Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 18

Dagur - 18.09.1999, Blaðsíða 18
_ f ps. fi- .MTV'W. . .xrsNnsÞ.í'.v\ 34 - LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 '“x* * S»C*k oC'l Ðwpu- ÍAiiro Dnitfrt < 3 colours red. Búið spil. ÞRIÐJI KAFLI Hið svokallaða Brit-pop með sveitir á borð við Oasis og Blur fremstar í flokki hefur, allavega á síðum bresku popppressunnar, sungið sitt síðasta. Þó er það nú samt þannig, að þessar tvær sveitir sem og margar fleiri er tengdar voru fyrirbærinu, lifa enn góðu lífi og rúmlega það. Eru Oasis og Blur t.a.m. ennþá tvær af stærstu sveitunum al- mennt í rokklífi Bretlands ásamt t.d. Radiohead o.fl. Svo eru fleiri sveitir sem líka hafa lifað vel af „Brit-popstimpilinn“ og hafa sífelt sótt í sig veðrið. Þannig er það einmitt með pilt- ana í Supergrass, Gaz og kump- ána hans, sem hafa hingað til aukið vægi sitt jafnt og þétt. Komu þeir inn í „bransann" með látum áriðl995 með íyrstu plöt- unni sinni, I should coco og þóttu svo stíga skrefíð vel fram á við með annarri plötunni, In it for the money, tveimur árum síðar. Nú er svo ný plata, ónefnd eða bara kölluð Supergrass að öllum Iíkindum, að koma út. Er mikils vænst af þessum þriðja kafla í sögu Supergrass, að plat- an verði áframhald velgengninn- ar. Movie er nýtt smáskífulag af henni og lofar bara nokkuð góðu. Poppfregnir • Eftir tvær góðar plötur og töluverðar vinsældir í kjölfar þeirra, hefur rokksveitin ágæta og breska, 3 colours red lagt upp laupana. Var reyndar löngu fyrr búið að spá því að hún yrði ekki lang- líf vegna ýmissa erfiðleika, m.a. heldur mikils skemmt- analífs meðlimanna, Pete Vu- kovic og félaga, en þeir héldu út að koma annari plötunni frá sér, en nú er sagan öll. • Litle Steven, sem ffægastur varð reyndar sem upptöku- stjóri og meðlimur í E-street- bandinu hans Bruce Springsteen á upphafsárum þess, er nú að senda frá sér nýja plötu, Born again savage. Er hún sú fimmta í röðinni af plötum þar sem kappínn fjall- ar um svipað efni á nokkuð róttækan hátt. Kemur platan allavega fyrst bara út á net- inu, en sú leið í útgáfu gerist nú algengari á tækni og tölvu- öld. • Hinir hörðu og hápólitisku fönkrokkarar í Rage against the machine, sem hómsóttu okkur Islendinga sællar minningar í upphafi þessa áratugar, eru nú tilbúnir með nýja plötu er koma á út 2. nóvember. Nafn hennar er hins vegar ekki á hreinu enn. • D'Arcy, bassaleikari Smashing pumpldns og stofnadi sveitar- innar ásamt söngvaranum Billy Corgan, hefur gefíst upp á alræðiseldi söngvarans í sveitinni að sögn og er hætt. Hefur spúsan að sögn látið það meir og meir fara í taug- amar á sér hversu valdamikill Billy er og nú er semsagt mælirinn fullur. • Á MTV verðlaunahátíðinni fyxir rúmri viku var mikið um dýrðir eins og gengur og stjörnuskinið ríkt. Þær skinu þó misbjart eins og gengur. Lauryn Hill úr Fugees hefur átt mikilli velgengni að fagna og er margverðlaunuð. Hún fékk ein fern verðlaun nú, en m.þ. sem fóru vel hlaðnir heim voru Fat boy Slim eða Norman Cook eins og hann- heitir víst og Madonna kerl- ingin, sem baéði hlutu þrenn verðlaun. ,_________________!______________> FRÆGÐARFÖR ■ ■ ■ juU.'tí |:l» ■ ■ ■L iMÆXí v-'e-' ilm m ' JHH& ■ H I 8 jlil J | Ij! : ■ . : p m ■ : '' ' 1.Í ■ j|||| Jfjfj ■ 1 WmSSM ■■ Hb llll Hljómsveitirnar Gyllinæð og Alsæla trylltu grænlenskan unglýð Eins og skýrt var frá hér á síð- unni fyrr í sumar var fyrirhuguð mikil rokkhátíð á vesturhluta Grænlands m.a. með þáttöku ís- lenskra hljómsveita. Fór Nipia Rock festival, eins og hún nefndist fram dagana 26-29 ágúst og áttu íslensku sveitirnar Gyllinæð og Alsæla að koma þar fram fyrir Islands hönd. Svo fór hins vegar, að þær náðu aldrei lengra en á austurströndina, til Kulusuk þvf ekki reyndist flug- fært yfir til Nuuk þangað sem ferðinni var heitið. í staðinn bauðst sveitunum m.a. vegna orðstírs Alsælu, sem notið hefur vinsælda á Grænlandi með Þorraþrælnum margfræga, að halda tónleika í eigi færri en þremur þorpum nálægt Kulusuk. Varð veðurathugunar- staðurinn Ammassalik fyrir val- inu, þar sem hreinlega allt varð vitlaust. Af rúmlega eitt þúsund íbúum á svæðinu mættu um fjögur hundruð á magnaða tón- leika, sem í ofanálag urðu ansi sögulegir. Markaðist það m.a. af því, að Gústi söngvari Gyllinæð- ar framdi frumlegan „gjörning" í formi ælu vegna etinnar pitsu (sem hann hafði sporðrennt frosinni). Hreinsaði svo kappinn kverkarnar með því að spreyja upp í sig kveikjaragasi sem hann svo spúði á Daníel bassaleikara. Kviknaði þannig í bassanum hans sem hann svo slökkti í með því að beija honum látlaust í sviðið. Maggi trommari kórónaði svo verknaðinn með því að velta um trommusettinu og henda kjuðunum út í sal. Eins og menn geta ímyndað sér urðu strákarnir nokkuð lemstraðir af þessum „töffaraskap" en tón- leikagestir létu það ekkert á sig fá heldur fögnuðu ógurlega. Við- tökurnar voru ekki síður góðar við Alsælu og sungu gestirnar hástöfum með f Þorraþrælnum. I kjölfar tónleikanna voru svo sveitarmeðlimir meira og minna eltir af þessum nýju aðdáendum sínum og höfðu meðal annarra skemmtilegra verka í nógu að snúast við að gefa eiginhandará- ritanir. Kann þessi frægðarför að þýða að framhald verði síðar meir á slíkum ferðum til Græn- lands, allavega hafa sveitirnar sjálfar fullan hug á að koma aft- ur. Meðfylgjandi myndir eru frá ferðinni og sýna m.a. frá tón- leikunum, gítarinn ofangreindi og grænlenskan æskulýð sem hópaðist saman til að biðja um áritanir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.