Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 12
/
28 - LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
Eftirréttir úr bláberjum
Nú er tími bláberjanna. Hér eru nokkrar uppskriftir af
gómsætum eftirréttum og kökum til að gæða sér á.
Bláberjajógúrtís
250 g bláber, fersk eða frosin
1 appelsína
6 msk. appelsínusafi
6-8 myntulauf (fersk)
4 msk. púðursykur
2 eggjarauður
2 jógúrt, án bragðefna
2 eggjahvítur
Aðferð:
Takið nokkur falleg bláber og
myntulauf frá til skrauts. Setjið
afganginn af þeim, ásamt appel-
sínuberki, púðursykri og eggja
rauðum og jógúrt í matvinnslu-
vél. Maukið þar til allt er
mjúkt. Setjið í plastbox og
frystið í 1 klst. þar til blandan
er hálffrosin. Stífþeytið eggja-
hvíturnar, blandið saman við
og setjið í frysti aftur í a.m.k. 1
klst. Skammtið í ábætisglös og
skreytið með berjum og myntu-
laufum.
Hæsta ávöxtun innlendra verðbréfasjóða
• Sjóður 6 er sá verðbréfasjóður sem skilað hefur hæstu
ávöxtun frá upphafi (stofnaður árið 1991).
• Ávöxtun sjóðsins fylgir ávöxtun hlutabréfa á Verðbréfa-
þingi íslands.
• Sjóður 6 er fyrir þá sem eiga sparifé fyrir, eru tilbúnir að
taka nokkra áhættu með hluta þess og horfa til lengri
tima í von um háa ávöxtun.
Hefur þú áhuga? Komdu viðí dag!
Ávöxtun í fortíð er ekki vísbending um ávöxtun í framtíð.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. f
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 8900. ‘
Myndsendir: 560-8910.Veffang: www.vib.is
Vilborg Lofts aðstoðarframkvæmdastjóri VÍB
________Svörtfegurð_________
I bolli vanillujógúrt
'A bolli vínberjasaft (Grape Berry)
1 'Á bolli bláber, frosin
1 bolli brómber (Blackberryes)
Allt sett í matvinnsluvél og
hrært. Borið fram ískalt.
Kotasæluterta með bláberj-
rnn og ferskjmn
Botn:
120 g musli
120 g gráfíkjur
Fylling:
1 1 léttmjólk
6 msk. sykur
_____________1 egg
500 g kotasæla
250 g bláber
Skraut:
3 msk. bláber
3 ferskjur
Gráfíkjur og múslí er sett í mat-
vinnsluvél og hakkað vel saman.
Þjappað í smelluform. Þá er kota-
sælu, eggi, mjólk og sykri blandað
saman í skál á meðan matarlímið
er sett í bleyti í köldu vatni. Það
er svo leyst upp í 4 tsk. af sjóð-
andi vatni. Þá er blábeijum hrært
varlega út í og svo er matarlíminu
hellt varlega ofan í skálina og
hrært vel á meðan. Blöndunni er
því næst hellt ofan á botninn í
smelluforminu. Þetta er kælt í
a.m.k. 2 klst. Loks eru ferskjurnar
skomar í þunnar sneiðar, skreytt
með þeim og bláber sett á miðj-
una.
Roloterta
Marengs:
2-3 bollar Rice Krispies
2 dl. sykur
1 dl. púðursykur
4 eggjahvítur
Fylling:
5 dl. ijómi
__________170gbláber __________
250 g fersk jarðarber
Rolo-krem:
2 Rolo pakkar
50 g suðusúkkulaði
smá ijómi til þynningar
Aðferð:
Eggjabvítur, púðursykur og syk-
ur er þeytt þar til orðið er stíft.
Rice Krispies er mokað á pappír-
inn þar til ekki kemst meira í
hann svo blautt sé. Hrært varlega
saman með sleif eða sleikju. Bún-
ir til 2 hringir á smörpappír, ca
22-23 cm í þvermál og pappírinn
Iagður á bökunarplötur.
Deginu skipt í tvennt og breitt
út í sitt hvom hringinn þó ekki al-
veg út að strikunum. Bakað í 130
gr. heitum ofni í ca 50-60 mínút-
ur. Látið kólna.
Rjóminn þeyttur, jarðarber og
bláber skorin niður. Blandað sam-
an og sett á milli botnanna þegar
þeir eru orðnir vel kaldir.
Suðusúkkulaði brytjað niður og
brætt í vatnsbaði ásamt Roloinu.
Hrært saman og þynnt með örlitl-
um rjóma. Hellt yfir marengSinn
og látið leka niður með hliðun-
um. Stífnar mjög fljótt.
Ein af þeim kökum sem klárast
alltaf strax!
Bláberjatriffll
12 makkarónukökur
/ bolli portvín eða ávaxtasafi
400 g bláber
'á bolli sykur
Krem:
2 eggjarauður
1-2 msk. sykur
1 tesk. vanilludropar
1 peli ijómi
Skraut:
1 dl. ijómi
nokkrar kattartungur
bláber
Aðferðin:
Makkarónukökurnar eru muld-
ar í stóra skál, púrtvíninu eða
safanum hellt yfir. Bláberin sett í
Iag þar ofan á og sykri stráð yfir.
Eggjarauður, sykur og vanilla
þeytt saman þar til orðið er létt og
ljóst. Rjóminn stífþeyttur og
blandað saman við.
Kremið sett ofan á bláberin í
skálinni, skreytt með ijóma, katt-
artungum og beijum.
Rúlluterta
með blábeijum
3 egg
Göfigtim hreint tli verks
Burstar
Hjá Blindravinnustofunni færöu mikið úrval ræstiáhalda,
hvort sem er fyrir skóla, fyrirtæki eða heimilið.
Leyfðu okkur að aðstoða þig við að fegra umhverfið.
DIT og FILMOP
raestivagnar í miklu úrvali.
Umhverfisvænir
klútarog moppur.
Moppusett,
ýmsar stærðir.
i morgum
stærðum
og gerðum.
Ruslafötur,
ýmsar stærðir og gerðir.
125 g sykur
1 msk. vatn
50 g hveiti
50 g kartöflumjöl
1 tesk. lyftiduft
Fylling:
3 dl. sulta af einhveiju tagi
Skraut:
rjómi
bláber
Aðferðin:
Eggin og sykurinn þeytt létt og
ljóst, Þynnt með vatninu. Þurr-
efnunum blandað saman og þau
hrærð varlega út í. Bökunarpapp-
ír settur á plötu, degið breitt út á
hann og bakað við 200 gr. þar til
orðið er fallega gulbrúnt. Hvolft á
hreint viskustykki. Sultan breidd
yfir og kökunni rúllað upp. Kæld.
Skorin niður í sneiðar, rjóma
sprautað á hverja sneið og skreytt
með blábeijum.