Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 8
 24 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 V%gur Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra vill efla atvinnu á landsbyggðinni með lækkun skatta þar. Hann segir raf- magn hafa verið leitt í Ijótum línum um sitt kjördæmi svo fólk á Suðvesturhorninu hefði atvinnu. Nú verði að huga að sjónarmiðum Austfirðinga. „Sauðfjárræktin, seigasti hlekkurinn í byggðakeðjunni, stendur of veikt og þar hefur ekki orðið sambærileg þróun og í mjóikinni. Vonandi getur nýr samningur við sauðfjárbændur orðið til að styrkja búgreinina, auðvelda þróun og gera bændum kleift að nýta aðra möguleika til tekjuöflunar, “ segir Guðni Ágústsson iandbúnaðarráðherra meðal annars hér í viðtalinu. nn eoa v Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar - Nýlega sagðir þú að róðherrar ættu yftrleitt góðar stundir fyrstu 100 dagana í rúðu- neyium en stðan tæki alvara Itfsins við. Hver telur þú að séu stærstu verhefnin sem btða þtn ú sviði landbúnaðarmúla á kjörtímabil- inu þegar hveitibrauðsdögunum sleppir? „Þau verkefni eru stór og marg- vísleg. Eg Iít á það sem mitt hlut- verk að styrkja Iandbúnaðinn sem heild og örva atvinnulíf til sveita. Hefðbundnu búgreinamar ráða auðvitað mestu um hvemig Iand- ið byggist og þær þurfa nýjan styrk. Hagræðingarkrafa síðustu ára í mjólkurframleiðslunni hefur reynst mörgum erfið. Það að gefa eftir 20% af tekjum sínum tekur á. Sauðijárræktin, seigasti hlekkurinn í byggðakeðjunni, stendur of veikt. Vonandi getur nýr samningur við sauðfjárbænd- ur orðið til að styrkja búgreinina.“ - Góðærið sem landsmenn hafa búið við hefur ekki náð til bænda- stéttarinnar og hún er orðin ein tekjulægsta stétt landsins, hvemig hyggst þú bæta hennar hag? „Mér er falið það í stjórnarsátt- mála nkisstjórnarinnar að Ieita leiða til að bæta kjör bænda. Það er ekkert einfalt. Það sem einum dugar vel gagnast ekki öðrum og bændur verða að gæta þess að þeir eru sjálfir ábyrgir fyrir sínum rekstri. Ég hef beint sjónum að útflutningsmálum landbúnaðar- ins og vil kanna hvort við getum ekki með einhveijum hætti náð mörkuðum sem skila góðu verði þannig að bóndinn hafi laun fyrir það sem hann er að flytja út. Eg trúi ekki öðru en að við finnum þó ekki séu nema hundrað þúsund manns ein- hversstaðar í veröldinni sem vill borða íslenskar afurðir hreinleik- ans vegna. Og reyndar er það svo að á þessum tímapunkti þá er heimsbyggðin dálítið að nsa upp og hafna verksmiðjubúunum og meðferðinni á skepnunum þar og einnig menguðum matvælum framleiddum með hormónum. Þannig að margt náttúrusinnað fólk horfir til hins hreina land- búnaðar. Þar erum við í fremstu röð. Ég tel þó óframkvæmanlegt að gera allt Island lífrænt. Þá hækk- ar matarverð og við minnkum möguleika okkar í samkeppni. Þeir sem rækta lífrænt eru að vinna frábært starf en þeir geta aldrei orðið nema lítill trúarsöfri- uður eða Iítill góður stjómmála- flokkur, sem með prédikun sinni hefur mikil áhrif hér og í allri ver- öldinni. Ég tel að við eigum meiri markaðsmöguleika undir ein- hveiju frábæru vörumerki gæða og hreinleika sem íslenskur land- búnaður getur fallið undir.“ Þrælakistur - Er ekki leitun að ungufólki setn sest að t sveitum landsins nú til dags? „Nei, ég hef orðið þess var á mínum stutta ferli í ráðherraemb- ætti að sé ríkisjörð auglýst, þá sækja um hana 15-30 manns, oft á tíðum ungar fjölskyldur sem eiga þá lífshugsjón að búa úti í sveit. Og þrátt fyrir þá kreppu sem Iandbúnaðurinn hefur geng- ið í gegnum síðari ár, verð ég var við mjög dugandi unga kynslóð sem ætlar að bera landbúnaðinn til sigurs. Hins vegar fær unga fólkið sem nú er að byggja upp sveitirnar ekkert annað en verðtryggð lán og

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.