Dagur - 04.09.1999, Qupperneq 11
LAUGARDAGVR 4. SEPTEMBER 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
VEÐUR
L
Kjósendur hvattir
til að sitja heima
Búist er við dræmri
þátttöku í kosningun-
um í Kasmír á sunnu-
dag, en íbúar þar eru
orðnir langþreyttir á
ofbeldi.
Skæruliðar sem berjast fyrir
sjálfstæði Kasmír-héraðs hafa
hvatt íbúa héraðsins til að hunsa
kosningarnar þar á morgun, og
hótað þeim öllu illu sem mæta á
kjörstaði.
Kosningar verða haldnar á
sunnudag í tveimur kjördæmum
af sex í indverska hlutanum af
Kasmír. Þann 11. og 18. septem-
ber fara svo fram kosningar í hin-
um fjórum kjördæmunum.
Búist er við dræmri kosninga-
þátttöku á morgun vegna hótana
skæruliðanna, en íbúarnir eru
hvort eð er orðnir langþreyttir á
stríðsátökum og uppreisnum,
ásamt síendurteknum kosning-
um og kosningaloforðum sem
aldrei er staðið við.
Öryggissveitir indverska hers-
ins hafa verið áberandi í hérað-
inu undanfarið og reynt að koma
í veg fyrir hryðjuverk og önnur
ofbeldisverk. Stjórnmálamenn
hafa keppst við að hvetja íbúa til
að mæta á kjörstað og sagt þeim
að vinna bug á ótta við skærulið-
ana.
Svo virðist sem aðaláhugamál
íbúa héraðsins sé ekki deilur
Indlands og Pakistans um yfir-
ráðin þar, heldur frekar að þessi
átök skuli alltaf bitna á íbúun-
um.
Þúsundir manna eru í flótta-
mannabúðum í héraðinu, vegna
þess að heimili þeirra hafa eyði-
lagst f sprengjuárásum. Og
skæruliðarnir hafa einmitt notað
sér þetta ástand til þess að hvetja
fólk til að sitja heima og hunsa
kosningarnar, þar sem þær komi
fólki hvort eð er ekkert við.
Kosningaþátttaka hefur yfir-
leitt verið dræm í undanförnum
kosningum, eða nálægt 20 pró-
sent.
Indland og Pakistan hafa deilt
um yfirráð Kasmírs frá því 1947,
en árið 1989 hófst uppreisn
sjálfstæðissinna í héraðinu og frá
því þá hafa sprengjuárásir og
skotbardagar verið nánast dag-
legt brauð. Meira en 25.000
manns hafa látið lífið í þeim
átökum, og fullyrða Indverjar
jafnan að stjórnvöld í Pakistan
standi að baki uppreisnarmönn-
unum.
HEIMURINN
Nýja framkvæmdastjómin í prófl
EVROPUSAMBANDIÐ - Evrópuþingið hefur undanfarna daga ver-
ið að spyija væntanlega framkvæmdastjóra Evrópusambandsins út úr
til að ganga úr skugga um hvort þeir séu hæfir í embættið. Ný fram-
kvæmdastjórn undir forystu Romanos Prodis, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Italíu, tekur til starfa síðar í mánuðinum og var í gær talið
að þingið myndi fallast að mestu á mannskapinn sem Prodi hefur
valið í stjórnina. Atkvæðagreiðsla um nýju framkvæmdastjórnina fer
fram í Evrópuþinginu þann 15. september.
Þokast
nær sam-
komulagi
I gær var enn óvíst hvort af und-
irritun samkomulags Israels og
Palestínumanna yrði.
Israelsmenn fullyrtu að samn-
ingar væru svo gott sem komnir
í höfn og samkomulagið yrði að
öllum lfkindum undirritað í dag,
laugardag, en Jasser Arafat, leið-
togi Palestínumanna, dró þetta
til baka og sagði lítið sem ekkert
hafa þokast í samningaviðræð-
unum.
Búið var að semja um nánast
öll deilumál, nema 44 fanga
sem ísraelsmenn neita að láta
lausa vegna þess að þeir sitja í
fangelsi vegna pólitískra ofbeld-
isbrota.
Búið var að boða undirritun
samningsins í gær í Alexandríu í
Egyptalandi, og átti Madeleine
Albright, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, að vera við-
stödd.
Þess í stað átti hún viðræður
við ísraelska og palestínska ráða-
menn, og sagði hún þá fundi
hafa verið árangursríka.
Sífellt fleiri flýja Austur-Tímor
INDÓNESÍA - Sífellt fleiri flýja frá Austur-Tímor vegna ofbeldis af
hálfu andstæðinga sjálfstæðis. Að sögn Sameinuðu þjóðanna hafa
meira en 50.000 manns flúið heimili sín. Indónesíustjórn sendi tvær
nýjar herdeildir til Austur-Tímors til þess að reyna að hafa hemil á
óeirðamönnum, sem vilja fyrir hvern mun koma í veg fyrir að eyjar-
helmingurinn segi skilið við Indónesíu. I gær höfðu andstæðingar
sjálfstæðisins náð landamærunum milli Austur- og Vestur-Tímor á
sitt vald, en þeir eru með bækistöðvar vestan megin.
Clinton og frii kaupa viflu
BANDARÍKIN - Bill Clinton Bandaríkjaforseti og eiginkona hans,
Hillary, hafa fest kaup á 100 ára gamalli villu í einu úthverfa New
York-borgar, og mun húsið kosta um 120 milljónir króna. Þar ætla
þau að búa eftir að Clinton Iætur af embætti seint á næsta ári. Hill-
ary hefur sem kunnugt er verið að skoða vandlega þann möguleika
að bjóða sig fram til öldungadeildar í Nevv York-ríki, en til þess að
geta það verður hún að vera búsett í ríkipu.
1,4 tonn af kókaíni
iTALlA - Lögreglumenn frá Italíu og Austurríki lögðu nýverið hald á
1,4 tonn af kókaíni, eftir að Iögreglulið beggja landanna hafði unnið
saman að því að koma upp um alþjóðlegan eiturlyTjahring. Verð kóka-
ínsins er talið nema um 16 milljörðum íslenskra króna. Skýrt var frá
þessu á Italíu í gær, en níu manns voru handteknir í tengslum við
málið þann 23. ágúst síðastliðinn.
Engin málaferli vegna Díönu-slyssins
FRAKKLAND - Dómsyfirvöld í Frakklandi hafa ákveðið að ekki verði
efnt til réttarhalda vegna bílslyssins, sem varð Díönu Spencer og
Dodi al Fayed að bana fyrir tveimur árum. Þar með er rannsókn
málsins endanlega lokið. Áður hafði ríkissaksóknari í Frakldandi
komist að þeirri niðurstöðu að tíu blaðamenn og ljósmyndarar, sem
eltu bifreið prinsessunnar, verði ekki sóttir til saka.
Veðrið í dag...
Sunnan 8-13 og síðan suðvestan 10-15 m/s sunnan- og
austanlands, ennoróaustan 10-15 norðvestantil.
Rigning eða skúrir og hiti 5 til 15 stig,
hlýjast á Austfjörðum.
Blönduós
Fðs Lau So»
Þri Mið Rm
] j j v//
Reykjavík
Mið Fim
í r.fi-s^ri: í
Akureyrl
Fö* Lau Sun Mán Þri Mið Rm
^ /
,/*//■/ ss-fí í \
Kirkjubæjarklaustur
VEÐURSTOFA ___-
W íslands Veoursparit 03.09.1999
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður
með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s.
. k
Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegum
Helstu vegir um hálendið eru færir.
Þó vegir um hálendið séu sagðir færir er yfirleitt
átt við aó þeir séu færir jeppum og ljaHahilum.
Vegirnir um Kjöl, Kaldadal og í Landmannalaugar
frá Sigöldu eru þó færir öHum bHum.