Dagur - 04.09.1999, Page 2

Dagur - 04.09.1999, Page 2
2 - LAUGARDAGUR 4. SEPTEMRER 19 99 FRÉTTIR Hvers virði enibömin? Sveitarfélög verja firá þriðjimgi og upp í rúmaii helming af skatttekjum síiiiim í rekstrarkostnað verkefna í þágu bama og unglinga. Hornafjörður ver hærri hluta skatt- tekna sinna í rekstur verkefna í þágu barna og ungmenna að 18 ára aldri en nokkur annar bær, um 55% skatttekn- anna 1996. I Ölfushreppi og Reykja- nesbæ fór líka yfir helmingur skatt- anna í barnamálefni. Aftur á móti voru börnin áberandi „billegust" á Seltjarn- arnesi, sem varði bara 29% skattanna í börn og unglinga. Næst „ódýrustu" krakkarnir voru í Hafnarfirði og Grindavík, þar sem 35-36% skattanna nægðu. Að meðaltali vörðu rúmlega 30 sveit- arfélög, með fleiri en 1.000 íbúa, 42,4% skatteknanna til verkefna í þágu barna og unglinga 1996. Meðaltalið hafði þá hækkað um 1/6 frá árinu áður, sem einkum stafaði af tilfærslu verk- efna frá ríkinu vegna yfirtöku sveitarfé- laganna á rekstri grunnskólanna. Hvers virði eru bömin? „Hvers virði eru börnin?“ spurði Um- boðsmaður barna, sem aflaði hinna fróðlegu upplýsinga sem fram koma í ársskýrslu. Upphafið rekur hún raunar til 1995 er umboðsmaður sendi öllum sveitarfélögum áskorun um að þau fjölmörgu verkefni sem vörðuðu börn og ungmenni á verkefnalista þeirra yrðu látin njóta verulegs forgangs í gerð fjárhagsáætlana fyrir 1996. Ari síðar leitaði umboðsmaður liðsinnis Löggiltra endurskoðenda hf. til öflunar upplýsinga um hvað háu hlutfalli af heildarfjárveitingum hvert sveitarfélag hefði varið til umræddra verkefna 1995 og 1996. Hvað cr hvurs? I greinargerð þeirra segir að eitt sveit- arfélag, Vesturbyggð, hafi ekki svarað þrátt fyrir Ioforð og annað, ísafjarðar- bær neitaði að svara; borið við að- stöðuleysi til þess. „I samtölum við starfsmenn sveitarfélaganna kom skýrt fram að þeir töldu mikla erfiðleika við að sundurliða kostnað eftir aldri íbúa og lýstu ýmsir því yfir að ekki væri unnt að fá raunhæfar niðurstöður.'1 Endur- skoðendur segjast á ýmsan hátt geta tekið undir það, af ýmsum ástæðum sé erfitt að nálgast upplýsingar sem þess- ar úr bókhaldi sveitarsjóða. M.a. sé oft og tíðum erfitt að skilgreina hvaða út- gjöld nákvæmlega séu í þágu barna og unglinga og hver ekki. Frá 29 tH 55% skattanna Með þessum fyrirvörum unnu þeir upp úr svörum sveitarfélaganna töflu yfir það hlutfall af skatttekjum sem hvert sveitarfélaganna verði í rekstur í þágu barna og ungmenna. Hér að neðan er miðað við 1996: Auk þeirra 3ja sem vörðu meira en helming skattanna í börnin var hlut- fallið líka hátt (45-50%) í Stykkis- hólmi, Blönduósi, Borgarbyggð, Hveragerði, Dalvík og Akranesi. Með 43,5% var Reykjavíkurborg nokkru yfir meðaltalinu (af 12,7 millj- arða skatttekjum 1996 fóru t.d. sam- tals 5,6 milljarðar í fræðslumál og Dagvist barna og æskulýðs-, íþrótta- og tómstundastarf en börn eiga t.d. líka hlut í 1,6 milljörðum til félagsmála). Akureyri var heldur hærri en borgin, ásamt Snæfellsbæ, Sauðárkróki, Bessastaðahreppi, Olafsfirði og Egils- stöðum. En Selfoss, Mosfellsbær og Siglufjörður litlu neðan við meðaltalið. I gamla „barnabænum" Kópavogi eru börnin í ódýrari kantinum (39%). Önnur sveitarfélög á bilinu 35-40% voru Garðabær, Sandgerði, Neskaup- staður, Vestmannaeyjar, Bolungarvík, Húsavík, Garður og Eskifjörður, auk Hafnarljarðar og Grindavíkur sem fyrr er getið í pottinum heyrðist sú kenn ing og var höfð eftir Indriða G. Þorsteinssyni að Jón Ólafs- son væri í raun arftaki Sam- handsins í íslenskri þjóð- inálaumræðu. Sjálfstæðis- flokkurinn gæti ekki þrifist án þess að skammast í ein- hverjum sameiginlegum óvini og áratugum saman hafi það verið SÍS. Þegar svo SÍS hvarf sem stór- veldi gat Sjálfstæðisflokkurinn ekki á heilum sér tekið, því hann vantaði óvin. Ekki bætti úr skák að jámtjaldið féll líkal Nú hins vegar sé kominn inaður sem fylli í skarðið - bæði fyrir SÍS og rússneskan kommúnisma og er sá maður Jón Ólafsson... í pottinum ræða mcnn auð- vitað FBA málið fram og aft- ur og allir em sammála uin að vegur Jóns Ólafssonar í Skífunni hafi aldrei verið meiri en nú - sól hans aldrei skhiið skærar. Sá velgjörðar- maður sem hann getur þakk- að það er enginn annar en hans aðal óvinur, Davíð Oddssonl... Það er vinsælt hér á landi að skella nöfnum sjáv- ardýra á hagsmunahópa í íslensku efhahagslífi. Nægir þar að minna á Kolkrabbann, sem er til húsa í Sjálfstæðisflokknum, og Smokkfiskinn sem notað er um eftirhreytur gamla SÍS-veldis- ins. Pottverjar lesa það í nýjasta eintaki tíma- ritsins Frjálsrar verslunar að búið sé að finna sambærilegt heiti á Orca-hópinn sem keypti ríf- lega fjórðung í Fjárfestingarbankanum. Nafnið er: Marglyttan. Og tilefnið? Jú, marglyttan brennir sé við hana komið. Já, brennir jafiivel Jón Ólafsson. FRÉTTA VIÐTALIÐ Þóra Hjaltested deildarscifræðingurí vióskiptaráðimcytinu Lög urn alþjóðleg viðskiptafé- lög hafa verið ígildi hérsíðan 10. mars á þessu ári. Fyrsta starfsleyfið var svo gefið út á dögunum ogfleiri eru ífar- vatninu. Alþjóðleg viðsMptafélog að hefla hér starfsemi - Hver er helsti ávinningurinn með þessum lögum? „Alþjóðlegu viðskiptafélagi er einkum heimilt að stunda viðskipti við erlenda aðila utan íslands, eða hafa milligöngu um slík við- skipti, með vörur sem EES-samningurinn tekur ekki til og ekki eru upprunnar á Islandi. Fyrir þá starfsemi fyrirtækja sem falla að lög- unum geta þau verið þýðingarmikil, eins og t.d. fyrirtæki sem eru að flytja sjávarafurðir sem koma aldrei til landsins. Þau eiga mögu- Ieika á að vera með fyrirtæki staðsett hér á landi og borga 5% tekjuskatt í stað 30%, sleppa við eignaskatt og stimpilgjöld sömu- leiðis. Að sjálfsögðu er þetta ekki bundið við fyrirtæki í sjávarútvegi. Þetta fyrirtæki sem var fyrst til að fá starfsleyfi, Borealis, ætlar að leigja og framleigja flugvélar til erlendra aðila til flutnings utan íslenskrar lögsögu og kaupa vélar í þeim tilgangi." - Fyrirfram sáuð þið kannski frekar fyrir ykkur að sjávarútvegsfyrirtæki nýttu sér nýju lögin? „Já, það var upphaflega markmiðið með lögunum. Að fyrirtæki í sjávarútvegi, sem eru að kaupa fisk, t.d. Rússaíisk, hefðu þarna ákveðið tækifæri.11 - Liggja margar umsóknir fyrir hjá ykkur í ráðuneytinu? „Við erum með fjórar aðrar umsóknir sem starfsleyfisnefnd, undir formennsku Gunnars Jónssonar hæstaréttarlögmanns, er að vinna úr. Ég á von á að eitthvað af þeim umsóknum verði að starfsleyfum. Þar á meðal er fyrir- tæki í fiskviðskiptum." - Finniði fyrir miklum áhuga fyrirtækja? „Já, það er mikið hringt og margar fyrir- spumir hafa komið. Algengt er að lögfræðistof- ur og endurskoðendaskrifstofur hafi samband. Menn eru greinilega að velta möguleikunum fyrir sér sem eru nefnilega margvíslegir." - Þið ætlið að kotna upplýsingum ttm al- þjóðleg viðskiptafélög á heimastðu ráðuneyt- isins. Hvernig gengur sú vinna? „Hún er nokkuð langt komin. Það er verið að gera mikiar breytingar á heimasíðunni al- mennt og vonandi verða þessar upplýsingar tiltækar innan tíðar.“ - Gilda lög af þesstt tagi í nágrannaríkj- unutn? „Já, í mörgum-Evrópuríkjum og víðar eru lög .sem gefa. E'i ii tækjum svipað tækifæri. Hvert land hefur sitt sérkenni í þeim efnum.“ - Voru þið tneð ákveðttar fyrirmyndir t huga? „Við litum til dæmis til Irlands en lögin eru ekki algjörlega sniðin að þeirra löggjöf. Við litum til þess hvað aðrir voru að gera, hvað myndi henta okkar atvinnulífi og f hveiju við gætum náð langt. Þess vegna var hugað að sjávarútveginum þár sem við höfum sérstöðu og sérþekkingu upp á að bjóða. Þannig myndu erlendir aðilar fá bæði aðgang að skattahagræði og sérþekkingu starfsfólks í sjávarútveginum." - Hvað kostar það viðskiptafélög að fá svona starfsleyfi? „Þau greiða gjald vegna kostnaðar við út- gáfu starfsleyfisins, sem er 100 þúsund krón- ur. Síðan greiða þau árlegt eftirlitsgjald sem er sömuleiðis 100 þúsund krónur.“ - Þetta er þvt dálítill peningur? „Já, en á móti er verið að greiða mun minni tekjuskatt, engan eignaskatt og engin stimpil- gjöld. Annars held ég að þessar upphæðir vefjist ekki fyrir mönnum þegar verið er að velta kannski hundruðum milljóna króna."

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.