Dagur - 18.09.1999, Page 2
I
18 - LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
HELGARPOTTURINN
f næstu viku verður frumsýnd ný íslensk bíó-
mynd gerð eftir sögu Halldórs Kiljans Lax-
ness um Ungfrúna góðu og húsið. Guðný
Halldórsdóttir dóttir skáldsins gerir
myndina. Myndin verður forsýnd í Ólafsvík á
sunnudaginn, þá verða nokkrir af þeim er-
lendu leikurum sem léku í myndinni við-
staddir. Það eru sænsku leikararnir Agneta
Ekmanner, Reiner Bin Olson og hinn
norska Björns Flobergs. Kvikmynda-
gerðarfólkið ætlar síðan í skoðunarferð um
landið og skemmta sér örlítið f vikunni, en ekki gafst mikill tími til þess
á tökutímanum.
Guðný Halldórsdóttir.
Og svo við höldum okkur áfram við kvikmynda-
bransann þá er ísraelski íslandsvinurinn Oded
Ferh sem lék með Ólafíu Hrönn Jónsdótt-
ur í ísuðum gellum nú orðinn stjarna í
Hollywood. Hann fer meðal annars með stórt
hlutverk í myndinni Múmían sem fer sigurför
um heiminn. Oded dvaldi um tíma hér á íslandi
fyrir tveimur árum, fór til Tálknafjarðar og kyn-
nti sér verbúðalíf og fleira. Eflaust nýtist sú
reynsla honum vel í Hollywood.
Úlafía Hrönn
Jónsdóttir.
Skúli Gautason.
Gömul lög og ný, spurningar um hvað er
leyfilegt og hvað ekki, ýmislegt sem eitt sinn
var bannað en telst í góðu lagi nú og öfugt.
Þetta verður þemað í skemmtidagskránni
„Það sem ekki má“ sem er í uppsiglingu í
Þjóðleikhúskjallaranum. Meðal þeirra sem
þar stíga á svið og leika og syngja eru
Skúli Gautason, Brynhildur Björns-
dóttir og Gunnar Sigurðsson sem telj-
ast til fjöllistahópsins H.E.Y.
f dag byrjar Popptíví með útsendingar sínar og af tilefni af því verða
mikil hátfðarhöld undir stjórn Jóns Jarls Þorgrímssonar fram-
kvæmdastjóra og félaga. Dagskránni verður fylgt úr hlaði með létt-
geggjuðum kokkteil og tilheyrandi hátíðarhöldum en um kvöldið
verður ektafín Popptíví-hátíð með íslenskum böndum. Þar stíga á
stokk bönd á borð við Buttercup, Skítamóral, SSSól og Dead Sea
Apple og að sjálfsögðu verður hátíðin tekin upp og sýnd síðar.
KK og Magnús Eiríksson verða
með sinn landsfræga Óbyggðablús í
Kaffileikhúsinu f kvöld og er það síð-
asti sénsinn á sumartónleikaferð
þeirra félaganna, Óbyggðirnar kalla.
Maggi og KK hafa fengið frábærar
undirtektir úti á landi og þvf er um
að gera fyrir höfuðborgarbúa að
skella sér í Kaffileikhúsið, það er
nefnilega alltof sjaldan sem þeir fé-
lagarnir spila fyrir fólk á suðvestur-
horninu. Svo er nú aldrei að vita nema þeir taki lag af nýja geisladisk-
inum en þeir hafa staðið í ströngu að undanförnu við að klára upp-
töku á honum.
Ekkj hefur enn frést hver verður næsti rit-
sijgþ Viðskiptablaðsins, en sem kunnugt er
heför Ari Edwald nú tekið við starfi fram-
kvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. At-
hygli vekur að í nýjasta tölublaði er enginn
titlaður ritstjóri, nema hvað Örn Valdi-
marsson framkvæmdastjóri blaðsins er
skrifaður sem ábyrgðarmaður. Óráðið er
enn í stöðuna og þykja margir þar vera kall-
aðir. ea e’kki nema einn útvaldur.
Magnús Eiríksson og KK
Ari Edwald.
Á Norðurlandi vestra vekur athygli fram-
takssemin hjá kvenfólkinu, en þar hefur til
að mynda kona nokkur tekið til við útgáfu
tískutímarits fjþrum sinnum og ári og sendir
15.000 eintök til kvenna sem valdar eru af
handahófi úr þjóðskránní. Það er Stella
Steingrfms á Hvammstanga sem stendur
að útgáfunni en hún ákvað að koma hug-
myndinni í framkvæmd eftir að hafa sótt
námskeið hjá Iðnþróunarfélagí Norðurlands
vestra og Iðntæknistofnunar. „Mér finnst
þetta snúast um skemmtilega tegund af markaðssetningu, að taka
svona fýrir eitt þerna," segir Stella. Hún er í blaðaútgáfunni í fullu starfi
auk þess aó sinna börnunum sínum tveimur, 6 og 14 ára.
Stella Steingríms.
Tofratívolí er fjörugt ævintýraleikrit með sönvgum og leikjum. Það fjallar um sannleikann, freistingarnar og baráttuna milli
góðs og ills.
Tívolí sem birtist
einu sinni á öld
Áhorfendur leikritsins Tofratívolí fá að verða þátttakendur í leiknum með því að
hjálpa til að finna átta svartar perlur sem stolið var fýrr á öldum. Tófratívolí verður
frumsýnt íTjarnarbíói á sunnudaginn kl. 17.00.
„Þetta er fjörugt ævintýraleikrit
með mörgum söngvum og leikjum
og Ijallar um sannleikann, freisting-
arnar og baráttuna milli góðs og
ills,“ segir Stefán Sturla Sigurjóns-
son, einn af aðstandendum sýning-
arinnar og hann heldur áfram: „I
leikritinu koma fyrir margir kynleg-
ir kvistir: Þorri þúsundþjalasmiður,
Jói byssa, austurlenskur guð, spá-
maður og Doktor önd. Svo má ekki
gleyma hinum ógurlega Prófessor
Vaxmanni sem á vaxbyssu og getur
gert fólk að vaxmyndum.11
- Hver er höfundur verksins?
„Hugmyndin er fengin frá bresk-
um rithöfundi sem heitir BernantJ '*'
Goss og Ieikgerð hafa unnið þáu í
Gunnar Sigurðsson, Skúli Gauta-
son og Brynhildur Björnsdóttir. Auk
þess hafa Skúli og Brynhildur
samið alla söngtexta, tínt til gömúl
lög og Skúli hefur samið kafla inn í
verkið.“ Þetta er Tívolísýning og
áhorfendur verða að aðstoða við
lausn sérstaks máls sem þarf að
upplýsa en þetta Tívolí birtist bara
einu sinni á öld.“
- En er þá heil öld þar til 2. sýn-
ing verður?
„Nei, nei, við ætlum að sýna
þetta reglulega næstu 20 árin,að
minnsta kosti."
- Hverjir eru „við s •■' ' ,í ' L
„Helstu prímusmótorar eru Skúlí
Gautason og Gimnar Sigurðsson,
ásamt JBrynKildi; > Björnsdóttur,<'
Ieikkonu. Skúíi"'hr Jandskunnur
máður, söiigt'ari TSniglabandinu og
sló í gegn með Einár Askel í fyrra.
' Hin tvö eru nýJega Jíomin frá námi
í London, Gun'nar sem reikstjóri og
Brynhildur setn söngkona og leik-
ari. Aðrir í hópnum éru ég og Aino
Freyja sem kom fyrst fram í Sýstr-
unum á Akureyri á síðasta ári.Tón-
listamaðurinn í hópnum er svo Ak-
ureyringurinn Níels Ragnarsson.
Og fyrst ég er farinn að tala um Ak-
ureyringinn, þá má geta þess að við
komum sitt úr hverri áttinni,
Gunnar Ieikstjóri er Tálknfirðingur,
Aina Freyja er hálf finnsk og sjálfur
er ég Skagfirðingur.“
- Ætlið þið þá ekki að flakka eitt-
hvaðjtún með sýninguna?
„Jú/ það^er . verið. að skipuleggja
hringferð einh'ýerhtfma á Ieikárinu
og þá vérður köiriið við á scm flest-
um stiiðum. Það er ekki búið að út-
:. £æra þá hugmjmd enri, en það verð-
ur gert myndariega. þvf. við.höfum
svo góða styrktaraðila sem erú Syáli
ogDjúsí."^
- Hverful löng er sýnirígirí? - V
„Einn oý hálfur túni sem er upjt,-
lagður'barnasýningartfmi. Þetfa'é.r
leikrit fyrir krakka á öllum aldri og
eins og öll g(Jð ævintýri endar áílít
vel en spurnihgin er hvort Töfra-
tívolíið var draumur eða'veruleiki?“
c;un.
Þeir sáu Ijósið!
Þeir eru reyndar tveir, menn vikunnar -
ungir ofurhugar sem hafa séð Ijósið! Það er
nýja tegund af Ijósi - Suðurljós! Að vísu
liggur ekki enn Ijóst fýrir opinberlega
hvaða aflgjafar eru á bak við þessi nýju Ijós
sem eiga að ógna Norðurljósum Jóns
Ólafssonar, en margir þykjast þar sjá glitta
í ýmsa tengda Kolkrabbanum sem eiga um
sárt að binda vegna hruns Stöðvar 3 um
árið. Svo er bara að sjá hvort Suðutijós
munu skína jafn skært og Norðurljósin!
i