Dagur - 01.09.1999, Blaðsíða 5
MIÐVIKVDAGUR 1 SEPTEMBER 1999 - 5
FRÉTTIR
Ekki í fyrsta skipti í
Vesturbyggd. Kaup-
skyldan íþyngjandi
íyrir mörg sveitarfé-
lög. Unnið að lausn
með skipan nefndar.
Hátt í helmingur allra íbúða í fé-
lagslega íbúðakerfinu í Vestur-
byggð hefur verið auglýstur á
nauðungaruppboði að kröfu
íbúðalánasjóðs. Alls eru um 80
félagslegar íbúðir í bæjarfélaginu
sem eru til útleigu. Jón Gunnar
Stefánsson, bæjarstjóri Vestur-
byggðar, segir að þetta sé ekki í
fyrsta skipti sem íbúðir sem þess-
ar í bænum séu auglýstar á upp-
boði. Hann segir að kaupskylda
sveitarfélagsins á þessum íbúðum
hafi íþyngt sveitarfélaginu mjög,
enda hafa forsendur fyrir bygg-
ingu þeirra á sínum tíma eins og
t.d. atvinna og íbúaþróun ekki
gengið eftir.
Nefnd í málið
Gunnar Bragi Sveinsson, aðstoð-
armaður félagsmálaráðherra, seg-
ir að verið sé að reyna að finna
lausn á þessum vanda sem félags-
lega íbúðakerfið hefur skapað í
mörgum sveitarfélögum. I þeirri
vinnu eiga ríki og sveitarfélög
m.a. eftir að semja um skiptingu á
niðurgreiðslunni á þeim áhvílandi
lánum sem séu á þessum íbúðum,
þ.e. mismuninum á lánunum og
markaðsverði íbúðanna. Hann
segir að sú vinna sé að fara af stað
og verið sé að tilnefna fulltrúa í
nefnd þar að lútandi. Hann segir
að helsta vandamál sveitarfélaga
vegna þessara félagslegu íbúða sé
m.a. að þau séu með íbúðir sem
kostuðu sitt með Iánum og öðru
þegar markaðsverð þeirra sé mun
lægra.
Byggðaröskim
Þórður Skúlason, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra sveitar-
félaga, segir að vandi sveitarfélaga
vegna félagslegra íbúða sé mjög
misjafn. Hinsvegar sé það gríðar-
Iega mikið mál fyrir þau sveitarfé-
lög sem hafa orðið að innleysa til
sín þessar íbúðir á grundvelli
kaupskyldu sveitarfélaganna.
Samkvæmt því verða sveitarfélög-
in að kaupa þessar íbúðir þegar
íbúar þeirra vilja selja. Síðan hafa
sveitarfélögin ekki getað selt þess-
ar íbúðir aftur og því hafa skuld-
irnar hlaðist upp. Hann segir að
þarna sé um að ræða mikla fjár-
muni hjá einstaka sveitarfélögum
og þá aðallega hjá þeim þar sem
byggðaröskunin hefur verið einna
mest. Með nýjum húsnæðislögum
hafa hinsvegar opnast möguleikar
á því að selja þessar íbúðir út úr
félagslega kerfinu. Þá verður hluti
áhvílandi lána afskrifaður. Það sé
þó samningsatriði við ríkið og sú
vinna sé að fara í gang. Aftur á
móti sé ekki líklegt að sveitarfé-
lögin láti allar þessar íbúðir í einu
út á markaðinn því það gæti leitt
til offramboðs á söluíbúðum með
tilheyrandi verðfalli á fasteignum.
- GRH
Frá undirbúningi sýningarinnar.
Sýningin hefst í dag og er stór-
glæsileg. - mynd: gva
Stórsýning
í Kópavogi
íslenska sjávarútvegssýningin
1999 verður sett í Smáranum í
Kópavogi í dag. Viðstaddir verða
forseti Islands, sjávarútvegsráð-
herra og utanríkisráðherra auk
fleiri góðra gesta. Sýningar-
svæðið er risastórt, eða um 13
þúsund fermetrar, enda er sýn-
ingin mun stærri að umfangi en
sú síðasta árið 1996. AIIs taka
850 aðilar þátt frá 35 löndum,
auk Islands. Sýnt er í íþrótta-
húsinu í Smáranum, tennishöll-
inni og skólanum auk þess sem
þrír skálar voru leigðir frá
Hollandi.
Nánar er sagt frá sýningunni á
bls. 19 í blaðinu í dag. Þess má
svo geta að Dagur verður með
sérstakt aukablað síðar í vik-
unni, tileinkað sýningunni.
Lundarskóli byrjar
á réttum tíma
Grunnskólarnir á Akureyri byrja
starfsemina í dag, 1. september,
sem og á öðrum stöðum lands-
ins. Fyrir aðeins hálfum mánuði
sfðan benti ekkert til þess að
hægt væri að hefja kennslu í
Lundarskóla á réttum tíma, þar
sem undirverktaki að viðbygg-
ingu við skólann hafði ekki skil-
að sínu verki, en um var að ræða
raflögn sem einnig tengdist eldri
hlutum skólans.
Þórunn Bergsdóttir, skólastjóri
Lundarskóla, segir að svo sann-
arlega hafi útlitið ekki verið bjart
en Gylfi Jónsson, starfsmaður
byggingadeildar Akureyrarbæjar,
hafi verið mjög áfram um að
tryggja að verkinu lyki á tilsett-
um tíma, og það hafi gengið eft-
ir.
„Við verðum að fresta því að
kenna eftir stundatöflu þar til á
mánudaginn en nemendur koma
hingað alla þessa daga,“ segir
Frá framkvæmdum við Lundarskóla á Akureyri.
Þórunn. Nýbyggingin er m.a.
tilkomin vegna þess að hér
fjölgar stöðugt, en nú verða í
fyrsta skipti nemendur hér í 9.
bekk. — GG
Hagsmunavigi
Keimarar ræða ávarp
Forseta íslands á Degi
símeimtimar.
Talið er líklegt að á næsta stjórn-
arfundi Kennarasambands Is-
Iands nk. föstudag verði fjallað
um ávarp forseta Islands, sem
hann flutti við setningu Dags sí-
menntunar um síðustu helgi. Er-
íkur Jónsson, formaður sam-
bandsins, vildi hinsvegar ekki tjá
sig um málið að svo stöddu.
Of bundin kjaramálum
I ávarpi sfnu sagði Olafur Ragn-
ar Grímsson m.a. að skólinn
„varð ekki aðeins hús og starfs-
Ólafur Ragnar Grímsson.
vettvangur í föstum skorðum
tíma og árstíða heldur einnig vel
girt vígi hagsmuna, réttinda og
kjara: ‘Mennfúriin ‘var sldlgtóti’d'-
sem einingarmæld afurð með
fastmótað upphaf og skýr enda-
Iok og oft hefur virst sem hags-
munir stofnana og starfsstétta
hafi ráðið þar meiru en inntakið
sjálft.“ Forsetinn lét ekki þar við
sitja heldur sagði einnig í ávarpi
sínu að á undanförnum árum og
jafnvel áratugum „hefur umræða
okkar Islendinga á vettvangi
skólamála og menntunar verið of
bundin við samninga um kaup
og kjör, um Iög og reglugerðir,
réttindi og kröfur, skipulag
stofnana og húsakost." Hann
sagði einnig að þótt allt þetta séu
nauðsynleg og þörf viðfangsefni,
þá mættu þau „hvorki byrgja
okkur sýn né læsa okkur í liðn-
úm t'ffnúffii" l;! ^•'giÚJ1'
Sjávarútvegsrisi að fæðast
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um samruna Isfélags Vest-
mannaeyja hf., Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum, Krossa-
ness hf. á Akureyri og Óslands ehf. á Höfn í Hornafirði. Gert er ráð
fyrir að ijallað verði um málið á stjórnarfundum félaganna á næstu
dögum, en miðað er við að fyrirtækin sameinist nú um mánaðamót-
in en vinnu við formlegan samruna ljúki um miðjan október. Þá verð-
ur til eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki iandsins, sem hefði yfir að
ráða 20 þúsund þorskígildistonnum, fjórum fiskimjölsverksmiðjum -
þar af þremur sem geta framleitt hágæðamjöl, öflugri saltfiskvinnslu,
bolfiskfrystingu í Vestmannaeyjum og þrettán fiskiskipum. Gert er
ráð fyrir að höfuðstöðvar nýja fyrirtækisins verði í Eyjum.
Bensínverð hækkar
Bensínverð hækkar á morgun hjá olíufélögunum um 5,30 kr. á lítr-
ann. Hækkunin er sögð tilkomin vegna erlendra verðhækkana á olíu,
en að sögn olíufélaganna hefur bensínverð á erlendum mörkuðum
hækkað um 112% frá áramótum en útsöluverð hér á landi um 25%.
Herma félögin að 60% hækkunarinnar renni í ríkissjóð og 40% til er-
lendra birgja. Hækkunin verður sú sama hjá öllum olíufélögunum
þremur og hækkar verð á 95 oktana bensíni í 87,70 kr. og lítrinn af
98 oktana fer í 92,40 kr. eftir hækkun. Verð á gasolíulítra hækkar um
1,60, eða í 31,30 kr. — SBS.
Halldór með Axworthy
Halldór Ásgrímsson og Lloyd Axworthy. - mynd: hílmar þór
Utanríkisráðherra Kanada, Lloyd Axworthy, var hér í stuttri opinberri
heimsókn í gær eftir ráðherrafundinn á Egilsstöðum. Halldór As-
grímsson utanríkisráðherra ræðir hér við hann niður við Reykjavíkur-
höfn. Axworthy hélt af landi brott síðdegis í gær. 1