Dagur - 16.07.1999, Síða 6

Dagur - 16.07.1999, Síða 6
6 - FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1999 V ... . .. .. ÞJÓÐMÁL Dmmr Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: ELÍAS snæland jónsson Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6100 OG soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: i.soo kr. á mánuði Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.ts Símar auglýsingadeildar: CREYKJAV(K)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRI)460-6191 G. Óntnr Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Slmbréf ritstjórnar: 460 6171cakureyri) 551 6270 (reykjav(K) Hættur í jarðgðngum í fyrsta lagi Dagur hefur að undanförnu vakið sérstaka athygli á þeirri miklu hættu sem er til staðar í jarðgöngum, þar sem notað er svokallað PE-einangrunareftii. Samkvæmt skýrslu sem stimpluð var sem leyndarmál innan norsku vegagerðarinnar, en dagblað þar í landi komst yfir, telja sérlræðingar að 250-300 jarðgöng í Noregi séu stórhættulegar brunagildrur vegna þessa efnis. Það er afar eld- fimt, brennur gífurlega hratt og við mjög hátt hitastig. Ef kvikn- ar í bifreið inni í göngum þar sem slíkt efni er notað til einangr- unar má búast við miklu báli með hörmulegum afleiðingum. í öðru lagi Athugun Dags Ieiddi í Ijós að þetta einangrunarefni er mikið not- að í Olafsíjarðargöngunum, en í minna mæli á Vestfjörðum og alls ekki í Hvalfjarðargöngunum - einmitt vegna eldhættunnar. Og þetta er svo sannarlega engin ímynduð hætta. Ýmsir sérfræð- ingar um eldvarnir hafa lýst alvöru málsins með afgerandi hætti í viðtölum við Dag. „Við erum mjög ósáttir við þetta og höfum miklar áhyggjur af málinu,“ segir slökkviliðsstjórinn í Olafsfírði. „Eg tel ástæðu til að hafa miklar áhyggjur af ástandinu í Olafs- fjarðargöngunum því þar er efnið algjörlega óvarið ólíkt því sem er í Vestfjarðagöngunum," segir kollegi hans á Isafírði. í þriðja lagi Brunamálastjóri sagði við Dag að hann hefði bent Vegagerðinni á þessa hættu, en hvorki yfirmenn þar né í samgönguráðuneyt- inu hafa talið ástæðu til að stöðva notkun þessa hættulega efnis eða láta verja það með steypu. Hvað þá að þessar opinberu stofn- anir hafi talið það skyldu sína að upplýsa vegfarendur, sem aka gegnum göngin, um þá auknu hættu sem því er samfara vegna þessa einangrunarefnis. Það hefur Dagur nú gert. Talsmenn byggðanna við göngin og forsvarsmenn bíleigenda hljóta að krelj- ast þess að þegar í stað verði gripið til nauðsynlegra úrbóta til að draga úr eldhættunni í Ólafsfjarðargöngum, sem reyndar virðast nú þegar þurfa mikla og dýra viðgerð af öðrum ástæðum. Elías Snæland Jónsson. BúkoUuheimt Einu sinni voru karl og kerling í koti sínu. Þau áttu sér einn son og svo hana Búkollu. Sonurinn flutti suður, seldi Búkollu og hellti sér út í pólitík. Hann vildi virkja Island, byggja stóriðju, bora í fjöll, auka hagvöxt og halda í stöðugleikann. Mjólk út í kafíiö Karl gekk nú af stað með nesti og nýja skó. Leitaði lengi að Búkollu en fann eigi. Endrum og sinnum kall- aði hann hátt: Baulaðu nú Búkolla mín ef þú heyrir til mín. Einn dag- inn heyrði hann í Búkollu sinni, rann á hljóðið og fann hana bundna á bás í Stjórnarráðinu. Þar skaffaði hún sérfræðingum mjólk út í kaffið og þótti duga vel. Mjólkaði Búkolla svo vel að þrátt fyrir aukna kaffidrykkju náðu stjórnarráðsmenn ekki að nýta alla mjólkina sem Búkolla gaf. Umframmjólkinni var hent. Karlinn beið færis og þegar ráðuneytismenn höfðu lokið símahálftímanum frá ellefu til hálftólf og brugðu sér aftur í kaffistofuna, greip hann tækið- færið, leysti Búkollu og hélt heim á Ieið. Taktu tíu milljarða Sóttist ferðin vel en innan skamms heyrði hann að ráðu- neytisrisinn var á eftir honum og dró mjög saman með þeim. Spurði karlinn þá í öngum sín- um: Hvað gerum við nú Búkolla mín? „Taktu tíu milljarða úr vasa mínum og leggðu þá á jörð- ina. Legg ég svo á og mæli svo um að úr þeim verði svo stórt miðlunarlón að enginn komist yfir nema fuglinn fljúgandi. Gerði hann svo og tafðist risinn um hríð. En vegna þurrka lækk- aði ört í miðlunarlóninu og komst hann þá Ieiðar sinnar. Oðru sinni var risinn alveg að ná þeim og spurði karl þá aftur: Hvað gerum við nú Búkolla mín? „Taktu tíu milljarða úr vasa mínum og leggðu þá á jörð- ina. Legg ég svo á og mæli svo um að úr þeim verði svo mikil stóriðja og svo svartur reykur að enginn komist þar um nema fuglinn fljúg- andi.“ Ekki Ieið þó á Iöngu áður en stóriðjan lenti í skerðingu ótryggðs raf- magns og fram- leiðsla stöðvað- ist. Reykurinn hvarf og risinn gat haldið eftir- förinni áfram. I þriðja skiptið sem risinn var alveg að ná karii og Búkollu fór allt á sömu leið. Þegar hann hafði lagt tíu milljarða á jörðina sagði Búkolla: „Legg ég svo á og mæli svo um að úr þeim verði svo stórt fjall að enginn komist þar um nema sá sem hefur lof- orð samgönguráðherrans um göng upp á vasann.“ Ætlaði risinn að bora en vildi þá ekki betur til en svo að bor- inn hafði verið fluttur f annað kjördæmi og hafin borun þar. Fjallið stóra varð að bíða, risinn komst ekki leiðar sinnar og karl hélt heim með Búkollu. Urðu fagnaðarfundir í kotinu. Karl og kerling vildu hokra áfram en fengu þá tölvupóst frá ráðuneyt- inu. Leyfi þeirra til að stunda búskap var afturkallað þar sem haughúsið við fjós Búkollu stóðst ekki nútímakröfur. Uti er ævintýri. — GARRl Skýrslum um þjóðarhag rignir yfir okkur og samanburður við önnur lönd sýnir hve vel við stöndum okkur á flestum eða öllum svið- um. Þjóðarhagir okkar eru alls staðar í meistaraflokki meðal rík- ustu og framsæknustu þjóða heims. Meira að segja hrjáðu og kúguðu konurnar búa í einhverju kvennavænsta þjóðfélagi heimskringlunnar - samkvæmt skýrslu. Hið allra nýjasta í niðurröðun ríkja er að Island rýkur upp listann um samkeppnishæfni ríkja og fær- ist æ nær augasteinum alþjóða- auðvaldsins, borgríkjunum Hong Kong og Singapúr, sem hafa aðdá- unarvert lag á að sjúga til sín Ijár- magn og lífsþrótt þjóða sem halda að verðmgetasköpun verði til með framleiðslu nauðsynja og verð- mæta en ekki á tölvuskjám spá- kaupmanna verðbréfamarkaðar og gjaldeyrisbraskara. Einn svartur blettur er samt á efnahagsundrinu hans Davíðs. Við geruni það gott ;amk væmt skýrslum Hann er sá að starfskrafturinn hér gefur minna af sér en vinnudýr flestra annarra innan UNICE, sem er óþarfi að greina nánar því heiti stofnunarinnar er álíka óskiljanlegt og skammstöfunin, en E-ið í restina þýðir Evrópa, eins og í öllum hinum upphafsstafa- stofhununum. Kröíur uin meiri ríldsað- stoð í þessu liggur skýringin á lágum launum og Iöng- um vinnutíma, segja spakir menn og sérfróðir um verðbréfamarkaði, sem vinna fyrir kaupinu sínu með því að veðja á rétta hesta í hrossa- prangi kauphallanna. Ekki stend- ur á skýringunum á því hvers vegna ekki er hægt að kreista meira út úr vinnandi fólki. Hér er nefnilega alls ófullnægjandi starfsumhverfi fyrir frumkvöðla. Hið opinbera gerir ekki nóg íyr- ir einkaframtakið. Það verður að borga vexti af lánum og skatta, sem eru glatað fé, nema auðvitað þegar launþegarnir eiga í hlut. Það er allt í lagi að rífa bróður- partinn af tekjum þeirra f opinberu hítina, sem aftur á að sýna fyrir- tækjum og frum- kvöðlum linkind og helst að gefa þeim peninga til fyrirtækjarekst- urs. Þar má nefnda frum- kvöðla bíógerðar, sem er einn helsti vaxtarbroddur- inn í atvinnulífinu. Netbrjálæðið Upplýsingaiðnaðurinn hér kvað vera ósköp veikburða, að því er segir í skýrslu og samkeppnis- hæfni hans því Iéleg, miðað við t.d. Bandaríkin þar sem kjafta- þættir og stjörnustríð gefa af sér milljarða á milljarða ofan. En sín alvörustríð heyja Kanar eftir göml- um og úreltum götukortum af helstu borgum Balkanskagans. En þau eru ekki færð til bókar í Wall Street. Lítt skilgreind hugbúnaðar- framleiðsla er sá vonarpeningur sem velmegun framtíðar á að byggja á. I skýrslu er dáðst að því hve greiðan aðgang íslendingar eiga að veraldarvef, sem verður í askana Iátinn. Enginn efast um þá djörfu sýn. En lítil setning, sem vert er að gefa gaum, rataði inn í viðskiptakálf Mogga í gær. Mar- geir Pétursson löggiltur verðbréfa- sali varar við „netbijálæðinu sem nú ræður ríkjum á bandarískum verðbréfamarkaði.“ En auðvitað tökum við þátt í þeim galskap eins og öðrum til að standa jafnfætis þeim ríkjum sem eru að gera það gott - samkvæmt skýrslum. gJ)9<4 . UCJ IIIUTG) Eiga íslendingarað heýja strax veiðar í Smugunni, þar sem dregist hefurað stað- festa samningimi við Noiúmenn ogRússa? Jóhann A. Jónsson framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafiiar. „Eg hef ekki trú á því að slík um- ræða hafi mikið uppá sig. Við munum hvern- ig, í sjávarút- vegsráðuneyt- inu, var tekið á upphafi Smuguveiðanna 1993, þar sem hugmyndir ráðuneytis- ins voru þá að stöðva veiðarnar með reglugerð og ég hræddur um að þannig yrði tekið á málun- um í dag, þar sem samið hefur verið - þó svo að Rússarnir eigi eftir að staðfesta samninginn. Þess ber og að geta að fiskveiði- árið í Barentshafinu er til ára- móta, en ekki 1. september, eins- og hjá okkur." Lúðvík Bergvinsson þitigmaónr Samfylkingar. „Þá samninga sem við höfum gert eigum við að virða, það er grundvallar- regla. En ef Rússar eru vís- vitandi að telj'a staðfestingu samninganna, til að koma í veg fyrir veiðar þar nú, á þessum besta veiðitíma ársins, þá er komin upp ný staða sem verður að skoða sérstaklega.“ Bjami Hafþór Helgason framkvæmdastj. Útvegsmannafélags Notónrlands. „Ég skil mjög vel útgerðarmenn sem eru búnir með kvóta sinn hér heima og eru tilbúnir að taka þá áhættu að fara þarna norður til veiða. Vænlegasti veiðitíminn í Smugunni er nú að fara í hönd, sem Iiggur mjög vel við lúkningu fiskveiðiárs hér. Hinsvegar treysti ég því að tafir Rússanna stafi ekki af því að þeir séu mótfallnir undirritun sam- komulagsins, heldur sé þetta seinagangur sem okkur finnst að sjálfsögðu erfitt að búa \dð. Afar mikilvægt er að íslensk stjórn- völd noti vel hverja mínútu þessa dagana til að leysa úr þessu máli.“ Kristinn H. Gunnarsson þingmaðnrFramsóknarflokks. „Það er vanda- samt. Fyrst menn eru að semja á annað borð þarf býsna mikið til þess að menn heíji veið- ar einhliða og því tel ég rétt að við förum samn- ingaleiðina enn um sinn. En eitthvað virðist ekki virka í Rúss- landi, sem kemur svo sem ekki á óvart. Enn bíðum við eftir undir- ritun þessara samninga." ÍJ3 Iíl>' I . 1 lorri

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.