyni og hans spræku fréttahaukum...
Páll Magnús-
son.
í pottinum var verið að ræða mál kennara í Reykja-
vík og sýndist sitt hverjum. „Þeir ættu að fara að
vinna fyrir kaupinu sínu þessir andsk...,“ sagði
einn, á meðan aimar tók upp hanskann fyrir þessa
þrasgjömu stétt. Þá hafði það spurst út að kennarar
ætluðu að svara ærlega fyrir sig á fundi í dag og til
samkomunnar hoðaði hópur sem kallaði sig „Hóp-
ur uppsagnakennara í Reykjavík“. Við höfum ís-
lenskukeimara, stærðfræðikennara, enskukennara,
og þannig mætti lengi telja, en hér virðast komnir
nýir fræðimenn, uppsagnakennarar. í pottinum
veltu menn því íyrir sér hvort uppsagnafræði
skyldi vera komin á námsskrána í Kemió....
I pottinum var ehmig verið að
fjalla um frétt Dags í gær uin skrið-
una sem féll í Almenningum á
Siglufjarðarvegi á dögunum.
Skriðan stendur þar óhögguð og
segjast vegagerðarmenn vera
hræddir við að hreyfa við henni.
Sé það gert geti allt ljalliö farið af
stað. Pottveijarsáufyrirsérglottið
á Kristjáni L. Möller, þingmanni og Siglfirðhigi nr.
1, sem berst hetjulega fyrir Héðinsljarðargöngun-
um til Ólaísfjaröar. Því lengur sem skriðan er á sm-
Kristján L
Möller.
um staó gætu likur neínilega aukist á að draumur_
hans rætist...
Borgin búin að missa
marga hæfa kennara
Eiríkur Jónsson
fonruiður Kennarasambands íshnds
Uppsagtiirketinara tnunu
margarhverjarkoma til fram-
kvæmda enda ekkiaðeins um
sýndarhótanirað ræða að sðgn
Kennarasambandsins. Sífelld
mannaskipti skaðaskólastarf
Karl Bjömsson, fortnaður launanefndar
sveitaifélaga, kallaði hópuppsagnir kenn-
ara í Degi í gær ógeðfellt tæki í kjarabar-
áttu. Lausnin á yfirvofandi kennaraskorti
á höfuðborgarsvæðinu felst í þvt að kenn-
arar dragi uppsagnir stnar til baka að
mati hans?
„Ég á ekki von á að þessi hópur dragi upp-
sagnir sínar til baka. Ég skildi ekki alveg
samhengið hjá Karli. Hann gerði sjálfur
einn af betri samningum landsins við sína
kennara við svipaðar aðstæður. Ef hann hef-
ur þessa trú hefðu kennarar í hans sveitar-
félagi alveg eins átt að draga uppsagnir sín-
ar til baka þannig að hann er ekki sjálfum
sér samkvæmur.
Þótt einhveijir kennarar dragi uppsagnir
sínar til baka er borgin þegar búin að missa
marga hæfa einstaklinga. Þetta fólk segir
upp til að komast í betur Iaunuð störf. Ann-
að hvort kennslu annars staðar eða allt aðra
vinnu. Vandamálið snýst ekki um hópupp-
sagnir. Fólkið sættir sig ekki við sín kjör.“
- Vill KÍ aukinn sveigjanleika hjá sveit-
arfélögum til að gera sérsamninga við
kennara?
„Þau hafa allan þann sveigjanleika sem
þarf til að geta gert betur við sitt fólk en
kjarasamningar segja til um. Samningar eru
lágmarkskjör. Mér finnst svolítið skondið að
hugsa til þess að vinnuveitendur fetta alltaf
fingur út í sérkjarasamninga við kennara
þrátt fyrir að þessar aðferðir tíðkist alls stað-
ar í atvinnlífinu. Að öðru leyti höfum við
lýst því yfir að við erum tilbúin að mæta
sveitarféíögunum annað hvort sem einni
heild eða semja við hvert og eitt sveitarfé-
lag.“
- Einhverjir neikvæðir þættir hljóta þó
að fylgja þvt að framboð og eftirspum ráði
kjörum kennara. Að eitt sveitarfélag þurft
að greiða miklu hærri laun en annað?
„Það er alveg rétt að sú staða er ekki þægi-
leg. Það hefur loðað við okkur að fólk vill
hrúgast hér á suðvesturhornið og sveitarfé-
Iögin standa auðvitað frammi fyrir ákveðn-
um aðstöðumun. Rótin að þessum vanda er
hins vegar sú að árið 1996 vildu sveitarfé-
lögin ekki meiri peninga með grunnskólan-
um þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar frá okk-
ur og þar ber Karl Björnsson mikla ábyrgð
sem einn þáverandi forsvarsmanna sveitar-
félaganna í samningum um flutning tekju-
stofna. Við bentum þeim ítrekað á hvaða
ástand myndi skapast en maður talaði gjör-
samlega fyrir daufum eyrum.“
- Hefurþað verið rannsakað hvort fylgni
er milli launakjara kennara og árangurs
í kennslu?
„Nei, ekki svo ég viti. Hins vegar hafa sum
sveitarfélög ákveðið að gera betur við kenn-
ara en lágmarkssamningar segja um og þar
er fylgni milli kjaranna og hvernig gengur að
ráða fólk til starfa. Það er fylgni milli árang-
urs í skólastarfi og stöðugleika í starfs-
mannahaldi."
- Umhleypingar hafa neikvæð áhrif á
skólastarf?
„Þær gera það. Það versta sem hægt er að
lenda í eru stöðugar mannabreytingar."
- BÞ