Dagur - 05.08.1999, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR S. ÁGÚST 1999 - 3
FRÉTTIR
MeiriMuti hafnar
kröfu Guömuudar
Fríðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis, Halldór Blöndal, forsetl Alþingis og Guð-
jón Guðmundsson, varaforseti. Guðjón og Halldór voru sammála um að hafna
kröfu Guðmundar Árna I forsætisnefndinni I gær, en Friðriki var falið að skrifa
lögfræðilegt álit um stöðu ríkisendurskoðanda.
Á fundi forsætis-
nefndar Alþingis í
gær var þeirri kröfu
Guðmunar Áma Stef-
ánssonar að ríkisend-
urskoðandi taki ekki
sæti í ráðgjafanend
samgönguráðherra,
hafnað en samþykkt
að láta taka saman
lögfræðilegt álit á
iiiálimi sem þessu.
Eins og skýrt var frá í Degi krafð-
ist Guðmundur Arni Stefánsson,
1. varaforseti Alþingis, þess á
fundi forsætisnefndar þingsins í
gær að Sigurður Þórðarson ríkis-
endurskoðandi tæki ekki sæti í
nefnd samgönguráðherra sem á
að afla upplýsinga um álit sam-
keppnisráðs vegna kæru Tals á
GSM-þjónustu Landssímans.
Guðmundur Arni heldur því fram
að Sigurður Þórðarson sé van-
hæfur til að sitja í ráðgjafanefdnd
fyrir ráðherra en ríkisendurskoð-
andi heyrir undir forsætisnefnd
Alþingis og má engum öðrum
vera háður.
„Meirihluti forsætisnefndar-
innar Halldór Blöndal, forseti Al-
þingis, og varaforsetarnir, Guðjón
Guðmundsson og Isólfur Gylfi
Pálmason, hafnaði kröfunni en
Arni Steinar var ekki á fundinum.
Eg held því enn fram, þótt svo-
nahafi farið, að ríkisendurskoð-
andi sé vanhæfur til að sitja í
nefndinni,“ sagði Guðmundur
Árni.
Lögfræðilegt álit
Hann segir að samt hafi nokkuð
áunnist vegna þessarar kröfu
sinnar.
„Það var samþykkt að fela Frið-
rik Ólafssyni, skrifstofustjóra AI-
þingis, að taka saman lögfræði-
legt álitsgerð um það hvar og
hvenær eðlilegt sé eða óeðlilegt
að ríkisendurskoðandi taki sæti í
nefndum. Maður hlýtur að s])\xja
hvar menn ætli að draga strikið
varðandi ríkisendurskoðanda,"
sagði Guðmundur Árni.
Hann segist telja það óheilla-
þróun að ríkisendurskoðandi sé
að taka sæti í pólitískt skipuðum
ráðgjafanendum ráðherra. Hon-
um beri að vera engum háður í
störfum sínum. Hann verði hins
vegar háður ráðherra þegar hann
taki sæti í ráðgjafanefnd með
tveimur öðrum ráðgjöfum hans
samkvæmt skilgreiningu ráðherr-
ans.
„Það væri allt annar hlutur ef
ráðherrann hefði óskað eftir því
við Ríkisskoðun, sem stofnun, að
hún gerði sjálfstæða athugun á
þessu máli og þeim álitaefnum
sem þar er að finna. Hefði sú leið
verið farin hefði verið um allt
annan hlut að ræða,“ sagði Guð-
mundur Árni Stefánsson.
Eins og koms fram í Degi í gær
telur Sigurður Þórðarson ríkis-
endurskoðandi sig ekki vera van-
hæfan til þess að taka sæti í
Steypan
lýgur ekki
Víglundur Þor-
steinsson segir
meira að gera núna
en mörg undanfarin
ár.
Það hefur oft
verið sagt að
besti mæli-
kvarðinn á
þenslu sé
steypusalan.
Víglundur
Þorsteinsson,
forstjóri BM
Vallá, segir að
steypusala
gefi án efa
góða vísbend-
ingu um upp-
ganginn og
þensluna í
þjóðfélaginu. „Nú er meira að
gera en mörg undanfarin ár. Það
hefur verið töluverð aukning í
verkefnum á árunum 1998 og
1999. Botninum var hins vegar
náð árið 1995 en eftir það hefur
steypusalan verið að aukast,"
segir Víglundur. Víglundur gerir
ráð fyrir að væntanlega sé há-
markinu nú náð.
Tómas Runólfsson hjá Sem-
entsverksmiðjunni á Akranesi
tekur undir orð Víglundar og
álítur að tcppnum hafi verið náð
í sumar. Tómas segir að undan-
farið hafi gengið mjög vel í sem-
entssölunni og greinileg aukn-
ing hafi átt sér stað. Tómas tel-
ur að þenslan í þjóðfélaginu og
betri sementssala fylgist að enda
aukist sementssalan ekki nema
að framkvæmdum í þjóðfélaginu
fjölgi. - ÁÁ
i
1
\
Beðið imi gjald-
þrot Rauðsíðu
Dráttavextir og iun-
heimtukostuaður af
skuld sem hefur verið
greidd ástæða gjald-
þrotabeiðniunar, seg-
ir Ketill Helgason,
framkvæmdastj óri
Rauðsíðu
Sveinbjörn Sveinbjörnsson hdl.
hefur óskað eftir því hjá Héraðs-
dómi Vestljarða að Rauðsíða ehf.
verði tekin til gjaldþrotaskipta.
Það er fyrirtækið Barki ehf. í
Kópavogi sem fer fram á gjald-
þrotaskiptin vegna víxilskuldar
þriðja aðila sem Rauðsíða hafði
ábyrgst. Það vekur athygli að lög-
maður Barka ehf. í þessu máli er
líka lögmaður Sparisjóðs Bol-
ungarvíkur, sem hefur yfirtekið
eignir Rauða-hersins á Vestfjörð-
um.
„Eg þori ekkert að segja til um
hvort okkur tekst að komast hjá
gjaldþroti. Hins vegar hefur enn
ekki verið gert neitt árangurs-
laust Ijárnám hjá okkur og fyrr
en það hefur verið gert fer fyrir-
tækið ekki í gjaldþrotaskipti,"
sagði Ketill Helgason, fram-
kvæmdastjóri Rauðsíðu ehf. í
gær.
Nafnvirðið greitt
Hann segir að Rauði-herinn hafi
aldrei skipt neitt við Barka ehf.
Hins vegar hafi Rauði-herinn
samþykkt víxla til fyrirtækis, sem
þeir hafi keypt háþrýstitæki af,
og sá aðili notað þá víxla til að
greiða Barka ehf.
„Það á eftir að greiða einhvern
hluta af dráttarvöxtum og inn-
heimtukostnaði af þessum víxl-
um, en þeir voru upp á 2,5 millj-
ónir króna að nafnvirði og það
hefur allt verið greitt en eftir
standa fimm til sex hundruð
þúsund krónur, sem eru dráttar-
vextir,“ segir Ketill.
Til þess að geta farið fram á
gjaldþrotaskipti verður Barki
ehf. að greiða 150 þúsund krón-
ur til Héraðsdóms. Síðan þarf að
láta fara fram árangurslaust fjár-
nám og beiðni um það hefur
þegar verið lögð fram hjá sýslu-
manni Isaljarðarbæjar. - s.DÓR
Dópsali handtekiim
Lögreglan á Akureyri handtók
tvo menn á þriðjudagskvöld við
gámasvæði á athafnasvæði ÚA.
Þangað hugðist annar maðurinn
sækja 40 grömm af hassi og 10
grömm af amfetamíni sem hann
hafði falið þar um verslunar-
mannahelgina. Annar maðurinn
játaði að vera einn eigandi að
efninu en hefði fengið hinn til að
skutla sér og ná í efnin. Eigandi
efnanna viðurkenndi við yfir-
heyrslu að hafa komið með 80
grömm af hassi og 20 grömm af
amfetamíni í bæinn en lögreglan
handtók hann um helgina og
lagði hald á
eitthvað af
efnum auk
þess sem
maðurinn
hafði sjálfur
neytt ein-
hvers hluta
en selt eitt-
hvað. Maður-
inn hefur
nokkrum
sinnum áður komið við sögu
fíkniefnalögreglunnar. Bílstjór-
inn neitaði allri vitneskju um
fíkniefnin og er laus mála.
Tæplega Ijörutíu fíkniefnamál
komu upp á Akureyri um versl-
unarmannahelgina og um 60
manns kærðir. „Það sem vakti at-
hygli okkar var hvað þarna voru
margir stórir skammtar," segir
Daníel Snorrason rannskóknar-
fulltrúi. Af einum manni voru
tekin 11 grömm af kókaíni, 13
grömm af hassi og fjórar e-töflur.
Annar var með 10 grömm af am-
fetamíni og 1 5 grömm af hassi,
svo dæmi séu tekin. Sá fjöldi
mála sem upp kom um helgina
er álíka mikill og allt árið í fyrra.
- HI
Nýjar reglur iim vísíndaraimsóknir
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráð-
herra, hefur undirritað nýja reglugerð
um vísindarannsóknir á heilbrigðis-
sviði. Þegar hin nýja reglugerð tekur
gildi mun Ingileif Jónsdóttir, líffræð-
ingur, taka við formennsku í vísinda-
siðanefnd. Helstu breytingar sem fel-
ast í reglugerðinni eru að vísindasiða-
nefnd er falið eftirlit með framkvæmd
rannsókna, en samkvæmt eldri reglu-
gerð samþykkir nefndin einungis
rannsóknaáætlanir en fylgist ekld með
því hvort framkvæmd er í samræmi
við áætlanir. Þá er það nýtt að land-
læknir skal skipa óháðan fulltrúa í
siðanefndir stofnana. Eins er skipan
nefndarinnar breytt á þann veg að þrír nefndarmenn verða tilnefnd-
ir af menntamálaráðherra, dómsmálaráðherra og landlækni og tveir
af heilbrigðisráðherra án tilnefningar.
íslendingar rannsaka þióðarmorð
Þrír íslenskir sérfræðingar í kennslanernd/ID-nefnd embættis ríkis-
Iögreglustjóra hafa verið sendir til Kosovo og munu þeir vinna að því
að bera kennsl á einstaklinga út frá líkamsleifum þeirra og ákvarða
dánarorsök. Þessi vinna er á vegum stríðsglæpadómstólsins í Haag og
er þáttur í rannsókn á meintum stríðsglæpum í fyrrum Júgóslavíu.
Beiðnin um hina íslensku sérfræðinga kom frá Interpol. Töluverður
undirbúningur hefur farið í þessa för en m.a. hafa íslensku sérfræð-
ingarnir setið undirbúningsfundi í Brussel og Osló. -ÁÁ
Flugleiöir með heilsársbækling
Flugleioir hafa gefið út nýjan heilsársbækling þar sem áfangastaðir
og pakkaferðir fyrir komandi haust og vetur eru kynntar. I tilkynn-
ingu frá félaginu kemur m.a. fram að áhugi íslendinga á haust- og
vetrarferðum hafi aukist verulega á liðnum árum. Fjölgunin milli ár-
anna 1997 og 1999 nemi þannig 11 prósentum. Flugleiðir ætla að
mæta aukinni eftirspurn með því að auka ferðatíðni næsta vetur til
nokkurra áfangastaða og bæta við nýjum heilsársáfangastað, sem er
Paris. Sætaframboð í vetraráætluninni 1999-2000 til og frá Islandi
mun aukast um 9% miðað við síðustu vetraráætlun.
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis-
ráðherra
Á nuiíia'DÍ ufhjjÍHH i4 HM