Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 16

Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 16
32 - LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 'Dagpur Fluguveiðar að sumri (136) Ekki er allt gull sem glóir (Leitin að laxinum IV.hluti) Beðið eftir„tökustuðinu"íGrímsá. Grímsárveiðar héldu áfram þar sem lýsingu lauk í síðasta pistli. Við vorum þama tveir nýliðar við ána innan um spreng- lærða spekinga frá Ar- mönnum. Það var létt yfir hópnum og skemmti- legra en oft í veiðihúsum vegna þess að margar stanganna voru mannaðar veiðikonum, sem voru aflaklær ekkert sfður en karlarnir. Manni finnst oft eins og veiði- hús séu munkaklaustur sem skortir það léttlynda kæruleysi sem veiðandi kven- menn geta fært á staðinn. Fyrir hveija vakt sátum við um speking- ana til að fá heilræði sem aldrei varð mis- brestur á. Og það fannst mér gaman, því smátt og smátt röðuðust upp í hugskoti hinar og þessar kenningar og aðferðir við veiðar sem sumar gögnuðust vel en aðrar hreint alls ekki. Maður lifandi: hann átti það til að vera tregur. Og svo hittu sumir á skot og komu til baka með fangið fullt af plastpokum sem í voru laxar sem höfðu látið glepjast. Hollið stefndi óðfluga í fína útkomu. Fín útkoma þegar komið er yfir miðjan ágúst er svona 5-6 laxar á stöng á þremur dögum, sumir hafa oft gert betur, aðrir fengið að gleypa þá bitru pillu sem heitir „að fara fisklaus heim“. Nú sluppu allir við hana. Tregt og þó ekki Sem laxveiðiá er styrkur Grímsár stöðugt og gott vatnsrennsli og svo má nokkum veginn treysta því að maður er alltaf að kasta á fisk. En gjaldið á móti er að hann á til að vera óhuganlega tregur, miðað við fjölda. Við suma vinsæla veiðistaði er búið að koma fyrir hvítum bekkjum sem ég ímyndaði mér að væri fyrir þá sem kjósa að bíða eftir tökustuðinu og hvílast á meðan. „Svo koma skot“. Tvær aflaklær voru með okkur á svæði og spjölluðu þegar lítið gekk. Annar þeirra var með þá vinsælu kenningu að besta aðferðin gengi út á að vera að, vera að, vera að - þangað til hann gæfi sig loksins. Og kæmist í tökustuð. Veiðlánið fælist í að vera einmitt að kasta þegar fiskumn „kveikti". Þá gæti maður hitt á nokkra í röð. Galdurinn er því að vera alltaf að. Einn úr hópnum stytti sér leið að þessu marki: hitti beint á óskastundina. Hann kom óþreyttur að hvíldum streng, kastaði einu sinni og tók lax. Bætti svo við þremur á næstu 20 mínútum. Þá var komið að skiptingu. Hann ætluði þá að vísa hinum veiðimönnunum á þetta mikla tökustuð, en þeir höfðu þá gefist upp á tregfiskeríinu og farið í lautarferð! Sýnd veiði.... Einn úr hópnum fór í æfingu í þolinmæði: eftir að hafa staðsett Iax kastaði hann ótt og títt á sama punktinn án afláts, án þess að gefa tommu eftir, án þess að hika eða stoppa í 20 mínútur. Þá sprakk lónbúinn og glefsaði í fluguna. Spekingarnir sögðu að þessi eindregna vestanátt kæmi Iaxinum niður. Við skiptum í sökkvandi línur, eða þyngda tauma. Þannig tókst mér að ná einum upp úr verulega erfiðum hyl sem margir hafa gef- ist upp við. Við spáðum í hininhvolfið. Ég hef mikla vantrú á gráma, vil fá ský á hreyfingu og glennur á milli, sólstafi á hlíð- ar og snöggt á vatnið, svo skúr eða vind- hviður, breytilega takta frá náttúrunnar hendi. Þá held ég að fiskarnir komist í tökustuð. En best eru síðkvöldin. Enda kom það í ljós: tvær stangir tóku átta laxa í röð á tveimur klukkutímum undir lokin þann daginn, eftir tregfiskerí 10 tíma á undan. Hvílíkt íjör og glampar í augum og roði í kinnum! OddstaðafljótiÖ... ...er sjálfsagt ffægasti staður árinnar, sem nú varð gullmoli enn, eftir ævintýrið með mörgu löxunum. Smekkfullt af laxi. En síður en svo á því að gefa öllum. Menn fóru þangað annað hvort til að sækja gull, eða ekki neitt. Tökustuðið átti til að láta standa á sér. Jafnvel heiluvaktirnar. Við vorum samt eftirvæntingarfullir því okkar tími myndi koma undir lok næsta dags. I veiðihúsinu var spjallað og spáð í alla dynti fiskanna, en eitt efaðist enginn um: við væru lukkunnar pamfilar að eiga Odd- staðafljótið um kvöld. Eg var kominn með það á tilfinninguna að ég væri að bregðast félögum mínum alvarlega ef ég kæmi ekki með drekkhlaðinn bfl til baka. Svo sam- glöddust þeir okkur. Fyrirfram. Stóra stundin Svona eftirvænting getur verið góð upp að vissu marki. En getur snúist í alvarlegt spennufall og agalegt skúffelsi ef manns eigin góði sálfræðingur er ekki í för. Svo við vorum með okkur sjálfa í markvissri sálgreiningu fram eftir deginum stóra. Veiddum neðri staðinn á svæðinu vel og prúðmannlega. Fylgdumst með því að á hinum helga stað, þar sem félagar voru að verki, virtist ekki mikið að gerast. Speking- ar og ævintýraveiðimenn ráðlögðu okkur að fara ekki beint að gnægtarbrunninum þegar okkar tími kæmi. Við skyldum hvíla staðinn í einn og hálfan tíma af þeim þremur sem okkur væri ætlaður, þvf þannig yrði veislan þeim mun stórfenglegri þegar við hæfumst loks handa. Þetta var heilla- ráð, vegna þess að meðan við hvíldum gullæðina fórum við í almenning og ég tók Iax þar sem enginn vildi veiða. Við vorum því heitir og Shangri La okkar laxveiði- drauma reiðubúið þegar við mættum á bakkan eífa, og byijað að rökkva! Við ákváðum að taka stuttan tíma hvor, skiptast ört á, reyna margt og ólíkar aðferð- ir þangað til við finndum út hvernig „töku- stuði“ hann væri í. Og allt hrökk í gang eins og íyrir var Iagt: í þriðja kasti fann ég tekið varíega í, og svo var flugan föst. Eg lyfti höndinni og veifaði sigri hrósandi í fé- Iagann: „tökustuðið11 var byijað! Um leið fór laxinn af. Næstu tæpa eina og hálfa ldukkustund urðum við ekki varir. Svo fékk ég högg. Félaginn fékk annað högg og setti í einn sem fór af. Þá var dagurinn búinn og gullið glóði ekki lengur. Nema á gylltu Francisflugunni sem einn í hópnum notaði morguninn eftir til að særa upp nokkra fína fiska. Þá gátum við farið að spá í það gullið. FLUGUR Stelán Jón Hafsteín skrifar Krossgáta nr. 154 Lausn ................. Nafn................... Heimilisfang Póstnúmer og staður Helgarkrossgáta 154 I krossgátunni er gerður greinarmunur á grönnum og breiðum sérhljóðum. Lausnarorð sendist til Dags (Helgarkrossgáta nr. 154), Strandgötu 31, 600 Akureyri, eða með símbréfi í númer 460- 6171. Lausnarorð 152 var „reglustika". Vinningshafi er Haildór Ólafur, Hlíðar- vegi 19, Kópavogi og fær bókina „Öll erum við menn“ eftir Helgu Hall- dórsdóttur frá Dagverðará. Skuggsjá gefur út. Verðlaun: Svip- myndir úr réttar- sögu, eftir Pál Sigurðsson. Skjaldborg gefur út.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.